Morgunblaðið - 06.02.1997, Side 1
BLAD ALLRA LANDSMANMA
Jtt4>rgu:nMa&t3>
C
1997
FIMMTUDAGUR 6. FEBRUAR
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR
Haukar
töpuðu og
Grótta
sigraði
ÞRÍR leikir fóru fram í
1. deild karla í gær-
kvöldi. Haukar töpuðu
heima fyrirVal, 24:23.
Þá sigruðu ÍR-ingar HK
með eins marks mun,
21:20 og Grótta lyfti sér
úr botnsætinu með 25:23
sigri á FH. Hér er Guð-
jón V. Sigurðsson,
Gróttu, kominn í ákjós-
anlegt færi en Knútur
Sigurðsson hefur tekið i
handlegg hans. Guðjón
innsiglaði siðar annan
sigur Seltirninga i röð.
Morgunblaðið/Þorkell
■ Lelkirnlr / C4
Jón Arnará HM
innanhúss í París
JÓN Arnar Magnússon, tugþrautarkappi úr
Tindastóli, verður meðal keppenda í sjöþraut á
heimsmeistaramótinu innanhúss, sem fram fer i
Paris 7. til 9. mars. Tólf þrautarkappar munu
keppa í sjöþrautinni og nú er ljóst að Jón Arnar
verður meðal keppenda. Jón er í ágætis æfingu
þessa dagana og stefnir að þvi að ná góðiun ár-
angri í París. Síður er reiknað með að Dan O’Bri-
en verði meðal keppenda en hann er heimsmet-
liafi í sjö- og tugþraut og auk þess ólympiumeist-
ari í tugþraut.
Ekki er enn ijóst hversu margir íslendingar
verða meðal keppenda á mótinu en þó er yóst
að Jón Araar og Vala Flosadóttir keppa þar og
fleiri eru að reyna við lágmörkin.
Roda greiðir um 7,5
millj. fyrir Gunnar
HOLLENSKA félagið Roda og Valur hafa kom-
ist að samkomulagi varðandi Gunnar Einarsson
og er gert ráð fyrir að hann skrifi undir samn-
ing tU 16 mánaða i dag eða á morgun, að sögn
Einars Óskarssonar, föður Gunnars. Roda hefur
leigt Gunnar út líðandi tímabil til MW i Maast-
richt og lék hann æfingaleik með liðinu í fyrra-
kvöld en það er i fjórða sæti i 2. deild. Einar
sagði að kaupverðið væri um 200.000 gyllini eða
um 7,5 miHjónir króna og auk þess fengi Valur
ákveðna prósentu af söluverði ef hollenska félag-
ið seldi Gunnar til annars félags.
Ekkert íslands-
mót í fjölþraut
ÍSLANDSMÓTIÐ i atrennulausum stökkum og
fjölþraut innanhúss 1997 átti samkvæmt móta-
skrá FRÍ að fara fram í lok janúar, en var ekki
haldið og hefur nú verið frestað um óákveðinn
tíma vegna þess að ekkert félag hefur áhuga á
að sjá wn framkvæmd mótsins.
Helgi S. Haraldsson, formaður Frjálsfþrótta-
sambands íslands, sagði þetta mjög slæmt. Hann
sagði að aðeins væri hægt að halda þetta mót á
einum stað á landinu, í Baldurshaga í Reykjavík.
„Reykvísku félögin eru greinilega orðin þreytt á
að halda þetta mót og félögin úti á landi hafa
ekki þá aðstöðu sem til þarf. Það er þvi spurning
hvort þetta mót verði hreinlega ekki lagt niður.
Það hafa verið umræður á ársþingum FRÍ um
að leggja mótið niður en það hefur ekki enn
fengist samþykkt," sagði Helgi.
O’Neal ekki með
SHAQUILLE O’Neal, miðherji Lakers, verður
ekki með sljörnuliði vesturstrandarinnar í hinum
árlega stjörnuleik NB A-leikmanna sem fram fer
á sunnudaginn. O’Neal meiddist á hægra hné í
leik Lakers og Washington á sunnudaginn var
og þarf að hvfla sig i að minnsta kosti viku í
viðbót. Clyde Drexler er lika meiddur og verður
ekki með en í þeirra stað hafa verið valdir þeir
Kevin Garnett lýá Minnesota og Chris GatUng
hjá Dallas.
Vala fær pening
ana f rá FRI
FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND íslands hefur haft samband við Völu
Flosadóttur stangarstökkvara og tilkynnt henni að gengið verði frá
greiðslum til hennar frá Afreksmannasjóði íþróttasambands íslands
innan skamms. Fyrri hluta Iiðins árs fékk FRI 200.000 kr. frá Afreks-
mannasjóði og voru peningarnir.eyrnamerktir Völu. Helgi Haralds-
son, formaður FRÍ, sagði við Morgunblaðið að hann hefði ekki vitað
af þessu fyrr en Morgunblaðið hafði eftir móður Völu um helgina
að engar greiðslur hefðu borist. „Ég fól gjaldkera sambandsins að
ganga í málið og hef tilkynnt mæðgunum það. Þetta er á misskiln-
ingi byggt og honum verður eytt enda viljum við eiga gott samstarf
við þær.“ Afreksmannajóður hefur samþykkt að greiða Völu 600.000
kr. í ár en Helgi sagði að ekki væri búið að afgreiða peningana til FRÍ
Uppsogn hja
Ólympíunefnd
Nýkjörin stjórn Ólympíu- starfsemi Óí og skrifstofunnar fá að njóta krafta þeirra áfram.
nefndar íslands hélt fund verði áfram óbreytt og óháð Fram kom að Edda hefði ákveð-
eftir kjörið á aðalfundi nefnd- öðrum samtökum íþróttanna ið að segja starfi sínu lausu og
arinnar í fyrrakvöld og hluti eins og lög Óí kveða á um. Barbara hefði undirbúið afsögn
stjórnarinnar fór í gær yfir Stjórnin lýsir yfir fyllsta trausti en hún hefði fallist á ósk sljórn-
helstu fyrirliggjandi verkefni. til Barböru Wdowiak og Eddu arinnar að skoða hug sinn fram
í tilkynningu frá nefndinni er J. Briem, starfsmanna skrif- að næstu mánaðamótum í því
tekið fram að gefnu tilefni að stofunnar, og óskaði eftir að efni.
HAIMDKNATTLEIKUR: VALSMENN STÖDVUÐU SIGURGÖNGU HAUKA / C4