Morgunblaðið - 04.05.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.05.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ1997 B 17 4 Tónver Tón- listarskóla Kópavogs ÁRLEGIR vortónleikar Tónvers Tónlistarskóla Kópavogs verða haldnir sunnudaginn 4. maí í sal skólans að Hamraborg 11, og he§- ast_stundvíslega klukkan 17.00. Á dagskrá verða ný verk eftir nemendur tónversins. Reikna má með að tónverkin verði krydduð með myndverkum, skuggaverkum og jafnvel einstaka hausverkum, segir í kynningu. Að tónleikunum loknum verður áheyrendum boðið að fræðast um tilurð verkanna og starfsemi tón- versins. Hægt verður að bera fram fyrirspurnir til höfunda og for- stöðumanna tónversins sem munu gera sitt besta til að svala forvitni spyijenda. Lofað er góðri skemmtun með fjölbreyttri tónlist og fallegri sviðs- mynd og má fullyrða að hér eru á ferðinni einir sérstæðustu tónleikar sem boðið er upp á hér á landi. -----------♦ ♦ ♦ Tónleikar Ág- ústs Ólafssonar í Hafnarborg TÓNLEIKAR verða í Hafnarborg í, dag, sunnudag, þar sem Ágúst Ólafsson, bariton, mun syngja ljóð og aríur eftir F. Schubert, W.A. Mozart og A. Borodin, enn- fremur íslensk lög ýmissa höfunda. Tónleikarnir eru þáttur í burtfararprófi Ágústs með 8. stig frá Tónlistar- skóla Hafnar- fjarðar og hefur Eiður Ágúst Gunnarsson verið kennari hans. Undirleikari er Sigurður Marteins- son. ------♦ ♦ ♦----- Ágúst Ólafs- son bariton. Sýningu Sesselju Björnsdóttur að ljúka SÝNINGU Sesselju Björnsdóttur í Galleríi Sævars Karls lýkur á mið- vikudag. Á sýningunni eru vatnslita- myndir málaðar á japanskan papp- ír. Galleríið er opið á verslunartíma. íslenski fáninn 1997,-kr SG 100% Polyester SS Yfir 50 ára reynsla 9S 175 cm x 126 cm S2 Fullfrágenginn með 2 lykkjum Pantanir óskast staðfestar fyrir 10. mai næstkomandi I síma 555-4350 “Vö> Siácuntá... efy Hólshraun 5 220 Hafnarfjörður Dagbók Háskóla Islands DAGBÓK Háskóla íslands 5. til 10. maí. Allt áhugafólk er velkom- ið á fyrirlestra í boði Háskóla ís- lands. Dagbókin er uppfærð reglu- lega á heimasíðu Háskólans: http://www.hi.is Föstudagurinn 9. maí: Magnús M. Kristjánsson sér- fræðingur hjá Raunvísindastofn- un flytur fyrirlestur hjá Líffræði- stofnun Háskóla íslands í stofu G-6, Grensásvegi 12 kl. 12.20 og nefnist erindið: „Hitastigsaðlögun meðal subtilýsinlíkra serínpróte- asa.“ Laugardagurinn 10. maí: Handritasýning er opin almenn- ingi í Árnagarði þriðjudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga kl. 14-16. (Tekið á móti hópum á öðrum tímum sömu daga, ef pant- að er með dags fyrirvara.) Námskeið á vegum Endur- menntunarstofnunar HÍ vikuna 5.-10. maí: 5.-7. maí kl. 9-12. Forritun í Delphi. Kennarar: Starfsmenn Gagnalindar hf. 5.-7. maí kl. 16-19. Vátrygg- ingaréttur. Helstu lagareglur og skaðatryggingar. Kennarar: Guðný Björnsdóttir hdl., Sjóvá Almennum, Hákon Árnason hrl., Ingvar Sveinbjörnsson hrl., VÍS og Jakob R. Möller hrl. 5.-6. maí kl 8:30-12:30. Ár- angursmat og mælingar í gæða- stjórnun. Kennarar: Haukur Al- freðsson rekstrarráðgjafi hjá Nýsi hf. og Páll Jensson prófessor í véla- og iðnaðarverkfræðiskor. 5.-6. maí kl. 8:30-16:00. Microstation. Kennari: Sigurður Ragnarsson verkfræðingur, Verk- fræðistofunni Línuhönnun. 5.-9. maí. „Civilizations and Modernities." Kennari: Dr. Jóhann Páll Árnason, prófessor við La Trobe University, Ástralíu. 6., 7. og 9. maí kl. 9:00-16:00. Listþjálfun fyrir meðferðaraðila. Kennari: Janet Svensson, sálfræð- ingur. Skráning á námskeiðin er hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands síma 525 4923 eða fax 525 4080. SPLENDESTO seidenSticker b 1 ú s s u r QhimuM TÍSKUVERLSUN v/Nesveg. Seltj.. s. 561 16X0 Blab allra landsmanna! - kjarni málsins! A-, Það má segja að MITSUBISHI LANCER skutbílarnir séu alsettir skrautfjöðrum, svo ríkulega eru þeir útbúnir. Þar að auki eru þeir glæsilegir, rúmgóðir og kraftmiklir (113 hö). Og verðið, það er engu líkt I LANCER framhjóladrifinn skutbíil kostar frá /.430.000 lancer skutbíll 4x4 kostar 3.000 LANCER SKUTBILS ERU M.A.: ►vindskeið með hemlaljósi ► hreyfiltengd þjófnaðarvörn ► rafhituð framsæti ► toppgrindarbogar ► hilla yfir farangursrými ► 18,5 cm veghæð (4X4) ►fjarstýrðar samlæsingar lU/iílcJ- thc/iiM/SMí/íiJ^^ijlr'ii /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.