Morgunblaðið - 03.12.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 C 9
51. ARSÞING KSI
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Knattspymusambandið
sterkt þrátt fyrír tap
Stjórnin
NÝKJÖRIN stjórn KSÍ. Aftasta
röð frá vinstri: Albert
Eymundsson, Gunnlaugur
Hreinsson, Einar Friðþjófsson,
Rafn Hjaltalín og Jakob Skúla-
son. Miðröð frá vinstri: Jóhann
Ólafsson, Snorri Finnlaugsson,
framkvæmdastjóri KSÍ, Ágúst
Ingi Jónsson, Eggert Stein-
grímsson, Stefán Gunnlaugs-
son, Ástráður Gunnarsson og
Geir Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri KSÍ. Fremsta röð frá
vinstri: Lúðvlk Georgsson, Jón
Gunnlaugsson, Elías Hergeirs-
son, Eggert Magnússon for-
maður, Halldór B. Jónsson og
Helgi Þorvaldsson.
Bikarinn
verður eins
BIKARKEPPNIKSÍ verður
með sama fyrirkomulagi á
næsta ári og var í ár. Tillaga
um að breyta henni þannig
að lið í efstu deild karla
kæmu inn í keppnina í 16 liða
úrslitum í stað 32 liða úrslit-
um eins og nú er, var felld.
Breytingar
hjá KSÍ
TALSVERÐAR breytíngar
urðu hjá KSÍ á og í kringum
ársþingið. Á næsta ári á sam-
bandið fimmtíu ára afmæli
og í tílefni afmælisársins var
kynnt nýtt merki félagsins á
þinginu um helgina. Einnig
voru til sýnis hinir nýju
landsliðsbúningar en gengið
var frá samningum um þá
fyrir þingið. Eggert Magnús-
son sagði að sér sýndist sem
menn væru ánægðir með
merkið og nýju búningana.
Færra fólk
en fleiri
salerni
NÝJA stúkan á Laugardals-
velli verður tílbúin í vor ef
allir verkþættír ganga sam-
kvæmt áætlun. Magnús
Bjarnason verkfræðingur og
byggingarstjóri stúkunnar,
segir að ýmislegt hafi komið
uppá í undirbúningnum og
benti meðal annars á eina
staðreynd sem þingheimi
fannst skondin. Þar sem
stúkan ris voru áður stæði
fyrir um 10.000 áhorfendur
en stúkan mun taka 3.500
manns. Þó svo fólki fækki á
svæðinu um 6.500 manns
þarf að fjölga „pisseríum“
stórlega eins og Magnús orð-
aði það. Salernisaðstaðan
verður sem sagt mun betri
þó svo að fólki fækki.
Eggert Magnússon, formaður
Knattspyrnusambands ís-
lands, var ánægður eftir að hafa
slitið 51. ársþingi sambandsins á
sunnudaginn. Þingstörfin gengu vel
og segir Eggert að þrátt fyrir um
15 milljóna króna tap á árinu sé
KSÍ sterkt. „Við höfum alltaf gert
okkur ljóst að það er nauðsynlegt
að eiga einhvern sjóð til að mæta
erfiðu árunum og þannig er það
hjá okkur. í knattspyrnunni er það
þannig að A-landsliðin skapa allar
tekjur sambandsins og við erum
núna í þrðju keppninni í röð þar sem
við erum óheppnir hvað varðar
móthetja, sérstaklega hvað varðar
sölu til sjónvarps og einnig fyrir
áhorfendur. Við værum í mjög
slæmum málum hefðum við ekki
haft eins góðan sjónvarpssamning
og raun ber vitni, allt frá árinu
1994. Sá samningur rennur út
næsta ár,“ sagði Eggert en eigið
fé KSÍ er nú ríflega 37 milljónir
króna þannig að sambandið er
stöndugt þrátt fyrir tapið í ár.
„Það verður að segjast eins og
er að við lékum ekki spennandi
heimaleiki á árinu en það verða
skemmtilegri leikir á næsta ári
þannig að ég vonast til að við náum
að rétta úr kútnum. Stóra málið
hjá okkur núna er uppbygging
Laugardalsvallar og því á að vera
lokið í vor þannig að öll umgjörð
leikja verður meira aðlaðandi fyrir
áhorfendur og því ætti að vera auð-
veldara að fá fólk á völlinn."
Eggert sagði að það yrði tekið
til hendinni til að koma í veg fyrir
áframhaldandi tap KSÍ og lagði
einnig áherslu á að hann hefði
áhyggjur af fjárhagsstöðu hreyf-
ingarinnar í heild. „Það þarf að
skipa starfshóp til að fara ofan í
saumana á fjármálum hreyfingar-
innar, bæði KSÍ og félaganna. Ég
hef engar einfaldar lausnir á þess-
um vanda en það má reyna ýmis-
legt. Eitt er til dæmis að athuga
hvort hægt sé að setja launaþak á
félöginn í 1. deild líkt og gert er í
NBA-körfuboltanum. Það er sjálf-
sagt erfitt en það þarf að koma
fram með hugmyndir til bóta.
Ég veit að félögin eru mjög
óhress með að borga of mikið fyrir
leikmenn, en þetta gera þau í ákafa
sínum í að ná í bestu leikmennina.
