Morgunblaðið - 25.02.1997, Side 5
MORGUNBLAÐiÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR1997 B 5
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Ásdís
HULDA Bjarnadóttlr skoraðl fjögur mörk fyrlr Hauka á laugar-
daglnn. Hér reynlr hún aö sleppa framhjá Evu Þórðardóttur
varnarmannl Vals.
Haukar í
kröppum
dansi
HAUKASTÚLKUR lentu í
kröppum dansi í Laugardals-
höll á laugardaginn þegar þær
mættu Val í úrslitaleik bikar-
keppninnar. Líkur á sigri voru
þeim allar í hag ef skoðuð eru
úrslit fyrri leikja liðanna og
staða deildarinnar en Vals-
stúlkur voru sýnd veiði en ekki
gefin og það var ekki fyrr en á
síðustu mínútum leiksins að
Haf nfirðingum tókst að tryggja
sér 16:13 sigur og hampa bik-
arnum flokin.
Astand tauga leikmanna var
ekki upp á það besta til að
byrja með en sóknarleikur Hafnfirð-
inga þó beittari.
Vaiva Drilingaite
markvörður Vals
svarf þó mesta odd-
inn af því biti með
stórkostlegri markvörslu auk þess
sem vöm Valsstúlkna var grimm.
Eftir að Haukar höfðu ekki skorað
mark í tíu mínútur um miðjan fyrri
hálfleik og staðan 5:4 þeim f vil,
brugðu þær á það ráð að taka Gerði
Stefón
Stefánsson
skrifar
B. Jóhannsdóttur úr umferð, sem
slævði sóknarleik Vals.
Sama var uppi á teningnum eftir
hlé, Haukastúlkur komust lítt áleið-
is á meðan Valur sótti í sig veðrið
og jafnaði þegar rúmar tíu mínútur
vom til leiksloka. Liðið fékk mögu-
leika á að komast yfir en Vigdís
Sigurðardóttir í marki Hauka var
ekki á þeim buxunum og varði
glæsilega. Eftir að hvort lið hafði
klúðrað vítaskoti í stöðunni 13:13
þegar þrjár mínútur voru til leiks-
loka, gekk allt upp hjá Hafnfirðing-
um, sem héldu betur haus í mikilli
spennu og náðu að skora þrjú mörk
síðustu tvær mínútumar.
Haukaliðið hefur oft leikið betur
og átti í vandræðum með að ná flugi
í sóknarleiknum enda mótspyrnan
öflug. Vörnin var aftur á móti ágæt
og markvarsla Vigdísar Sigurðar-
dóttur góð. Harpa Melsteð hélt að
mestu sínu striki með góðum leik
og Judith Esztergal var ágæt en
aðrir leikmenn geta betur.
Litlu munaði að frábær barátta
Valsstúlkna dygði til að leggja hátt-
skrifaða andstæðinga þeirra að
velli. Sóknarleikurinn var þó ekkert
til að hrópa húrra fyrir en ungar
stelpurnar stóðu vaktina í vörninni
með prýði, sem aftur skilaði stór-
kostlegri markvörslu Vaivu Dril-
ingaite, er varði 27 skot. Gerður
B. Jóhannsdóttir fyrirliði reif sínar
stúlkur í gang til að byrja með en
var síðan tekin úr umferð og sást
lítið í sóknarleiknum eftir það en
stóð fyrir sínu í vöminni. Hafrún
Kristjánsdóttir var öflug í vörninni
og Sigurlaug Rúnarsdóttir var einn-
ig góð.
Það varð ekki
aftur snúið
ÞESSI sigur er toppurinn á ferl-
inum hjá mér og bætir fyllilega
upp tapleikinn með Selfossi í
úrslitum bikarsins fyrir nokkr-
um árum,“ sagði Gústaf
Bjarnason, fyrirliði Hauka, í al-
gleymi fagnaðar í leikslok, eftir
að KA var lagt að velli 26:24.
Eftir
Ivar
Benediktsson
Við vissum að leikurinn yrði erf-
iður og einnig að við vomm
óreyndari að leika til úrslita. Þar
af leiðandi tók það
okkur nokkum tíma
að ná áttum og
sækja í okkur veðr-
ið. En í síðari hluta
fyrri hálfleiks tókst okkur að kom-
ast á skrið, ná forystu og halda
henni allt þar til yfir lauk, eftir það
varð ekki aftu rsnúið."
