Morgunblaðið - 19.12.1996, Qupperneq 4
4 B FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Samskip
sækja á
erlendis
Samskip hf. opnuðu skrifstofur í Englandi
og Hollandi í fyrra og í upphafi ársins í
Bandaríkjunum. Félagið hyggur á aukin
umsvif á erlendum flutningamarkaði. Guðni
Einarsson heimsótti Samskip Ltd. í Hull
og ræddi við Ásu Einarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra, Kristján Pálsson sölu- og
*
markaðsstjóra og Olaf Steinarsson deildar-
stjóra innflutnings hjá Samskipum hf.
KRISTJÁN Pálsson sölustjóri og Ása Einarsdóttir framkvæmda-
stjóri í skrifstofu Samskip Ltd. Fyrirtækið er til húsa í gamalli
bruggverksmiðju sem breytt var í skrifstofuhús.
MorgunDladiO/Uuöni
ÓLAFUR Steinarsson deildarstjóri og Krislján Pálsson sölu-
stjóri Samskip Ltd. við höfnina í Hull.
SAMSKIP hf. opnuðu skrif-
stofu í Huli í Englandi 1.
ágúst 1995. Hlutverk skrif-
stofunnar er að sjá um
starfsemi Samskipa í Bretlandi, það
er Englandi, Skotlandi og Wales.
Ása Einarsdóttir er framkvæmda-
stjóri Samskip Ltd. í Hull og Krist-
ján Pálsson sölu- og markaðsstjóri.
Auk þeirra vinna fimm enskir
starfsmenn á skrifstofunni. Skrif-
stofa Samskipa Ltd. í Hull var fyrst
til húsa í skúrbyggingu við höfnina
en er nú nýlega flutt inn í borgina,
í gamla bruggverk-
smiðju sem breytt hef-
ur verið í skrifstofuhús.
Nútímalegur
rekstur
„Eftir fyrsta starfs-
árið hér erum við mjög
sátt við árangurinn,"
sagði Ása. „Við tókum
við af breskum um-
boðsmanni og okkar
fyrsta verkefni var að
færa skrifstofuhaldið
til nútímans. Tölvu-
væðing er ekki jafn al-
menn hér og heima og
margt í vinnubrögðum
sem við vildum breyta.
Sumir starfsmenn okk-
ar kveiktu í fyrsta sinn
á tölvu þann 1. ágúst 1995 og fóru
beint inn í Windows95! Við höfum
engu að síður lært margt af Bretun-
um og þeirra vinnubrögðum og sú
þekking nýtist okkur vel í samskipt-
um við innlenda og erlenda við-
skiptavini.
Einnig höfum við lagt áherslu á
að byggja upp viðskiptasambönd hér
á svæðinu og utan þess, ekki síst
við undirverktaka og gamla og nýja
viðskiptavini."
Samskip hafa tekið í notkun nýj-
an Concord-hugbúnað sem heldur
utan um flutningakerfið. Þessi hug-
búnaður var fyrst settur upp á skrif-
stofunum Samskipa erlendis og
verður fljótlega notaður innan alls
fyrirtækisins. „Hugbúnaðurinn
heldur utan um alla þætti flutning-
anna. Allar farmskrár eru á tölvu-
tæku uformi og þessi hagnýting
upplýsingatækni sparar verulegan
tíma. I framtíðinni verður varan
strikamerkt við móttöku og það
auðveldar að fylgjast með því hvar
hún er stödd hveiju sinni. Það skipt-
ir miklu í flutningastarfsemi í dag
að hafa áreiðanlegar upglýsingar á
reiðum höndum,“ segir Ása.
Vikulegar ferðir
Tvö skip, Arnarfell og Dísarfell,
annast vikulegar sigl-
ingar milli íslands og
Englands. Skip Sam-
skipa koma á hverjum
mánudegi til Hull.
