Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 C 7
BÖRN OG UNGLINGAR
Islenska unglingalandsliðið íkörfu-
knattleik hafnaði í 4. sæti á NM
Sorglega
nálægt sigri
UNGLINGALANDSLIÐ pilta í körfuknattleik, skipað leikmönn-
um fæddum 1980, hreppti 4. sæti á Norðurlandamótinu sem
fram fór í Finnlandi ílok síðasta árs. „Við náðum því mark-
miði sem við settum okkur en munurinn á fjórða og fyrsta
sæti var sorglega lítill,11 sagði Hörður Gauti Gunnarsson, þjálf-
ari íslenska liðsins. „Fjögur efstu liðin voru frekar jöfn að
getu þó að Svíar hafi sigrað alia
Islenska liðið fékk góðan byr
strax í upphafi mótsins því í
fyrsta leik sigraði það Norður-
landameistarana frá Eistlandi með
sex stiga mun,
76:70, og kom sá
Benediktsson s£ur áývar}. „Tal-
skrifar ið var fynrfram að
Eistlendingar væru
með sterkasta lið mótsins ásamt
Svíum og Finnum,“ sagði Hörður.
Með sigrinum blönduðu íslending-
ar sér í keppni efstu liða. Fljótlega
kom þó í ljós að Svíar voru með
sterkasta liðið og myndu fara með
sigur ef ekkert óvænt gerðist.
Enda kom það á daginn að Svíar
unnu alla sína leiki og hömpuðu
Norðurlandameistaratitlinum.
Eftir að Eistlendingar sigruðu
Finna nokkuð örugglega varð ís-
lenska liðið að sigra Finna til að
hafna í þriðja sæti. Það gekk ekki
eftir, Finnar léku íslenska liðið
grátt í fyrri hálfleik og í leikhléi
skildu 23 stig liðin að, Finnum í
vil, 55:32. í byrjun síðari hálfleiks
snerist leikurinn íslendingum í hag
er þeir gerðu 25 stig á sama tíma
og Finnar gerðu aðeins 3, á sjö
mínútna kafla. Næstu tíu mínútur
leiksins var viðureignin í járnum,
en botninn datt úr leik íslands á
síðustu þremur mínútunum og
Finnar tryggðu sér öruggan sigur.
Vömin veiki hlekkurinn
Síðasti leikurinn var gegn Dönum
og vann íslenska liðið öruggan sig-
ur, 97:70, og hafnaði í 4. sæti með
þijá sigurleiki og tvö töp eins og
Finnar og Eistlendingar en óhag-
mdstæðinga sína.“
stæðara stigahlutfall í innbyrðis við-
ureignum.
„Styrkur liðsins lá í sóknarleikn-
um. Við lékum aðeins fijálsan sókn-
arleik og má nefna að ekki var reynt
eitt einasta leikkerfi í öllum leikjun-
um,“ sagði Hörður Gauti. „Liðið lék
mjög hratt og andstæðingum okkar
reyndist erfitt að stöðva það. Við
skoruðum mikið og vorum sífellt að
reyna að auka hraðann, sérstaklega
í hraðaupphlaupum. Varnarleikur-
inn er á hinn bóginn veikleiki liðs-
ins, það lék maður á mann vöm í
öllum leikjunum. Lögð var á það
áhersla að leikmenn tileinki sér
ákveðin vinnubrögð í því afbrigði
vamarleiks á Norðurlandamótinu.
Þetta gekk ekki sem best því við
fengum að jafnaði 85 stig á okkur
í hveijum leik.“
EM í Portúgal í aprfl
Næsta verkefni liðsins er þátt-
taka í einum sex riðla undankeppni
Evrópumótsins í Portúgal í apríi.
Þar leikur íslands í riðli með Sví-
þjóð, Spáni, Portúgal, Póllandi og
Irum. Að sögn Harðar Gauta em
allar þjóðirnar að undanskildum
írum hærra skrifaðar en íslending-
ar. „Þrátt fyrir það hefur markmið-
ið verið sett á að komast í milli-
riðla,“ sagði Hörður.
