Morgunblaðið - 03.12.1996, Síða 12
jíltiTflim'Wa&iíi
HANDKNATTLEIKUR
ísland er
stóra landið
Þorbjörn
hefur
áhyggjur
ÞORBJÖRN Jensson, lands-
liðsþjálfari, hefur töluverðar
áhyggjur af því að hann fái
ekki Dag Sigurðsson og Ólaf
Stefánsson lausa frá Wupper-
tal í lokaundirbúning lands-
liðsins fyrir HM í Japan. Ef
Wuppertal Iendir í öðru sæti
í sínum riðli í þýsku 2. deild-
inni verður það að fara í
aukakeppni um sæti í 1. deild
og fer sú keppni fram í byij-
un maí. Þorbjörn Ieggur
áherslu á að hafa landsliðs-
mennina heima í þrjár vikur
fyrir HM sem verður í Kuma-
moto frá 18. maí til l.júní.
„Ég ætla að fara strax í það
að ræða við þýska félagið og
Viggó Sigurðsson þjálfara -
tryggja það í tíma að ég hafi
afnot af Degi og Ólafi þessar
þijár vikur,“ sagði Þorbjörn.
Guðmundur Hrafnkelsson mark-
vörður stóð sig mjög vel í
leiknum og varði alls 9 skot og flest
þeirra úr dauðfærum. „Ég fann mig
mjög vel um leið og ég kom inn á.
Byijaði á því að verja eitt skot áður
en flautað var til hálfleiks og kom
svo heitur inn á í síðari hálfleik.
Leikurinn var í góðum gír í upphafi
seinni hálfleiks og það var ekkert
annað hægt að gera en að gera sitt
allra besta. Vörnin var ekki nægilega
sannfærandi í byijun enda mikil
taugaspenna í gangi hjá báðum lið-
um en hún small saman í síðari
hálfleik,“ sagði Guðmundur.
Hann sagðist ekki hafa verið
ánægður með dómgæsluna. „Þeir
voru vægast sagt slakir. Það var
greinilegt að þeir reyndu að hjálpa
Dönunum en það dugði bara ekki.
Við héldum samt ró okkar og vorum
ekkert að setja of mikið út á dóm-
gæsluna. Það er alltaf slæmt að
missa mann út af fyrir að mótmæla
einstökum dómum og það má alls
ekki í svona stöðu. Við erum komn-
ir með það mikla reynslu að við vit-
um alveg hvað það þýðir að röfla í
dómaranum.
„Það hefur verið mjög mikill sig-
urvilji í liðinu að undanförnu og við
unnum þennan leik fyrst og fremst
á sigurvilja. Það sáu allir sem fylgd-
ust með leiknum að við vorum að
gefa okkur hundrað prósent í þetta.
Við sýndum það að við erum einfald-
lega betri en Danir.“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
GEIR Svelnsson, fyrirllöl íslands, og Patrekur Jóhannes-
sonfagna í Álaborg á sunnudaginn.
„ÉG misnotaði eitt vítakast í
upphafi leiksins og var viss um
að það myndi ekki gerast aftur
í þessum leik,“ sagði Valdimar
Grímsson en hann tryggði sig-
urinn með því að skora 23. mark
íslenska liðsins þegar rúm mín-
úta var eftir. „Ég misnota sjald-
an tvö vítaköst í leik og sem
betur fer þá gerðist það ekki í
þessum leik. Ég hef margoft
sagt að ég er bestur undir álagi
og það var undirstrikað að
þessu sinni.“
Valdimar sagði danska liðið hafa
leikið eins og reiknað hafí verið
með. „Það er staðreynd að við erum
betri en þeir á öllum
jvar sviðum og hafi ein-
Benediktsson hver verið í vafa þá
skrifar ætti þeim vafa að
hafa verið eytt nú.
Við erum með tak á þeim og það
kom ekki til greina að losa það í
þessum leik. ísland er stóra landið í
baráttu þessara liða á handknatt-
leiksvellinum.“
Stuðningur áhorfenda
var f rábær
Leikurinn var mjög erfiður eins og
við höfðum reiknað með en þetta
hafðist og það var stórkostlegt. Dan-
imir lágu ekki bara einu sinni heldur
tvisvar," sagði Júlíus Jónasson, einn
leikreyndasti leikmaður íslenska liðs-
ins.
„Stuðningur áhorfenda var frábær
og það er makalaust að leika á úti-
velli og hafa allan þennan stuðning.
Ég vil þakka öllum þeim sem komu
og studdu við bakið á okkur, þetta
er einstakt."
Júlíus sagði enga örvæntingu hafa
verið í liðinu þó það hafi verið þrem-
ur mörkum undir á kafla í fyrri hálf-
leik og síðari hálfleikur gekk eins
og vonir stóðu til. „Það var vitað að
um leið og okkur tækist að komast
yfir, þá færu Danirnir á taugum og
sú varð raunin. Þeir fóru að leika
styttri sóknir og ljúka þeim í misgóð-
um færum.“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
S0REN Haagen Andreasen, markvörður Dana, reynlr að verja
skot frá Olafi Stefánssyni.
Egyptar
koma til
íslands
EGYPTAR, sem
eru að búa sig
undir HM í Japan
eins og íslending-
ar, koma til ís-
lands um mán-
aðamótin janúar
febrúar og spila
tvo æfingaleiki
við íslenska
landsliðið. Kín-
veijar hafa einn-
ig beðið um leiki
við ísland mánuði
síðar. Eins hefur
HSÍ fengið boð
um að taka þátt í
móti í Þýskalandi
í febrúar. Þor-
björn landsiiðs-
þjálfari sagðist
hafa áhuga á að
fara með liðið til
Þýskalands enda
kæmi það sér vel
því þrír landsliðs-
mannanna leika
þar. Hann vissi
hins vegar ekki
hvaða þjóðir yrðu
með í mótinu auk
íslands og Þýska-
lands.
Erum einfaldlega betri
ENGLAND: 211 1 X 2 1 1 X 1 1 1 X ITALIA: X 1 X 1 X X 12X 1111