Morgunblaðið - 03.12.1996, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.12.1996, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ HAIMDKNATTLEIKUR ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER1996 C 5 Nú lágu Danir í því íslenska landsliðið er aftur komið á landakortið á meðal bestu handboltaliða heims og skildi Dani eftir í myrkrinu. Valur B. Jónatansson varð vitni að einum fræknasta sigrí sem íslenskt landslið hefur unnið á erlendri grund. Íslendingar héldu eftirminnilega upp á fullveldisdaginn, 1. des- ember, í Álaborg með því að vinna Dani í undankeppni HM á þeirra heimavelli, 24:22, í einhveijum mikilvægasta leik fyrir íslenskan handknattleik frá upphafi. Sigur- inn tryggði „strákunum okkar“ þátttökurétt á heimsmeistaramót- inu í Kumamoto í Japan í maí á næsta ári og um leið tilverurétt þjóðarinnar á meðal bestu hand- knattleiksþjóða heims. Hinn 1. des- ember 1918, eða fyrir 78 árum, endurheimtu íslendingar sjálfstæði sitt eftir að hafa verið undir stjóm Dana. Á sunnudaginn minnti ís- lenska þjóðin Dani á sjálfstæði sitt og nýtt tímabil hófst í íslenskum handbolta. Stemmningin var gríðarleg og hef ég aldrei upplifað annað eins fyrir nokkurn leik. íslendingar, sem búsettir eru á Norðurlöndum, fjölmenntu auk þess sem flugvél frá Atlanta fór frá íslandi með 150 stuðningsmenn gagngert á leikinn. íslensku stuðningsmennirnir hitt- ust fyrir leikinn á veitingahúi í miðborg Álaborgar þar sem hitað var upp. Þaðan var skrúðganga á leikinn og þegar hópurinn, um 600 íslendingar, mætti í Stadionhallen yfirgnæfði hann heimamenn. Þessi stuðningur fleytti liðinu alla leið í baráttunni um HM-sætið. „Þegar ég kom inn á völlinn og fann fyrir þessum mikla stuðningi fékk ég kökk í hálsinn og táraðist. Þá fann ég enn frekar fyrir því hversu mikilvægt það var fyrir okkur íslendinga að vinna þennan leik. Ég hugsaði með sjálfum mér: „Ég get ekki brugðist þessu fólki,“ og þess vegna lögðum við okkur enn frekar fram. Það var ekkert annað sem komst að í huga okkar en sigur,“ sagði Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins. íslenska liðið átti erfítt upp- dráttar í fyrri hálfleik og var ekki að spila eins og það getur best. Islendingar tryggðu sér þátttökurétt á HM í Kuma- moto með því að sigra Dani í Álaborg á full- veldisdaginn Morgunblaðið/ívar Benedikrsson ÞORBJÖRN Jensson gefur sínum mönnum góð ráð, á myndlnnl hér til hliðar. Á myndinni fyrir ofan fagna Þorbjörn og Stefán Carlsson, laeknir landsliðs- Ins, þegar Ijóst var að sigur Islendinga væri í höfn. Töluverðrar taugaspennu gætti hjá leikmönnum en sigurviljinn var allan tímann til staðar. Þrátt fyrir að vera þremur mörkum undir í lok fyrri hálfleiks vissu íslensku strák- amir að þeir gátu meira og sýndu það í síðari hálfleik. Þegar staðan var 11:8 fyrir Dani og fimm mínútur eftir af fyrri hálfleik var dæmt skref á Olaf Stefánsson og Konráð var rekinn útaf. Danir fengu tækifæri til að ná fjögurra marka forystu en þá kom Gústaf Bjamason inná og náði að minnka muninn úr hraða- upphlaupi. Guðmundur Hrafnkels- son skipti við Bergsvein í markinu og þá varð ekki aftur snúið. ís- lenska liðið saxaði á forskotið og Duranona náði að skora fyrsta mark sitt og síðasta mark hálf- leiksins, 12:11. Með miklum stuðningi íslenskra áhorfenda náði íslenska liðið að þétta vörnina í seinni hálfleik og Danir áttu í mesta basli með að fínna glufu á henni, spil þeirra var ráðleysislegt og þrátt fyrir dygga aðstoð svissnesku dómaranna gekk hvorki né rak. í stöðunni 18:18 urðu kaflaskil. Morten Bjerre fékk rauða spjaldið fyrir að bijóta gróf- lega á Konráði og þetta nýtti ís- lenska liðið sér með því að gera næstu þijú mörk. Þrátt fyrir að Danir næðu að minnka muninn niður í eitt mark, 20:21, var sigur- inn aldrei í hættu. íslenska liðið hélt takinu út leikinn og uppskeran Aldrei upplifað annað eins Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson ATLI Freyr Óöinsson, elnn af stuðningsmönnum lands- liðsins, sem er búsettur í Danmörku, málaður fánalit- unum fyrir lelkinn. var eins og til var sáð - sigur sem lengi verður í minnum hafður. Strákarnir eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna og Þorbjörn Jens- son hefur sýnt og sannað að hann er fæddur sigurvegari. Það kom aldrei neitt annað til greina í huga hans en sigur og hann náði að innprenta strákunum það. Barátt- an skein úr hveiju andliti og þeir létu dómarana ekki slá sig út af laginu - héldu áfram og sýndu að þeir eru með betra lið en Danir og áttu því sigurinn fyllilega skil- inn. Sigurinn var fyrst og fremst góðri liðsheild að þakka. Allir gerðu sitt besta og voru tilbúnir að gera jafnvel enn meira en þeir gátu. Þjóðarstoltið var í húfí og íslenska liðið brást ekki á örlaga- stundu. Geir Sveinsson fór fyrir liðinu og smitaði út frá sér með sínum einstaka baráttuanda. Allir skiluðu því sem krafíst var og nú eru bjartir tímar framundan í ís- lenskum handknattleik eftir frekar dökkar nætur frá því á HM á ís- landi. Bjarki Sigurðsson átti stjömu- leik bæði í vöm og sókn, nýtti færin vel. Konráð var góður í vörn- inni en var sveltur í sókninni í fyrri hálfleik. Duranona var lengi í gang en eftir að hann var orðinn heitur réðu Danir ekki við hann. Dagur átti einn besta leik sinn og hefur tekið miklum framförum. Hann stjórnaði sóknarleiknum og var lykilmaður í vörninni. Sama má segja um Ólaf Stefánsson. Þó svo að hann hafí ekki nýtt nokkur upplögð færi í fyrri hálfleik átti hann stóran þátt í sigrinum og skot hans utan af velli voru glæsi- leg. Patrekur var góður í vörn og var sá maður sem kom Duranona í gang. Gústaf Bjarnason átti líka prýðilega innkomu. Júlíus var mik- ilvægur hlekkur í vörninni og Geir var ódrepandi á línunni og vann fyrir liðið. Hann er leiðtogi innan vallar og mér er til efs að nokkurt annað íslenskt lið geti státað af leikmanni með þá skapgerð sem Geir hefur. Bergsveinn byijaði ágætlega í markinu en síðan fóm boltarnir að leka inn. Guðmundur kom þá í markið og varði það með glæsibrag. Valdimar Grímsson kom aðeins inn á til að taka vítin og var öryggið uppmálað þó eitt af fimm vítum hafí farið forgörð- um. Vítaskytta þarf stáltaugar í svona mikilvægum leik og þær hefur Valdimar. Þetta var frábært, ég hef aldrei upplifað_ annað eins á ferlin- um,“ sagði Ólafur Stefánsson en hann skelfdi dönsku varnarmennina með þrumufleygum sínum allan leikinn. „Liðið er að verða betra og betra með hverjum leiknum, við þeir yngri emm að fá aukna reynslu og síðan emm við með eldri og reyndari leikmenn með okkur svo úr verður góð blanda og hörkulið." Ólafur sagði ennfremur að sigur- leikimir gegn Dönum hefðu verið uppreisn æm fyrir þá leikmenn sem tóku þátt í heimsmeistarakeppninni á íslandi fyrir einu og hálfu ári þar sem fátt gekk upp. „Það var nauð- synlegt fyrir okkur að þrífa upp eftir okkur eftir HM og ég held að með þessum sigri hafí það að mestu leyti tekist." í heildina sagðist Olafur vera sáttur við framgöngu sína þótt hann hafi gert sín mistök eins og aðrir. „Ég hefði kannski mátt skjóta meira en ég gerði, en aðalatriðið var að vinna leikinn hvernig sem við fæmm að því og það tókst." Hann sagði sjálfstraustið hjá sér alltaf vera að aukast og hann fyndi sig vel í handknattleiknum í Þýska- landi - þar safnaðist vel inn á reynslureikninginn. „Ég er allur á uppleið." Þorbjorn Jensson með nýtt landsleikjamet Landsliðid hefur leikið 15 landsleiki í röð án taps undir hans stjórn 1 996 Bestu vinningssyrpur landsliðsþjálfara Þorbjörn Jensson 1996 15 14 1 0 Þorbergur Aftalsteinsson 1991-92 14 11 3 0 Hilmar Björnsson 1972 13 9 4 0 Þorbergur Aðalsteinsson 1990 12 9 3 0 (sland - ísland - ísland ■ ísland ■ (sland • ísland • island • ísland • fsland • ísland • jsland • ísland - jsland' ísland island Ástralía Bandaríkin Japan S-Kórea Noregur Færeyjar Færeyjar Sviss Sviss Grikkland Grikkland Eistland Eistland Danmörk Danmörk Kumamoto, Japan Kumamoto, Japan 29:19 30:24 Kumamoto, Japan Kumamoto, Japan Kumamoto, Japan Þórshöfn, Færeyjum 28:17 27:24 29:24 29:19 Þórshöfn, Færeyjum Aarau, Sviss Vettingen, Sviss 29:20 23:21 27:26 Akureyri Aþenu, Grikklandi 32:21 20:20 Reykjavík 28:19 Reykjavik 30:22 Reykjavík Álabong, Danmörku 27:21 24:22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.