Morgunblaðið - 23.08.1996, Page 2

Morgunblaðið - 23.08.1996, Page 2
I B FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1996 MORGUNESLAÐIÐ DAGLEGT LIF FREUD 64 ára gamall árið 1920. Mistök Dulin merking mismæla og gleymsku ___Mismæli eru ekki alltaf tilviljun,_ Duldar ástæður geta legið að baki. Gunnar Hersveinn rekur hér sögur af mistökum eftir Sigmund Freud og á samtal við Sigurjón Bjömsson. Þrír ungir menn reka sitt eigið fyrirtæki heima í herbergi eins þeirra Morgunblaðið/Þorkell LENGST til vinstri er Þórður Einarsson, í miðjunni situr Guð- mundur Rúnar Kristjánsson og þá Bjarki Rafn Guðmundsson. GLEYMSKA er ekki aðeins lífeðl- isleg. Hún er líka sálræn og í ljós hefur komið að flestir gleyma því sem þeim finnst leiðinlegt, skammast sín fyrir eða vilja ekki rifja upp. Það er til dæmis til saga um þýskan efnafræðing sem gleymdi að fara í hjónavígsluna sína og fór þess í stað á tilrauna- stofuna sína. Sigmund Freud benti á í bók sinni Inngangsfyrírlestrar um sál- könnun (1915), Hið íslenska bók- menntafélag (1995), að ýmiskonar mistök eins og mismæli, misritun, mislestur, afhafnaruglingur, gleymska og að misleggja hluti, geti átt sér sálrænar ástæður sem vert er að grafa upp á yfirborðið. Freud safnaði dæmum um mis- tök úr daglega lífinu og komst að því að oft er mesta hættan á mis- tökum þegar lagt er sérstakt kapp á að gera rétt. Dæmi um það var þrálát prentvilla í dagblaði jafnað- armanna í Þýskalandi, en þar stóð: „Meðal viðstaddra var Hans Há- tign Kornprinsinn.“ Daginn eftir baðst blaðið afsökunar og leiðrétti sig með þessum orðum „Auðvitað hefðum við átt að segja Knorprins- inn.“ Öfugt við það sem sagt er Freud veltir fyrir sér ástæðum mismæla og er þekkt að kalla það freudísk mismæli eða freudian slip ef einhver mismælir sig á þann veg að ætla megi að það sé það sem hann vildi í raun sagt hafa. Dæmi um það er maður sem ávarpaði konu með þessum orðum: „Með yðar leyfi frú ætla ég að móðga yður.“ Hann var að reyna að segja að hann ætlaði að fylgja konunni heim. Freud hafnar því að skýringin á mismælum sé að lík orð komi óvart í stað annarra, eins og það sé eina skýringin á eftirfarandi dæmum úr munni tveggja prófess- ora: „Ég er ekki geneigt (hef ekki löngun til) til að meta starf hins háttvirta fyrirrennara míns.“ Hann ætlaði að segja geeignet (hæfur til). Hinn prófessorinn glopraði eft- irfarandi setningu út úr sér: „Hvað varðar kynfæri konunnar, þrátt fyrir margar freistingar, afsakið tilraunir.“ Hann notaðið Versuch- FYRIR tilviljun ákváðu tveir ungir menn að stofna hugmyndasmiðj- una Zoom í maí síðastliðnum, en það er fyrirtæki sem sérhæfir sig meðal annars í tölvugrafík. Ungu mennirnir, þeir Bjarki Rafn Guð- mundsson tölvuáhugamaður og Guðmundur Rúnar Kristjánsson, áhugamaður um leiklist, fengu svo liðsauka fyrir um mánuði, en það er Þórður Einarsson, sem líka er mikill tölvugrúskari. Fyrirtækið hefur aðstöðu í litlu herbergi heima hjá Guðmundi Rúnari í Unufelli, en til stendur að flytja fyrirtækið í bílskúr á næstunni. Þrátt fyrir þröngar vistarverur og lítinn tækjabúnað hafa þeir félagar haft í nógu að snúast frá því að fyrirtækið var stofnað. Þeir eiga til dæmis heið- ungen í stað Versuche, og það var ekki tilviljun. Freud segir algengustu mis- mælin og áhrifamestu að segja öfugt við það sem maður vildi sagt hafa. Hann nefnir dæmi um forseta neðri deildar þjóðþings sem setti þingfund með orðunum: „Herrar mínir, ég sé að þingmenn eru viðstaddir og lýsi því þing- fundi slitið.“ Þingforsetinn óskaði þess í raun heitast að fundinum væri lokið. Hann kveið honum. Einnig er til dæmi hér á landi um að framhalds- skóla hafi verið slitið af skóla- meistara 1. september. Ekki þarf að fara í grafgötur með um hvað löngun hans og ótti snerist. I dæmasafni Freuds má líka fínna konu sem kom upp um stjórnsemi sína á heimilinu með því að segja óvart: „Maðurinn minn spurði lækninn hvaða mat hann mætti borða. En læknirinn sagði honum að hann þyrfti engan matarkúr: hann gæti étið og drukkið allt sem ég vildi.“ Gleymdi hverjum hún var gift Nú er viðurkennt innan sál- fræði að tilfinningar og áhugi hafa áhrif á minnið. Maður sem ætlar eitthvað en gleymir því samt, gerir það til að mynda vegna þess að hann er í raun ófús til þess. Freud nefnir dæmi um ungan mann sem í stað þess að viðurkenna fyrir unnustu sinni að hann hafi gleymt síðasta stefnu- móti þeirra, býr til sögu um hinar ótrúlegustu hindranir sem urðu á vegi hans. Mistök verða við gagnkvæm inngrip tveggja ólíkra ætlana, að mati Freuds. Þannig getur verið ástæða fyrir að menn týni hlutum. Ungur maður tapaði penna sem honum þótti afar vænt um. En hvers vegna tapaði hann honum? Mágur hans, sem hafði gefið hon- um pennann, hafði sent honum skammarbréf sem endaði með eft- irfarandi orðum: „Eins og stendur hef ég hvorki löngun né tíma til að ýta undir lausung þína og iðju- leysi.