„í Evrópukeppninni verður það
eitt af markmiðunum að halda and-
stæðingunum undir sjötíu stigum í
hveijum leik. Það verður erfitt en
við vitum að það er hægt. Þess
vegna verður megináhersla lögð á
varnarleikinn í undirbúningum á
næstu vikum.“
Morgunblaðið/Halldór Bachmann
HLUTI af IIAInu sem kepptl
á NM, efri röA f.v.: DavíA
Jónsson, Jón Stefánsson,
Halldór Úlrlksson, Sævar
Slgurmundsson, Morten
Szmledowlcz, HörAur Gautl.
Fremrl röA f.v.: Ingl VII-
hjálmsson^ Sæmundur
Oddsson, Oll Hermannsson,
Jónas Haraldsson.
HALLDÓR Úlriksson leggur knöttlnn af öryggl í spjaldlA og
þaAan f körfuna án þess aA lelkmenn Keflavíkur fái nokkrum
vörnum vlö komiA.
Strandhögg
Skotlandi
18, Guðmundur Ásgeirsson 17, Ólaf-
ur 16, Örlygur Sturluson 14, Gísli
Einarsson 10, Halldór Óli Úlriksson
8, Davíð Þór Jónsson 8, Jón Gunnar
Magnússon 4, Sveinn Blöndal 4,
Magnús Þór Gunnarsson 3, Bened-
etto Nardini 2.
Síðasti leikur ferðarinnar var við
sterkasta félagslið Skotlands í flokki
18 ára pilta og varð það eini leikur-
inn sem íslenska liðið fékk einhveija
keppni sem heitið gat. „Islensku pilt-
arnir voru ekkert á þeim buxunum
að gefa eftir og höfðu náð tólf stiga
forystu eftir tólf mínútna leik,“ sagði
Hörður Gauti. Þessi munur hélst
nánast út leikinn og lokatölur urðu
91:81, en í hálfleik hafði íslenska lið-
ið 14 stiga forystu, 49:35.
Stig íslands: Sveinn Blöndal 15,
Magni Hafsteinsson 12, Davíð Þór
Jónsson 11, Guðmundur Ásgeirsson
10, Ólafur 9, Halldór Óli Úlriksson
7, Gísli Einarsson 7, Örlygur Sturlu-
son 6, Jón Gunnar Magnússon 5,
Matthías Rúnarsson 4, Magnús Þór
Gunnarsson 3, Benedetto Nardini 2.
staðan hafði verið 67:17 í hálfleik.
„Leikurinn var einstefna að körfu
skoska liðsins og segja má að strák-
amir hafi lítið þurft að hafa fyrir sigr-
inum,“ sagði Hörður Gauti Gunnars-
son þjálfari. „Allir leikmenn liðsins
skoruðu og minnti viðureignin frekar
á skotkeppni milli leikmanna íslenska
liðsins en landsleik, getumunurinn var
mjög mikill,“ bætti Hörður Gauti við.
Annar leikur ferðarinnar var við
unglingalandslið Skota 16 ára og
yngri og voru yfirburðir íslenska liðs-
ins ótvíræðir, úrslitin urðu 104:57,
en staðan í hálfleik var 50:23. Eftir
jafnræði á upphafsmínútunum skildi
leiðir og íslenska liðið tók öll völd á
vellinum. „Strákamir léku hraðan
leik, sóknimar vom stuttar og oftar
en ekki enduðu þær með auðveldum
stigum," sagði Hörður Gauti um
þennan leik. Hann sagði ennfremur
að allir leikmenn islenska liðsins hefðu
fengið tækifæri til að spreyta sig að
Matthíasi Rúnarssyni undanskildum
sem meiddist í fyrsta leiknum.
