Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ KÖRFUKNATTLEIKUR Haukar hrundu árás Isfirð- HAUKAR sigruðu ísfirðinga á heimavelli sínum við Strandgöt- una í gærkvöldi, 89:83. Heimamenn höfðu þægilega forystu nær allan leikinn, en baráttuglaðir ísfirðingarnir gerðu atlögu að Haukum undir lokin. Villuvandræði settu svip sinn á leikinn og þurftu bæði lið notast við varamenn sína meira en venjulega. Edwin Rögnvaldsson skrífar Bæði lið léku fast og dómaram- ir flautuðu oft. Við lékum vel í fyrri hálfleik, en í þeim síðari hugsuðum við of mikið um að við vorum að missa nið- ur forskotið og töp- uðum við talsverðri einbeitingu vegna þess,“ sagði Ein- ar Einarsson, þjálfari Hauka, í leikslok. Fjórir leikmenn urðu að yfirgefa völlinn eftir að hafa fyllt villukvóta sinn, en það voru Hauk- amir Jón Amar Ingvarsson og Bergur Eðvarðsson ásamt þeim Guðna Guðnasvni og Cheidu Odiatu úr röðum Isfirðinga. Bergur lék óvenju lítið með, því hann fékk fimmtu villuna í lok fyrri hálfleiks. Haukamir skoruðu fyrstu átta stigin og náðu strax góðu for- skoti. Pétur Ingvarsson og ívar Ásgrímsson skoruðu fyrstu tólf stig heimamanna og héldu þeir forystunni þar til síðari hálfleikur var hálfnaður, en þá tóku ísfirðing- ar að höggva nokkur stig af for- koti Hauka. Auk þess sem tveir Haukar þurftu að fara af velli í síðari hálfleik, var Shawn Smith með íjórar villur og gat lítið beitt sér - gerði aðeins íjögur stig eftir leikhlé. Haukar hafa mun breiðari leik- mannahóp en ísfirðingar og gátu því nær óhræddir notað varamenn sína meira en ella. Aftur á móti gátu gestimir teflt fram sterkari frákösturum er Shawn Smith var utan vallar og hjálpaði það þeim er þeir minnkuðu muninn á síðustu mínútunum. Pétur Ingvarsson var besti mað- ur Hauka, en hann var gestunum oft óþægur ljár i þúfu og skoraði mikilvægar körfur. Shawn Smith stendur ávallt fyrir sínu, en lék ekki mikið í síðari hálfleik og veikti það vöm Hauka töluvert. Sigurður Jónsson kom einnig sterkur inná af bekknum. Derrick Bryant gerði 21 stig í síðari hálfleik og var afkastamest- ur gestanna er þeim tókst að minnka forskot Hauka í fimm stig og þijár mínútur voru eftir. Friðrik Stefánsson sótti í sig veðrið er á leið, en það dugði ekki til því brott- hvarf Odiatus og Guðna þjálfara var slæmt fyrir Isfirðinga. Aftur á móti sýndu þeir mikla baráttu þeg- ar þeir minnkuðu muninn með þunnskipað lið. Söltun á SeKjamamesi Tindastjólsmenn riðu svo sannarlega ekki feitum hesti frá viðureigninni við KR á Seltjam- amesinu á sunnu- dagskvöldið. KR gjörsigraði norðan- menn, 115:77, sem mættu seint til leiks og hófst leikurinn því ekki fyrr en 10 mínútum eftir áætlun. Það var eins og ferðalagið sæti í þeim því allar aðgerðir þeirra, hvort sem var í vöm eða sókn, voru hikandi og máttlausar. Þetta notfærðu heimamenn í KR sér vel og ekki Ieið á löngu þar til yfirburðir þeirra voru al- Halldór Bachmann skrífar gjörir. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan orðin 32:17 KR í vil. KR-ingar héldu dampi og létu slaka mótstöðu ekki draga sig niður. Það er skemmst frá því að segja að í lok fyrri hálfleiks var munurinn orðinn 36 stig KR í vil, 63:28. í upphafi síðari hálfleiks klóruðu Tindastólsmenn örlítið í bakkann en komust þó lítið áleiðis og var munurinn minnstur 27 stig. Undir lok leiksins bættu KR-ingar aftur í og lauk leiknum með næstum sama mun og var í hálfleik 38 stig- um 115:77. Roney Eford, sem er fjórði er- lendi leikmaður KR í vetur, fór á kostum í leiknum, skoraði 32 stig og lék auk þess góða vöm. Ingvar Ormarsson og Jónatan Bow léku einnig mjög vel og auk þeirra áttu Hermann Hauksson og Gunnar Örlygsson, sem