Morgunblaðið - 04.05.1997, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.05.1997, Blaðsíða 11
10 B SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Snjóflóð ó Flateyri ÞRIÐJA mannskæðasta snjóflóð á íslandi skall á Flateyri í október 1995 og fórust 20 íbúar staðarins. Heimamenn hófu leit og um morguninn barst þeim liðs- auki frá Isafirði og ná- grannastöðum. Myndin var tekin þá um morguninn þegar leitað var við mjög erfíðar aðstæður að fólki í rústum húsa sem fíóðið hafði splundrað. Halldór Sveinbjörnsson, ljósmyndari Morgunblaðsins á ísafírði, tók myndina sem er fyrsta fréttamyndin sem tekin var af þessum hörmulega at- burði og birtist hún í blöð- um víða um heim. Dóm- nefnd valdi mynd Halldórs bestu fréttamyndina og jafnframt bestu mynd ljós- myndasamkeppninnar. Þorskhaus STRÁKARNIR í aðgerðinni hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum brugðu á leik fyrir Sigurgeir Jónasson ljósmyndara og til varð mynd- skreyting á hinu alkunna hugtaki, þorskhausi. Fyrir þessa hugmynd fékk Sigurgeir fyrstu verðlaun fyrir spaugilegar myndir. Moðurinn í nóttúrunni Maðurinn í náttúrunni er yfirskrift sýningar á Ijósmyndum fréttaritara Morg- unblaðsins sem opnuð hefur verið í anddyri Morgunblaðshússins. Dóm- nefnd valdi 26 myndir og myndraðir úr liðlega 700 Ijósmyndum í samkeppni sem Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, stóð fyrir. Gaf nefndin þá umsögn að miklar framfarir hefðu orðið í Ijósmyndun hjá fréttariturum blaðsins frá síðustu keppni, þeir væru hugkvæmari og legðu meiri rækt við þennan þátt starfsins. Hér á opnunni eru birtar bestu myndirnar úr öllum efnisflokkum. Myndirnar á sýningunni eru frá árunum 1995 og 1996 en á þeim árum urðu miklir atburðir sem fréttaritarar blaðsins tóku þátt í að segja frá í máli og myndum. Myndirnar eru fjölbreyttar, þær sýna manninn í bar- áttu við öfl náttúrunnar og þverskurð af lífinu í landinu. Sýningin verður sett upp víðsvegar um landsbyggðina á vegum Morgunblaðsins og fréttaritara. Við mjaltir NÝIR ti'mar í gamalli atvinnugrein. Árni Brynjólfsson bóndi á Vöðlum í Önundarfirði leikur stundum á harmoníku fyrir kýrnar enda segir hann að þær mjólki betur eftir nokkur fjörug Iög. Dómnefnd veitti þessari mynd Halldórs Sveinbjörnssonar, ljósmynd- ara á Isafírði, 1. verðlaun í flokki mynda úr atvinnulífinu. Frambjóðandi ó ferð FRAMBJÓÐENDURNIR þurftu að leggja mikið á sig fyrir forsetakosningarnar 1996. Guðrún Pétursdóttir skoðaði meðal annars steinbítsvinnslu á Flateyri og heilsaði upp á „atkvæðin". Egill Egilsson, fréttaritari Morgunblaðsins á staðnum, fangaði svipbrigði for- setaframbjóðandans og fékk að launum fyrstu verðlaun í flokki mannamynda. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1997 B 11 Bjargmaður EINS og bjargmanna er siður saup Ágúst Halldórsson úr volgu fyls- eggi enda búinn að vera lengi í bjarginu í Álsey og orðinn svangur. Nautn veiðimannsins leynir sér ekki á mynd Sigurgeirs Jónassonar, ljósmyndara í Vestmannaeyjum, enda var hún valin besta ljósmyndin sem tengd er daglegu h'fi. Ungir íþróttamenn ORKA ungu íþróttamannanna virðist óþijótandi. Búnaðarbaukamót- ið var haldið í Borgarnesi og hinir upprennandi íþróttamenn léku sér í rörunum á milli þess sem þeir öttu kappi á vellinum. Mynd Theo- dórs Kr. Þórðarsonar, fréttaritara í Borgarnesi, af „hinni hlið“ íþrótt- anna var valin besta íþróttamyndin. Vorkvöld við Skagafjörð KYRRÐ er yfir hestunum og Drangey á vorkvöldi við Skaga- fjörð. Það er eins og hestarnir hafi stillt sér upp fyrir Sigurð Sigmundsson, fréttaritara og ljós- myndara í Syðra-Langholti, og bjarmi kvöldsólarinnar skapar viðeigandi umgjörð. Myndin fékk 1. verðlaun í opnum flokki. Lundaprins ERFITT getur verið að ná mynd af sjaldgæfum fuglaafbrigðum. Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari Morgunblaðsins í Vestmannaeyj- um, var til dæmis fjóra daga að komast í návígi við hvítan lunda, svokallaðan lundaprins. Það tókst að lokum og mun þetta vera eina myndin sem náðst hefur af lunda- prinsi með venjulegum lunda. Hún var valin besta dýralífs- myndin í Ijósmyndasamkeppni fréttaritara. Verslunarafmæli BÆJARBUAR og gestir þeirra voru í sólskinsskapi þegar þess var minnst 4. júlí 1996 að eitthundrað og tuttugu ár voru liðin frá því verslun og þar með byggð hófst á Blönduósi. Jón Sigurðsson fréttaritari fékk 1. verðlaun fyrir röð mynda sem hann tók við setningu hátfðarhaldanna við Hillebrandtshús sem talið er eitt elsta hús landsins. Þar á meðal er þessi mynd af ungu stúlkunum að klappa við undirleik félaga úr Har- monfkuklúbbi Blönduóss.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.