Morgunblaðið - 11.10.1996, Qupperneq 1
|5f
p
16
s m
;n
jb
|*Q
snb'í
b
■ ÁHRIF LEIKSKÓLADVALAR Á ÞROSKA BARIMA/3 ■ GEÐHEILBRIGÐIS-
DAGUR OG AÐSTANDEMPUR GEÐSJÚKRA/4 ■ SAMFÉLAGSTILRAUMIM
í KRISTJANÍU ER HÁLFÞRÍTUG/6 ■ TEIKNIMYNDASAGA UM EGIL/8
IBRp.
HÉR er verið að auglýsa plástur.
KOIMAIM í
KARLAHEIMI
Hvernig kemur konan fram í hefð-
bundnum vestrænum auglýsingum?
Hver er munurinn á verkum kven-
ljósmyndara og karlljósmyndara?
Þetta eru spurningar sem Elfa Ýr
Gylfadóttir, bók-
mennta- og fjölmiðla-
fræðingur, velti fyr-
ir sér í MA ritgerð
sinni um ímynda-
fræði og konuna eins
og hún birtist í fjöl-
miðlum.
Auglýsingar sýna
hvernig samfélagið er,
en geta líka haft áhrif
á það, að mati Elfu.
Konur í auglýsingum eru
iðulega í aukahlutverki, aðgerðar-
lausar á meðan karlmenn eru ger-
endur. ■
ÞAÐ líður á haustið, sumar-
skórnir slitnir inni í skáp, fyrsti
vetrardagur nálgast. Tærnar
kólna í veðri og í huganum
buslar spurningin: Hvernig eiga
góðir vetrarskór, sem duga á
Islandi, að vera?
„Ég myndi fá mér ekta leð-
urskó sem vel er gengið frá í
kanti og saumum," segir Mitc-
hel Snyder skósmiður í Skó-
meistaranum í Reykjavík. „En
það þarf að hugsa vel um þá,“
bætir hann við. Skór sem dag-
lega þramma í snjó og bleytu
og glíma við frost og hita á víxl,
þurfa á umhyggjusömum eig-
anda að halda. „Á íslenskum
vetri þarf að bera á, sprauta
eða smyija leðurskóna dag-
lega,“ segir Mitchel.
Valið er erfitt
Það er ekki létt
verk að velja sér
vetrarskó sem
falla vel að fæti
og þola þetta
fjölbreytta
veður.
Fjölskyldan
svamlar í vetrarskónum
Gæðalistinn fyrir skófatnað
er svo langur að helst þyrfti
að fá skósmið með sér í búðir!
Einar Ólafsson verslunarstjóri
í Skóverslun Steinars Waage
segir ullarklæddu kuldaskóna
enn á undanhaldi og að ný tex-
efni, sem er filma milli ytra borðs
og innra, haldi fólki nú heitu um
fætur.
Góðir vetrarskór að hans mati
eru með fóður sem einangrar í
kulda og andar í hita. „Sólar
eiga líka að vera úr gúmmí
en ekki gerviefni sem
harðnar," segir hann.
Eftir að hafa svipast um
í skóbúðum er hægt að sjá
fyrir sér skófatnað fjöl-
skyldunnar með hríð kom-
andi vetrar í fangið: Pabbinn
Morgunblaðið/Ásdís
i sterkum gönguskóm, mamman
í öklaháum fínum leðurskóm,
unglingurinn í grófum öklaháum
leðurskóm með stálhæl og
spennu, litla stúlkan í marglitum
vatnsheldum skóm með goretex-
fílmu og strákurinn í moonboots
með lausum sokk inni í. - Aftur
á móti er vandasamara að finna
réttu skóna á hvem fjölskyldu-
meðlim.
Ásta Jónsdóttir í skóbúðinni
Krummafótur á Egilsstöðum
segir Austfirðinga hafa verið
heppna með haustið, en fólk sé
samt farið að hugsa um vetrar-
skóna. Hún segir marga leita
að skóm sem dugi við hin ýmsu
tækifæri. Vatnsheldir heils-
ársskór henta íslendingum
best, að hennar mati.