Morgunblaðið - 14.11.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996 B 9
VIÐSKIPTI
Proton í
Malajsíu
tekur við
Lotus
Hethel, Englandi. Reuter.
PROTON, bílaframleiðandi í
Malajsíu, hefur keypt 80% hlut
í Lotus Group, hinu bágstadda
brezka sportbílafyrirtæki.
Yahaya Ahmad, stjórnarfor-
maður móðurfyrirtækis Prot-
ons, DRB-HICOM, og einn
áhrifamesti kaupsýslumaður
Malajsíu, fær 16,25% eigin hlut
í Lotus Group International
auk þess sem Proton fær
63,75%.
„Lotus er goðsögn — nafn sem
vekur spenning um allan
heim,“ sagði Ahmad í Lotus-
verksmiðju á Austur-Englandi.
„Það gefur Proton færi á sð
sýna framleiðslu sína í sýning-
arsölum sem hafa Lotus
ímyndina.“
Fyrirframgreiðsla er 51 millj-
ón punda og lánað verður 13
milljóna punda hreint veltufé.
Með samkomulaginu lýkur
margra mánaða vangaveltum
um framtíð fyrirtækisins. It-
alskur eigandi þess, Romano
Artioli, hefur leitað að öflug-
um fjárfesti mestallt þetta ár.
Bíll heimsmeistara
Colin Chapman stofnaði
fyrirtækið upp ár 1950 og
Lotus stóð lengi framarlega
í Grand Prix kappakstri. Með-
al kappa sem urðu heims-
meistarar í Lotus voru Gra-
ham Hill, Jim Clark, Jochen
Rindt, Emerson Fittipaldi og
Mario Andretti.
Meðal bíla sem fyrirtækið hef-
ur framleitt eru Lotus Seven,
Lotus Elan, Elite og nýja mód-
elið, Elise.
General Motors tók við sljórn
Lotus 1986 og fyrirtækið safn-
aði skuldum að upphæð 50
milljónir punda á fimm árum
áður en það var selt.
Yahaya sagði að Proton hygð-
ist auka nú þegar framleiðslu
Lotus Elise sportbílsins á Eng-
landi og auk þess hefja fram-
leiðslu í Malajsíu.
Fyrirtækið vonast til að auka
framleiðsluna í 10 bíla á dag
úr fimm. Auk þess vill það
koma sér upp aðstöðu til að
framleiða fyrir Austur-Asíu-
markað í verksmiðjum Protons
í Malajsíu þannig að hægt verði
að framleiða 5000 Lotus Elise
á ári.
Boðið ífar-
símakerfi
íKína
Peking. Reuter.
MOTOROLA, AT&T og §ögur önn-
ur erlend fyrirtæki keppa um að
fá að hjálpa kínverska alþýðuhern-
um að koma á fót farsímakerfi, sem
á að ná til alls Kína og verður þriðja
fjarskiptakerfi landsins.
Hin fyrirtækin eru bandaríska
farsímafyrirtækið Qualcomm Inc,
fjarskiptasvið Samsung fyrirtækis-
ins, LG Group í Suður-Kóreu og
Northem Telecom Ltd í Kanada.
Kínverska póst- og fjarskipta-
ráðuneytið takmarkar erlenda að-
ild að kínverska farsímamarkaðn-
um. Spáð er að kínverskum farsí-
manotendum fjölgi í 7 milljónir
fyrir árslok og í 22 milljónir fyrir
aldamót.
Alþýðuherinn er aðaldriffjöður
nýja farsímakerfisins og fagnar
allri erlendri aðstoð við uppbygg-
ingu þess að sögn sérfræðinga.
Fyrirtækin hafa boðið í tilrauna-
kerfi í fjórum borgum Kína að sögn
kínverska póst- og fjarskiptamála-
ráðuneytisins. Tilkynnt verður eftir
tvo eða þijá mánuði hvaða boði
verður tekið.
\ \
' \
^Pj-entuð
9jafavara,
Áprentaðir
hlutir til gjafafyrir
starfsfólk og viðskiptavini.
Leitið upplýsinga og fáið
bækling - Yfir 500 vörunúmer.
Stuttur afgreiðslutími.
11
nu
Auglýsingar - Skiltagerð
Silkiprentun - Bolaprentun
Skeifunni 3c • 108 Reykjavík
Sími 5680020 • Fax 5680021
- kjarni málsins!
Aldamóta-vírus
leikurlausum hala
Cannes. Reuter.
MÖRG evrópsk fyrirtæki gera sér
ekki enn grein fyrir því að þau
geta misst minnið vegna alda-
mótavírussins, sem gera mun mik-
inn usla í ýmsum tölvum í heimin-
um á miðnætti 31. desember 1999
að því er fram kom nýlega á ráð-
stefnu kaupsýslumanna.
Þegar nýr aldatugur hefst munu
tölvur um allan heim hrynja eða
senda frá sér rangar upplýsingar.
Þótt hættan hafi vakið mikla at-
hygli hefur mörgum fyrirtækjum
láðst að gera ráðstafanir í tíma
og mun kerfí margra þeirra
springa — sem getur leitt til þess
að fyrirtækið verði gjaldþrota.