nú er á ný kominn til liðs við KR eftir nokkurt hlé, góða spretti. í liði Tindastóls voru Amar Kárason og Ómar Sigmarsson bestir en Winston Pearson og Ces- are Piccini áttu erfitt uppdráttar undir körfunni. Stórskotahríð í Keflavík Skallagrímsmenn úr Borgarnesi lentu í sannkallaðri stórskot- hríð þegar þeir mættu Keflvíking- um í Keflavík á gjöm sunnudagskvöldið. Biöndai Þegar flautað var til skrífar frá leiksloka var mun- Keflavík urinn orðinn 24 stig 112:86 og áhorfendur risu úr sæt- um og hylltu sína menn fyrir frá- bæran leik. Borgnesingar áttu líka sínar stundir í leiknum, en þær dugðu engan veginn að þessu sinni og alls ekki gegn Keflavík í slíkum ham. í hálfleik var staðan 52:45. „Það vora okkar mistök að leika á sama hraða og þeir og Iáta þá ráða hraðanum. Það er erfitt að vinna Keflavíkurliðið þegar það ræður ferðinni. Við gáfum okkur heldur ekki nægan tíma í sókn- inni,“ sagði Tómas Holton þjálfari og leikmaður Skallagríms eftir leik- inn. Keflvíkingar höfðu mjög góðar gætur á Tómasi og voru stöðugt með óþreytta leikmenn til að gæta hans. Keflvíkingar byijuðu betur en Skallagrímsmönnum tókst að jafna og um miðjan fyrri hálfeik var staðan jöfn 26:26. Þá kom góð- ur kafli hjá Keflvíkingum sem varð til þess að þeir höfðu sjö stiga for- ystu í hálfleik. í síðari hálfleik dró enn í sundur og munaði þar mestu um átta 3ja stiga körfur gegn aðeins einni frá Borgnesingum. Alls settu Keflvík- ingar fimmtán 3ja stiga körfur í leiknum. Það er greinilegt að Sig- urður Ingimundarson þjálfari er að gera góða hluti með liðið og athyglisvert hvað yngi leikmenn- irnir verða stöðugt meira áber- andi. Allir í liðinu léku vel en þó voru þeir Falur Harðaron og Dam- on Johnson atkvæðamestir i stiga- skorun. Borgnesingar hittu fyrir ofjarl sinn og höfðu ekki erindi sem erfiði að þessu sinni. Hörður Jóhannesson skrífar frá Akranesi Frðbær vöm Skagamanna Grindvíkingar steinlágu fyrir frábærri vörn Skagamanna síðastliðið sunnudagskvöld í íþróttahúsinu á Akranesi. Lokatöl- ur leiksins voru 78:64 eftir að stað- an í hálfleik hafði verið 37:33. Leikurinn fór rólega af stað og fyrsta karfa kom ekki fyrr en eftir um það bil þijár mínútur og vora þar Grindvíkingar að verki sem og í næstu tveimur en þá kom að því að Skagamenn skoraðu sína fyrstu körfu og með frábærri vörn sigu þeir hægt og bítandi framúr þó svo að sóknin hjá þeim væri ekki upp á það besta. Þrátt fyrir frábæran sóknarleik Hermanns Myers í seinni hálfleik, sem gerði 22 stig, dugði það ekki til vegna þess að Skagamennimir héldu öllum hinum annáluðu þriggja stiga skyttum Grindvík- inga niðri og er örugglega langt síðan þeir hafa bara skorað tvær þriggja stiga körfur í heilum leik. Segja má að allt Skagaliðið hafi spilað vel eða eins og Ermolinskij sagði í lok leiks: „Við unnum þetta á mjög góðri vörn, náðum að stoppa hraðupphlaup þeirra og spila langar og skynsamar sóknir“. Sama var hver kom inn á, allir vora með í leiknum en mest gladdi augað þegar Dagur var að kljást við Myers í lok leiksins, þá sýndi hann hversu sterkur leikmaður hann er þegar hann vill það við hafa. Tuttugasta tap Breiðabliks Neðstu lið úrvalsdeildarinnar leiddu saman hesta sína í Smáranum á sunnudaginn, þegar Þórsarar frá Akur- eyri sóttu heim Blika, sem hafa ekki unnið leik í vetur. Norðanmenn höfðu 90:80 sigur. Akureyringar byijuðu af krafti á meðan Blikar nánast fylgdust með svo að gestirnir náðu strax yfir- höndinni. En þegar Kópavogsbú- amir fóra að vera með í leiknum hélst jafnræði með liðunum. Það var samt ekki fyrr en undir lokin að Blikar tóku við sér og söxuðu þá á forskotið en það var of seint. BLAK MorgunDiaoio/ PorKen PÉTUR Ingvarsson úr Haukum smeyglr sér hér framhjé Derrlck Bryant ( llðl KFÍ. Stefán Stefánsson skrífar Breiðabliksliðið sýndi á köflum ágætis baráttu en þess á milli litla sem enga og var refsað fyrir það. Liðið hefur Clifton Bush sem var allt í öllu hjá Breiðabliki en Einar Hannesson og Óskar Pétursson vora ágætir. Þórsarar áttu ekki í miklum vandræðum en tóku því stundum fullrólega. Böðvar Kristjánsson átti góða spretti á meðan hans naut við og Fred Williams var illviðráðanleg- ur til að byrja með. Konráð Óskars- son var einnig góður. Njarðvíkingar komnlr á skrið Njarðvíkingar virðast vera að komast á skrið að nýju eftir hálf dapurt gengi að undanförnu og hafa nú sigrað í Björn tveim leikjum í röð. Blöndal Fyrst Tindastól á skrífar frá Sauðárkróki og svo Njarðvík {r { Ljónagryfjunni á sunndag. Njarðvíkingar léku lengstum mjög vel og uppskáru sanngjarnan sigur 94:89 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 45:40. Leikurinn var ágæt skemmtun, hraður og oft spennandi. Njarðvík- ingar höfðu þó lengstum fram- kvæðið en ÍR-ingar sýndu að þeir voru sýnd veiði en ekki gefin. Þeg- ar heimamenn slökuðu á um tíma í síðari hálfleik hrifsuðu gestimir forskotið með það sama. En Adam var ekki lengi í Paradís og 14 stig Njarðvíkinga gegn einu stigi ÍR- inga breytti gangi leiksins snarlega aftur. Á síðustu mínútunum virtust Njarðvíkingar missa einbeitinguna og þá mátti litlu muna að ÍR-ingum tækist að jafna. „Þetta var ágætur leikur hjá okkur og mikilvægur sigur vannst, en við hleyptum þeim samt of mik- ið inn í leikinn og þá sérstaklega í síðari hálfeik," sagði Ástþór Inga- son þjálfari Njarðvíkinga. Bestir í liði UMFN voru Torry John, Frið- rik Ragnarsson og Páll Kristins- son, en hjá ÍR þeir Tito Baker, Atli Þorbjörnsson og Eiríkur Ön- undarson. Háspenna á Akureyri Leikur KA og ÍS um helgina varð sögulegur fyrir margra hluta sakir en KA vann aðkomuliðið 3:2. Leiksins verður sennilega fyrst og fremst minnst fyrir úrslitahrinuna sem varð hvorki meira né minna en 20 mlnútna löng, en það er harla fátítt í blaki karla, en leikurinn sjálf- ur varði í 125 mínútur. Ein lengsta skorpa sem menn muna eftir átti sér stað I úrslitahrinunni þar sem boltinn gekk níu sinnum yfír netið og leik- menn beggja liða sýndu ótrúlegustu vamartilþrif allt þar til hávörn KA náði að loka á sóknarskell Óskars Haukssonar. Hrinan endaði 17:15 fyrir KA. Leikmenn ÍS voru ekki sáttir við Svanlaug Þorsteinsson dómara I leikslok og töldu að hann hefði gert afdrifarík mistök í úrslita- hrinunni þegar þeir sögðu að hann hefði sleppti augljósu tvíslagi á KA í stöðunni 12:10. Stjaman skellti Reykjavíkur- Þrótti f þremur hrinum í Hagaskólan- um á sunnudagskvöldið, nokkuð sem flestir hefðu talið illmögulegt. Það var einungis í annarri hrinunni sem Þróttarar veittu einhveija mótspyrnu en hrinan endaði 17:16 og Leifur Harðarson þjálfari Þróttar sá ástæðu til að koma inná í sína gömlu stöðu. Lið Þróttar var ekki fullskipað þar sem Matthías Bjarki Guðmundsson lék ekki með vegna bakmeiðsla og í þriðju hrinunni meiddist Valur Guð- jón Valsson uppspilari eftir samstuð við félaga sinn Magnús Aðalsteins- son og þurfti að fara út af. Sigur Stjömunnar hleypir nýju lífi í deildarkeppnina þar sem hart er barist á botni og toppi. Stúdínur skelltu KÁ fyrir norðan um helgjna en ÍS er enn tveimur stigum á eftir Þróttarastúlkum og bæði liðin eiga eftir tvo leiki. Kvenna- lið Þróttar í Neskaupstað gerði einn- ig góða ferð til Akureyrar á laugar- daginn en liðið vann b-Iið KA í bikar- keppninni og er komið í úrslit ásamt stúdínum. inga í lokin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.