Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 3

Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 B 3 KNATTSPYRNA Ronaldo og Sukermeð þrennur SPÆNSKIR knattspyrnumenn voru á skotskónum íleikjum helg- arinnar þegar gerð voru 37 mörk ítíu leikjum. Efstu liðin tvö unnu sannfærandi sigra og hættulegustu framherjarnir f spænsku knattspyrnunni, Davor Suker hjá Real Madrid og Ron- aldo hjá Barcelona, gerðu báðir þrennu fyrir lið sín. Staðan á toppnum er óbreytt, Real hefur enn sex stiga forskot á Barcelona. Real Madrid sýndi réttnefndan stórleik á heimavelli sínum, Santiago Bernabéu-leikvanginum, þegar liðið gjörsigr- Ásgeir aði Oviedo með sex Sverrisson mörkum gegn einu. skrifar Króatinn Davor frá Spáni Suker var í miklum ham og gerði þijú mörk í leiknum, það fyrsta úr víti á 2. mínútu en hin tvö með tveggja mínútna milli- bili í síðari hálfleik. Þetta var besti leikur Real Madrid á þessu leiktíma- bili og leikmenn Oviedo voru heppn- ir að fá ekki á sig fleiri mörk því framheijar Madrid, „hin heilaga þrenning" eins og þeir Suker, Raúl og Miljatovic eru gjarnan nefndir, fóru illa með fjölmörg opin færi. Þriðja þrenna Sukers Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, var kampakátur eftir leik- inn sem og áhorfendur sem voru um 90.000. „Þetta var mjög mikil- vægur sigur og nauðsynlegur fyrir sjálfstraustið," sagði Capello og vís- aði þar með til óvænts taps Madrid- liðsins gegn Rayo Vallecano á fimmtudag í liðinni viku. Davor Suker var einnig í sjöunda himni en þetta var þriðja þrennan sem hann gerir á þessu keppnistímabili. „Mörkin mín voru ekki það mikil- vægasta í þessum leik, heldur sigur liðsins," sagði Króatinn snjalli eftir leikinn. A Spáni velta menn því nú fyrir sér hvort hann verði markakóngur þessarar leiktíðar en Suker hefur gert 19 mörk. „Deildarkeppnin skiptir mig mestu máli. Ég verð að vinna titla. Að verða markakóngur er allt annað mál. En auðvitað vil ég mjög gjarnan hreppa þann titil líka!“ sagði Suker. „Ronaldo líktist loks Ronaldo" Sá sem einna helst virðist geta komið í veg fyrir að Davor Suker Reuter RONALDO fagnar öðru marki sínu gegn Zaragoza. standi uppi sem markakóngur að keppnistímabilinu loknu heitir Ron- aldo, besti knattspyrnumaður heims nú um stundir og framherji Barcel- ona. Brasilíumaðurinn baneitraði hafði ekki skorað í þremur síðustu leikjum liðsins en hann sýndi sína bestu takta þegar Real Zaragoza kom í heimsókn á Camp Nou-leik- vanginn á sunnudag. Ronaldo skor- aði tvö mörk á fímm mínútna kafla í fyrri hálfleik og fullkomnaði þrennuna á 72. mínútu eftir snilld- arsendingu frá Búlgaranum Hristo Stoichkov sem komið hafði inn á tveimur mínútum áður. Þetta var þriðja þrenna Ronaldos á keppnis- tímabilinu. Leiknum lauk með sigri Barcelona 4:1 og liðið sýndi loks hvað í því býr. „Ronaldo líktist loks Ronaldo," sagði Bobby Robson, þjálfari Barcelona, eftir sigurinn. „Ég þurfti á þessum mörkum að halda þar sem ég hafði ekki skorað í þremur leikjum í röð. Við sýndum bráðgóðan leik, nýttum færin og vöm okkar var traust,“ sagði Ron- aldo. Líkt og Davor Suker forðaðist hann allar vangaveltur um hvort hann yrði markakóngur spænsku fyrstu deildarinnar en hann hefur skilað boltanum 21 sinni í netið á tímabilinu. „Það skiptir mig engu hvort ég verð markahæstur. Það sem skiptir máli er að leikimir vinn- ist.“ Dómarar vom mjög í sviðsljós- inu í leikjum helgarinnar en þeir dæmdu átta vítaspyrnur í leilq'unum tíu og sýndu átta leikmönnum rauða spjaldið. FOLX I MIDDLESBROUGH hefur boð- ið Brian Robson, knattspyrnu- stjóra félagsins, fímm ára samning sem metinn er á 1,5 milljónir punda. Samningurinn stendur honum til boða þó svo að liðið félli úr úrvals- deildinni. I BOBBY Charlton, stjórnar- maður Manchester United, var í Flórens á Ítalíu um helgina til að fylgjast með varnarmanninum Luigi Amoruso, sem jafnframt er fyrirliði liðsins. Amoruso var ekki í byijunarliði Fiorentina á móti Juventus en kom inn á sem vara- maður. United hefur verið að leita eftir sterkum vamarmanni í vetur og hefur Amoruso verið sterklega inni i myndinni, en talið er að hann kosti ekki undir fimm milljónum punda. ■ FRANSKI miðheijinn Christ- ophe Dugarry vísaði í gær á bug fregnum þess eðlis að hann hefði hótað að fara frá AC Milan ef hann væri ekki oftar í byijunarlið- inu. ■ DUGARRY, sem var vikið af velli þegar AC Milan tapaði 1:0 fyrir Perugia í ítölsku deildinni í fyrradag, sagðist hafa nefnt þann möguleika að fara. „Heimsmeist- arakeppnin fer fram á næsta ári og ef ég er ekki í byijunarliði fé- lagsliðs míns á ég ekki mikla mögu- leika á að komast í landsliðið,“ sagði hann. „Ég ber mikla virðingu fyrir AC Milan og geri mér grein fyrir að slíkt félag getur ekki tryggt mér öruggt sæti í byijunarliði." SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR Bakhjarl hafnftrskra íþróttamanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.