Morgunblaðið - 02.03.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 02.03.1997, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ BJÖRN G. Björnsson var ný- kominn til landsins frá Færeyjum, þar sem hann sat fund stjórnar Norður- landahússins í Þórshöfn l fyrir íslands hönd, þegar I ég heimsótti hann á heim- ili hans í raðhúsi við Engjasel í Reykjavík. Það var á fögrum vetrardegi síðari hluta febrúar- mánaðar þegar sólin var hátt á lofti og nýfall- inn snjórinn lýsti upp umhverfið. Hann tók á móti mér með bros á vör, klæddur dökkgrænu ullarvesti, dökkblárri skyrtu og svörtum spari- buxum. Björn er ótrúlega fjölhæfur og meðal at- hygíisverðustu listamanna af þeirri kynslóð sem nú er komin á miðjan aldur. Hann hefur tvívegis komið að brautryðjandastarfi. Þegar Sjónvarpið hóf útsendingar árið 1966 og hann var ráðinn leikmyndateiknari þar, og síðan tveim áratugum síðar þegar hann var ráðinn dagskrárgerðarstjóri á Stöð 2 og gegndi því starfi í fjögur ár. Eins og ekki er óalgengt um menn sem komnir eru áf léttasta skeiði, orðnir miðaldra, er Bjöm farinn að grána svolítið í vöngum og grár litur kominn í skegghýjunginn á and- litinu sem gerir hann virðulegan, og hann kemur fyrir sjónir sem dæmigerður umfangs- mikill athafnamaður. Hógværð og lítillæti eru áberandi í fari hans, en þó um leið stolt þess manns sem nýtur þeirra forréttinda að geta starfað sjálfstætt að list sinni. Bjöm G. Björns- son á að baki starfsaldur í rúma þijá áratugi og býr yfir mikilli reynslu á sviði fjölmiðlunar. Heimili Björns og konu hans, Þóru Jónsdótt- ur móttökuritara, er einstaklega smekklegt. Synir þeirra hjóna eru Steingrímur Jón, Björn Þór og ívar sem er sex ára. Veggir heimilis eru þaktir málverkum og teikningum eftir kunna listamenn og aðra minna þekkta. Við komum okkur fyrir í eldhúsi á annarri hæð. Fyrst ræddi hann um bernskuárin og námsárin þegar hann var að alast upp í Reykjavík á fimmta og sjötta áratugnum. Uppruni og æskuár „Ég er Reykvíkingur, fæddur á Skeggjagötunni árið 1944, lýðveldis- vorið, og ólst þar upp fyrstu árin, en síðan í Skuggahvefinu, á Lindar- götunni og Vatnsstígnum, í þessum gömlu hverfum. Við mamma vorum bara tvö, faðir minn var bandarískur hermaður sem ég kynntist aldrei og hef aldrei séð. Ég var í sveit á Úlfsstöðum í Borg- arfirði hjá móðursystur minni í ein sjö, átta sumur frá því að ég var fimm ára og fram að fermingu og það var svona mitt annað heimili á sumrin. Það er gaman að geta sagt frá því að þarna náði ég í skottið á gamla bændasamfélaginu. Það var sofið í baðstofu, sem kom að vísu ekki til af góðu, því að bærinn brann og það var flutt í gamla torfbæinn eitt sum- ar meðan verið var að byggja nýtt hús. Þama var að hluta heyjað upp á gamla mátann og slegið með orf og ljá í erfiðum brekkum, og bundið í bagga upp á hesta sem maður teymdi svo heim að hlöðu.“ Það færðist bros yfir andlit Björns þegar hann hóf að segja frá því hvernig tónlistin kom inn í líf hans. „Þegar ég fór í Lindargötuskólann byijaði ég að spila á hljóðfæri. Þá gerðist eitthvað. Þar var vinur minn Arthur R. Moon, móðir hans var þarna húsvörður og hann bjó í skól- anum. Við byijum að spila á skóla- böllum áður en við eiginlega vissum af, hann á nikku og ég á trommur. Þetta var á þeim árum þegar rokkið var að byija. Ég lærði á trommur hjá Guðmundi R. Einarssyni og æfði á gúmmímottur heima í stofu hjá Mumma tvo vetur. Ég hef stundum sagt að þetta sé það eina sem ég hef yfirleitt lært. Síðan fór ég á spila á trommur í unglinga- hljómsveitum, byijaði með Fimm í fullu fjöri 1959 og svo í Diskó sextett, sem keppti við Lúdó sextettinn um hylli æskufólksins og spilaði mikið í Iðnó á sumrin. Við í Fimm í fullu fjöri spiluðum í Silfurtunglinu fimm eða sex kvöld í viku og á milli þijú og fimm á sunnudögum. Þama kynntist ég Carli Möller, Guðjóni Margeirssyni, Kjartani Norðfjörð og Erni Ármannssyni. Þama voru Guðbergur Auðunsson og Siggi Johnnie að syngja. Svo keypti ég Gibson gítar af Hjörleifí Bjömssyni bassaleikara sem hann hafði keypt á Kefla- víkurflugvelli.