Venjulega er viðdvölin
5-6 klukkustundir. í
Humber ánni er allt að
6 metra munur á flóði
og fjöru og skip geta
þurft að sæta lagi með
að komast inn í flotkví-
arnar í höfninni. „Skip-
in fara á fimmtudags-
kvöldi frá íslandi, eru
í Færeyjum á hádegi
laugardags og hér á
mánudegi. Þetta kemur
sér mjög vel fyrir fisk-
útflytjendur frá íslandi
og Færeyjum því Hull
er mikilvæg uppskipunarhöfn fyrir
ísfisk og mikilvægt að fiskurinn
komist á markað sem fyrst í vik-
unni,“ sagði Ása. Frá Hull er skipið
svo um vikutíma aftur til Islands
með viðkomu í Rotterdam í Hol-
landi, Bremerhaven í Þýskalandi,
Árósum í Danmörku, Varberg í
Svíþjóð, Moss í Noregi og svo aftur
um Færeyjar til íslands.
„Markaðurinn krefst vikulegra
afskipana. Við bjóðum grundvallar-
þjónustu sem hentar vel þeim sem
eru með reglulegt vöruflæði frá
Evrópu," sagði Olafur. „Samskip
notar tvö skip til áætlunarsiglinga
til Evrópu og því verður að mæta
kröfum útflytjenda og innflytjenda
um sem stystan flutningstíma á
vörum. Útflutningur eru að stærst-
um hluta að fara til Bretlands og
meginlands Evrópu en innflutningur
kemur að jöfnum hluta frá meg-
inlandinu og Norðurlöndum."
Samskip hafa undanfarin ár
byggt upp samvinnu við færeyska
skipafélagið Faroe Line. Færeying-
arnir sigla vikulega til Austfjarða-
hafna og þaðan um Færeyjar til
Bremerhaven. Samskip taka vörur
í Færeyjum, aðallega fisk, og fara
með til Englands og Rotterdam.
Eins taka þau vörur í þessum höfn-
um og á Norðurlöndum sem síðan
eru fluttar til Færeyja.
Þau hjá Samskipum segja að í
tonnum talið flytji félagið þrefalt
mejra til Bretlands en frá Bretlandi
til íslands. Útflytjendur til Bretlands
eru fáir og stórir og selja fisk, skinn,
ull og brotajárn. Flutningurinn til
Islands er fyrir stóra og smáa aðila
og þar er um að ræða fjölbreyttar
vörur svo sem salt, stál, rör, hjól-
barða og almenna stykkjavöru svo
sem matvöru. Samskipamenn hafa
trú á að flutningar frá Bretlandi til
Islands muni aukast enda fram-
leiðslukostnaður í Bretlandi almennt
lágur og mörg ný fyrirtæki eru að
hasla sér völl, einkum í Wales og á
írlandi.
Aukin áhersla á útlönd
Auk skrifstofunnar í Hull opnuðu
Samskip hf. skrifstofu í Rotterdam
1. júlí í fyrra og í byijun þessa árs
var opnuð skrifstofa í Norfolk í
Bandaríkjunum. Að sögn Ólafs
Steinarssonar er hlutverk erlendu
skrifstofanna að veita inn- og út-
flytjendum besta mögulega þjón-
ustu auk þess að afla þekkingar og
reynslu _af flutningastarfsemi er-
lendis. Á hverri skrifstofu starfa
tveir til þrír íslendingar auk er-
lendra starfsmanna. Ása telur það
mjög jákvætt að vera bæði með ís-
lenska og erlenda starfsmenn. ís-
lendingar sem leiti fyrirgreiðslu
kunni vel við að geta rætt við landa
sína og heimamenn þekki betur til
aðstæðna í landinu sem starfað er í.
Olafur segir að tilgangurinn með
skrifstofurekstri erlendis sé marg-
þættur. Fyrst og fremst sé það til
að þjóna betur aðalmarkmiði félags-
ins, það er að sinna flutningastarf-
semi til og frá íslandi. í öðru lagi
að afla þekkingar og reynslu af
flutningastarfsemi erlendis. I þriðja
lagi stefni fyrirtækið að aukinni i
flutningastarfsemi milli landa er-
lendis.
