Morgunblaðið - 21.05.1997, Blaðsíða 6
6 E MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HM I HAIMDKIMATTLEIK
Morgunblaðið/Einar Falur
BJARKI Sigurðsson sýnlr hæfn! sína með japönskum matprjónum þar sem hann bragðar á
skelfiski í matarboði sem haldið var landsliðinu til heiðurs í hefðbundnu japönsku veitingahúsi
í bænum Tarumizu. Leikmenn sátu þar á hækjum sér og borðuðu hefðbundna fiskrétti.
Morgunblaðið/Einar Falur
GEIR Sveinsson, fyrirliði, hugar hér að réttunum ásamt Degi Sigurðs-
syni. íslensku landsliðsmennirnir borðuðu m.a. loðnu, stórar rækjur,
eggjasúpu, skelfisk og þangsúpu.
Duranona
vinsæll
RÓBERT Julian Duranona er mjög
vinsæll meðal liðanna frá Suður-Amer-
íku hér í Kumamoto, enda er hann
einn þekktasti handknattleiksmaður
álfunnar. Þegar langferðabifreið ís-
iendinganna keyrði framhjá bifreið
Brasilíumanna í gær, hrópaði Duran-
ona til þeirra og ráku Ieikmenn Brasil-
íu þá upp mikil fagnaðaröskur.
Sáu Svía
vinna Dani
ÍSLENSKI landsliðshópurinn mætti í
Kumamoto City General Gym höllina
í gær, til að sjá leik Svia og Norð-
manna. Svíar lögðu Norðmenn að velli
í leik mistaka, 24:17. Mats Olsson varði
vel í marki Svía og þeir Staffan Ols-
son, sex mörk, og Magnús Wislander,
fimm mörk, voru atkvæðamestu menn
þeirra í vörn og sókn.
Sáu þrjá leiki
ÍSLENSKU landsliðsmennirnir sáu
þrjá leiki í gær. Þeir sáu Svía vinna
Norðmenn, einnig sáu þeir um morg-
uninn myndbandsupptöku á leik sínum
gegn Alsír, þar sem farið var yfir atr-
iði sem hægt er að bæta. Þá sáu jþeir
upptöku af leik Júgóslavíu og Litháen
um kvöldið. Það var liður í undirbún-
ingnum fyrir leikinn gegn Júgóslavíu
í fyrramálið, sem verður klukkan sex
að íslenskum tíma.
Duranona hélt
að Júlíus væri
að ýta við sér
FLESTIR landsliðsmennimir vöknuðu
upp kl. 6,23 morguninn fyrir leikinn
gegn Alsir. Róbert Julian Duranona
hélt að herbergisfélagi sinn, Júlíus
Jónasson, væri að ýta við sér. Það var
ekki, heldur var það jarðskjálfti sem
skók rúm hans. Jarðskjálfinn, sem var
4,7 á Richter, átti upptök sín um 50
km fyrir sunnan Kumamotoborg.
Kúbumenn
mættu nóttina
fyrir leik
ÞEGAR setningarathöfnin fór fram
létu Kúbumenn ekki sjá sig og um tíma
var óttast að þeir myndu ekki mæta í
leikinn gegn Rússum á sunnudaginn.
Þeir komu til Kumamoto aðfaranótt
sunnudagsins með flugi frá Mexíkó,
þar sem þeir dvöldi eina nótt á ferð
sinni til Japans. Fyrir keppnina var
óljóst hvort Kúbumenn hefðu efni á
að koma, Það var þá sem fyrirtæki
eitt í Japan ákvað að greiða ferð þeirra
til Kumamoto.
Skoðuðu lodnu
verksmiðju
íTarumizu
að var stund milli stríða hjá
landsliðsmönnum íslands í
gær, en þá fóru þeir til bæjarins
Tarumizu í Kogoshima-héraði fyrir
sunnan Kumamoto í boði Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna - til að
skoða eina af fimm loðnuverksmiðj-
um Yamada Suisan Co. Ltd., sem
pakkar loðnu frá íslandi í neytenda-
pakkningar sem eru seldar víðs
vegar um Japan. Það var Jón Magn-
ús Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Icelandic Freezing Plants Corpor-
ation, dótturfyrirtækis SH í Tókýó,
sem stýrði ferðinni, en til Tarumizu
var þriggja tíma akstur í langferða-
bifreið.
Landsliðsmönnunum var boðið til
hádegisverðar á veitingahúsi í Tar-
umizu, þar sem þeir snæddu loðnu,
rækjur og annað sjárvarfang með
ptjónum að japönskum sið - sátu
á hækjum sér við lágt borð. Eftir
það var verksmiðjan og vinnslan
sem fer þar fram skoðuð. Menn sáu
hvernig loðnan var verkuð fyrir
Japansmarkað.
