Morgunblaðið - 06.02.1997, Side 8
1
f
t.
!
'1
i
I
j
Panucci gagnrýnir Sacchi
Italski vamarmaðurinn Christian
Panucci, sem fór frá AC Milan til
Real Madrid á Spáni eftir að Arrigo
Sacchi var ráðinn þjálfari ítalska liðs-
ins, sagði að þjálfarinn væri að bijóta
liðið niður. Neikvæðni hans hefði ber-
lega komið fram í 3:2 tapleik þess á
móti Sampdoria um helgina.
Þetta kom fram í viðtali við
Panucci í ítölskum blöðum í gær.
Hann sagðist hafa séð leikinn í sjón-
varpi og ímynd Sacchis hefði verið
áberandi. „Óöryggi hans endurspegl-
ast í leikmönnunum sem eru fullir
efasemda og stundum ótta.“ Panucci
líkti andrúmsloftinu hjá AC Milan
við herbúðir. „Ég hafði. lokið her-
skyldu og gat ekki hugsað mér að
upplifa hana á ný.“
AC Milan er í 12. sæti ítölsku
deildarinnar og hefur ekki verið í svo
slæmri stöðu á þessum tíma leiktíma-
bils síðan 1982 þegar liðið féll.
Panucci var fyrstur til að fara frá
félaginu eftir að Sacchi var ráðinn í
stað Oscars Washingtons Tabarez í
desember. Fabio Capello, fyrrum
þjálfari AC Milan, samdi við vamar-
manninn 9. janúar og er talið að
kaupverðið hafí verið um 400 millj.
kr. „Sacchi talar mikið en menn vita
aldrei hvort hann er að segja sann-
leikann. AC Milan seldi mig fyrir
átta milljarða líra en enginn trúir að
félagið þarfnaðist peninganna. Sann-
leikurinn er sá að mér var fómað
fyrst.“
Panucci opnaði markareikning
sinn hjá Real þegar liðið vann Dep-
ortivo Comna 3:2 í spænsku deild-
inni um helgina og sagði að andrúms-
loftið hjá félaginu væri frábært.
„Capello hefur skapað ámóta um-
hverfi og ríkti áður hjá AC Milan."
■ MASSIMO Moratti, forseti
Inter Mílanó, sagði í gær að þjálf-
arinn Roy Hodgson hefði allan
stuðning stjórnar liðsins.
■ BENFICA hefur hug á að selja
Brasilíumanninn Osmar Doniz-
ete aftur til Corintians. Brasiliski
þjálfarinn Paulo Autuori, sem
-hætti hjá Benfica fyrir stuttu,
keypti Donizete sl. sumar.
■ BELGÍSKA liðið Anderlecht,
sem hefur selt Gilles de Bilde til
Eindhoven, mun missa annan
leikmann eftir keppnistímabilið.
Johan Walem, sem getur bæði
leikið í vörn og á miðjunni, fer til
Udinese á Ítalíu þegar samningur
hans við Anderlecht rennur út í
sumar.
■ THIERRY Henry, táningurinn
efnilegi hjá Mónakó, hefur hug á
að skrifa undir samning við tvö lið
á næstu dögum. í fyrsta lagi Món-
akó og í öðru lagi við Real Madrid,
sem hefur þá rétt á honum þegar
hann fer frá Mónakó.
■ OTTMAR Hitzfeld, þjálfari
Borussia Dortmund, hefur verið
orðaður við La Coruna á Spáni,
sem eftirmaður John Toshack,
sem hættir eftir keppnistímabilið.
■ RADDY Antic, þjálfari At-
letico Madrid, hefur verið nefndur
sem næsti þjálfari Barcelona, ef
Bobby Robson hættir með liðið.
ISHOKKI
Lemieux gerði
600. markið
MARIO Lemieux, miðheijinn frábæri hjá Pittsburg
Penguins, gerði 600. mark sitt í bandarísku NHL ís-
hokkídeildinni í fyrrinótt er lið hans sigraði Vancou-
ver Canucks 6:4. Lemieux, sem segist líklega hætta
eftir þessa leiktíð, er þar með kominn í hóp nokkurra
fræknustu íshokkíleikmanna sögunnar en einungis sex
voru fyrir í 600 marka klúbbnum í NHL. „Þetta er
mjög sérstakur listi. Lítið bara á nöfnin: [Phil] Espos-
ito, Marcel Dionne, [Wayne] Gretzky; að komast í hóp
þessara manna er nokkuð sem mér mun þykja vænt
um það sem ég á eftir ólifað," sagði Lemieux, sem er
á meðfylgjandi í leiknum í fyrrinótt.
Bowman
bíður
1000. sig-
ursins
SCOTTY Bowman hjá
Detroit Red Wings á 999
sigurleiki að baki sem
þjálfari á 25 ára ferli í
NHL-deildinni. Jim
Campbell hjá St. Louis
Blues kom í veg fyrir að
Bowman fagnaði 1000.
sigrinum í fyrrinótt, er
hann jafnaði í þriðja leik-
hluta og liðin skildu jöfn
1:1.
