Morgunblaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 12
amm
GOLF
Woods í
græna
jakkanum
TIGER Woods með sigur-
bros á vör og kominn í
græna jakkann. Hann
gerði sér lítið fyrir og sigr-
aði á Augusta með 12
högga mun, lék á 270
höggum, sem er 18 högg-
um undir pari vallarins.
Yngst-
urog
bestur
Tiger Woods sýndi hvers hann
er megnugur í bandarísku
meistarakeppninni
TIGER Woods kom sá og sigr-
aði íbandarísku meistara-
keppninni í golfi sem lauk á
Augusta golfvellinum í Banda-
ríkjunum á sunnudaginn. Það
hefur verið talað um að þessi
21 árs gamli Bandaríkjamaður
fatfrn
FOLK
■ TIGER Woods varð um helgina
yngstur allra til að sigra í banda-
rísku meistarakeppninni í golfi,
aðeins 21 árs gamall. Gamla metið
átti Severino Ballesteros frá
Spáni, en hann var 23 ára þegar
hann vann árið 1980.
■ WOODS\ék hringina fjóra á 270
höggum, eða 18 höggum undir pari
vallarins, og það hefur enginn gert
í mótinu áður. Gamla metið, 271
högg, áttu Jack Nicklaus, sem
náði árangrinum árið 1965, og
Raymond Floyd sem lék það eftir
árið 1976.
■ WOODS varð 12 höggum á
undan næsta manni. Þar með sló
hann met sem Jack Nicklaus átti
frá árinu 1965 en þá sigraði hann
með níu högga mun.
■ WOODS lék síðustu 54 brautirn-
ar á 200 höggum (66-65-69) og
bætti þar með met Johnnys Millers
frá árinu 1975 en þá lék hann á
202 höggum (71-65-66).
■ WOODS lék annan og þriðja
daginn á 131 höggi (66-65) og
bætti þar með met Nicks Prices
sem lék á 132 höggum árið 1986.
■ WOODS lék fyrstu 54 holurnar
á 201 höggi og jafnaði þar með
met Raymonds Floyds frá árinu
1976.
■ WOODS er yngsti keppandi sem
hefur haft forystu í mótinu eftir
36 holur og einnig eftir 54 holur.
sé næsti „stórkylfingur" en nú
hafa þær raddir þagnað þvi
Tiger Woods er „stórkylfingur-
inn“. Hann gerði sér lítið fyrir
og sigraði á Augusta með 12
högga mun, lék á 270 höggum,
sem er 18 höggum undir pari
vallarins,
Woods setti fjögur met með
þessum árangri sínum, og í
rauninni mun fleiri ef ailt er talið.
Aldrei hefur eins ungur kylfingur
klæðst græna jakkanum, sem sigur-
vegari hvers árs klæðist, aidrei hefur
kylfingur slegið eins fá högg í
keppninni, aldrei hefur kylfingur
sigrað með eins miklum mun og það
hefur aldrei blökkumaður klæðst
græna jakkanum.
Já, Tiger Woods tók fyrsta „stór-
mótið" sitt sem atvinnumaður svo
sannarlega með trompi. Tom Kite,
sem varð í öðru sæti, heilum tólf
höggum á eftir Woods, lagði til við
verðlaunaafhendinguna að völlurinn
yrði lengdur, bætt við sandglompum
og grasið utan brautar yrði haft
hátt og þétt. Þetta telur Kite einu
leiðina til að jafna leikinn, og hefur
hann mikla reynslu af keppni sem
þessari því þetta var í 24. sinn sem
hann mætti til leiks. „Mótshaldarar
hljóta að hafa áhyggjur. Hér eru
þeir með góðan völl sem er mjög
erfiður en svo kemur einhver og leik-
ur hann eins og einhvern æfinga-
völl,“ sagði Kite.
Ósanngjarnt
Woods er gríðarlega högglangur
og um leið nákvæmur þannig að
erfitt virðist fyrir aðra kylfinga að
halda í við hann þegar hann er í
stuði. Þegar hann tekur upp „dræv-
erinn“ á teig á par fimm holunum
er nærri öruggt að hann þarf ekki
að nota nema fleygjárn í annað högg
til að komast inná flöt. Hann notar
samt ekki „dræverinn“ nema við
„hátíðleg" tækifæri, vill miklu frekar
nota tré númer þijú og síðan járn
númer átta. Það sem ef til vill gerir
hann eins góðan og raun ber vitni
er að hann kann líka að pútta, það
Reuter
sýndi hann fyrsta daginn. Þá lék
hann fyrri níu holurnar á 40 högg-
um, tók sig saman í andlitinu á síð-
ari níu og lék þær á 30 höggum.
Sumum finnst ósanngjarnt að
Woods skuli látinn leika á sama velli
og frægir kylfingar liðinna ára hafa
gert. Kylfingar eins og Bobby Jo-
nes, Byron Nelson, Sam Snead, Ben
Hogan, Arnold Palmer og Jack Nick-
laus því þeir standist engan veginn
samanburð við snillinginn unga. Sví-
inn Jesper Parnevik, sem var að
taka þátt í keppninni í fyrsta sinn
eins og Woods, sagði eftir mótið.
„Hér þarf að koma upp „Tiger-teig-
um“, fimmtíu metrum aftar en þeir
teigar sem við leikum á. Verði það
ekki gert gæti svo farið að Woods
sigraði næstu tuttugu árin.“ Parne-
vik gæti hugsanlega lent á móti
Woods í Ryder-keppninni sem verður
í haust.
Woods segir að það sé vel hægt
að sigra á fjórum stóru mótunum,
en hann hefur tekið þátt í 15 mótum
sem atvinnumaður og sigrað fjórum
sinnum. „Ef maður sigrar fjórum
sinnum, og er svo heppinn að það
gerist á réttu mótunum, hefur mað-
ur sigrað á þeim öllum,“ sagði kapp-
inn þegar hann var spurður um
þennan möguleika.
Keppinn var spurður hvort hann
ætti eftir að verða mesti kyflingur
allra tíma. „Ég veit það ekki, en
markmið mitt er að verða bestur.
Ég veit að það er háleitt markmið
en mér finnst að menn verði að
stefna hátt og til að ná árangri verð-
ur að stefna að einhvetju. Ef mér
tekst þetta ekki þá verður að hafa
það, en ég veit altént að ég hef
reynt,“ sagði Woods.
Tiger Woods er engum líkur. Auk
þess að vera frábær kylfingur hefur
hann óbilandi sjálfstraust. Á blaða-
mannafundi eftir sigurinn um helg-
ina sagðist hann vera tveimur árum
á eftir áætlun. „Ég keppti fyrst í
Bandaríksku meistarakeppninni
þegar ég var 19 ára og þá var ég
viss um að ég myndi sigra, en það
tókst ekki fyrr en tveimur árum síð-
ar,“ sagði Woods.
Allir lofuðu frammistöðu Woods
um helgina, en Nick Faldo, meistar-
inn frá því í fyrra, setti ofaní við
strák þegar hann klæddi hann í
græna jakkann. Faldo sagði að það
færi ekki vel við jakkann að vera í
rauðri golfpeysu. Woods hafði betur
við þetta tækifæri eins og svo oft
áður. „Mamma telur að rautt sé
minn litur og að mér gangi alltaf
best í rauðu. Ég geri alltaf eins og
mamma segir.“ Hvað gat Faldo
sagt?
ENGLAND: 211 111 112 2121 ITALIA: 112 X X 2 X X 1 1122