Morgunblaðið - 25.05.1997, Side 1
fMatguiiMafrUk
ATVINNU/RAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SVNNUDAGUR 25. MAÍ 1992 BLAD E
Kennara vantar á
Seltjarnarnesi
Sérkennara vantar í 50% stöðu að Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi en þar er 8.-10. bekkur með 220 nemendur.
Auk þess vantar kennara til að kenna sænsku 6 stundir
í viku. Umsóknir berist til skólastjóra, Ólafs H. Óskarsson-
ar, vs. 561-2040. Frestur er til 23. júní.
Kaffiunnendur
Kaffitár í Njarðvík vantar starfsfólk til afgreiðslustarfa í
Kaffiverslun-expressóbar í Kringlunni. Meðal skilyrða eru
áhugi á góðu kaffi og tei, stundvísi og þjónustulund.
Skjaldborg vantar
sölufólk í símasölu
Skjaldborg hf. er flutt í betra húsnæði og vill bæta við fólki
í símasölu. Kvöld- og/eða helgarstörf. Tímakaup og pró-
sentur, aldurstakmark 20 ár. Upplýsingar í símum 8961216
eða 5111270 á mánudag og þriðjudag.
Starf í mötuneyti
Fjármálaráðuneytið vantar starfskraft í mötuneyti vegna
sumarleyfa. Einhver kunnátta í matargerð æskiieg. Upp-
lýsingar í síma 5609008 eftir kl. 13.30 frá mánudegi.
Kynna styrki á
vegum Evrópu-
sambandsins
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heldur á föstudag
kynningar- og fræðslufund á Hótel Loftleiðum vegna
styrkja sem veittir verða völdum verkefnum á sviði tækni-
yfirfærslu og/eða nýtingar á rannsóknarniðurstöðum.
Manuel Villalonga frá stjórninni mun greina frá forsendum
styrkveitingar.
Svæðisskipulag
miðhálendis Islands
Haldinn verður almennur kynningarfundur um tillögu að
svæðisskipulagi miðhálendis íslands á föstudag kl. 16.00 á
Hótel Loftleiðum. Fundarstjóri verður Stefán Thors, skipu-
lagsstjóri ríkisins. Umhverfísráðherra ávarpar fundinn.
Ungbarnanudd
Heilsusetur Þórgunnu verður með nýtt námskeið í ung-
barnanuddi fyrir foreldra með börn á aldrinum 1-10 mán-
aða. Byrjar fímmtudaginn 29. maí kl. 12.00. Upplýsingar
og innritun í síma 5624745 milli 11 og 13 virka daga.
Takmarkaður þátttakendaflöldi.
SMÁAUGL ÝSINGAR
Almenn samkoma
hjá Krossinum
Krossinn heldur almenna samkomu í dag kl. 16.30. Barna-
gæsla meðan á samkomunni stendur. Biblíulestur er á
þriðjudag kl. 20.30 og unglingasamkoma á laugardag.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jðnasson
STEFNT er að því að stofna stjórnunarklúbb í Eyjum þar sem stjórnendur og áhugafólk
um stjórnun geti komið saman til að fræðast og skiptast á skoðunum.
Stjórnunarfélag íslands
Samstarf við Þróunar-
félag Vestmaimaeyja
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið
ÞRÓUNARFÉLAG Vestmannaeyja og Stjórnunarfé-
lag Islands hafa gert með sér samning um að Þróunar-
félagið taki að sér þjónustu Stjórnunarfélagsins í
Eyjum. Samningur þessa efnis var undirritaður í
Eyjum um helgina af Árna Sigfússyni, framkvæmda-
stjóra Stjórnunarfélagsins, og Bjarka Brynjarssyni,
framkvæmdastjóra Þróunarfélagsins.