Stig íslands: Magni Hafsteinsson
Sæmundur í stjörnulið NM
SÆMUNDUR Jón Oddsson úr Keflavík var í lok Norðurlandamótsins
valinn í fimm manna úrvalslið þess ásamt tveimur Svíum, einum Finna
og einum Eistlendingi. Sæmundur átti injögjafna leiki allt mótið og
varð m.a. stigahæsti leikmaður þess með 106 stig. Hann var og á
meðal þeirra sem tók flest fráköst, gaf flestar stoðsendingar og komst
inn í flestar sendingar andstæðinga. Árangur Sæmundar er einnig
merkilegur fyrir þær sakir að hann var einu ári yngri en flestir mót-
heijar hans.
Tveir leikmenn íslenska liðsins, Sævar Sigurmundsson, KR, og Svav-
ar Atli Birgisson, UMFT, voru á meðal þeirra fimm leikmanna sem
tóku flest fráköst í mótinu. Svavar tók 34 fráköst, 26 í vörn og 8 í
sókn, og Sævar náði 29 fráköstum, 20 í vörn og 9 í sókn.
Islenska unglingalandsliðið í körfu-
knattleik, skipað leikmönnum
fæddum 1981 og síðar, gekk vel í
ferð sinni til Skotlands fyrir skömmu
og bar liðið sigur úr býtum í þeim
þremur leikjum sem það lék.
Fyrsta viðureignin vár við jafnaldra
í úrvalsliði Glasgowborgar og hafði
íslenska liðið algjöra yfirburði á öllum
sviðum frá fyrstu mínútu til þeirrar
síðustu, lokatölur 116:34, eftir að
Morgunblaðið/Halldór B.
SÆMUNDUR Oddsson.
, Leikir
íslands á
NM pilta
ísland - Eistland.
ísland - Svíþjóð..
ísland - Noregur..
ísland - Finnland.
ísland - Danmörk....
....... 76: 70
....... 83: 98
....... 97: 88
....... 84:103
....... 97: 70
Lokastaðan
Svíþjóð Finnalnd 5 3
3
ísland 3
1
Noregur 0
474:351
440:390
391:347
437:429
364:434
Það lið sem tapaði leik fékk eitt stig
en sigurliðið tvö stig, en þetta var gert
samkvæmt reglum Alþjóða körfuknatt-
leikssambandsins. Þess vegna fengu
Norðmenn fimm stig þrátt fyrir að hafa
beðið ósigur í öllum viðureignum.
Stig íslands
Sæmundur Oddsson.....
Logi Gunnarsson.........
JónN. Hafsteinsson......
Svavar A. Birgisson.....
Sævar Sigurmundsson.....
Ingi Freyr Vilþjálmsson.
Guðmundur Magnússon.....
MortenÞ. Szmiedowicz....
LýðurVignisson..........
Jónas Haraldsson........
Davfð J. Guðlaugsson....
Óli Á. Hermansson......
106
. 58
. 41
. 41
. 40
. 31
. 28
. 25
. 24
. 22
. 11
. 10
Fráköst
Leikmenn liðsir.s tóku alls 182 fráköst
í vöm og sókn á NM og skiptist þau á
eftirfarandi hátt á milli leik-
mannaJFyrst er heildarfráköst hver
leikmanns en í fyrri sviganum eru vam-
arfráköst og í þeim siðari sóknarfrá-
köst).
Svavar A.Birgisson... 34 (26) (8)
SævarSigurmundsson.... 29 (20) (9)
Morten Þ. Szmiedowicz... 26 (16) (10)
Sæmundur Oddsson..... 25 (15) (10)
GuðmundurMagnúss..... 24 (15) (9)
Davíð J. Guðlaugsson. 12 (5) (7)
Logi Gunnarsson...... 11 (9) (2)
Ingi F. Vilhjálmsson. 6 (2) (4)
Jón Hafsteinsson..... 6 (5) (1)
LýðurVignisson........ 5 (4) (1)
Jónas Haraldsson..... 2 (1) (1)
Óli Á. Hermansson.... 2 (0) (2)
Villur
Alls fengu liðsmenn íslenska liðsins
dæmdar á sig 124 villur í leikjunum
fímm, það svarar til 24,8 að jafnaði í
hverjum leik.
I