Morgunblaðið - 02.03.1997, Side 5

Morgunblaðið - 02.03.1997, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997 B 5 Hljóðritum við feril Kristins og Kristjáns svo heillegur verði við yfirlit síðar? í útlöndum starfa um tuttugu söngvarar fyrir utan þá sem þjóna okkur hér. Við fáum vikulega að heyra óperuþætti frá útlöndum í útvarpi og það er ágætt, stundum er sagt að sent sé út beint. Ég hef nú setið við hlið söngvara sem sagður var syngja í slíkri „beinni“ útsendingu inni í stofu meðan útsendingin stóð yfir. Skyldi Galdra-Loftur Jóns Ásgeirs- sonar hafa verið tekinn upp? Ég veit að það eru skiptar skoðanir um íslensku óperuna en það breyt- ir ekki því að Olöf Kolbrún Harðar- dóttir og Garðar Cortes hafa gert kraftaverk og verið fyrirferðarmik- il í íslensku tónlistarlífi. Hefur þeirra sönglist verið haldið til haga? Veður hægt að blaða í alb- úminu og hlusta á þeirra söng er fram líða stundir? Ég staldra við söngvarana, en hvað með hljóðfæraleikarana, píanistana, strengjaleikarana, blásarana? Einar Sveinbjörnsson í Svíþjóð? Guðna Franzson í Reykja- vík, Arnald gítarleikara á Spáni? Bryndísi á Akureyri, hún flutti öll píanóverk Hafliða Hallgrímssonar mjög fallega fyrir ári síðan. Stór- merkilegt er starf Kammermúsík- klúbbsins. Hann á 40 ára afmæli nú, ástæða er til að fagna því sér- staklega. Nýr strokkvartett, skip- aður ungu fólki, frumflutti verk eftir Jón Nordal - voru ljósvakam- iðlarnir þar? Halldór Haraldsson á 60 ára afmæli um þessar mundir, hvað er langt síðan tekið hefur verið upp sólóprógramm með hon- um fyrir ljósvakamiðla? Gísli Magnússon píanóleikari verður senn 70 ára, hvað skyldi vera til á böndum af leik hans? Og hvað með unga fólkið sem nú er að koma? Valur Pálsson spilar á kontrabassa eins og aðrir spila á fiðlu, ætli sé til upp- taka sem sýnir hæfni hans? Ætli séu til upptökur með t.d. Sigrúnu Eðvaldsdótt- ur sem sýna feril hennar í listinni? Loks má nefna það mæta fólk sem sest hefur að hér og unnið hefur íslensku tónlistarlífi ómetanleg störf. Hvað um list t.d. Ruth Magnússon og Ró- berts A. Ottósonar? Við heyrum fátt um af henni. Svona mætti lengi telja. Þjóðin á og rekur ríkisfjöl- miðla, útvarp og sjón- varp, og sér til þess að mennta fólk með rekstri tónlistarskól- anna og veita því námslán til þess að læra hjá færasta fólki JÖNAS utan lands og innan. Nýtur þjóðin ávaxt- anna sem hún hefur sáð til? Höld- um við vöku okkar? Það vakna margar spurningar." Tónlist fyrir alla Jónasi varð tíðrætt um tónleika- kynningar fyrir skólabörn sem hann nefnir: Tónlist fyrir alla, og felst í því að ýmsir af bestu lista- mönnum þjóðarinnar heimsækja skólana í Kópavogi og víðar. Þetta er að vísu ekki alveg nýtt í þjóðar- sögunni. Á árum áður hélt Ingólfur Guðbrandsson t.d. uppi slíkri kynn- ingu á tónlist fyrir skólabörn í Laugarnesskóla. Þar sáu margir og heyrðu í fyrsta skipti söngvara og hljóðfæraleikara leika listir sín- ar þann veg að viðstöddum hefur ekki gleymst í amstri liðinna daga og þær kynningar urðu kveikjan að umfangsmiklu tónlistarstarfi sumra þeirra nemenda sem á þær hlýddu. „Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að við eigum að nýta okkar besta listafólk til þess að leyfa æskunni að upplifa og læra að njóta og þá um leið að læra að meta gildi lista - tónlistar í þessu JÓNAS leikur undir fjölskyldusöng, þá búinn að læra á píanó í mánaðartíma. Lengst t.v. er Jóna Guðmundsdóttir amma Jónasar, sem hann heitir í höfuðið á. JÓNAS og Ruth Magnússon eftir tónleika á Selfossárunum. Ljósm: Tómas Jónsson. JÓNAS og Sigríður Ella héldu sína fyrstu tón- leika saman árið 1966. LITLIR tónleikagestir á Selfossi þyrpast á tónleika hjá Jónasi Ingimundarsyni á þeim árum er hann starfaði þar. Ingimundarson á æskuárunum fyrir austan. tilviki," segir Jónas. „Nýtum okkur kosti fámennisins. Við eigum mikil verðmæti fólgin í vannýttum gáf- um og menntun okkar tónlistar- fólks. Tónskáldið og uppeldisfröm- uðurinn Zoltan Kodaly sagði: „Tónlistaruppeldi ætti að hefjast níu mánuðum fyrir fæðingu", en leiðrétti sig svo og sagði: „Níu mánuðum fyrir fæðingu móðurinn- ar.