“ Freud telur fyrirbærið að týna eða misleggja hluti sérlega áhugavert vegna óskarinnar um að týna. Mistök hafa ótvírætt merkingu urinn af SS-pylsuauglýsingunum sem margir hafa eflaust tekið eftir í auglýsingatíma sjónvarps- stöðvanna að undanförnu, en einnig hafa þeir búið til þrívíddar- grafíkina sem notuð er í íslenska söngleiknum Sumar á Sýrlandi, sem nú er sýndur í Loftkastal- anum. Þá má geta þess að þeir eru með fleiri verkefni í pokahorn- inu, en eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að upplýsa um þau hér og nú. Þökkum Sláturfélaginu Blaðamanni lék hins vegar for- vitni á að vita nánari deili á félög- unum sem standa að þessu nýja fyrirtæki og varð Bjarki Rafn Guðmundsson fyrir svörum. „Það má eiginlega segja að hjól- in hafi byijað að snúast snemma í vor,“ segir Bjarki Rafn og útskýr- ir nánar: „Þannig er mál með vexti að Guðmundur Rúnar tók að sér að leikstýra söngleiknum Sumar á Sýríandi fyrir árshátíð Fjölbrauta- skólans í Breiðholti síðastliðinn febrúar. í framhaldi af því fór Guðmundur þess á leit við mig að ég sæi um tölvugrafíkina á sýning- unni, sem ég og gerði. Guðmundur vissi að ég hafði verið að fikta við tölvur mjög lengi og því fannst honum eðlilegt að leita til mín,“ segir Bjarki. „Ég sá því um að í huga Freuds og hann heldur áfram að nefna dæmi því til stuðn- ings. Ernest Jones (1911) skrifaði bréf og lét það liggja í marga daga á skrifborðinu sínu. Loks hafði hann það af að fara með það í póst. En fékk það sent til baka, vegna þess að utanáskriftina vant- aði. Hann fór með það aftur og stakk í póstkassann. Það dugði skammt. Hann fékk það á ný með þeim orðum að það vantaði frí- merkið. Freud heyrði unga konu segja frá því að daginn eftir brúðkaups- ferðina hafi hún farið í búðir með systur sinni. Allt í einu kom hún auga á mann hinum megin á göt- unni. Hún ýtti við systur sinni og sagði: „Sjáðu, þarna er herra L.“ Hún var búin að gleyma að hún hafði verið gift herra L í nokkrar vikur. Nokkrum árum síðar frétti Freud að hjónabandið hefði fengið ógæfulegan endi. Afsakanir duga oft skammt Viðbrögð fólks við mistökum sínum felast yfirleitt í afsökunum eins og leiðréttingum, viðbótum og tilbúnum skýringum. Montinn prófessor í líffærafræði sagðist ekki trúa hlustendum sínum að þeir hefðu skilið erindi hans um nefgöngin því að telja-mætti „þá sem skilja nefgöngin á einum fingri . .. afsakið, á fingrum ann- arrar handar.“ Áhorfendur skildu að minnsta kosti merkingu mis- mælanna: Enginn var nógu gáfað- ur til að skilja málið nema hann sjálfur. Það liggur dulin merking að baki mistaka er niðurstaðan sem Freud kemst að, þótt hann viður- kenni fúslega að hægt sé að gera mistök ábyrgðarlaust. Að lokum er hér skemmtilegt dæmi sem henti vin Freuds og kallar hann það athafnarugling. Hér dulbýr ætlunin sig sem kær- komið óhapp. Vinur hans tók lest til að heimsækja einhvern í næstu borg við þá sem hann bjó í. Hann kom að stöð þar sem hann átti að skipta um lest en fór óvart inn í lest sem flutti hann aftur heim til sín. Það þarf ekki sálfræðing til að lesa merkingu þessa, að minnsta kosti ekki lengur. ■ búa til teiknimynd úr þrívíddar- grafík fyrir sýninguna sem síðan var sýnd á stóru tjaldi á leiksvið- inu.“ Bjarki segir að til að afla fjár- magns fyrir umræddan söngleik, hafi verið ákveðið að setja litla auglýsingu fyrir Sláturfélag Suðurlands inn í teiknimyndina. Þegar búið var að útfæra auglýs- inguna fóru þeir Bjarki og Guð- mundur Rúnar með upptöku af teiknimyndinni til forsvarsmanna Sláturfélagsins, í þeirri von um að fá eitthvað fyrir sinn snúð. „Þeim hjá Sláturfélaginu leist hins vegar svo vel á þetta allt saman, að þeir vildu að við gerðum heila sjónvarpsauglýsingu fyrir þá. Við Guðmundur slógum til og í fram- haldi af því stofnuðum við fyrir- tækið okkar; hugmyndasmiðjuna Zoom.“ Bjarki segir að þeir félagar hafi bæði samið, hannað og teiknað pylsuauglýsinguna fyrir SS og hafi hún verið sýnd reglulega á sjónvarpsstöðvunum. „Það má því eiginlega þakka Sláturfélaginu fyrir að við ákváðum að fara út í fyrirtækjarekstur, því við vorum aldrei með neitt slíkt í huga fyrr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.