Morgunblaðið - 04.05.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.05.1997, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ „ , Morgunblaðið/Halldór MIKLOS Dalmay píanóleikari kennir á Flúðum, í Reykholti, Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík. Af einhveijum ástæðum á Flúðum Míklós Dalmay og Edit Molnár eru nöfn sem eiga örugglega eftir að festast í huga okkar, þegar tónlistarsagan mjakar sér yfir á nýja öld. Hann er píanósnillingur, hún hámenntaður kórstjóri og þau hafa sest 5 -------------------- að á Islandi. Súsanna Svavarsdóttir heim- sótti þessi ungu hjón á heimili þeirra á Fiúð- um og varð margs vísari um ævi þeirra og störf, gildismat og lífssýn. HANN kennir á Flúðum, í Reykholti, Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík. Hún stjórnar tveimur kirkjukórum, tveimur barnakórum, einum samkór og karlakór, er kirkjuorganisti og kennir í grunn- skóla og tónlistarskóla. Börnin eru þijú, ungverska er málið sem talað er á heimilinu, en eftir tveggja og hálfs árs búsetu á Islandi, talar öll fjölskyldan íslensku. Það eru píanóleikarinn Míklós Dalmay og kórstjórinn Edit Molnár - hann frá Búdapest, hún frá Sopr- on í Ungveijalandi - sem hafa sest að á Flúðum í Hrunamanna- hreppi og líklega óhætt að segja að þau hafi gerbreytt söng- og tónlistarmynd staðarins. Haustið 1996, tveimur árum eftir að þau hjónin fluttust til ís- lands, bar Míklós sigur úr býtum í Tónvakanum, tónlistarkeppni Ríkisútvarpsins - og var það í fyrsta sinn sem erlendum tónlistar- manni hlotnast sá heiður. Míklós er orðinn virkur í íslensku tónlistarlífí og hefur komið fram á nokkrum tónleikum hér á landi frá því í haust og tónlistarmenn, jafnt sem gagnrýnendur, eru á einu máli um að þar fari píanósnilling- ur. Ríkarður Orn Pálsson, segir í Morgunblaðinu 23. nóvember síð- astliðinn, að engum hafi dulist „að Miklós Dalmay er efni í meirihátt- ar píanósnilling,“ eftir tónleika í Norræna húsinu. Um leik hans segir Ríkarður: „Seinna Bartók- verkið, hið fræga Allegro Barbaro (1911), lék Dalmay með hraða sem gaf til kynna að þrátt fyrir ungan aldur væru flestir tækniþröskuldar löngu yfirstignir, og það með, að píanistinn hefði snemma tileinkað sér bæði kraft og mýkt, eða eins og segir í afmorsvísunni kunnu, hefði bæði lært að stijúka og lært að slá. Dalmay fór einmitt með hljómborðið éins og skapmikill rómantískur elskhugi með ofdekr- aða greifadóttur, og minnti að því leyti á landa sinn Liszt.“ Míklós lék einnig með Helgu Þórarinsdóttur á tónleikum í Lista- safni íslands nýlega og í dómi sem Jónas Sen skrifar í DV, undir fyrir- sögninni „Dalmay dásamlegur" segir: „Hann er Ungveiji sem hefur haldið tónleika víða um Evrópu en býr nú af einhveijum ástæðum á Flúðum... Forvitnilegt var að sjá og heyra píanóleikarann sýna klæmar, áður en tónlistarkeppni RÚV var haldin var hann óþekkt stærð í íslensku tónlistarlífí. Á hann greinilega eftir að láta að sér kveða í framtíðinni." Þar tekur Jónas und- ir orð Sigfríðar Björnsdóttur sem fjallaði um tónleika Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, þar sem Míklós lék einleik kvöldið sem Tónvakaverð- launin vora afhent: „Eftir hlé sté sá er hreppti Tónvakaverðlaunin í ár á svið, Miklos Dalmay. Og þeir vora ekki margir taktamir sem hann þurfti í G-dúr píanókonserti Ravels til að fanga alla viðstadda. Slíkur listamaður er hvalreki fyrir land og þjóð.