Morgunblaðið - 04.05.1997, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
JÚLÍUS Havsteen sýslumaður flytur ávarp í veislu sem haldin er til heiðurs forsetahjónunum. Sýslumanui á vinstri hönd situr eiginkona Sveins Björnssonar forseta, Georgía
Björnsson, þá forsetinn og lengst t.h. er Karl Kristjánsson alþingismaður.
, HEILSAÐ UPP
A ÞINGEYINGA
VIQFÚS Sigurgeirsson ljósmyndari með vél af
gerðinni Speed Graphic. Myndina tók hann
sjálfur árið 1950.
FAÐIR Gunnars, Vigfús Sig-
urgeirsson, var ljósmyndari
forsetaembættisins frá upp-
hafi, og var ávallt í fór með þeim
Sveini Bjömssyni, fyrsta forseta
lýðveldisins, og Asgeiri Asgeirs-
syni er þeir heilsuðu upp á fólkið
í byggðum landsins. Tók Vigfús
einnig mikið af 16 mm kvikmynd-
um í lit og eru þær enn í eigu af-
komenda hans.
' Á þessum myndum er hægt að
sjá þjóðina á sparifótunum fyrstu
áratugi lýðveldisins og munu
tískuhönnuðir vafalaust geta leit-
að þar fanga vilji þeir reyna að
endumýta gamlar hugmyndir.
Vigfús fór einnig með Ásgeiri
Ásgeirssyni til útlanda er hann
sótti heim grannþjóðimar á Norð-
urlöndum, Kanadamenn og Breta.
I safni Vigfúsar eru m.a. mynd-
imar úr ferðum Sveins og Ás-
geirs í Pingeyjarsýslur sem hér
birtast.
Vigfús var Þingeyingur, fædd-
ist aldamótaárið 1900 og lést
1984. Hann var ágætur tónlistar-
maður, nam píanóleik af fóður
sínum, Sigurgeiri Jónssyni og
fleiri innlendum og innlendum
SVEINN Björnsson forseti og Júlíus Havsteen sýslumaður á kirkjutröppunum á Húsavík,
Skátar standa heiðursvörð.
kennurum og var eftirsóttur und-
irleikari fyrir einsöngvara og kóra
á Akureyri.
Tónlistin þótti ekki vænlegt lifi-
brauð fyrir ungt fólk á þessum
ámm, Vigfús lærði því ljósmynd-
un hjá Hallgrími Einarssyni á
Akureyri og stofnaði síðan ljós-
myndastofu þar í bæ. Hann
stundaði framhaldsnám í ljós-
myndun og kvikmyndun í Þýska-
landi 1935-1936 en stofnaði síðan
ljósmyndastofu í Reykjavík sem
sonurinn rekur nú.
Á námsárunum í Þýskalandi
hélt Vigfús sýningu í Hamborg á
myndum frá Islandi sem vafalaust
hefur verið mikil nýlunda á meg-
inlandinu og vakti mikla athygli.
Hann gerði auk þess kvikmynd
um Island fyi’ir Samband ís-
lenskra samvinnufélaga sem not-
uð var á heimssýningu í New
York árið 1940.
Vigfús lét ekki nægja að taka
myndir af opinberum athöfnum
og veislum, hann tók einnig fjölda
mynda af alþýðufólki sem eru nú
mikilvægar heimildir um lífshætti
og þróun byggðar og atvinnuvega
fyrstu áratugi lýðveldisins. Eink-
um þykja myndii’ hans frá síldar-
árunum Norðanlands góðar.