Morgunblaðið - 25.05.1997, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 25.05.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1997 E 9 Verkmenntaskólinn á Akureyri íslenskukennarar Kennarastaöa í íslensku er laustil umsóknar við Verkmenntaskólann á Akureyri til eins árs frá 1. ágúst 1997. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Skrifleg umsókn ásamt greinagerð um fyrri störf berist Verkmenntaskólanum á Akureyri, Eyrarlandsholti, 600 Akureyri, fyrir 30. maí 1997. Ekki er þörf á sérstökum eyðublöðum. Umsækjendur hafi háskólapróf auk uppeldis- og kennslufræði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veitir undirritað- ur í síma 461 1710. Skólameistari Laust embætti Embætti tollstjórans í Reykjavík er lausttil um- sóknar. Embættið er veitt af fjármálaráðherra til fimm ára í senn. Tollstjórinn í Reykjavík skal fullnægja sömu almennum hæfisskilyrðum og héraðsdómarartil skipunar í embætti, sbr. lög nr. 92/1989, um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði. Um launakjörfer samkvæmt ákvörðun kjara- nefndar. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Umsóknarfresturertil 13. júní 1997. Skipun í embættið miðast við 1. október 1997. Nánari upplýsingar veita Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri og Indriði H. Þorláksson, skrif- stofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Umsóknir sendist fjármálaráðuneytinu, Arnar- hváli, 150 Reyjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin. Fjármálaráðuneytið, 16. maí 1997. ATVINNA I BOÐI OSKAR EFTIR Vinnutími er frá 9.00 til 14.00. Starfið hentar jafnt kvenfólki sem karlmönnum. Viðkomandi þarf að vera nákvœmur, samviskusamur og áhugasamur í starfi. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu BÓNUSS að Skútuvogi 13, frá kl. 10.00 til 12.00 alla vikuna. BÓNUS greiðir réttum aðilum góð laun. Sölumaður — heildsala Gróið og gott heildsölufyrirtæki sem selur fjöl- breytt úrval af vörumtil smásöluverslana í Reykjavík og á landsbyggðina óskar eftir dug- legum sölumanni til starfa hið allra fyrsta. Æskilegur aldur 25-45 ára. Eingöngu kemur til greina reglusamt og traust fólk sem getur unnið sjálfstætt og er reiðubúið til þess að ráða sig til framtíðarstarfa og vinna í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og með sölufólki fyrir- tækisins. Hér er í boði fjölbreytt og krefjandi starf fyrir réttan aðila karl eða konu. Þeir sem áhuga hafa leggi inn umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf á af- greiðslu Mbl. fyrirfimmtudagskvöld 29. maí 1997 merktar: „Góður sölumaður". FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYRI Sjúkraþjálfarar Sjúkraþjálfarar óskasttil starfa við bráðadeildir FSA. Um er að ræða stöður yfirsjúkraþjálfara 2 og yfirsjúkraþjálfara 4. Laun samkvæmt kjarasamningi sjúkraþjálfara í ríkisþjónustu. Starfshlutfall 50 til 100%. Starfið er veitt frá júlí, eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 5. júní. Frekari upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari Luciénne ten Hoeve í síma 463 0844 eða 463 1387 (heima). Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir sendist til: Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Yfirsjúkraþjálfari Pósthólf 380 602 Akureyri Hafralækjarskóli í Aðaldal auglýsir eftir skólastjóra Hafralækjarskóli er grunnskóli og er staðsettur í Aðaldal, um það bil 20 km frá Húsavík og um 70 km frá Akureyri. Skólinn býr við góða að- stöðu til náms og kennslu. Skólinn ereinsetinn heimanakstursskóli með um það bil 110 nemendur úr 4 sveitarfélögum þar sem samkennsla árganga er umtal^verð. Skólinn hefur nýlokið þátttöku í 2ja áraþróun- arverkefninu „Aukin gæði náms". Áhersla á list og verkgreinar, þó einkum tónlist, eru helstu einkenni skólastarfsins. Innan véggja skólans er rekinn tónlistarskóli með sameigin- lega stundaskrá, aðstöðu og búnað. Við skól- ann er rekin sérdeild, sem