„Það eru takmarkaðir vaxtar-
möguleikar á íslandi, markaðurinn
er lítill og samkeppni í flutningum
hörð,“ segir Ása. „Hver hundraðs-
hluti sem næst í aukinni markaðs-
hlutdeild er dýru verði keyptur og
kostar mikla vinnu. Til lengri tíma
litið eru vaxtarmöguleikarnir er-
Iendis. Við erum rétt að byija á
erlendum markaði. Öll íslensk fyrir- )
tæki eru lítil í alþjóðasamkeppni.
En sem lítið fyrirtæki þurfum við
ekki stóran skerf af kökunni.“
Erlend starfsemi
Ása segir að Samskip hafi í aukn-
um mæli fikrað sig inn í svonefnd
þriðja lands viðskipti, _en það eru
flutningar eru óháðir íslandi. „Við
erum að byggja hér upp alhliða
flutningsmiðlun og flutningastarf-
semi og viðskiptavinir okkar eru :
bæði íslensk og bresk fyrirtæki. Við
erum ekki bara í sjóflutningum held-
ur bjóðum heildarlausnir í flutning-
um og erum í samstarfi við marga
stóra flutningsaðila. Þannig höfum
við byggt upp sterk tengsl og náð
góðum samningum um flutninga
innan Evrópu og til fjarlægra
landa.“
Kristján segir að Samskip hafí
tekið að sér ýmsa flutninga milli
landa erlendis til og frá meginlandi
Evrópu og milli Bandaríkjanna og
Bretlands. Flutningsmiðlunin felst í
því að koma vörunni frá uppruna-
stað til áfangastaðar, hvort sem
varan er flutt með skipi, flugi, bíl
eða járnbrautarlest. Eins að annast
alla skjalagerð sem þarf að inna af
hendi til að varan komist á áfanga-
stað.
Hann segir að góðir samningar
hafi náðst við ýmsa undirverktaka
Samskipa í flutningum, bæði þá sem
reka flutningabíla og frystigeymsl-
ur, sem komi viðskiptavinunum til
góða. „Þetta er það sem skilar við-
skiptavinum okkar, sérstaklega á
íslandi, lægra flutningsverði þegar
til lengri tíma er litið,“ sagði Krist-
ján. „Með auknu flutningsmagni
náum við hagstæðari samningum
og styrkjum samkeppnisstöðu okkar
í Bretlandi."
Eftir fyrsta árið í rekstri voru 22%
af tekjum skrifstofunnar í Hull vegna
for- og_ framhaldsflutninga utan ís-
lands. Ása segir það örugga vísbend-
ingu um að þau séu á réttri leið.
„Við munum leggja höfuðáherslu á
þessa starfsemi á næstu mánuðum.
Uppbygging erlendu starfseminnar
er framtíðarverkefni sem Samskip
leggja mikla áherslu á.“
Alhliða flutningsþjónusta
Það er ekki bara í útlöndum sem \
Samskip hf. eru að feta inn á nýjar
brautir. Dótturfyrirtæki Samskipa á
íslandi, BM-flutningar, á fyrirtækið
Air Express á Islandi sem er um-
boðsaðili Air Express. Þetta félag
annast vöruflutninga með flugvél
íslandsflugs sem flýgur milli íslands
og Bretlands. „Við höfum haslað
okkur völl í vöruflugi sem er fimm
sinnum í viku til Evrópu," sagði
Ólafur. „Þetta eru flutningar frá
dyrum til dyra. Við getum skilað I
vörunni til viðtakanda á Islandi á
sama sólarhring og tekið er við
henni hér í Bretlandi. Þessi stutti
flutningstími er dýrari lausn en
skipaflutningurinn, en góður val-
kostur þegar svo ber undir. Þetta
er að mínum mati besti flutnings-
kosturinn í vöruflugi milli Islands
og Bretlands.“
Ása
Einarsdóttir
H-Laun
Grensásvcgi 8 • 108 lteykjavík • Sími: S68-8882 «
"'im
I