Morgunblaðið - 02.03.1997, Page 16

Morgunblaðið - 02.03.1997, Page 16
16 B SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ATVIN N(f AUGL YSINGAR Seltjarnarnesbær Félagsráðgjafi Félagsráðgjafi óskast í 50% starf á félags- málaskrifstofu. Um er að ræða fjölbreytt starf á vettvangi félagslegrar þjónustu. Nánari upplýsingar gefur félagsmálastjóri, bæjarskrifstofum Seltjarnarness, Austur- strönd 2, sími 561 2100. Umsóknarfrestur er til 14. mars nk. Umsóknir sendist félagsmálastjóra. Félagsmálaráð Seltjarnarness. Fiæðslumiðsfcöð Re^igavíkur Augiýsir lausar stöður Kennsluráðgjafar Lausar eru til umsóknar þrjár stöður kennsluráðgjafa á Fræðslumiðstöð Reykja- víkur: 1. Kennsluráðgjafi Starfið felst m.a. í: • Ráðgjöf til kennara og skólastjóra um framkvæmd kennslu. • Skipulag og umsjón með námskeiðum og fræðslufundum. • Leiðsögn vegna þróunarverkefna. • Að vera tengiliður við skóla í ákveðnu hverfi í samstarfi við aðra starfsmenn Fræðslumiðstöðvar. Umsækjandi þarf að hafa kennaramenntun og framhaldsnám á sviði uppeldis- og kennslufræða. 2. Kennsluráðgjafi til að hafa umsjón með sérstöku átaki til að efla náttúrufræðigrein- ar f grunnskólum Reykjavíkur, tímabundin ráðning. Starfið felst m.a. í: • Ráðgjöf við kennara um framkvæmd kennslu á sviði náttúrufræðigreina og tækni. • Leiðsögn við þróunarverkefni á þessu sviði. • Umsjón með námskeiðum og fræðslu- fundum. Umsækjandi þarf að hafa kennaramenntun og æskilegt að hann hafi framhaldsmenntun á umræddu sviði. 3. Kennsluráðgjafi á sviði sérkennslu, afleysing í 1 ár. Starfið felst m.a. í: • Ráðgjöf til kennara og skólastjóra um framkvæmd sérkennslu. • Ráðgjöf og leiðsögn við foreldra og kenn- ara vegna einstakra nemenda. • Umsjón með skipulagi sérkennsluúrræða við grunnskóla Reykjavíkur. • Umsjón með námskeiðum og fræðslu- fundum fyrir sérkennara. Umsækjandi þarf að hafa kennaramenntun og framhaldsmenntun á sviði sérkenslu. Kröfur til umsækjenda um allar stöðurnar: • Áhugi á skóiamálum. • Reynsla af starfi í grunnskólum. • Lipurð í mannlegum samskiptum. Næsti yfirmaður: Deildarstjóri kennsludeildar. Nánari upplýsingar veitir Anna Kristín Sig- urðardóttir deildarstjóri kennsludeildar í síma 535 5000. Umsóknir berist Fræðslumiðstöð Reykjavík- ur, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 10. apríl 1997. • Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sfmi: (+354)535 5000 • Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is Barnaverndarstofa Fósturheimili óskast Okkur bráðvantar traust og örugg fóstur- heimili. Leitað er að fólki, sem er tilbúið að taka að sér börn/unglinga, sem eiga við erfið- leika að etja. Leitað er að fólki, sem hefur góðan tíma til að sinna börnunum, er um- burðarlynt, skilningsríkt og sveigjanlegt í samskiptum. Æskilegt er að fólk hafi reynslu af uppeldismálum. Barnaverndarstofa heldur námskeið fyrir verðandi fósturforeldra, auk þess sem fóst- urforeldrar fá stuðning frá barnaverndar- nefndum og starfsmönnum þeirra, þegar barn er komið á heimilið. Um er að ræða verkefni, sem eru krefjandi en jafnframt vel launuð. Upplýsingar gefur Hildur Sveinsdóttir, Barna- verndarstofu, sími 552 4100. Landgræðsla ríkisins óskar eftir að ráða starfsmann til starfa í Fræverkunarstöðina í Gunnarsholti Helstu verkefni: Vinna við fræöflun og fræverkun þ.m.t. fræ- hreinsun. Hafa eftirlit með ferli fræfram- leiðslu. Um 100% starfshlutfall er að ræða. Æskileg reynsla/þekking: Reynsla og réttindi í meðferð véla og tækja. Reynsla í gæðastjórnun. Eigi auðvelt með