þjónar meðferðar- heimilinu í Árbót. Umsóknarfrestur ertil 20. júní nk. Nánari upplýsingar gefa Sigmar Ólafsson, skólastjóri, í síma 464 3580-81 og Dagur Jóhannesson, oddviti, í síma 464 3510-20. CJrldorfskólínn f l LÆK3/4RBOTNUM ersjálfstæðurskóli í nánumtengslum við óspillta íslenska náttúru. Hann hefur sérstöðu í íslensku skólaflórunni vegna ytri aðstæðna og þeirra leiða sem farnar eru í innra starfi. Uppeldisfræði Rúdólfs Steiners er grundvöllur skólastarfsins, þarsem hugsun, tilfinningar og vilji barnsins eru lögð að jöfnu. Við óskum etir kennurum, dugmiklu jákvæðu og skapandi fólki, sem hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu skólans. Okkur vantar bekkjarkennara og fagkennara í íslensku, stærðfræði og tónlist. Upplýsingar veita Eiríkurog Þór Ingi í símum 587 4499, 567 1734 og 587 4486. Lyfjafræðingur Hringbrautaraapótek óskar eftir að ráða lyfja- fræðing og aðstoðarlyfjafræðing til starfa. Til greina kemur að ráða í fullt starf og hluta- starf þar sem hluti vinnutímans er um helgar og á kvöldin. Við leitum að lyfjafræðingi og/eða aðstoðar- lyfjafræðingi sem: • hefur mikla þjónustulund og áhuga á sjúk- lingaþjónustu. • býr yfir faglegum metnaði. • hefur áhuga á viðskipta- og markaðsmálum. Frekari upplýsingar veitir Jón G. Ingvason í síma 511 5070. Áhugasamir lyfjafræðingar vinsamlegast sendið umsókn til Hringbrautarapóteks, Hring- braut 119, 107 Reykjavík. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Grunnskólinn í Grindavík leitar að áhugasömum kennurum til starfa við Grunnskólann í Grindavík næsta skólaár. Kennslugreinar: Kjarnagreinar í 9. og 10. bekk, bekkjarkennsla á yngra og miðstigi, sérkennsla og hálf staða í handmenntum, saumum. Grindavík er 2.200 íbúa sveitarfélag í aðeins 50 km fjarlægð frá Reykj- avík. Á staðnum er góð almenn þjónusta og aðstaða til íþróttaiðkana. í skólanum eru tæplega 400 nemendur í 20 bekkjardeildum. Unnið er markvisst að skólaþróun og umbótum í skólastarfi. Greidd er 10% launauppbót á föst laun og aðstoðað við öflun húsnæðis. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í síma 426 8555. Umsóknir skal senda til Grunnskólans í Grindavík fyrir 1. júní. Bæjarstjóri. Kirkjuvörður Ein af kirkjum Reykjavíkurprófastsdæmis óskar að ráða kirkjuvörd til starfa. Starfið er laust strax. Leitað er að reglusömum og snyrtilegum ein- staklingi, sem hefur góða og trausta framkomu og er lipur í mannlegum samskiptum. Umsóknareydublöð og allar nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu okkar. Umskóknarfrestur er til 31. maí nk. frUÐNI ÍÓNSSON RÁDGIÖF & RÁÐNINGARÞÍÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22 Varnarliðið Aðstoðarmenn í umhverfisdeild Varnarliðsins Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða tvo aðstoðarmenn í umhverfisdeild stofnunar verklegra Framkvæmda. Umsækjendur uppfylli eftirfarandi skilyrði: • Reynsla af vinnu á sviði umhverfismála • Góð efnafræðiþekking • Mjög góð tölvu- og enskukunnátta • Bílpróf Umsóknum sé skilað á ensku. Umsóknir beristtil ráðningardeildar Varnar- málaskrifstofu, Brekkustíg 39, 260 Reykja- nesbæ, sími 421 1973, eigi síðar en 3. júní 1997. Heimilistæki hf. vantar rafvirkja Óskum eftir að ráða rafvirkja til viðgerða á raf- tækjaverkstæði okkar. Áhugasamir vinsamlega sendi skriflegar um- sóknir, merktar: „Rafvirki", til Heimilistækja sf., Sætúni 8, 105 Reykjavík, fyrir 2. júní nk. Upplýsingar veitir Ólafur Ingi Ólafsson, deild- arstjóri þjónustudeildar (olafuri@ht.is). Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðar- mál. Öllum umsóknum verður svarað. HeimilistæKi ht. SÆTÚNI 8 • SlMl 69 15 00 • FAX 69 15 55 http://www.ht.is Listaskálinn í Hveragerði Óskum eftir starfsfólki í veitingasal og til aðstoðar í eldhúsi. Þurfa að geta hafið störf 15. júní nk. Umsóknir sendist Listaskálinn í Hveragerði, pósthólf 157, 810 Hveragerði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.