Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 C 3
Kaupæði
Keegans
Fjárfrekur „stjóri" á St James' Park
Ellefu krossar með
nöfnum leikmanna
ÞEGAR vallarstarfsmaður ítalska 3. deildarliðsins Viterbese
mætti til starfa á dögunum, sá hann að búið var að setja ellefu
trékrossa á miðjan völl félagsins — á krossana var búið að rita
nöfn leikmanna í byijunarliði liðsins. Lögreglan var kölluð á
vettvang og beindist grunur strax að stuðningsmönnum liðsins —
að þeir hafi sett krossana á völUnn til að minnast þess, að liðið
hafði tapað fjórum síðustu leikjum sínurn. Krossarnir voru fjar-
lægðir og síðar um daginn fögnuðu leikmenn Viterbese sigri á
Juveterranovafrá SikUey, 1:0. Fyrirliði Viterbese, MassimUiano
Nardecchia, var ekki óánægður með tiltæki stuðningsmanna liðs-
ins. „ Við fengum þarfa áminningu og lékum upp á líf eða dauða.“
Hoddleóttast ekki leik
gegn Ítalíu í IMantes
Kaup og sölur Keegans
Keyptir
1992:
Júnf John Beresford, Portsmouth.... 650.000
Júlí Barry Venison, Liverpool..... 250.000
Sept. Robert Lee, Charlton.......... 700.000
1993:
Mars Scott Sellars, Leeds........... 700.000
Mars Andy Cole, Bristol City...... 1.700.000
Júnf PeterBeardsley, Everton...... 1.500.000
Júlf Alex Mathie, Morton............. 250.000
1994:
Feb. Ruel Fox, Norwich............ 2.250.000
Mars Darren Peacock, QPR.......... 2.700.000
Júlf Marc Hottiger, Sion............. 600.000
Ágúst Philippe Albert, Anderlecht.... 2.650.000
Sept. Paul Kison, Derby........... 2.250.000
1995:
Jan. KeithGillespie,Man.Utd....... 1.000.000
(var inni sölu Cole til Man. Utd.)
Júnf Warren Barton, Wimbledon..... 4.000.000
Júnf Les Ferdinand, QPR............ 6.000.000
Júlí David Ginola, Parfs SG....... 2.500.000
Ágúst Shaka Hislop, Reading....... 1.500.000
Nóv . Darren Huckerby, Lincoln... 500.000
1996:
Feb. Faustino Asprilla, Parma..... 6.700.000
Feb. David Batty, Blackbum........ 3.750.000
Júlf Alan Shearer, Blackbum.......15.000.000
Seldir
1993:
Júní David Kelly, Wolves............. 750.000
Júlf Gavin Peacock, Chelsea........ 1.250.000
Júlí AlanThompson, Bolton......... 250.000
1994:
Febr. Kevin Scott, Tottenham..... 850.000
1995:
Jan. Andy Cole, Man. Utd........... 7.000.000
Feb. Alex Mathie, Ipswich........... 500.000
Maf Paul Bracewell, Sunderland... 100.000
Maf Alan Neilson, Southampton.... 500.000
Júnf Barry Venison, Galatasaray... 750.000
Okt. RuelFox, Tottenham*.......... 4.200.000
Des. Scott Sellars, Bolton.......... 750.000
1996:
Jan. Marc Hottiger, Everton....... 700.000
Nóv. Darren Huckerby, Coventry.... 1.000.000
Sigmundur Ú.
Steinarsson
tók saman
Kevin Keegan, fyrrum knatt-
spymustjóri Newcastle, varð
þekktur fyrir kaupæði sitt á St.
James’Park - hann
keypti leikmenn fyr-
ir samtals 59,77
milljónir punda á
fjórum árum, seldi
leikmenn fyrir 21,195 millj. punda.
Keegan lagði mestu áhersluna á
sóknarleik, sem sést best á því að
hann keypti ekki marga várnar-
menn - Newcastle gat hæglega
skorað fjögur mörk í leik, en fengið
á sig fjögur mörk. Margir vilja halda
því fram að of sókndjarfur leikur
og kaupæðið hafí orðið Keegan að
falli. Hann lagði alltaf meiri og
meiri pressu á sig við hvem leik-
manninn sem hann keypti - kapp-
hlaupið um Englandsmeistaratitil-
inn, sem Newcastle fékk síðast
1927, varð Keegan dýrkeypt.