samskipti og geti starfað sjálfsætt. Nauðsynlegt/æskilegt að viðkomandi sé eða verði búsettur í héraði og geti hafið störf í apríl nk. Laun samkvæmt kjarasamningum Verka- mannasambands íslands hf. aðildarfélaga þess og fjármálaráðherra fh. ríkissjóðs. Upplýsingar veitir Einar Karlsson í síma 487 5500. Vinsamlega sendið skriflega umsókn til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella fyrir 15. mars nk. Öllum umsóknum verður svarað. Vélgæslu- maður Frystihús á Norðurlandi óskar eftir að ráða vélgæslumann til starfa. Starfssvið: Almenn vélgæsla, eftirlit, viðhald og minnháttar viðgerðir á vélum og tækja- búnaði frystihússins. Við leitum að laghentum, iðnum og samviskusömum manni. Reynsla og þekking á vélum æskileg. Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar„Vélgæsla 103" fyrir 8. mars n.k. Hagvangur hf Skerfan 19 108 Reykjavik Sími: 581 3666 Bréfsími: 568 8618 Netfang: hagvang@nir5kyrr.is Veffang: http://www.apple.is /hagvangur HAGVANGUR RADNINGARÞJÓNUSTA fíótt þekking á róttum tíma -fyrir rótt fyrirtæki Krabbameinsfélagið Meinatæknir/ líffræðingur Rannsóknarstofa Krabbameinsfélagsins í sameinda- og frumulíffræði óskar eftir meinatækni/líffræðingi til að aðstoða við sameindaerfðafræðilega rannsóknarvinnu. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu af vinnu á rannsóknarstofu. Um er ræða fullt starf í 2-3 ár. Nánari upplýsingar fást hjá Sólveigu Grétarsdóttur, Krabbameinsfélagi íslands, sími 562 1414, milli klukkan 11-12 vikuna 3. til 7. mars. SVÆÐISSKRIFSTOFA MÁLEFNA FATLAÐRA Á REYKJANESI, DIGRANESVEGI 5, 200 KÓP. Vilt þú vinna að spennandi verkefn- um í málefnum fatlaðra? Þroskaþjálfi Þroskaþjálfi óskast að sambýli fatlaðra í Hrauntungu í Kópavogi. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu. Stuðningsfulltrúar Óskað er eftir stuðningsfulltrúum á sambýli fatlaðra í Kópavogi og Hafnarfirði. Um er að ræða 60-100% störf í vaktavinnu. Óskað er eftir áhugasömu fólki með færni í mannlegum samskiptum. Nýju starfsfólki er veitt vönduð leiðsögn og fræðsla. Laun fyrir ofangreind störf eru samkvæmt kjarasamningi SFR og fjármálaráðherra. Umsóknin gildir í 6 mánuði. Umsóknareyðu- blöð liggja frammi á Svæðisskrifstofunni, Digranesvegi 5 í Kópavogi. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 564 1822. Varnarliðið -tölvudeild óskar að ráða tölvunarfræð- inga/kerfisfræðinga. Um er að ræða 2 fastar stöður í einni af stærri tölvudeildum landsins, sem hefur yfir að ráða m.a. yfir 800 PC tölvum, Unix miðlur- um, 12 Novell 4.1 staðarnetum og víðneti, sem tengir flest staðarnetin saman. Starfið er krefjandi, mjög fjölbreytt og býður upp á góða framtíðarmöguleika. Það felur f sér að taka þátt í: • Að móta framtíðarstefnu fyrirtækisins f tölvumálum. • Hönnun og viðhaldi á netkerfum og vfðnetstengingum. • Ráðgjöf og þjónusta við notendur. Hæfniskröfur. Umsækjandi þarf að hafa sem víðtækasta þekkingu og reynslu á sviði vél- og hugbún- aðar og er þar um að ræða MS-DOS, Windows 3.11, 95, NT og Microsoft Office. Viðkomandi þarf einnig að hafa þekkingu á NetWare 3.12 og 4.1 netkerfum og TCP/IP samskiptastaðli. Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt, eiga gott með að umgangast fólk og hafa mjög góða enskukunnáttu. Góð laun í boði fyrir réttan einstakling. Skriflegar umsóknir berist til Varnarmála- skrifstofu utanríkisráðuneytisins, ráðning- ardeild, Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ, eigi síðar en 10. mars 1997.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.