Gústaf sagði Haukaliðið vera
jafnt og ekki skipað neinum stór-
stjörnum. Mörkin hefðu komið í
flestum stöðum á vellinum og það
sýndi öðm fremur styrk heildarinn-
ar sem hefði lagt gmnninn að sigr-
inum. „Styrkur okkar felst í þessu
og þar með eiga andstæðingamir
erfiðara með að „kortleggja" leik
okkar og bijóta okkur á bak aft-
ur.“ Hann sagði á hinn bóginn auð-
veldara að slá vopnin úr höndum
KA, þar sem leikur þeirra væri
meira og minna borinn uppi af
tveimur leikmönnum. „Við höfum
látið allan hópinn spreyta sig í vet-
ur, það atriði vó þungt að þessu
sinni og á vonandi eftir að fleyta
okkur lengra. Við höfum fengið
smjörþefinn af því að standa á efsta
þrepi og ætlum ekki að gefa neitt
eftir í þeim viðureignum sem eftir
em á Islandsmótinu."
Hefði ekkl þolað framlengingu
„í ljósi þess að ég hef átt í erfið-
um meiðslum upp á síðkastið þá
er það enn ánægjulegra en ella að
koma til leiks og standa sig vel og
fagna bikarnum í leikslok," sagði
Bjarni Frostason, markvörður
Hauka, en hann átti stórleik og
varði 19 skot í leiknum, mörg úr
dauðafærum.
„Ég er búinn að vera í meistara-
flokki og fyrstu deild í tólf á og
þetta er fyrsti alvöm titillinn, þó
ég hafi reyndar einu sinni orðið
deildarmeistari með Haukum þá er
það ekki þessu líkt. Þá var umgjörð-
in og stemmningin í kringum leik-
inn frábær.“
Bjami segir að það hafi verið
mjög mikilvægt að byrja strax á
að veija og ná þannig strax takti
við leikinn. „Þar með var bjöminn
unninn.“
Hann segir ökklameiðslin ekki
hafa háð sér vemlega í leiknum,
vel hafi verið búið um þau fyrir
viðureignina. „Ökklinn er ansi bólg-
inn núna og ég efast um að hann
hefði þolað framlengingu," sagði
Bjami með bros á vör og benti á
bólginn ökklann sem hafði verið
„klæddur" kælipokum.
Bjami sagði Haukaliðið hafa far-
ið erfíða leið í úrslitin, lagt Aftureld-
ingu, HK, Stjömuna og FH. Allt
hefðu þetta verið erfíðir leikir og
sumir m.a. endað í erfiðum fram-
lengingum. „Það kom því ekkert
annað til greina en sigur og þetta
er sætt og engu líkt, dagurinn er
yndislegur."
„Þetta var rétti tíminn til koma
inn í liðið á ný,“ sagði Halldór Ing-
ólfsson, leikmaður Hauka, en hann
hefur átt í þrálátum meiðslum í hné
og m.a. þurft að fara í tvo upp-
skurði síðan í haust, en hann meidd-
ist í 1. umferð bikarkeppninnar er
Haukamenn slógu Aftureldingu út.
Halldór segist ekki vera búinn að
ná sér að fullu, en horfurnar séu
góðar.
„Ég beðið lengi eftir því að geta
byrjað að leika að nýju, en eftir að
ljóst var að við kæmumst í úrslitin
setti ég stefnuna á að vera með og
það tókst. Tilfinningin að sigra er
góð, ekki síst eftir það sem á undan
er gengið."
Þeir áttu aldrei möguleika
„Ég hef ekki verið það oft í sig-
urliði að ég geti sagt annað en að
þetta er ótrúlega sætt og ég hef
ekki vanist þessari tilfínningu,"
sagði Páll Ólafsson, aðstoðarþjálf-
ari Hauka. Hann hefur einu sinni
áður unnið bikarinn, en það var
árið 1981 er hann lék með Þrótti.
„Eftir erfíðleika framan af fyrri
hálfleik snemm við leiknum okkur
í hag og er síðari hálfleikur byijaði
var ekki aftur snúið, þeir áttu aldr-
ei möguleika. Við lékum mjög vel
og flest allt gekk upp af því sem
lagt var af stað með. Dagurinn í
heildina er yndislegur, við ætluðum
að hafa Haukadag í Höllinni og
stóðum svo sannarlega við það.“
■ Leikurinn... / B6
Morgunblaðið/Ásdís
BJARNi Frostason markvörður Hauka og Gústaf Bjarnason fyrirliðl voru í fararbroddl er hlaup-
Inn var sigurhrlngur með bikarlnn.