Þessu verður að linna því það verð-
ur að vera til fyrir því sem menn
eru að gera. Það hefur alltaf verið
laumuspil í kringum samninga leik-
manna við félögin, en það þarf að
koma þessu öllu upp á borðið. Ef
lið yrðu síðan staðan að því að vera
með falsanir þá gætu þau átt von
á háum sektum eða að vera flutt á
milli deilda.“
Ný reglugerð var samþykkt á
þinginu um félagaskipti leikmanna
og stöðu félaga og leikmanna en
það þótti nauðsynlegt í kjölfar úr-
skurðar í Bosman-málinu. „Tekinn
er upp nýr samningur, svokallaður
sambandssamningur, og með hon-
um gefst færi á að skilja á milli
þeirra leikmanna sem fá nánast
engar greiðslur og hinna sem fá
laun.“
Tvö mál voru talsvert mikið rædd
á þinginu, fjölgun liða í efstu deild
karla, sem nú á að heita núllta-
deild samkvæmt samþykkt þings-
ins, og breytt fyrirkomulag á efstu
deild kvenna. Báðum þessum mál-
um var vísað til milliþinganefnda
sem munu kanna málið fyrir næsta
ársþing sambandsins.
Mikið var rætt um knattspyrnu-
hús á þinginu og voru flestir á því
að nauðsynlegt væri að koma knatt-
spyrnumönnum undir þak sem allra
fyrst til að framfarir yrðu meiri.
„Ég sagði við Ingibjörgu Sólrúnu
borgarstjóra á föstudaginn, þegar
við höfðum skrifað undir samning-
inn vegna Laugardalsvallarins, að
nú væri þetta mál frá og hægt að
fara að snúa sér að því næsta, sem
væru knattspyrnuhúsin. Nú þurfum
við að bretta upp ermarnar og ráð-
ast í að byggja svona hús. Það gleð-
ur mig mjög að sjá að nokkur sveit-
arfélög, talsvert minni en Reykja-
vík, virðast ætla að ríða á vaðið og
munu þar með setja þrýsting á
borgina að standa undir nafni og
koma með alvörukeppnishús."
Engin kona
í stjórn KSÍ
ENGIN kona er i nýrri stjórn
KSÍ en Elísabet Tómasdóttír,
sem sæti átti í varastjórn-
inni, gaf ekki kost á sér tíl
áframhaldandi setu. Fjögur
sóttust eftir þremur sætum
varamanna og þar á meðal
Ingibjörg Hinriksdóttír en
hún náði ekki kjöri. Ástráður
Gunnarsson úr Keflavík
kemur nýr inn í varastjórn-
ina og Ágúst Ingi Jónsson í
stjórnina í stað Róberts Agn-
arssonar. Eggert Magnússon
formaður sambandsins sagði
í lokaræðu sinni að þessu yrði
að breyta á næsta þingi því
stærsta sérsambandið gætí
ekki verið þekkt fyrir að hafa
ekki konu i stjórninni.
Ingvi skrifar
og skrifar
INGVI Guðmundsson var
þingritari eins og svo oft
áður, en þetta var fjórtánda
þingið þar sem Ingvi er rit-
ari. Pyrsti þingforseti var
Sveinn Jónsson og fórst hon-
um stjórnin vel úr hendi.
Hann lagði þó tíl i lokin að
ritara og stjórn KSÍ yrði
gert að ganga frá fundar-
gerð þingsins þar sem hún
væri örugglega ekki tilbúin.
Ingvi greip snarlega fram í
fyrir Sveini og sagði að víst
væri hún tílbúin. En Sveinn
las hana samt ekki, var að
fara og horfa á beina útsend-
ingu frá Álaborg frá kappleik
„í einhverri annarri íþrótt“
eins og hann orðaði það.
Knattspymuhús yrði
mikið framfaraspor
Haldið var málþing um knatt-
spyrnuhús og framkvæmdir
KSÍ á Laugardalsvelli á laugar-
daginn. Mikill áhugi virðist á að
ráðast sem fyrst í byggingu knatt-
spyrnuhúss og í skýrslu mann-
virkjanefndar KSÍ kemur fram að
keppnishús, þar sem byggt er yfir
heilan knattspyrnuvöll, muni
kosta á bilinu 336-450 milljónir
króna, en æfingahús, þar sem
byggt er yfir tæplega hálfan
knattspyrnuvöll, á bilinu 135—190
milljónir.
Mannvirkjanefnd telur þörfina
mikla og sagði Lúðvík Georgsson,
formaður nefndarinnar, að Islend-
ingar væru búnir að gera það sem
hægt væri við núverandi aðstæður
og kæmust ekki lengra. í áætlun
nefndarinnar er gert ráð fyrir að
næstu 15 árin verði byggt eitt
stórt keppnishús, tvö minni og 12
æfingahús. Kostnaðurinn ætti að
vera um 3,3 milljarðar króna og
benti hann á að 20 milljörðum
hefði verið varið í að byggja hefð-
bundin íþróttahús síðustu 15 árin.
í lok málþingsins voru pall-
borðsumræður og þar kom fram
að í Reykjanesbæ er verið að
skoða þá hugmund að byggja fjöl-
nota íþróttahús af fullri alvöru og
sömu sögu er að segja frá Akur-
eyri. Fyrir síðustu borgarstjórnar-
kosningar sagði R-listinn að á
þessu tímabili yrði skoðað af al-
vöru að hefja byggingu knatt-
spyrnuhúss og er ætlunin að gera
það næsta ár, en húsið verður
ekki á fjárhagsáætlun fyrir næsta
ár.