Morgunblaðið - 02.03.1997, Side 14

Morgunblaðið - 02.03.1997, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ SKEIN yfír landi sól á sumar- vegi - / og silfurbláan Eyjafjallatind / gullrauðum loga glæsti seint á degi.“ Eins og skáldið láta flestir sér nægja að líta fagran jökulinn úr fjarlægð. En til eru þeir sem sjá ögrun í hveijum tindi og vilja sigra hann, vilja klífa þar upp, finna af- rekið í lúnum vöðvum og sjá vítt til allra átta. Og þegar einn er sigr- aður verður að vinna þann næsta og þann næsta, uns aðeins sá hæsti er eftir. Mörgum er það hulin ráð- gáta hvað rekur þessa menn áfram. Félagarnir þrír úr Hjálparsveit skáta í Reykjavik og Kópavogi sem ætla að klífa Everesttind í vor segja að þeir sjálfir hafi ekki fundið svar- ið við þessari spurningu og því haldi þeir áfram að fara á fjöll. „En auð- vitað er það líka metnaðurinn sem rekur okkur áfram,“ segir Einar, „það er okkur mikil áskorun að verða fyrstir íslendinga til að fara á hæsta fjall jarðar." Líta má á hvern tind sem þre- menningarnir hafa klifið undanfarin ár sem undirbúning fyrir ferð þeirra á Everest sem liggur á landamærum Nepal og Tíbet í Himalajafjöllum. Everest er 8.848 metra hátt og er nefnt eftir breska landmælinga- manninum Sir George Everest (1790-1866). Fyrstir til að ná tindi fjallsins 29. maí árið 1953 voru Nýsjálendingur- inn Edmund Hill- ary og Nepalbúinn Tenzing Norgay. Síðan hafa um 670 manns komist alla leið á toppinn en miklu fleiri þurft að játa sig sigraða fyrir hon- Aðeins sá hæsti eftir Undirbúningur fyrir ferð þremenninganna Bjöms Ólafssonar og Hallgríms Magnússonar í Hjálparsveit skáta í Reykjavík og Einars K. Stefánssonar í Hjálparsveit skáta í Kópavogi á hæsta fjall jarðar, Everest, er á lokastigi, en lagt verður upp í leið- jkrfj angurinn 23. mars. uMýl Hluti af undirbún- um. Á jökli Mikill snjór var á leiðinni inn að Gígjökli daginn sem iagt var upp í þessa æfingaferð og alger blinda. Keyrt var eftir staðsetningartækj- um, en farið var á tveimur jeppabif- reiðum í eigu Hjálparsveita skáta í Reykjavík og Kópavogi. Ferðin inn að jöklinum tók lengri tíma en áætl- að var þannig að ekki var komið að jöklinum fyrr en upp úr hádegi. Þar sem við höfðum þurft að ganga síð- asta spölinn að jöklinum áðum við ingnum er að fara í fjallaferðir hér innanlands og reyna búnað sem notaður verður í leiðangrinum. Þröstur Helgason blaðamaður og Þorkell Þorkelsson ljósmyndari fóm með í eina slíka ferð á Gígjökul, sem er skriðjökull er gengur norður úr Eyjafjallajökli. Morgunblaðið/Þorkell FERÐIN upp Gígjökul gekk hægt, enda náði snjórinn upp á mið læri. Ferðin var hluti af lokaundirbúningi þeirra Björns Ólafssonar, Hallgríms Magnús- sonar, sem sjást fremstir á mynd- inni, og Einars K. Stefánssonar fyrir ferðina á Everest í vor. EIN af aðalhindrunum upp Ever- estfjall er hinn stórbrotni Khum- buskriðjökull sem er 1.000 metra hár og fellur fram um einn metra á dag. Þótt Gígjökull sé engan veginn jafnstórbrotinn skriðjökull var ferðin á hann meðal annars hugsuð sem æfing fyrir klifrið upp ísfallið mikla á Everest. GIST var í ís- helli á Gígjökli og var vistin fremur köld og blaut þótt ekki væri kvartað mikið. um stund í íshelli neðst í honum, gleyptum í okkur nokkrar brauð- sneiðar, fórum í goretexgallann, settum upp mannbroddana og höfð- um til ísaxir og öryggislínur áður en við lögðum á brattann. í hópnum voru auk þremenninganna og okkar Morgunblaðsmannanna Jón Þór Víg- lundsson, myndatökumaður Sjón- varpsins, sem mun vera í för með fjallgöngumönnunum upp að Ever- est, og Hörður Magnússon, bróðir Hallgríms, sem mun verða aðstoðar- maður. Allir í hópnum höfðu ein- hvetja reynslu af fjallamennsku nema blaðamaðurinn sem aldrei áður hafði stigið fæti á jökul. Fannfergið jókst þegar komið var á jökulinn og náði upp á mið læri. Eru þetta óvenjulegar aðstæður enda miðaði okkur frekar hægt upp. Ein af hindrununum á leiðinni upp á tind Everestfjalls er hinn stór- brotni Khumbuskriðjökull sem er meira en 1.000 metra hár. Skriðjök- ull þessi, eða ísfall, skríður fram um einn metra á sólarhring og er því á stöðugri hreyfingu. Á þessum jökli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.