Morgunblaðið - 25.02.1997, Side 9

Morgunblaðið - 25.02.1997, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 B 9 KNATTSPYRNA Glæsimark hjá Beck- ham gegn Chelsea STÓRGLÆSILEGT mark Davids Beckham tryggði Manchester United jafntefli við Chelsea á Stamford Bridge, 1:1. Hann skor- aði jöfnunarmarkið á 68. mín. með þrumuskoti sem hafnaði í þaknetinu — upp undir þverslá, eftir að T revor Sinclair hefði ekki náð að skalla knöttinn nægilega vel frá marki. Chelsea fékk sannkallaða óskabyrjun er ítalinn Gianfranco Zola sendi knöttinn fram hjá Peter Schmeichel eftir aðeins tvær mín. Hann fékk sendingu frá Dan Petrescu, lék á bakvörðinn Denis Irwin og síð- an Gary Pallister, áður en hann sendi knöttinn í netið. Zola gat bætt við marki níu mín. síðar, heppnin var ekki með honum. Reuter DAVID Beckham hefur hér leikið á Frakkann Frank Lebouf, varnarmann Chelsea. Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, breytti leikaðferð sinni í síðari hálfleik og setti þá Brian McClair í fremstu víglínu við hliðina á Andy Cole og Ole Gunnar Sol- skjær. „Eftir að McClair var settur fram náðum við yfirhöndinni. Við vorum að leika fjögur eða fimm leikkerfi í fyrri hálfleik,“ sagði varnarmaðurinn Gary Neville. „Þetta hefur verið góð vika hjá okkur, fjögur stig úr tveimur ferð- um til London — fyrst sigur á Arsenal á Highbury, nú jafntefli á Stamford Bridge." Ruud Gullit, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði að sitt lið væri í sama styrkleika- flokki og United. Heppnin ekkí með Fowler Liverpool varð að sætta sig við markalaust jafntefli í viðureign sinni gegn Blackburn á Anfield Road. Robbie Fowler hafði ekki heppnina með sér, átti skalla og skot sem höfnuðu á tréverkinu og þá fékk hann þijú önnur gullin tækifæri, sem skólastrákar hefðu nýtt sér léttilega. Jason McAteer og Steve McManaman fengu einn- ig kjörin tækifæri til að senda knöttinn í netmöskvana, sem þeir náðu ekki að nýta sér og á síðustu mín. leiksins átti Dominic Matteo skalla að marki, knötturinn hafn- aði í stöng. „Þetta var leikur hinna glötuðu tækifæra. Við fengum fjölmörg tækifæri til að gera út um leikinn, en ekkert heppnaðist. Andrúms- loftið inn í búningsklefa eftir leik- inn var eins og í dauðs manns gröf,“ sagði McAteer. Ray Evans, knattspyrnustjóri Liverpool, efast um að Fowler eigi eftir að klúðra eins mörgum tækifærum í einum leika á keppnisferli sínum - sjö. „Við höfum tapað fimmtán stig- um heima, eigum nú ellefu leiki eftir - aðeins fjórir af þeim verða á Anfíeld Road,“ sagði Mark Wright. Það var heldur enginn skemmti- þáttur í búningsklefa Southamp- ton á The Dell, þar sem heima- menn voru yflr í leikhléi, 2:0, en töpuðu fyrir Sheffield Wed. 2:3. Norðmaðurinn Egil Ostenstad og Matt Le Thisser skoruðu mörk Southampton, David Hirst jafnaði með tveimur mörkum á sex mín. í seinni hálfleik og sigurmarkið skoraði varamaðurinn Andy Booth tólf mín. fyrir leikslok. „Við vissum að við getum leikið mun betur, í seinni hálfleik fóru vindar að snú- ast okkur í hag,“ sagði Hirst. Sheff. Wed. hefur aðeins tapað einum af síðustu 20 leikjum sínum. „Við höfum verið að skipuleggja varnarleik okkar síðustu þrjár vik- urnar, síðan gerist þetta,“ sagði Graeme Souness, knattspyrnu- stjóri Southampton. Newcastle heppið Newcastle hafði heppnina með sér gegn Middlesbrough, vann 1:0 með marki Les Ferdinands á átt- undu mín. — hans átjánda mark í vetur. Hetja Newcastle var