Morgunblaðið - 21.05.1997, Qupperneq 4
1
4 E MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
+
ISLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU
Vítaspyrna?
Morgunblaðið/Júlíus
UNDIR lok fyrrl hálfleiks í Borgarnesl fékk Gunnar M. Jónsson sendingu frá Sigurði Sigur-
stelnssyni inn í vítatelg Lelfturs en Gunnar Már Másson náði að stöðva hann. Gunnar féll í
kjölfarið og Skallagrímsmenn vildu fá vítaspyrnu en dómarinn var ekki á sama máli.
ítténrn
FOLK
■ ÞRÍR leikmenn KR tóku út leik-
bann gegn Stjörnunni. Það voru
þeir Einar Þór Daníelsson, Ólafur
H. Kristjánsson og Sigurður Orn
Jónsson. Allir eru þeir heilir og
verða til taks fyrir leikinn gegn
Grindavík annað kvöld.
■ ATHYGLI vakti að Guðmund-
ur Benediktsson var sextándi
maðurinn á leikskýrslu KR-inga.
Eftir leikinn sagði Lúkas Kostic
þjálfari liðsins að Guðmundur væri
því sem næst heill, en leikurinn
gegn Stjörnunni hefði verið allt
of harður til að innkoma Guðmund-
ar væri áhættunnar virði.
■ ÞÓRHALLUR Jónsson hjá
Skallagrími var ekki með í fyrsta
leiknum vegna leikbanns og missir
einnig af þeim næsta af sömu sök-
um. Samheijar hans, þeir Hjörtur
Hjartarson, Kristján Georgsson
og Þorsteinn Sveinsson, tóku
einnig út leikbann í fyrradag.
■ AUÐUNN Heigíison og Ragn-
ar Gíslason léku ekki með Leiftri.
■ ÞORVALDUR Þorsteinsson,
sem er 18 ára og yngsti maðurinn
í leikmannahópi Leifturs, fór í
mark liðsins þegar Cardaklija var
rekinn af velli. Við markmanns-
skiptin var Pétur Björn Jónsson
tekinn út af.
■ ÞORSTEINN Þorvaldsson,
formaður knattspyrnudeildar Leift-
urs. er faðir markmannsins.
■ ÖLI Jón Gunnarsson, bæjar-
stjóri í Borgarbyggð, var heiðurs-
gestur á Skallagrímsvelli.
Nýliðar Skallagríms í Borgarnesi á toppi íslandsmótsins
Anægja og gleði
hjá Skallagrími
Haraldur
samnings-
bundinn ÍA
fram íjúlí
HARALDUR Ingólfsson, sem
var hjá Aberdeen í Skotlandi í
vetur, kom heim í síðustu viku
og lék með Skagamönnum á
móti ÍBV. Hann sagðist hafa
hug á því að fara aftur út og
því hafi hann ekki gert samning
við Skagamenn nema fram í
júlí. „Það er ýmislegt í deiglunni
og ég stefni á að komast út
aftur og þess vegna vildi ég
ekki festa mig hér of lengi,“
sagði hann.
Haraldur var aðeins einu sinni
i bytjunarliði Aberdeen, en kom
átte sinnum inn á sem varamað-
ur. Hann sagði aðstæður lijá
félaginu góðar en þjálfarinn
hafi verið frekar íhaldssamur
og verið lítið fýrir það að breyta
liðinu, þó að illa gengi.
Ekki komnir
með leik-
heimild
SIGURVIN ólafsson og Krist-
inn Hafliðason, sem báðir léku
í Þýskalandi í vetur, eru komnir
til Eyja. Þeir fengu þó ekki að
leika með iiðinu á móti ÍA vegna
þess að leikheimild frá þýska
sambandinu hafði ekki borist
KSÍ. „Við eigum von á því að
verða orðnir löglegir í næstu
umferð á móti Fram,“ sagði Sig-
urvin. „Það verður greinilega
ekki hlaupið að því að komast
í liðið eftir þennan örugga sigur
á ÍA.“
Bjarni ferð-
ast með
kodda
BJARNI Guðjónsson, sóknar-
maðurinn efnilegi hjá ÍA, ferð-
ast nú um með kodda. Ástæðan
er sú að hann er slæmur í baki
og þarf koddann góða til að
styðja við bakið er hann situr.