Keegan tók við Newcastle í 1.
deild í febrúar 1992, þegar liðið var
í fallhættu. Liðið bjargaði sér frá
falli og 1993 tryggði Newcastle sér
sæti í úrvalsdeildinni með sigri í
1. deild. 1994 varð liðið í þriðja
sæti í úrvalsdeildinni, 1995 f sjötta
sæti og 1996 missti Newcastle af
meistaratitlinum til Man. United á
klaufalegan hátt og hafnaði í öðru
sæti. Það var á þeim tímapunkti
sem taugar Keegans fóru að titra
og hann gafst upp á dögunum,
þegar Newcastle var í fjórða sæti
í deildinni.
John Beresford var fyrsti leik-
maðurinn sem Keegan keypti til
Newcastle, borgaði Portsmouth 650
þús. pund fyrir hann í júní 1992,
hann átti síðan eftir að kaupa tutt-
ugu leikmenn til viðbótar og sá síð-
asti sem hann keypti var Alan
Shearer, dýrasti knattspymumaður
heims, sem Keegan keypti fyrir 15
millj. punda frá Blackbum.
Allsport/Mike Cooper
TVEIR gráhœrðir, Kevln Keegan, fyrrum knattspyrnu-
stjórl Newcastle, og aðstoðarmaður hans Terry
McDermott, leggja á ráðln.
Frakkar verða með forleik fyrir HM 1998
Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari
Englands, óttast ekki þó að
Englendingar mæti ítölum í Frakk-
landsmótinu í sumar, í leik sem
verður leikinn á milli tveggja leikja
þjóðanna í undankeppni HM. Eng-
lendingar mæta ítölum á Wembley
12. febrúar og síðan aftur á Ítalíu
í október.
Frakkar, Englendingar, ítalar og
Brasilíumenn taka þátt í Frakk-
landsmótinu, sem fer fram í júní.
Mótið er upphitunarmót fyrir HM
1998, sem fer fram í Frakklandi.
Það lið sem verður sigurvegari í
mótinu fær 70 millj. ísl. kr. f verð-
laun.
„Þetta mót er tilvalið tækifæri
fyrir leikmenn mína og mig, til að
kynnast nánar. Við ætlum okkur
að komast í heimsmeistarakeppnina
í Frakklandi og það verður gott að
kynnast andrúmsloftinu þar,“ sagði
Hoddle, sem er óhræddur við að
leika gegn ítölum í Nantes. „Það
er allt annað þegar lið leika þýðing-
armikla leiki en vináttuleik eins og
verður í Frakklandi. Menn hugsa á
annan hátt þegar vináttuleikir eru
leiknir, jafnvel þó að þeir séu leikn-
ir í mótum eins í Frakklandi,“ sagði
Hoddle. Cesare Maldini, landsliðs-
þjálfari Ítalíu, er á sama máli. „Fyr-
ir okkur, eins og Englendinga, eru
það leikimir í HM sem skipta máli.
Við eigum erfíðan leik fyrir höndum
á Wembley. Englendingar eru með
mjög gott lið, þú þarft ekki annað
en nefna nöfn eins og Shearer, Ferd-
inand og Berckham til að sjá það,“
sagði Maldini.
Frakkar og Brasiiíumenn leika
fyrsta leikinn f Frakklandsmótinu í
Lyon 3. júní. Daginn eftir leika
Englendingar og Italar í Nantes.
Frakkar og Englendingar mætast í
Montpellier 7. júní, daginn eftir leika
Brasilíumenn og ítalar í Lyon. Eng-
land og Brasilía leika í Lens 10.
júní og Frakkland og Ítalía í París
11. júní.
Þrír fimm
stjörnu vell-
ir á Ítalíu
KNATTSPYRNUSAMBAND
Evrópu, UEFA, gefur knatt-
spyrnuvöllum I Evrópu stjörn-
ur fyrir gæði og eru tiu vellir
í fimm stjömu hópnum. Þar
af eru þrír þeirra & Ítalíu —
Guiseppe Meazza Stadion,
áður San Siro-vöUurinn, I
Mílanó, Ólympíuleikvangur-
inn i Róm og Stadio deUe Alpi
f Tórinó. Aðrir vellir í Evrópu
sem fengu fimm stjörnur, eru:
Feyenoord Stadion í Rotterd-
am, Amsterdam Arena,
heimavöllur Ajax, Wembley f
London, Old Trafford í Manc-
hester, Ólympíuleikvangur-
inn f Miinchen, Ernst Happei
Stadion f Vín og ibrox f
Glasgow.