“ Mikilvægi þess að leiða æsk- una að þeirri lind fegurðar sem tónlistin er ætti að vera öllum ljós. Ég gæti sagt þér skemmtilegar sögur af reynslu minni í þessu brasi. T.d. þegar snáðinn sagði, sýnilega feiminn, við Kristin Sig- mundsson, hvattur af kennaran- um: „Þú syngur svo fallega að ég var næstum farinn að gráta.“ Eða hvernig maður verður vitni að því hvernig fordómar táninganna molna niður við það að sjá og heyra tónlistina á staðnum. Þjóðirnar í kringum okkur hafa gert merki- lega hluti á þessu sviði. Stjórn menntamála og menningar hér þarf að þekkja sinn vitjunartíma. Ég lít svo á að sakir fámennis okkar getum við búið til „módel“ af svona starfi og verið öðrum fyr- irmynd. Við þurfum að leggja okk- ur fram í þessum efnum, börnunum hæfir aðeins það besta.“ Fæddur með söngkirtil? „Ég get ekki svarað því hvers vegna starf mitt með með söngvur- um hefur orðið svona fyrirferðar- mikið. Ég veit bara að ég byijaði að leika með söngvurum þegar ég var söngnemandi Einars Kristjáns- sonar, og lék oft með öðrum söng- nemendum hans. Nokkru seinna lék ég með Sigríði Ellu Magnús- dóttur á tónleikum og síðan hefur þetta undið upp á sig. Ég er lík- lega fæddur með eins konar söng- kirtil sem nærist á slíku starfi. Reynsla mín sem kórstjóri í tuttugu ár hefur vissulega komið mér að gagni í skiptum mínum við söngv- ara, þar hafa ekki komið upp vandamál. Þegar ég leik undir söng þá finnst mér að með einhveijum hætti sé um heild að ræða, ég geri lítinn greinarmun á söngnum og leiknum, mér finnst stundum sem ég syngi sjálfur. Þannig er þetta.“ Leikið og spjallað Eftir að ég fór að koma fram sem píanóleikari gerðist það eins og af sjálfu sér að ég fór að segja frá einu og öðru sem viðkom tón- listinni og fékk strax í upphafi sterk jákvæði viðbrögð við því. Þetta hefur fylgt mér. Ég vona þó að engum sé það ljósara en mér hve hættulegt það getur reynst að tala um tónlist - hún tekur við þar sem orðunum sleppir. í spjalli mínu er ég ekki að gefa hinar venjubundnu upplýsingar um tón- skáldin, svo sem að Beethoven hafi verið heyrnarlaus og Bach hafi átt mörg börn, það er heilsu- fræði, ég reyni miklu fremur að taka sýni úr verkunum og til að sýna fram á margbreytileika tón- anna. Iðulega fær fólk ekkert pró- gramm áður en tónleikarnir hefjast þannig að það veit ekki fyrirfram á hveiju það á von, það fær hins vegar prógramm í lok tónleikanna. Þannig hef ég fijálsar hendur og þótt allt sé þetta vandlega undir- búið þá viðhef ég vissan spuna í kynningum. Við þessar aðstæður gleymi ég sjálfum mér og jafnvel höfundinum, tónlistin er aðalatrið- ið. Ég er þó engan veginn að gefa hinu hefðbundna tónleikahaldi langt nef, leik á mörgum slíkum tónleikum á ári hveiju, en afstaðan er þar önnur, það myndast stund- um múr milli áheyrenda og flytj- enda, með spjalli er hægt að ijúfa þennan múr og skapa tengsl sem auðveldar óvönum hlustun, það er mín reynsla.