Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 1
LÍFEYRISSJÓÐIR
32 eiga fyrir skuld-
bindingum/6
ORKUMÁL
Rafmögnuö sam-
keppni?/8
JRttrguiiMiitoife
HLUTABRÉF
Lognið á undan
storminum?/12
Sveitarfélög
Halli sveitarfélaga landsins nam
1,9 milljörðum króna á síðasta
ári sem er 15 prósentustiga
minni halli en á fyrra ári. Skuld-
ir sveitarfélaganna námu alls
38 milljörðum króna í árslok
1995 sem er um 91% af heildar-
tekjum þeirra á árinu. /2
Rekstrarleiga
Rekstrarleiga bifreiða á al-
mennum markaði er ný þjón-
usta hjá bifreiðaumboði Ingvars
Helgasonar og Bíiheima. Leigu-
greiðslur af litlum og meðal-
stórum virðisaukaskattsbílum
geta numið 20-23 þúsundum
króna á mánuði./ 2
Áfengi
Samkeppnisráð hefur komist að
þeirri niðurstöðu að skilmálar
ATVR sem skylda innlenda
birgja til þess að ákveða verð
vöru sinnar i íslenskum krónum
en veita erlendum birgjum svig-
rúm til þess að ákvarða verð
sitt í erlendum gjaldmiðlum
hafi skaðleg áhrif á samkeppni
í skilningi samkeppnislaga./ 2
SÖLUGENGI DOLLARS
Heililarvelta S IClI
í verslunargreinum
janúar til ágúst 1995 og 1996
(imillj.kr.,ánvsk.,áverðlagihversárs) _. . jan.-ágúst Veltu-
Heildsöludreifing áfengis 1995 1996 breyting
og tóbaks, smásala áfengis 6.649,4 6.220,5 H-6,5%
Heildsölu- og smásöludreifing
á bensíni og olíum 15.305,8 18.207,2 19,0%
Byggingavöruverslun 6.463,5 7.165,4 10,9%
Sala á bílum og bílavörum 11.410,0 14.242,1 24,8%
Önnur heildverslun 53.943,6 59.757,8 10,8%
Heildverslun samtals: 93.772,2 105.592,9 12,6%
Fiskverslun 537,2 605,0 12,6%
Kjöt- og nýlenduvöruverslun,
mjólkur- og brauðsala 19.671,0 20.316,8 3,3%
Sala tóbaks, sælgætis
og gosdrykkja 5.631,0 5.655,0 0,4%
Blómaverslun 985,8 1.061,5 7,7%
Sala vefnaðar- og fatavöru 3.377,3 3.715,3 10,0%
Skófatnaður 472,3 480,5 11,7%
p Bækur og ritföng 1.798,6 2.027,1 12,7%
. Lyf og hjúkrunarvara 2.700,3 3.005,1 11,3%
| Búsáhöld, heimilis-
| tæki, húsgögn 5.867,9 6.564,1 111,9%
| Úr, skartgripir, Ijós-
| myndavörur, sjóntæki 695,0 751,9 8,2%
1 Snyrti- og hreinlætisvörur 361,1 404,9 .12,1%
lÖnnursérverslun, s.s. sportvörur,
| leikföng, minjagripir, frímerki o. fl. 2.474,4 2.507,5 1,3%
1 Blönduð verslun 20.779,8 21.764,4 l4 7%
Smásöluverslun samtals: 65.351,7 68.859,1 [] 5,4%
VERSLUN SAMTALS: 159.123,9 174.452,0 M 9,6%
Jákvæð umskipti í rekstri
Flugleiða hf. í septembermánuði
Rekstrarbati
nam tæplega
200 milljónum
HAGNAÐUR Flugleiða hf. af reglu-
legri starfsemi nam alls um 835
milljónum króna fyrstu níu mánuði
ársins, en var á sama tíma í fyrra
um 713 milljónir. Afkoman af reglu-
legri starfsemi hefur því batnað um
122 milljónir milli ára á tímabilinu
og í septembermánuði var afkoman
tæpum 200 milljónum betri en í sama
mánuði í fyrra.
