Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JWflripwMíiIöiifo
C
1997
FIMMTUDAGUR 6. MARZ
BLAÐ
Samaranch
gefur aftur
kost á sér
JUAN Antonio Samaranch, forseti Alþjóða
ólympíunefndarinnar, IOC, tilkynnti í gær að
hann ætlaði að gefa kost á sér til endurkjörs
í september nk., þegar kosningar fara næst
fram en kosið er á fjögurra ára fresti. Samar-
anch verður 77 ára í júlí og hefur verið for-
seti IOC frá 1980. „Þetta var ekki erfið
ákvörðun," sagði hann í gær. „Það er ekki
fórn að vera forseti IOC.“ Varaforsetamir
fjórir studdu framboðið og er ekki gert ráð
fyrir mótframboði.
Islandsfarinn
Barker banda-
rískur meistari
RICKY Barker sem keppti við Jón
Amar Magnússon, UMFT, í ein-
vígi á afmælismóti ÍR á dögunum
varð nýlega bandarískur meistari
í sjöþraut innanhúss. Hlaut hann
5.969 stig, 14 stigum fleiri en
Steve Fritz. Þessir tveir menn
verða keppendur Bandarílganna
í sjöþrautarkeppni HM í París um
helgina.
Thomas Dvorak, Tékklandi, er
greinilega í góðri æfingu um þess-
ar mundir því hann setti tékk-
neskt met í sjöþraut á meistara-
móti Tékklands fyrir skömmu.
Fékk hann 6.211 stig. Annar varð
Kamil Damasek með 6.182 stig.
Robert Zmelik sem ásamt Dvorak
hefur verið sterkasti tugþrautar-
og sjöþrautarmaður Tékklands
tók ekki þátt. Dvorak og Zmelik
verða báðir á meðal keppenda á
HM.
Tugþrautarkappinn Dezso
Szabo sló ungverska metið í sjö-
þraut á meistaramóti sins heima-
lands í Búdapest nýverið, er hann
hlaut 6.148 stig. Er greinilegt á
þessum úrslitum að Szabo ekki
síður en Dvorak ætlar að vera í
fremstu röð á HM. _
Þess má geta að íslandsmet
Jóns Amars í sjöþraut er 6.110
stig, sett í Gautaborg 4. febrúar
á síðasta ári. Það er Ijóst að Jón
verður að sýna allar sínar bestu
hliðar er hann mætir þessum
köppum í París um helgina.
HANDKNATTLEIKUR
Sending
Morgunblaðið/Kristinn.
ANDREA Atladóttir, sem gekk tll llðs vlð Hauka í vetur, skor-
aðl fjögur mörk í 26:21 slgri á Val í úrslltakeppni kvenna í
gærkvöldi. Hér sendlr hún boltann en Ágústa Sigurðardétt-
ir, sem fór beint í IIA Vals þegar Fylkir lagðl nlður kvenna-
flokk félagsins, er tll varnar.
Búningur Valdi-
mars hengdur upp
Búningur Valdimars Grímssonar
þjálfara Stjörnunnar hefur
verið hengdur upp í ijáfur í íþrótta-
húsinu í Ásgarði - heimavelli
Stjörnunnar. Er þetta líkt og gert
er við búninga körfuknattleiksstór-
stjarna í NBA deildinni í Bandaríkj-
unum er þær leggja skóna á hill-
una. Valdimar er sem kunnugt er
meiddur um þessar mundir en búist
er við að hann mæti til leiks á ný
um miðjan apríl og er reiknað með
að búningur hans verði geymdur á
herðatré á núverandi stað þar til
kappinn kemur í slaginn á ný. Þess
má reyndar geta að Valdimar hefur
stýrt sínum mönnum frá vara-
VALDIMAR Grímsson.
mannabekknum til sigurs í báðum
leikjunum sem þeir hafa leikið síðan
hann meiddist.
Kúbjöllur hljómuðu
Mosfellingar mættu með kúa-
bjöllur á leik Aftureldingar og ÍR
í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Bjöllurnar
hljómuðu kröftuglega þegar ÍR var
í sókn og hafði þessi gjörningur
mikil áhrif á leik ÍR-inga sem gerðu
aðeins sex mörk á móti 14 í fyrri
hálfleik. Þegar Afturelding lék fyrri
Evrópuleik sinn á móti Drammen í
Noregi í fyrra féllu þeir einmitt á
þessu sama bragði og þeir beittu á
IR-inga í gær.
FRAMKVÆMDIR við stórt og
mikið knattspyrnusafn hefjast
á næsta ári í Disneylandi í
París og tilkynnti Alþjóða-
knattspyrnusambandið í gær
að sambandið muni leggja 50
miiyónir dala (um 3,5 miiy-
arða króna) til að gera safnið
eíns skemmtilegt og kostur er.
Knattspyrnusafnið fær til
umráða 93.000 fermetra i
Disneylandi og þar á að meðal
annars að koma fyrir full-
komnum margmiðlunarbún-
aði þannig að gestir geti skoð-
að og „lifað" gamla merkilega
atburði knattspyrnusögunnar.
Einnig verður stillt upp liði
allra tima auk liðs ársins.
Varla var búið að tilkynna
þetta þegar farið var að ræða
um hvort Maradona yrði hafð-
ur með í liði allra tíma. For-
ráðamenn FIFA segja það
óliklegt því meta þurfi menn
útfrá getu þeirra, og þar sé
Maradona ofarlega á lista, en
einnig eftir hegðun þeirra
utan vallar og þar er Mara-
dona aftarlega á merinni. Víst
er talið að Peie, Cruyff og
Eusebio verði í fyrsta liðinu
sem útnefnt verður i janúar á
næsta ári.
KNATTSPYRNA: ORRUSTAN UM ENGLAND / C2,C3