“ Skynjar fegurðina gegnum tónlistina Jónas Ingimundarson er fólki að góðu kunnur fyrir tónlistarstörf sín, að öðru leyti kemur hann fyr- ir sjónir sem hlédrægur maður sem vill vinna sín störf í kyrrþey. Hann æfir sig á hljóðfærið daglega svo klukkustundum skiptir og unir því vel að geta lokað sig af við þá iðju. Hann býr ásamt konu sinni og dótturinni Láru Kristínu í fallegu húsi við Álfhólsveg í Kópavogi. Synirnir Haukur Ingi guðfræðing- ur og Gunnar Leifur ljósmyndari eru fluttir að heiman. Hús Jónasar var einu sinni tvíbýlishús en svo voru íbúðirnar sameinaðar þannig að húsið státar af tveimur stofum í sitthvorum endanum og er flygill í annarri og píanó í hinni. Jónas leikur á flygilinn. Meðan við tölum saman um þýðingu tónlistarinnar fyrir fólk gengur hann skyndilega að flyglinum, næstum eins og ósjálfrátt, og tekur að leika af fingrum fram tóndæmi til áherslu orðum sínum. Undan fingrum hans spretta hljómar af ýmsu tagi, sumir þýðir, aðrir fullir af spurn og jafnvel reiði. „Ég veit vel hvað tónlistin hefur gefið mér og ég vil aðeins reyna eftir megni að útbreiða hennar mál,“ segir hann eftir að hafa leikið fyrir mig und- urfagran kafla úr verki eftir Schubert. Það leynir sér ekki að tónlistin hefur hann á valdi sínum meðan hann leikur, um það vitnar andlitssvipur hans. Jafnvel eftir að hann er staðinn upp og farinn að tala um um annað efni má finna þau áhrif sem tónlistin hefur á hann. „Ég skynja fegurðina og guðdóminn í gegnum tónlistina, það er líka mikilvægt að muna að það syngur enginn í vondu skapi en það er hægt að syngja burtu leiðindi,“ segir hann til skýr- ingar og að svo mæltu fáum við okkur aftur sæti við sófann og kaffibollana. „Ég trúi ekki að allt sé tilviljun, ég held að lífið hafi sinn tilgang,“ segir Jónas í framhaldi af þessum verklega tónlistarkafla viðtalsins. Sem dæmi segir hann mér sögu frá London. „Eg var í heimsókn hjá Sigríði Ellu og við vorum að spjalla saman um gamla daga í Vínarborg. Meðal annars fórum við að tala um Breta einn, John Humphreys, sem við höfðum hvorki heyrt né séð í sautján ár. „Það væri nógu gaman að vita hvort hann býr enn í London,“ segi ég við Sigríði. „Réttu mér símaskrána". Hún átti bara eina af fjórum. Ég byija að fletta og það voru auðvitað margar, margar blaðsíður með nafninu Humphreys. Loks valdi ég einn úr af handa- hófi og hringdi. Sá rétti Hump- hreys svaraði og var í meira lagi undrandi. „Ég er hérna staddur skamma stund hjá pabba mínum, ég hef ekki komið til hans í þijár vikur og er á leiðinni út eftir tvær mínútur, það var ótrúleg heppni að þú skyldir ná í mig,“ sagði hann. Er svona lagað tilviljun? Aðra sögu, afar umhugsunar- verða, segir Jónas mér að skiln- aði. „Við Sigfús Halldórsson voru ágætir vinir og hann teiknaði raun- ar af mér mynd skömmu áður en hann dó. Nokkru eftir lát hans var ég staddur hjá góðri vinkonu minni og meðan við vorum að spjalla segir hún allt í einu, „Hann Sigfús Halldórsson er hérna hjá okkur, hann á erindi við þig, hann vill að þú hjálpir honum að ljúka við tvö lög sem hann átti ófrágengin þeg- ar hann dó.“ Þessi kona talar sjald- an um yfirskilvitlega hluti og mér hnykkti svolítið við, ekki síst vegna þess að daginn áður hafði Frið- björn G. Jónsson, sem unnið hafði mikið með Sigfúsi, hringt til mín og beðið mig að skrifa niður lag sem Sigfús hafði samið og þeir æft lítillega saman en hvergi var nú til varðveitt nema í huga Frið- bjarnar. Ég vissi að konan gat með engu móti vitað neitt um það sam- tal né heldur hafa haft spumir af þessu lagi með öðru móti. Þótt ég gæfi lítið út á það sem konan sagði hringdi ég í Friðbjörn og sagði honum að ég vildi gjarnan skrifa niður ófrágengna lagið hans Sig- fúsar. „Raunar voru nú lögin tvö,“ svaraði Friðbjörn.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.