„Eg er búinn að vera frekar
slæmur í bakinu að undanfömu
og ekki getað æft á fullu. Verk-
ur í bakinu leiðir niður í annan
fótinn og gerir mér erfítt fyrir,“
sagði Bjami.
Sigursteinn
heimtaði að
taka vítið
SKAGAMENN fengu víta-
spyrnu á síðustu mínútu leiksins
í Eyjum. Brotið var á Sigur-
steini Gíslasyni. Júgóslavinn
Ristic, sem tók aukaspymur ÍA
í leiknum, tók boltann og stillti
honum upp á vítapunktinn og
bjó sig undir að taka spyrnuna.
Þá sagði Sigursteinn: „Hingað
og ekki lengra, þessa spyrnu tek
ég.“ Ýtti Ristic frá og tók spym-
una sjálfur og skoraði af öryggi.
Fararheill?
GYLFI Þórðarson, formaður
knattspymufélags LA, var að
vonum ekki ánægður með úrslit-
in í Vestmannaeyjum. Hann
sagði eftir leikinn: „Verðum við
ekki að segja að fall sé farar-
heill? Það tekur smá tíma að
’fínpússa liðið enda hafa nýir
menn verið að koma inn á síð-
ustu dögum."
SÉRFRÆÐINGAR helstu liða
íslandsmótsins í knattspyrnu
spáðu nýliðum Skallagrtms
neðsta sæti og Leiftri í topp-
baráttu en Borgnesingar biésu
á alla spádóma í blíðskapar-
veðri, unnu 3:0 verðskuldað í
fyrsta leik sínum í efstu deild
á Skallagrímsvelli og sitja í
fyrsta sæti deildarinnar þegar
17 umferðir eru eftir.
Olafur Jóhannesson, þjálfari
Skallagríms, geislaði af gleði
þegar leikmenn hans bjuggu sig
undir átökin við
Ste/njbó^™ Leiftur 1 fyrradag.
Guðbjartsson „Ekki em miklar
skrifar væntingar gerðar til
frá Borgarnesi 0kkar en við ætlum
að skemmta okkur og hafa gaman
af þessu,“ sagði hann við Morgun-
blaðið. „Við emm ekki mjög góðir
en getum gert ýmislegt. í fyrra lék-
um við sterkan varnarleik en væng-
mennirnir þurftu ekki að taka þátt
í honum. Ég geri ráð fyrir að Leift-
ursmenn haldi að við ætlum að
bakka en ég ætla að taka áhætt-
una, mæta þeim framarlega, beij-
ast og spila sóknarleik. Annaðhvort
gengur dæmið upp eða ekki en
þetta er aðeins einn leikur af 18
og við lærum af honum.“
Leiftursmenn lögðu upp frá
Ólafsfirði klukkan hálfníu um
morguninn og virtust sigurvissir við
komuna í Borgarnes. „Við eigum
að sigra og allt annað er ósigur,“
sagði Kristinn Björnsson, þjálfari
Leifturs, liðlega hálftíma fyrir leik.
„Samt verður að hafa í huga að
þetta er fyrsti leikur mótsins, sjón-
varpsleikur og fyrsti leikur Borg-
nesinga í deildinni. Þeir selja sig
dýrt og við vitum að ekkert kemur
af sjálfu sér - menn verða að beij-
ast fyrir hlutunum.“
Einfalt
Skallagrímsmenn þekkja tak-
mörk sín og reyndu ekki að gera
meira en þeir geta. Þeir voru svolít-
ið taugaóstyrkir í fyrstu en komu
mun öruggari til seinni hálfleiks
eftir að hafa haldið hreinu fyrir
hlé. Skipulagið var einfalt: Góð
markvarsla, örugg vörn og gagn-
sóknir í kjölfarið. Þijár slíkar gengu
upp á hálftíma og þó tækifæri hafí
gefíst til að gera fleiri mörk voru
heimamenn fyllilega sáttir við upp-
skeruna.