Shaka Hislop, markverður Newcastle, sem hélt upp á 28 ára afmælisdag- inn sinn með því að veija oft frá- bærlega, eitt sinn frá Fabrizio Ravanelli var óheppinn að skora ekki. Clayton Blackmore átti skot sem hafnaði á stöng. Derby komst yfir eftir aðeins tvær mín. gegn Leicester á Filbert Street, en aðeins 25 mín. síðar var Ian Marshall búinn að skora þijú mörk fyrir heimamenn, sem unnu 4:2. Þess má geta til gamans að Marshall hefur leikið í vörninni hjá Leicester að undanförnu, þar sem Emile Hesdkey og Steve Claridge hafa verið í fremstu vígl- ínu. „Ian vill leika sem miðheiji. Hann hefur skorað mörg góð mörk fyrir okkur, þó svo að hann hafí leikið sem varamaður. Þegar við áttum í vandræðum með vöm okk- ar, setti ég Ian aftur og hefur hann skilað því hlutverki mjög vel - hefur leikið í vörninni, eins og hann hafi ekkert annað gert á knattspyrnuferli sínum,“ sagði Martin O’Neill, knattspyrnustjóri Leicester. Jim Smith, knattspyrnustjóri Coventry, var ekki ánægður. „Við sofnuðum á verðinum í vörninni, gáfum þeim þijú mörk. Við höfum ekki áður fengið á okkur fjögur mörk í leik.“ Aftur tapar Arsenal heima Vinnie Jones var hetja Wimble- don, þegar liðið skellti Arsenal á að var hart barist þegar New York Knicks heimsótti Los Angeles og mætti Lakers aðfaranótt mánudagsins. Patrick Ewing, sem átti afleitan leik á föstudaginn gegn Seattle, var í miklu stuði, gerði alls 34 stig og tók 25 fráköst. Hann gerði tíu stig í síðari framlenging- unni og tryggði liði sínu 127:121 sigur. Knicks náði tíu stiga forystu þegar skammt var til leiksloka en heimamönnum tókst að jafna og hefðu trúlega sigrað hefði Ewing ekki tekið til sinna ráða undir lokin. Síðustu tvær mínúturnar gerði hann fímm stig, tók tvö fráköst og varði eitt skot. „Það var klaufalegt að tapa niður forystunni en ég er ánægður með að við skyldum sigra,“ sagði Ewing. Elden Campbell, sem leikur miðheija hjá Lakers í fjarveru Shaqu- illes O’Neals, tók 10 fráköst og gerði 40 stig og hefur aldrei gert jafnmörg stig í leik. Highbury, 1:0. Arsenal mátti þola sitt annað tap á flmm dögum og hefur liðið aðeins fengið tvö stig úr síðustu fjórum leikjum. Jones skoraði sigurmarkið í fyrri hálf- leik, með góðu skoti eftir horn- spyrnu. Arsenal, sem tapaði sínum fyrsta leik á heimavelli, réð gangi leiksins, en leikmenn Wimbledon vörðust vel, langspyrnur þeirra fram völlinn sköpuðu síðan oft hættu. Arsenal lék án Tony Adams, Davids Seaman, Martins Keown Það þurfti einnig að framlengja í Utah þegar Seattle var í heimsókn. Gary Payton lék vel og gerði níu af 28 stigum sínum í framlengingunni °g tryggði Seattle sigur með síðustu körfunni. Seattle vann, 87:86, og var þetta sjötti sigur liðsins í röð. Detlef Schrempf gerði 20 stig fyrir Seattle og hjá Utah var Karl Malone stigahæstur með 32 stig og 10 frá- köst. Houston vann Spurs, 95:85, og var Olajuwon stigahæstur með 21 stig og Charles Barkley gerði 19. Dominique Wilkins gerði 28 stig fyr- ir Spurs. Detroit hefur nú sigrað í sex leikj- um í röð, lagði Washington á sunnu- daginn, 85:79, og munaði miklu um átta stig liðsins í röð í fjórða leik- hluta. Aaron McKie gerði 16 stig og var stigahæstur Detroit en hjá Washington var Chris Webber stiga- hæstur, gerði 19 stig og tók 12 frá- og Davids Platt, sem eru meiddir. Lee Bowyer tryggði Leeds sigur á Sunderland á Roker Park á 48. mín. Anthony Yeboah lék sinn annan leik í byijunarliði Leeds og fékk tækifæri