Heildarhagnaður Flugleiða á
þessu tímabili varð um 661 milljónir
en var í fyrra 1.056 milljónir. Þennan
mun má m.a. rekja til þess að félag-
ið seldi og leigði aftur eina Boeing
737-400 vél á síðasta ári með 325
milljóna hagnaði. í annan stað nemur
reiknaður tekjuskattur um 203 millj-
ónum í níu mánaða reikningsskilum
ársins 1996, en var 48 milljónir í
fyrra.
Nýir áfangastaðir bæta
afkomuna
Fram kemur í frétt frá Flugleiðum
að bati á afkomu af reglulegri starf-
semi félagsins skýrist fyrst og fremst
af auknum flutningum og batnandi
afkomu ýmissa eininga á borð við
Flugleiðahótelin og bílaleigu Flug-
leiða. Rekstur innanlandsflugs fer
einnig batnandi.
Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður
forstjóra, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að aukna flutninga mætti að
miklu leyti rekja til hinna nýju
áfangastaða félagsins, Boston og
Halifax. Tekjur af þeim leiðum hefðu
komið inn í reksturinn um mitt þetta
ár, en þeim hefði ekki verið til að
dreifa á síðasta ári.
Einar segir að niðurstaðan um
rekstur félagsins í október liggi ekki
fyrir, en flutningar hafi verið sam-
kvæmt áætlun. Hins vegar hafi með-
alfargjald verið lægra en gert hafi
verið ráð fyrir, en félagið bætt sér
það upp með öðrum tekjuliðum.
Horfurnar um reksturinn í október
séu því þokkalegar.
Handbært fé frá rekstri á fyrstu
níu mánuðum ársins nam alls um
2,3 milljörðum en var 2,2 milljarðar
á sama tímabili í fyrra. Eigið fé í lok
september var 6,1 milljarður, en var
5,7 milljarðar í fyrra.
Flugleiðir tóku í síðasta mánuði
ákvörðun um að selja og leigja aftur
af kaupanda eina Boeing 757 þotu.
Tíu tilboð hafa borist i vélina og er
nú verið að meta þau. Félagið gerir
ráð fyrir að verulegur hagnaður verði
af sölu þotunnar á þessu ári.
Velta Flugleiða nam alls um 14
milljörðum króna fyrstu níu mánuð-
ina og hafði aukist um liðlega 15%
milli ára. Rekstrarkostnaður 'jókst
um 16% en fjármagnsgjöld lækkuðu
um tæp 5%.
Fyrstu níu mánuði ársins flutti
félagið um 992 þúsund farþega sam-
tals eða um 13% fleiri en á sama
tímabili í fyrra. Þar af voru 746
þúsund í áætlunarflugi milli landa,
217 þúsund innanlands og tæplega
29 þúsund í leiguflugi.
i!
í
lí
Peningabréf
- fyrsti peningamarkaðssjóðurinn
Nafnávöxtun sl. 10 daga 7,15%
Nafnávöxtun sl. 30 daga 7,37%
Nafnávöxtun frá 1. nóv. 6,83%
Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, s.s. fyrirtæki, sjóði,
sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga. Sjóðurinn fjárfestir einungis í traustustu tegundum
verðbréfa á markaðnum, einkum skammtímaverðbréfum ríkissjóðs og bankastofnana.
Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupunum.
Hvenær sem er eftir það er hægt að leysa bréfin út samdægurs með einu símtali.
LANDSBRÉF HF.
Hringdu eða komdu... og nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar og umboðsmanna okkar
í öllum útibúum Landsbanka íslands.
I*
ffltlhí - l(/hx-fihh
Löggilt verðbréfafyrirtæki.
Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 2 4, 108 REYKJAVIK,
SIMI 588 9200,
BREFASIMI 588 8598