Flestir veðja á Brasilíu-
menn ÍHM íFrakklandi
BRASILÍUMENN eru efstir á blaði þjá veðbönkum í London —
flestir veðja á að þeir verði heimsmeistara í Frakklandi 1998.
Lfkur þeirra eru 4-1, næstir á blaði koma Frakkar með 5-1. Evr-
ópumeistarar Þýskalands koma f þriðja sæti, 6-1, þá Ítalía 8-1,
Holland 10-1 og England er f sjötta sæti, 12-1.
ftfóm
FOLK
■ FEYENOORD hefur hætt við
að reyna að fá Pierre Van Hooy-
donk, miðheija Celtic, til liðs við
sig.
■ ENRICO Annoni, varnarleik-
maður hjá Roma, er kominn til
Skotlands til að skrifa undir samn-
ing við Celtic. Annoni er 30 ára.
■ MANCHESTER City hefur
hætt við að kaupa Gary Smith,
fyrrum leikmann Aberdeen, frá
franska liðinu Rennes.
■ BRYAN Gunn, markvörður
Norwich, hefur tilkynnt liðinu að
hann sé á förum — eftir þetta
keppnistímabil. Leicester hefur
hug á að fá hann til sín.
■ LTVERPOOL hefur einnig
áhuga að fá Gunn — sem vara-
mann David James.
■ RACHID Yekini, landsliðs-
maður Nígeríu, hefur hug á að
snúa aftur til Portúgals og leika
með Vitoria Setubal. Hann er nú
leikmaður hjá Sporting Gijon á
Spáni, þar sem hann hefur mátt
verma varamannabekkinn að und-
anfömu.
■ BANDARÍSKA liðið Colorado
vill fá 2 millj. punda fyrir Shaun
Bartlett, landsliðsmiðheija Suð-
ur-Afríku, sem hefur æft með
Eindhoven. Hollenska liðið er
ekki tilbúið að greiða þá upphæð,
þannig að Bartlett fer aftur vetur
um haf.
■ PORTÚGALSKI vamar-
maðurinn Ze Maria hefur nú hug
á að ganga til liðs við Lazio á
Ítalíu, eftir að Real Madrid hætti
við að fa hann til sín í kjölfarið á
að liðið keypti Christian Panucci
frá AC Milan.
■ ROBERT Lee, miðvallarspilari
Newcastle, meiddist í sigurleikn-
um gegn Leicester og er óvíst
hvort hann verði í iaridsliðshópi
Englendinga er þeir mæta ítölum
á Wembley.
■ ALAN Ball, fyrrum knatt-
spymustjóri Man. City, hefur ver-
ið nefndur sem næsti knattspymu-
stjóri Plymouth.
■ CLIVE Allen, fyrrum leikmað-
ur Chelsea, mun leika á ný á
Stamford Bridge í apríl. Hann
leikur þá sem „sparkari" með
London Monatchs, sem leikur
ameríska knattspymu.
■ BAYERN MUnchen hefur
augastað á Brasilíumanninum
Elber, miðherja Stuttgart. Þá
hefur La Coruna á Spáni einnig
áhuga á kappanum, en liðið hefur
fímm Brasilíumenn í herbúðum
sínum. „Þetta er kannski mitt eina
tækifæri til að leika fyrir Brasil-
íu,“ sagði Elbér.
■ TOMAS Skuhravy, landsliðs-
maður Tékka, sem verður að
leggja knattspymuskóna á hilluna
vegna hnémeiðsla, ætlar að gerast
umboðsmaður fyrir knattspymu-
menn í Evrópu.
■ FRANK Clarke, knattspyrnu-
stjóri Man. City, neitar alfarið
þeim sögusögnum að hann hafí
hug á að selja Uwe Rosler og
Georgi Kinkladze.
■ KEVIN Davies varð fyrsti leik-
maðurinn í 106 ára sögu Chester-
field til að skora þrennu í bikar-
keppninni, er hann skoraði öll þijú
mörkin gegn Bolton, 3:2.
■ ÞRENNA Davies var sú fyrsta
sem leikmaður liðsins skorar í 20
ár. Chesterfield er komið í fimmtu
umferð bikarkeppninnar í fyrsta
skipti í 47 ár.