Morgunblaðið - 15.04.1997, Síða 1
; •- - ....
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
h
1997
ÞRIÐJUDAGUR 15.APRIL
BLAÐ
Bræðumir
með vara-
liði Arsenal
VALUR Fannar og Stefán
Gíslasynir léku með varaliði
Arsenal á móti Bristol City um
helgina og er þetta í fyrsta
sinn sem bræður leika með lið-
inu síðan Denis og Daniel
Clapton gerðu það í nóvember
1960. Valur Fannar hefur ver-
ið viðloðandi varaliðið á tima-
bilinu en þetta var fyrsti leikur
Stefáns með því.
Konráð
skoðar að-
stæður í
Þýskalandi
KONRÁÐ Olavson, hornamað-
ur Stjömunnar og landsliðsins,
hefur verið í Þýskalandi að
undanförau til að skoða sig um
hjá tveimur liðum. Hann æfði
með Niederwiirzbach fyrir
helgi og fór síðan til Leuters-
hausen til að skoða aðstæður
þar. Með liðinu leikur Jason
Olafsson. Konráð hefur mikinn
áhuga á að leika í Þýskalandi
næsta vetur og er umboðsmað-
ur hans að reyna að koma hon-
um að þar. Hann hafði áður
fengið tilboð frá 2. deildarliði
í Sviss, en hefur ekki mikinn
áhuga á að fara þangað.
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Golli
Drammen vill
fá Bjarka
Norska handknattleiksliðið
Drammen hefur haft sam-
band við Bjarka Sigurðsson hjá
Aftureldingu og á hann von á til-
boði frá félaginu innan skamms.
„Talsmaður félagsins spurði
hvort ég hefði áhuga á að leika
með liðinu og sagði ég að það
gæti komið til greina en færi eftir
því sem í boði væri,“ sagði Bjarki
við Morgunblaðið og bætti því við
að hann ætti von á tilboði.
Samningur Bjarka við Aftureld-
ingu er runninn út og sagði hann
að vel gæti komið til greina að
vera áfram hjá félaginu. „Við eig-
um eftir að setjast niður og ræða
málin. Það er fínt að vera í Mos-
fellsbænum og framtíðin er björt
hjá félaginu."
Bjarki hefur verið meiddur f
nára að undanförnu og gat ekki
beitt sér í leiknum við_ KA á Akur-
eyri á laugardag. „Alagið hefur
verið mikið að undanförnu en ég
þarf að taka það rólega næstu
daga. Þorbjörn landsliðsþjálfari
veit hvernig málið stendur og hann
vill að ég taki mér þann tíma sem
ég þarf til að ná mér góðum.“
Gulirog glaðir
á Akureyri
KA tryggði sér íslandsmeistaratit-
ilinn í handknattleik í fyrsta sinn
þegar norðanmenn unnu Aftur-
eldingu 24:22.. Alfreð Gíslason,
þjálfari og leikmaður KA, hætti
með liðið á eftirminnilegan hátt á
heimavelli og sagði að nú væri
hann örugglega hættur að leika
en sem kunnugt er tekur hann við
stjórninni þjá Hameln í Þýskalandi
í sumar. Julian Róbert Duranona
fór á kostum í KA-heimilinu á
laugardag og stuðningsmenn liðs-
ins kunnu vel að meta frammi-
stöðu hans. Strax eftir leik fékk
hann gula hárkollu frá einum
þeirra og hann var svo sannarlega
gulur og glaður með Islandsmeist-
arabikarinn.
■ KA / B4, B5, B6,
B7, B10.
GOLF: TIGER WOODS SETTIFJÖGUR MÓTSMET / B12
AÐALTOLUR
Vinningar Fjöldi Vinnings- upphæð
"| . 6 af 6 1 40.950.000
2 5af 6 0 2.418.355
3. 5a,e 3 685.260
4. 4 af 6 243 1.670
5. 38,6 818 210
Samtals: 1.005 44.210.725
HEILDARVINNING 44.210. SUPPHÆÐ: 725
• M i ð o i n i r m e ð ÞCmujs-
vinningumjm t taug-ardags*
lottoinu voru Kovptir hjá
Bonsín- oo voitinossOtunni
f Stykkishötmi, Hotta Nosti
f Hafnsrfirdi. Söluturnínum
Miðjunni i Htfínrsmára i
KOpavopi op Skattáfskáta
á Kí( kjuÞaajai ktaustri.
Lottotiopa.'mt som vorða
með a Ras 2 & föstudap
oro: Starfsmenn Hötet
Hatnar & Höfn f Homaffrði
op l.ottoMubbunnn Upp á
Knnt hjá Posti op sima i
Mosfollshsw.
SÍMAR:
UPPLÝSINGAR I SlMA: 568-1511
GRÆNT NÚMER: 800-6511