“ Og hún bætir því við að Míklós sé nú kominn á spjöld íslenskrar tónlistarsögu. En hver er hann, þessi snilling- ur, sem hefur haldið tónleika víða um heim og tekið þátt í nokkrum keppnum ungra píanóleikara með góðum árangri; útskrifaður frá Bartók-Béla-tónlistarmenntaskól- anum, Liszt Ferenc tónlistaraka- demíunni í Búdapest og að lokum frá Tónlistarháskólanum í Stokk- hólmi? Og hver er þessi kona, sem stjórnar sex kórum í byggðarlagi sem átti einn kór fyrir tveimur árum, hefur margfaldað nemenda- fjöldann í Flúðadeild Tónlistar- skóla Ámessýslu og er einn af fáum háskólamenntuðu kórstjór- um sem starfa hér á landi í dag? Hann er fremur lágvaxinn, snaggaralegur, kvikur í hreyfíng- um, nánast eirðarlaus. Það er stöð- ugur glettnisglampi í augunum, stutt í hláturinn - og frásagnar- hæfileikinn er með því betra sem maður á að venjast. Leiðindahlutir eins og snjóaveturinn mikli ’94-’95 (á Skagaströnd) verður einn brand- ari og liggur við að maður geti ekki beðið eftir næstu stórhríð til að hlæja aftur; lifa það sem Míklós segir frá. Og hann gefur góða veð- urfarsskýrslu á meðan við dreypum á kaffi í kyrrðinni á Flúðum, með vorregnið á báðum áttum fyrir utan gluggann. Dreypum á kaffinu og bíðum eftir Edit, sem er að sinna sínum skyldum, ásamt orgeii og kór, við fermingarmessu. Svo kemur hún, róleg og hlý; konan sem heldur um þúsund strengi á meðan hann leikur á sinn ákveðna íjölda. Hún vinnandi frá grunni í grasrótinni, segir það sína „mission"; sýnir ekki á einu kvöldi hvað í henni býr. Hann kemur, sér og sigrar og gengur út að kvöldi loknu með dynjandi iófaklapp og hástemmd lýsingarorð frá öllum sem á hann hlýddu. Þau kynntust þegar þau voru sextán ára í Bartók Béla tónlistar- menntaskólanum í Búdapest. Hann var heimamaður, hún frá Sopron, vestustu borginni í Ungveijalandi, mikilli menningarborg á landa- mærum Austurríkis og Ungveija- lands; borginni þar sem Franz Liszt hélt sína fyrstu opinbera tónleika, níu ára gamall. En hvernig kynntust þau? „Við vorum í sama bekk. Hún sat fyrir framan mig í skólanum í tvö ár.“ Og síðan hafa þau ferðast saman. Eftir menntaskólann lá leiðin í tónlistarháskólann, þar sem Edit innritaðist í kórstjórn, Míklós í píanódeild. Þau luku bæði prófi og Míklós hlaut styrk til að fara til Svíþjóðar til frekara náms. Þar var hann að hálfu nemandi (út- skrifaðist með aðra gráðu í píanó- leik og hlaut kennaramenntun) og að hálfu aðstoðarkennari, auk þess sem hann kom fram á tónleikum. Og þegar hann útskrifaðist lék hann lokatónleikana sína með Út- varpshljómsveitinni í Stokkhólmi. Á þessum áram komu börnin hvert á eftir öðru; fyrst Máté, sem er níu ára, Péter, sex ára og Ánna, fjögurra ára. Edit hafði í nógu að snúast og það hélt áfram eftir að þau snera aftur til Ungveijalands og settust að í heimaborg Editar, Sopron, og störfuðu þar sem tón- listarmenn. Míklós hóf kennslu við tónlistarháskólann í Györ, fjórðu stærstu borg Ungveijalands og var á stöðugum tónleikaferðum, til Suður-Afríku, Bandaríkjanna, Kanada og um alla Evrópu, auk þess sem hann tók þátt í keppnum víða um heim. „Ég fékk stundum verðlaun," segir hann, þegar hann er spurður um árangurinn „2.3. og 4. verðlaun í keppnum á Ítalíu, Spáni og öðrum Evrópulöndum - og „special priz- es,“ (sérstaka viðurkenningu) en ekki 1. verðlaun fyrr en ég vann Tónvakaverðlaunin." Vænst þykir honum um 3. sætið sem hann hlaut í Píanókeppni Evrópusambandsins árið 1992. „Það skipti miklu máli að það vora stór nöfn í dómnefnd- inni og því fólst í þessu mikil viður- kenning. Þetta var líka í fyrsta sinn sem Austur-Evrópubúi fékk' verðlaun í þessari keppni.