„Þetta var fínt,“ sagði Ólafur
þjálfari í leikslok. „Við vorum
taugaóstyrkir og hræddir í byijun
en áttuðum okkur fljótlega á hlut-
unum. Meðan við vorum að ná átt-
um lögðum við áherslu á að halda
vöminni og vinna okkur inn í leik-
inn. Eftir fyrri hálfleikinn sáum við
að þetta var eins og hver annar
fótbolti sem við þekkjum. Við fórum
að sækja meira, bárum ekki virð-
ingu fyrir mótheijunum og gerðum
það sem við þurftum til að sigra.“
Mjög sterkir og öflugir menn em
í herbúðum Leifturs, menn með
mikla keppnisreynslu, en þeir náðu
illa saman. „Þeir þurfa hálft ár í
viðbót til að kynnast," kallaði áköf
stuðningskona liðsins rétt áður en
Skallagrímur gerði þriðja markið.
Það er afsökun en ekki staðreynd
því þessir piltar eiga að geta gert
mun meira og samvinnan á ekki
að þvælast fyrir þeim. En að þessu
sinni var hugmyndaflugið ekki mik-
ið og sennilega hefur vanmat á
mótheijunum ráðið ferðinni að ein-
hveiju leyti. Erfiða leiðin var oftar
en ekki valin og hún skilaði ekki
árangri en engu að síður voru sókn-
armennirnir þrír áberandi bestir í
aðgerðum sínum - þeir reyndu en
höfðu ekki heppnina með sér.
„Þetta kom mér á óvart,“ sagði
Kristinn þjálfari spurður um úrslit-
in. „En við urðum fyrir áfalli. Daða
var skellt og svo virtist sem
hagnaðarreglunni væri beitt en í
kjölfarið var dæmd á okkur víta-
spyrna og við misstum mann út
af. Eftir það gekk ekkert hjá okk-
ur. Ég er sammála því að spilið
var ekki gott. Við erum með lið
sem getur látið boltann ganga en
stundum nægir ekki að hafa tækni
og fínheit. I iokin tókum við of
mikla áhættu með því að vera með
þijá í vörn en við reiknuðum ekki
með þessu. Við áttum von á erfið-
um leik en að tapa 3:0 er of mik-
ið. Liðsheildin brást en þetta er
ekki heimsendir - þetta er aðeins
einn leikur af 18.“
1a /%Sveinbjörn Asgrímsson fékk boltann aftarlega á eigin vallar-
■ %#helmingi og gaf fram á Hilmar Hákonarson. Hann var á
auðum sjó og ætlaði að leika á Cardaklija í markinu en sá síðar-
nefndi felldi heimamanninn, var vikið af velli og dæmt víti. Valdimar
K. Sigurðsson tók vítið af öryggi á 52. mínútu, sendi boltann með
hægri í hliðarnetið uppi, vinstra megin við markvörðinn. Glæsilegt
mark, fyrsta mark Skallagríms í efstu deild og fyrsta mark íslands-
mótsins í ár.
2B^\jakob Hallgeirsson vann boltann nálægt miðlínu og sendi
■ ^#fram á Valdimar K. Sigurðsson. Hann lék aðeins áfram en
sendi síðan á fjærstöng þar sem Sindri Þór Grétarsson kom aðvíf-
andi og skallaði boltann af krafti í netið vinstra megin við markvörðinn
á 76. mínútu.
3*^\Jakob Hallgeirsson vann boltann hægra megin í vörninni
u\Jog sendi fram og út á hægri kant til Valdimars K. Sigurðs-
sonar. Hann gaf fyrir markið, Sindri Þór Grétarsson náði boltanum
nokkuð utan vítateigs og skaut með jörðu í hornið §ær á 83. mínútu.