til að skora þijú mörk í fyrri hálfleik, heppnin var ekki með honum - eitt skota hans hafnaði ofarlega á stönginni á marki Sunderland. köst í fyrsta leik sínum eftir meiðsli. Penny Hardaway og Horace Grant gerðu 13 stig samtals í síðari hálfleik þegar Orlando vann Indiana, 99:90. Grant gerði 19 stig í leiknum og Hardaway 17 en hjá Indiana var Reggie Miller stigahæstur með 26 stig. Efsta lið Atlantshafsriðilsins, Miami Heat, lenti í kröppum dansi þegar það fékk Denver í heimsókn. Alonzo Mourning var ekki með og þegar sex mínútur voru eftir voru gestirnir einu stigi yfir, 82:81, en þá kom góður kafli þar sem heima- menn gerðu 12 stig gegn tveimur gestanna. Sjö leikmenn Miami gerðu meira en tíu stig og stigahæstur var Isaac Austin, sem tók stöðu Mourn- ings, en LaPhonso Ellis gerði 29 stig fyrir Denver. Boston tapaði tíunda leinum í röð er liðið heimsótti New Jersey. Kend- all Gill gerði 24 stig fyrir Nets og ÍÞRÚmR FOLX ■ FIMM leikmenn voru reknir af velli í leik Chesterfield og Plymouth í 2. deildinni ensku á laugardaginn, tveir úr liði heima- manna og þrír úr liði Plymouth. ■ ROBERT Lee var fyrirliði Newcastle, þar sem Peter Beards- ley sat á bekknum í góðum félags- skap, með leikmönnum eins og Faustino Asprilla og David Gin- ola. ■ FRANSKI táningurinn Nicolas Anelka, 17 ára, er kominn til Arsenal. Parísarliðið St. Germain vildi ekki standa í neinu stappi við Arsenal og sleppti Anelka lausum strax, upphaflega átti hann ekki að fara til Arsenal fyrr en í sumar. ■ ANELKA, sem hefur skrifað undir sex ára samning við Arsenal, er undrabarn. Hann fær örugglega tækifæri til að leika með liðinu fljót- lega, þar sem Ian Wright er á leið- inni í bann. ■ LINFORD Christie keppti um helgina í 120 m hlaupi á grasbraut í Sydney, en rúmlega einn áratugur er síðan hann hljóp síðast á þannig braut. Ólympíumeistarinn fyrrver- andi kom fyrstur í mark á 12,03 sekúndum og hlaut að launum um 700 þúsund íslenskra króna. Klinsmann skoraði fyrir Bayern JÚEGEN Klinsmann tryggði Bayern Miinchenjafntefli, 1:1, í Bochum, er hann skor- aði jöfnunarmark Bæjaratíu mín. eftir að varnarmaðurinn Torsten Kracht hafði komið heimamönnmn yfir. Fredi Bobic skoraði sigur- mark Stuttgart á síðustu min. gegn Karlsruhe, skallaði knöttinn í netið eftir sendingu Balakov, 1:0. Þýski landsliðsmaðurinn Dieter Eilts var rekinn af leik- velli á 27. mín., eftir brot. Þrátt fyrir að leikmenn Brem- en lékju tíu það sem eftir var leiks náðu þeir sigi*i, 1:0. Sam Cassell 20 fyrir sitt nýja félag. Boston hefur verið á ferðalagi að undanförnu og tapaði öllum níu leikj- unum. Clippers heimsótti Milwaukee og vann nokkuð örugglega, enda gerðu heimamenn ekki stig í einar sex mínútur í síðasta leikhluta. Glenn Robinson var með 25 stig fyrir Bucks. Michael Finley, fyrrum leikmaður Phoenix, fór illa með sína gömlu félaga er hann kom í heimsókn með Dallas. Finley gerði 20 stig og þar á meðal þriggja stiga körfu undir lok leiksins og tryggði 88:86 sigur eftir að liðið hafði verið 16 stigum undir um tíma. „Þetta var einstaklega skemmtilegt," sagði Finley eftir leik- inn. Shawn Bradley, sem kom frá Nets fyrir viku, gerði 18 stig og tók 10 fráköst en hjá heimamönnum var Cedric Ceballos stigahæstur með 22 stig og 14 fráköst. Urslit / B10 Staðan / B10 KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN New York Knicks vann í tvrframlengdum leik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.