Rugl frá helmingi fyrirtækja
„í árslok 1999 verður rúmlega
helmingur upplýsingatæknifyrir-
tækja búinn tækjum sem senda
frá sér kolrangar niðurstöður
vegna aldamótadraugsins,“ sagði
sérfræðingur Gartner Group, Pet-
er Sondergaard, á ráðstefnunni.
Vandinn stafar af vinnuhagræð-
ingu á áttunda og níunda áratugn-
um, þegar höfundar forrita gripu
til þess ráðs til að spara minni tölva
að stytta ártöl með því að nota
aðeins tvo öftustu tölustafina. Sú
stytting verður í lagi þar til 20.
öldinni lýkur, en árið 2000 verður
00 í minni tölvunnar og það getur
haft ískyggilegar afleiðingar í för
með sér. Til að leysa vandann þarf
heilan her tölvusérfræðinga.
Leiðtogar evrópskra upplýs-
ingatæknifyrirtækja (IT) á ráð-
stefnunni létu í ljós áhyggjur af
þeirri alþjóðlegu hættu, sem staf-
aði af vírusnum, en sum fyrirtæki
eru núna fyrst að gera sér grein
fyrir henni.
„Við verðum að vekja athygli á
2000 vandanum til að tryggja að
öll fyrirtæki geri sér grein fyrir
honum,“ sagði Lucio Stanca, fram-
kvæmdastjóri IBM.
Stanca tók þátt í pallborðsum-
ræðum ásamt forystumönnum
COMPAQ tölvufyrirtækisins,
franska töluframleiðandans Gro-
upe Bull, Siemens Nixdorf í Þýzka-
landi og þýzka hugbúnaðarrisans
SAP AG um áhrif upplýsinga-
tækni í Evrópu. Ráðstefnuna hélt
bandaríska tækniráðgjafafyrir-
tækið Gartner Group.
„Þetta er tröllaukið vandamál,“
sagði Stanca. „Tíminn er naumur,
þegar hann styttist verður kröfur
um viðgerð geysiöflugar og óvíst
er hvort greinin ræður við vand-
ann.“
Stanca sagði að viðskiptavinir
IBM yrðu ekki í þessum hópi.
„Við höfum heitið því að öll tæki
okkar verði viðbúin árinu 2000.“
Sérfræðingar í upplýsingatækni
óttast að þótt gífurlegt átak verði
gert til að leysa vandann fyrir
2000 séu mörg forrit frá áttunda
áratugnum grafin langt inni í
tölvukerfum og að erfitt muni
reynast að finna þau.
Nokkrir hafa spáð því að vand-
inn geti orðið svo alvarlegur að
hann muni ekki aðeins valda gjald-
þroti fyrirtækja heldur koma af
stað heimskreppu.
Fyrirtæki heita vernd
Forystumenn í greininni segja
að þeir muni standa við hlið við-
skiptavina sinan.
„Okkur ber skylda til að vernda
viðskiptavini okkar,“ sagði Jean
Marie Descarpentries, forstjóri
Groupe Bull, „og allir viðskiptavin-
ir okkar verða verndaðir árið 2000.
Þetta er gífurleg íjárfesting, risa-
stórt verkefni. Hjá okkur vinna
300 manns að þessu máli.
Gerhard Schulmeyer, forstjóri
Siemens Nixdorf, sagði að fyrir-
tæki sitt mundi ekki bregðast við-
skiptavinum sínum, en gera yrði
sameiginlegt átak.
Schulmeyer minnti á að einnig
þyrfti að vinna mikla tölvuvinnu
fyrir fyrirtæki til undirbúnings
efnahags- og peningakerfi Evrópu
1. janúar 1999.
SIEMENS
S4-P0WER
Góður fapsími—enn betri!
S4-P0WER er ný og betri
útgáfa hins vinsæla farsíma
S4frá Siemens. Hann hefur
m.a. nýja rafhlöðu með
70 klst. viðbragðstíma og
allt að 10 klst. taltíma
Einkaumboð fyrir Siemens á íslandi
Við bjóðum þennan
farsíma á mjög hagstæðu
verði ásamt ýmsum
öðrum símabúnaði.
Njótið faglegrar ráðgjafar
og þjónustu hjá okkur.
ðsfiu isilinl! SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 511 3000
Færri brezkir
stjórar styðja
John Major
London. Reuter.
FÆRRI brezkir stjórnendur styðja
íhaldsflokkinn nú en í síðustu þing-
kosningum 1992 samkvæmt könnun
stjórnunarstofnunar í Bretlandi,
Institute of Management.
Aðeins 42% stjórnenda styðja
íhaldsmenn að þessu sinni, saman-
borið við 62% í síðustu kosningum.
Stuðningur við Verkamannaflokkinn
hefur aukizt úr 13% í 25%.
Samkvæmt könnuninni telur
þriðjungur brezkra stjórnenda ekki
að þeir búi við atvinnuöryggi.
A.GUÐMUNDSSON ehf.
húsgagnaverksmiðja
Skemmuvegi 4 Kópavogi Sími 557 3100