“ Savannatríóið „Ég náði tiltölulega fljótt tökum á gítarn- um. Þegar Guðjón Margeirsson bassaleikari kom í Verslunarskólann var þar piltur sem heitir Troels og var með þjóðlagagrúppu í skólanum. Þá var ég í menntaskólanum, en Guðjón mundi þá eftir að ég hafði eignast þennan forkunnar fína og góða gítar, svo ég var kallaður á æfingu í Verslunarskólann að hlusta á þessa sex manna grúppu sem var undir áhrifum frá Kingston-tríóinu og tónlist þeirra. Þetta var 1961. Ég var tekinn inn í hópinn og spilaði á nemendamóti VÍ í Sjálfstæðishúsinu við Aust- urvöll. Við sungum aðlallega þjóðlög og kú- rekalög. Þá er það, að við hliðina á mér í menntaskólanum situr strákur úr Keflavík sem heitir Þórir og hann spilaði á hvað sem var. Ég fékk hann með mér á æfíngu út í Verslunarskóla. Það gerðist þá að fjórir úr þessum sjö manna hópi vom látnir hætta en Þórir kom í staðinn og eftir varð tríó með Guðjóni Margeirssyni að auki á bassa.“ - Er það ekki þá sem Savannatríóið verð- ur til? „Jú, við komum fljótlega fram í útvarps- þætti og lagið líkaði vel, var talsvert umbeð- ið og við urðum að finna nafn á tríóið svo hægt væri að kynna það. Nafnið Savanna líklega tekið úr landafræðinni. Fyrsti umboðs- maður okkar var Pétur Pétursson þulur. Hann sló víxil svo við gætum fjármagnað hljóðfæra- kaup og látið sauma á okkur skyrtur. Svo kom Pétur rakari líka til sögunnar sem um- boðsmaður. Við æfðum heilt prógramm og komum fram í fyrsta sinn opinberlega sem skemmtikraftar á nýársdag 1963, fyrst í Grill- inu á Hótel Sögu. Jón Leifs tónskáld sat að snæðingi í Grillinu þetta kvöld og hneykslað- ist víst eitthvað á útsetningum okkar. Við sungum fimm sinnum þetta fyrsta kvöld, og það var ef til vill dæmigert fyrir ferilinn, tríó- ið sló strax í gegn og á ijórum árum höfðum við sungið fyrir landann mörgum sinnum um allt land. Við vorum m.a. fastagestir í Naust- inu á þorranum og þegar mest var komum við fram 16 sinnum eina vikuna. Krafan um sífellda endurnýjun á söngskránni varð til þess að við ákváðum að hætta þegar hæst stóð. Þórir fór til útlanda að iðka tónlist, Troels var í viðskiptum og fór að syngja með Þremur á palli, en ég réð mig í vinnu hjá Sjónvarpinu, sem þá var að verða til.“ Brautryðjandi hjá Sjónvarpinu Þegar Björn lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík í júní 1966 var undirbún- ingur að stofnun Sjónvarpsins í fullum gangi og honum bauðst einstakt tækifæri. Andrés Indriðason, sem var þá orðinn starfsmaður Sjónvarpsins, gerði samning við þá félaga í Savannatríóinu um gerð sex þátta sem voru fyrstu íslensku skemmtiþættirnir. „Og fyrsti þátturinn var á dagskrá opnun- arkvöldið 30. september. Við unnum síðan að þessum þáttum, og það hafði þær afleiðingar að ég varð eftir þar. Ég var beðinn um að gera umgerð þáttanna. Það hafði ekkert verið hugsað fyrir því, engin leikmyndadeild til eða neitt þess háttar, og ég var beðinn um að vera þarna áfram og fékk vinnu hjá Sjónvarp- inu, algjörlega ómenntaður maður, nýskriðinn út úr menntaskóla, bara með mína Herranæt- urreynslu á bakinu. Ég tók að mér leikmynda- gerð hjá Sjónvarpinu fyrstu árin og þar var ég í tíu ár. Þetta var gríðarlega skemmtilegur og magnaður tími. Sjónvarpið var svo nýtt, öll þjóðin fylgdist með þessu og allir sem komu þarna fram og unnu þarna voru orðnir landsþekktir á örfáum mánuðum. Þetta breytti mjög miklu, t.d. í félagslífi þjóðarinnar. Ég man líka að fólk horfði mikið á útlit á þáttum. Við fengum lánuð