Morgunblaðið - 03.12.1996, Side 4
I
4 C ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Þakka
traustið
„ÞETTA var ekki auð-
velt og ég vil þakka
traustið sem ég fékk
með því að byija inná
og leika allan leikinn.
Það var frábært að taka
þátt f þessu,“ sagði Jul-
ian Róbert Duranona,
einn af burðarásum ís-
lenska liðsins í leiknum.
Hann var nýög ógnandi
og hélt dönsku vamar-
mönnunum vel við efnið.
„Útileikir eru alltaf
erfiðir og þessi var eng-
in undantekning. Dan-
imir léku betur í þess-
um leik en fyrri leiknum
i Höllinni en við vomm
betri þegar á leið.“
Hann sagðist ekkert
hafa tekið eftir því að
dönsku áhorfendumir
hefðu verið að púa á
hann, það hefði runnið
sama.n við þá gífurlegu
gleði og stemmningu
sem var á meðal ís-
lensku áhorfendanna.
Stuðningur þeirra hefði
verið frábær og þeir
hefðu yfírgnæft danska
áhorfendur.
Julian sagðist stefna
að því að vera með í HM
í Japan yrði hann valinn
en aðspurður hvort
hann stefndi að því að
vera á meðal marka-
hæstu manna þar líkt
og hann var í HM í Sviss
1986 og í Tékkóslóvakíu
fjórum árum síðar sagði
hann það vera ólíklegt.
„Það em svo margir £
liðinu sem geta skotið á
markið, ólíkt því sem
var í landsliði Kúbu á
sínum tíma,“ sagði
kappinn og brosti sinu
breiðasta.
Peter Nerklit,
markvörður:
íslenskir
áhorfendur
voru frábærir
„ÞAÐ er alltaf sárt að tapa,
ekki síst þegar svo mikið er í
húfi eins og var að þessu sinni,“
sagði Peter Norklit, annar mark-
vörður danska liðsins. Hann
náði sér ekki á strik frekar en
kollegi hans, Soren Haagen.
„Bæði lið lögðu sig fram um að
leika góðan handknattleik og
tókst það oft og tíðum. Leikur-
inn var betri en fyrri leikurinn
á íslandi og við gerðum mun
betur en þá en það nægði ekki
því íslenska liðið bætti um bet-
ur. Það sem hins vegar reið
baggamuninn var að íslenska
liðið lék af meiri skynsemi síð-
ustu fimmtán mínútur leiksins
og síðustu tíu mínúturnar lék
það frábæran handknattleik sem
skilaði sigri. Þá má ekki gleyma
þætti íslenskra áhorfenda í
leiknum, þeir voru frábærir og
studdu einstaklega vel við bakið
á Iiðinu."
Nerklit segir að veikasti hluti
danska liðsins hafi verið sóknar-
leikurinn, þar hafi menn tapað
þræðinum þegar á leið og hætt
að leita að bestu tækifærunum,
farið þess í stað að skjóta úr
fyrsta tækifæri og þar með hafi
íslenski markvörðurinn fengið
auðveldari skot til að glíma við.
„Um leið og íslenska liðið náði
forystu fórum við á taugum, það
verður að viðurkennast.
Ég vil nota tækifærið og óska
íslenska landsliðinu til hamingju
og vona að því gangi vel á HM.“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
RÓBERT Jullan Duranona fór á kostum undir lokin. Hér sækir hann að marki Dana, Christian Hjermlnd er til varnar.
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, í sigurvímu í Álaborg
metanlegur
stuðningur
„ÞETTA er stórkostleg tilfinning, að upplifa þessa stemmningu
á fuliveldisdaginn, að fagna sigri hér í Danmörku með alla
þessa f rábæru áhorfendur á bak við okkur,“ sagði Geir Sveins-
son, fyrirliði íslenska landsliðsins, eftir glæsilegan sigur á Dön-
um í Alaborg. „Það er ekki hægt að hugsa sér betri gjöf á
þessum degi, 1. desember. Þetta var ekki aðeins sigur okkar
í landsliðshópnum, heldur allra hinna 800 íslendinga, sem komu
til að styðja við bakið á okkur. Stuðningurinn var ómetanlegur
fyrir okkur, það var eins og við værum að leika heima.“
Það tók okkur nokkum tíma að
ná tökum á varnarleiknum.
Það kostaði það að við komumst
ekki almennilega í
Sigmundur ó. gang fyrr en í seinni
Steinarsson hálfleik, eða þegar
skrifar við vorum búnir að
loka fyrir langskot
þeirra. Við ræddum um það fyrir
leikinn og í leikhléi að gera allt
sem við gætum til að halda Dönum
í spennu, fullvissir um að þegar
við kæmumst yfir yrði pressan öll
komin á Danina. Þetta gekk eftir,
þegar við náðum yfirhöndinni fóru
Danirnir hreinlega á taugum -
þeir þoldu ekki spennuna," sagði
Geir.
Geir sagði að sigurinn væri
mikilvægur fyrir íslenskan^ hand-
knattleik og íþróttalífið á íslandi.
„Ef við hefðum tapað fyrir Dönum
hefðum við misst af þriðju stór-
keppninni í röð. Við náðum hvorki
að komast í Evrópukeppnina á
Spáni né á Ólympíuleikana í Atl-
anta. Nú erum við á leiðinni til
Japans, þar sem heimsmeistara-
keppnin fer fram í maí. Sigurinn
hér í Álaborg er sálfræðilega mik-
ill sigur fyrir okkur alla, með þess-
um sigri höfum við gleymt jafntefl-
inu við Grikkland, sem hefur verið
að angra okkur - við fórum frá
Aþenu til Álaborgar, með viðkomu
í Reykjavík," 'sagði Geir.
- Það eru sex mánuðir þar til
heimsmeistarakeppnin í Japan fer
fram. Verður ekki erfitt fyrir
landsliðið að búa sig undir HM í
Japan, þar sem lítill tími er til
stefnu, deildarkeppnin á íslandi, í
Þýskalandi og Frakklandi tekur
sinn toll? „Við þurfum ekkert að
óttast. Það er jafnt á komið með
okkur og öðrum landsliðum.
Heimsmeistarar Frakka koma til
dæmis aðeins saman í hálfan mán-
uð í desember og síðan ekki fyrr
en upp úr miðjum apríl, eftir deild-
arkeppnina.
Við erum með stóran hóp af
góðum leikmönnum, allt leikmenn
með mikla reynslu og það má segja
að við þekkjum hver annan eins
og fingurna á okkur,“ sagði Geir
Sveinsson.
SOKNAR’
NÝTING
Álaborg, Danm., 1. desember 1996
ISLAND
Mörk Sóknir %
12 23 52 F.h 11 22 50
10 20 50 S.h 13 21 62
22 43 51 Alls 24 43 56
9 Langskot 10
2 Gegnumbrot 1
2 Hraðaupphlaup 2
3 Horn 5
3 Lfna 2
3 Víti 4