Eftir það var ekið til baka og þá
undir hlíðum eldfjallsins fræga Sak-
urajima, sem er virkt og leggur
reyk úr gíg fjallsins. Fjallið gaus
síðast 1960. Þaðan var farið með
ferju til Kogoshima og ekið aftur
til Kumamoto. Strákarnir komu að
hóteli sínu fimmtán mínútur í sex
að kvöldi og héldu fljótlega á létta
æfingu.
Strákarnir eru bytjaðit' að búa
sig undir leikinn gegn sterku liði
Júgóslava, sem verður í fyrramálið.
Slappað af eftir matinn
IMOKKRIR landsliðsmannanna hvílast eftir að hafa neitt hef-
bundins japansks máisverðar í matarboðl í bænum Tarumizu
sunnarlega á eyjunni Kyuzu.
Morgunblaðið/Einar Falur
JÓN Magnús Kristjánsson frá SH í Japan sýnir landsliðs-
mönnunum pakkningar með frystri loðnu frá íslandi.
Þorbjörn kvartaði
yfir tímagæslu
ÞORBJÖRN Jensson var ekki ánægður hvað tímaverðir stöðvuðu
klukkuna seint, þegar dómarar gefa merki um að stöðva leik Islands
og Alsírs á lokasekúndunum. „Það líða oft þrjár til fjórar sekúndur
frá því að dómarinn gefur merki, þar til tíminn er stöðvaður," sagði
Þorbjörn á fundi með fréttamönnum eftir leik Islands og Alsír. Þor-
björn sagði að hann ætti ekki sérstaklega við atvikið undir lok leiks-
ins, heldur einnig áður í leiknum, þegar dómarar gáfu tímavörðum
merki um að stöðva ieikinn. „Mér finnst eðlilegt að tímaverðir séu
með fingurna við þann takka sem stöðvar klukkuna, en séu ekki að
vinna að öðrum verkefnum er varða leikinn."
Patrekur skoraði frá miðju
Patrekur Jóhannesson vann það
einstæða afrek að .skora frá
miðju gegn Alsírmönnum, stökk
upp og skaut yfir
Sigmundur Ó. varnarvegg þeirra
Steinarsson frá miðlínu vallarins
skrifarfrá f Domehöllinni -
knötturinn hafnaði á
gólfinu og þeyttist fram hjá mark-
verði Alsírmanna. Því miður fyrir
Patrek og samheija hans var mark-
ið ekki dæmt gilt. Aðeins voru eftir
1,2 sek., tíminn rann því út þegar
knötturinn var á leið í markið. Is-
lensku leikmennirnir urðu að sætta
sig við jafntefli, 27:27, í leik sem
leit út fyrir að vera tapaður um
tíma.
Þegar 5,20 mín. voru til leiks-
loka voru Alsírmenn tveimur mörk-
um yfir, 25:23. Valdimar Grímsson
skoraði þá eftir hraðaupphlaup og
í kjölfarið bað Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari um leikhlé og
breytti varnarleik íslenska liðsins.
Við það riðlaðist leikur Alsír-
manna, sem voru einum færri. Júl-
íus Jónasson jafnaði með marki af
línu eftir sendingu frá Degi Sig-
urðssyni, sem hafði fiskað knött-
inn, 26:26. 2,19 sek. voru eftir.
Þegar Dagur fiskaði síðan ruðning
á Alsír, hrópaði Þorbjörn inn á
völlinn; „Eitt í einu, strákar."
Valdimar fór úr horninu og skor-
aði 27:26 þegar 1,18 sek. var eft-
ir. Þegar 4,7 sek., voru eftir fengu
Alsírmenn aukakast, sem endaði
með því að Bouanati skoraði af
línu. Eftir það brutu Alsírmenn og
tíminn var stöðvaður þegar 1,2
sek. voru eftir. Sá tími nægði ís-
landi ekki. „Eg hefði viljað að það
hefðu verið þtjár til fjórar sek. eft-
ir - þá hefði verið stórkostlegt að
horfa á eftir knettinum í netið,“
sagði Patrekur
Varnarleikur íslands brást í
leiknum og þá áttu leikmenn ís-
lenska liðsins oft í erfiðleikum með
að leika gegn framliggjandi vörn
Alsírs. Patrekur, Valdimar og
Gústaf Bjarnason voru bestu leik-
menn íslenska liðsins, þá komst
Konráð Olavson vel frá leiknum.
„Ég var mjög ánægður með leik
minna manna gegn Islendingum.
Þeir náðu upp góðri baráttu, sem
þeir héldu út allan leikinn,“ sagði
Bouderbal Djillali, þjálfari Alsírs.
SÓKNAR-
NÝTING
Úrslitakeppni HM 1997 i Japan
ÍSLAND I ALSÍR
Mðrk Sóknif % » Mðrk Sáknir %
15 20 75 F.h 13 20 65
12 24 50 S.h 14 23 61
27 44 61 Alls 27 43 63
5 Langskot 15
4 Gegnumbrot 2
3 Hraðaupphlaup 5
7 Horn 2
4 Lína 1
3 Víti 2
T