húsgögn í húsgagnaverslunum og fólk tók mjög mikið mark á því sem það sá í sjón- varpinu. Ef við vorum með einhver sófasett eða eitthvað í láni þá fóru þeir hlutir að seljast í búðunum. Þarna urðu í fyrsta skipti til stjörn- ur í samfélaginu, stjórnmálamenn, listamenn eða sjónvarpsmenn. Það var gaman að fylgjast með hvernig stjórnmálamennirnir komu inn í þennan nýja miðil. Þeir kunnu nú illa á sjónvarp svona yfirleitt. Flestir voru vanir allt öðru formi, fundarforminu, þar sem menn sátu uppi á pöllum í félagsheimilum eða fundarsölum og höguðu sér allt öðru- vísi en sjónvarpið krafðist. Það var merkilegt að fylgjast með hvernig menn aðlöguðust þessum nýja miðli, og það er nú hluti þess sem ég hef einstöku sinum fengist við hin síðari árin í samvinnu við aðra, að kenna sjónvarpsframkomu, hef tekið menn í þjálfun, bæði stjórnmálamenn og frambjóðendur og hina og þessa, og hef haft mjög gaman af því. Þessi tíu ár hjá Sjónvarpinu voru alveg rosalegur tími og það var mik- ið unnið. Leikmyndadeildin vann stundum dag og nótt. Það voru upp- tökur á daginn, svo komu fréttirnar og eftir fréttir byijuðum við að taka niður leikmyndirnar og setja upp nýj- ar fyrir næsta dag og oft var unnið fram undir morgun. Þarna voru fínir starfskraftar. Ég segi stundum að ég hafi alið upp fólk eins og Rósu Ing- ólfs, Halla og Ladda og fjölmargt skemmtilegt fólk annað sem var þarna í deildinni og steig þar sín fyrstu skerf. Þegar ég kem þarna inn er ég einn til að byija með, síðan kemur Björn Kristleifsson sem nú er arkitekt og svo Björn Emilssson sem er núna upptökustjóri. Við erum þrír Birnirnir, einbjörn, tvíbjörn og þrí- björn og þannig var deildin skipuð fyrstu árin. Þegar ég hætti 1976 var þetta orðin sautján manna deild, stoð- deild við dagskrárgerðina. Á árunum 1969-70 var ég hjá danska sjónvarpinu og gekk þar í gegnum námskeið og síðan starfs- þjálfun og kynntist því hvemig Danir vinna. Þar var forstöðumaður Jorn Mathiassen sem var mikill snillingur og frægur maður í þessu fagi og það sem maður lærði mest af honum var afstaðan til verkefnanna - hvert sé hlutverk leikmyndahönnuðarins. Það er ekki hans hlutverk að ráða ferðinni og vera aðalmaður. Hann er stuðningsaðili og á að reyna að skynja hvaða umgjörð hæfir hveiju efni og reyna vinna hana þannig að enginn taki eftir henni. Hún á að styðja við efnið en ekki stíga fram og lifa sínu eigin lífi. Þetta hef ég reynt að hafa sem mottó. Líkt og áhrifsmúsík kemur inn til að undirstrika til- finningu þannig getur leikmyndahöfundurinn líka undirstrikað tilfinningu og andrúm það sem á að ríkja í viðkomandi dagskrá. Hvort sem það er fréttaþáttur, skemmtiþáttur eða leikrit. Leikmyndarhöfundur á egótrippi er alveg ómögulegur. Þegar ég var þarna úti er liturinn að koma og Danir eru að byija að vinna í lit. Ég man eftir því að það var verið að undirbúa ein- hvern þátt með flottri sænski söngkonu í danska sjónvarpinu og talið barst að því hvern- ig liti ætti að hafa. Þá sagði Mathiassen þessi ágætu orð: - „Ég hafði nú hugsað mér að nota bara varalit. Þetta er kona sem er með útgeislun og þarf enga liti. Hún er sjálf litrík, „Menningin er auúlittf Bjöm G. Bjömsson hefur síðastliðna þrjá áratugi starf- að að leikmyndagerð og sýningahönnun fyrir sjónvarp, kvikmyndir, leikhús, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfé- lög. Bjöm var einn af fyrstu starfsmönnum Sjónvarps- ins og starfaði þar í áratug. Skömmu eftir að Stöð 2 hóf útsendingar 1986 varð hann dagskrárgerðarstjóri þar og starfaði þar allt til ársins 1990. Hann er einn þriggja meðlima hins landskunna Savannatríós. Olafur Ormsson ræddi við Bjöm um menningarmál, flölmiðla, árin með Savannatríóinu og sitthvað fleira.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.