Reuter
Popov og
Masterkova
kjörin best
M Tmm *
i Evropu
SUNDKAPPINN Alex Popov og
Svetlana Materkova, hlaupa-
kona, bæði frá Rússlandi, voru
í vikunni útnefnd íþróttamaður
og íþróttakona ársins 1996 í
Evrópu. Það eru samtök evr-
ópska íþróttafréttamanna sem
standa að þessu kjöri.
Popov, sem sigraði bæði í 50
og 100 metra skriðsundi á ÓL í
Atlanta, hlaut 53 stig. Annar í
kjörinu var kappakstursmaður-
inn Damon Hill frá Bretlandi
með 27 stig og síðan kom danski
hjólreiðakappinn Bjame Riis í
þriðja sæti, en hann sigraði í
Frakklandskeppninni í sumar.
Masterkova, sem vann bæði í
800 og 1.500 metrunum á leik-
unum í sumar, hlaut 54 stig I
kjörinu. Franska hlaupakonan
Jose-Marie Perec, sem einnig
vann í tveimur greinum í Atl-
anta, 200 og 400 metra hlaup,
kom rétt á eftir með 49 stig.
Steffi Graf, tenniskona frá
Þýskalandi, varð þriðja með 32
stig.
Sigurjón
byrjarvel
SIGURJÓN Amarsson, kylf-
ingur úr GR, tók upp þráðinn
í Tommy Armour mótaröðinni
á dögunum og byijaði vel, lék
Grenelefe völlinn á 70 höggum,
einu undir pari en erfiðleikast-
uðull hans, SSS, var 73. Árang-
urinn dugði í 9. sæti af 122
keppendum en sigurvegarinn
lék á 65 höggum.
Belichick og
Parcell til Jets
BILL Belichick hefur verið ráð-
inn aðalþjálfari liðs New York
Jets í bandaríska fótboltanum
fyrir næsta keppnistímabil. For-
ráðamenn liðsins tilkynntu jafn-
framt að Bill Parcell, sem þjálf-
aði New England Patriots f vet-
ur - liðið sem tapaði á dögunum
í Super Bowl, úrslitaleik amer-
ísku fótboltadeildarinnar - taki
við Jets frá og með 1. febrúar
1998. Hann má ekki þjálfa í
NFL næsta vetur án samþykkis
Patriots og hefur þvi verið ráð-
inn ráðgjafi þjá Jets til 1. febr-
úar á næsta ári.
SKIÐI
Girardelli leggur
skíðin á hilluna
AUSTURRÍKISMAÐURINN Marc Gir-
ardelli, sem kom Lúxemborg á kortið í
skíðaíþróttinni með því að vinna fleiri
verðlaun og titla en nokkur annar skíða-
maður, hefur ákveðið að leggja skíðin á
hilluna og mun tilkynna það formlega á
blaðamannafundi á mánudag.
Girardelli, sem er 33 ára, hefur unnið
heimsbikarinn fimm sinnum eða oftar
en nokkur annar. Hann hefur unnið til
13 verðlauna á sex heimsmeistaramótum
og þrenn ólympíuverðlaun á 17 ára
keppnisferli. Hann varð heimsmeistari í
tvíkeppni í fyrra og ætlaði sér að reyna
að verja hann í Sestriere og er skráður
í mótið.
ítalska íþróttablaðið Tuttospart skýrði
frá því á þriðjudag að Girardelli yrði
ekki með á HM. Meiðsli hafa hrjáð hann
undanfarin ár, enda hefur hann þurft
að fara 13 sinnum í uppskurð. Vinir hans
segja að líkami hans sé eins og á gömlum
manni og því engir möguleikar á því að
hann nái aftur í fremstu röð. Það kemur
kannski fáum á óvart sem fylgst hafa
með frammistöðu hans i vetur að hann
MARC Glrardelll varð flmm slnnum
heimsblkarmeistari og kom Lúx-
emborg ð skíAakortið.
skuli hætta. Hann hefur ekki verið á
meðal efstu manna í vetur og náði aðeins
57. sæti af 60 keppendum í heimsbikar-
mótinu í bruni í Val Gardena rétt fyrir
jólin.
Þegar Girardelli var strákur æfði hann
með skíðafélagi sínu í Vorarlberg í aust-
urhluta Austurríkis. Faðir hans, Helmut,
var ekki sáttur við það þegar syni hans
var hafnað um inngöngu í skíðamennta-
skóla sem var sérstaklega ætlaður lands-
liðsmönnum framtíðarinnar. í framhaldi
að því sneru þeir feðgar baki við Austur-
ríki og fóru eigin leiðir — sóttu um ríkis-
fang í Lúxemborg þegar Girardelli var
13 ára. Hann fékk ríkisborgararéttinn
16 ára gamall og gat þá tekið þátt í stór-
mótum og tveimur árum síðar vann hann
fyrsta heimsbikarmótið, í svigi, í Galli-
vare í Svíþjóð. Hann hefur unnið á 46
heimsbikarmótum á ferlinum og það eru
aðeins Ingemar Stenmark (86 sigrar) og
Alberto Tomba (48) sem hafa gert betur.