Ámi Sigfússon sagði í samtali við
Morgunblaðið að samningurinn gerði
það að verkum að í Eyjum yrði boð-
ið upp á námskeið á sviði reksturs
og stjómunar. Þá opnaði þetta sam-
starf möguleikann á að bjóða fyrir-
tækjum í Eyjum upp á hagstæð kjör
á námsstefnum með heimsþekktum
erlendum fyrirlesurum. Þá yrði einnig
reynt í samstarfínu að fara inn á ný
svið í námskeiðahaldi.
Námskeið yrðu brotin upp í
styttri fyrirlestra sem haldnir yrðu
en síðan myndu þessir fyrirlestrar
í heild mynda heilt námskeið. Með
því móti yrði unnt að koma til móts
við mismunandi aðstæður fyr-
irtækja. Þetta væri nýjung sem tal-
in væri svara betur þörfum minni
fyrirtækja sem ættu til dæmis erf-
itt með að senda alla starfsmenn
sína í einu á námskeið án þess að
lama starfsemi fyrirtækisins á með-
an. Árni sagði að þetta yrði tilraun
sem ætti að gera og ef hún gæfist
vel í samstarfinu við Þróunarfélagið
í Eyjum þá gæti verið um að ræða
fordæmi sem nýta mætti um allt
land.
Þá væri markmiðið að stofna
stjórnunarkiúbb í Eyjum þar sem
stjórnendur og áhugafólk um stjórn-
un gæti komið saman, fræðst og
skipst á skoðunum og upplýsingum.
Árni sagði að með samstarfinu
við Stjórnunarfélagið væri Þróunar-
félagið í Eyjum komið í samstarf
við hinn virta Berkeley-háskóla í
Bandaríkjunum og Management
Centre Éurope, sem eru stærstu
endurmenntunarsamtök í Evrópu,
þau hafa aðsetur í Brussel.
Bjarki Brynjarsson sagði að
samningur þessi væri mjög áhuga-
verður og opnaði mikla möguleika í
framtíðinni. Með honum gefist Eyja-
mönnum nú möguleiki á að taka
þátt í starfi sem hafi verið óaðgengi-
legt fyrir þá til þessa.
Landbúnaður í Evrópusambandinu
Mjólkurvörustefnu umbylt?
Brussel. Reuter.
RÁÐHERRAR landbúnaðarmála í
ríkjum Evrópusambandsins, ESB,
koma saman á fundi í hollensku
borginni Middelburg í dag til að
ræða framtíð mjólkurbænda í sam-
bandinu. Sérfræðingar telja að of
hátt verð muni valda því að hlutur
ESB í heimsframleiðslu á mjólkur-
vörum muni minnka á næstu árum.
„Við verðum að ræða þessi mál.
Þetta er mikilvægt og eitthvað verð-
ur að gera,“ sagði hollenskur emb-
ættismaður en Hollendingar eru í
forsvari fyrir sambandið þetta miss-
erið. Þeir eru stórútflytjendur á ost-
um og öðrum mjólkurafurðum og
vilja að reglum um framleiðslukvóta
og niðurgreiðslur verði umbylt til
að auka samkeppnishæfnina á al-
þjóðamörkuðum.
„Það er slæm stefna að bíða þang-
að til Heimsviðskiptastofnunin
(WTO) beitir valdi til að þvinga fram
breytingar," sagði annar embættis-
maður en næsta viðræðuiota WTO
hefst 1999.
ESB framleiðir nú um 20% af
mjólkurafurðum heimsins og er með
45% af sölu á heimsmarkaði. Flestir
öflugustu mjólkurvöruframleiðendur
í ESB eru andvígir því að fram-
leiðslukvótar verði afnumdir, þeir
óttast að þá muni markaðurinn yfir-
fyllast og verð hrapa. Muni þá mörg
þúsund bændur sem ekki eru með
mikinn rekstur verða að gefast upp.
Þjóðvetjar vilja auka við kvótana og
halda fast í lágmarksverð til að
tryggja hag smábænda.
Meðalbóndinn í ESB er með 20
kýr en á Nýja Sjálandi er hann með
um 200 kýr, í Astralíu 118.