“ Þetta var árið sem yngsta bam- ið, Anna, fæddist og Edit, sem hafði verið kennari við kórstjórnar- deild Liszt akademíunnar áður en þau fóra til Stokkhólms, sá enga möguleika á að halda kennslunni áfram og lét sér nægja að stjórna einum kvennakór og háskólakór. Sumarið ’94 stofnuðu þau „The Dalmay Foundation,“ (Dalmay stofnunina), sem stóð fyrir tónleika- röð á listahátíðinni í Sopron það sumar. „Þetta er stór hátíð,“ segir Míklós, „og stendur allt sumarið. Hún hefst í maí, yfírleitt með bar- okkhátíð og svo era ótal tónleikar í tónleikasölum og kirkjum, ijórar óperuuppfærslur og mikill fjöldi af leiksýningum." Tónleikaröð Dalmay stofnunarinnar gekk svo vel að þeim var boðið að vera með á Sopron hátíðinni næsta sumar á eftir, og aftur sumarið ’96 og núna, 1. júní næstkomandi, halda þau Míklós og Edit til Soprono til að taka þátt í hátíðinni þar í sumar. En þetta var sumarið ’94. Hátíð- inni lauk undir haustið, Míklós bjó sig undir að halda áfram kennsl- unni í tónlistarakademíunni og Edit að stjórna sínum kórum. „En við voram farin að tala um að álagið væri of mikið,“ segir Edit og Míklós bætir við: „Ég var aldrei heima og hraðinn og streitan vora orðin hálf jrfirþyrmandi. Okkur langaði í ró- legra líf; meira fjölskyldulíf.“ Og í október var hringt í þau frá Siglufirði. „Þar var kona, skóla- systir Editar úr kórdeildinni í tón- listarakademíunni,“ segir Míklós. „Hún sagði að það vantaði kór- stjóra og orgelleikara við Tónlist- arskóla Austur-Húnvetninga, hvort við vildum ekki koma. Við sögðum jú, vegna þess að þetta var ísland. Ef þetta hefði verið eitthvert hinna Evrópulandanna, hefðu þeir þurft að bjóða margfalt hærri laun til að við kæmum, en okkur fannst þetta spennandi. Við vissum ekkert um Island, en við vissum að hingað kæmumst við aldrei nema á þennan hátt, vegna þess að það er svo dýrt að ferðast hingað. Við vorum líka viss um að hérna gætum við lifað rólegra lífi. En við vildum ekki leggja nið- ur Dálmay stofnunina, eða taka þátt í hátíðinni í Sopron. Ákváðum að halda öllu opnu og reyna að tengja þessa tvo staði saman, eins mikið og unnt var.“ Og þið lentuð á Skagaströnd. „Já. Það hlýtur að hafa verið rólegt. „Já, en það var nú aðallega veðr- inu að kenna,“ segir Míklós. „Mér finnst mjög gott að vera í fríi - en ekki alltaf. Annars sögðu heimamenn okkur að þetta hefði verið hræðilegasti vetur í manna minnum, svo við vorum ekki beint heppin með veðrið.“ Þau Edit og Míklós sneru sér þó að kennslu og Edit starfaði við kirkjuna á Skaga- strönd og á Blönduósi. Hún stofn- aði barnakór á Skagaströnd, sem tók þátt í Landsmóti barnakóra í Kópavogi um vorið. En þá höfðu þau ákveðið að leita annað, því þetta var eiginlega „of rólegt“. En hvemig fannst Míklósi að snúa sér frá háskólakennslu til að kenna á grunnstigum tónlist- arnáms? „Það var dálítið óþægilegt að hætta að kenna í háskóla og fara að kenna börnum. Það var ein af ástæðunum fyrir því að mér fannst nóg komið um vorið.“ En hvað með tónleikahald í Evr- ópu? „Einn kennarinn minn spurði mig einu sinni hvort ég væri „fan- atic,“ (ástríðumaður). Ef þú ert „fanatic," þá eignastu ekki fjöl- skyldu, neytir ekki áfengis, finnst leiðinlegt í kvikmyndahúsum. Þú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.