Morgunblaðið - 25.05.1997, Page 17

Morgunblaðið - 25.05.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MAÍ1997 E 17 Skraddarinn í Panama Ný njósnasaga eftir John le Carré geríst í Panama og segir af skraddara sem flækist í meira en hann ræður við. Arnaldur Indr- iðason kynnti sér um hvað sagan fjallar og segir af rithöfundinum sem eitt sinn var í leyniþjónustu Breta NEITAÐI að hitta Philby; breski njósnasögu- höfundurinn John le Carré. IMEIRA en þijátíu ár hefur breski njósnasagnahöfundurinn John le Carré kortlagt baktjaldam- akk og samsæri leyniþjónustu- stofnana í bókum sem ætíð eru í flokki bestu sinnar tegundar. Hann hefur lifað af sem kalda- stríðshöfundur og fundið nýjar hliðar á gömlu söguefni, nýjar persónur í breyttum en ekki endi- lega bættum heimi og nýjar sögur sem segja gamlan sannleika um tryggð og svik og blekkingu. Nýj- asta sagan hans heitir Skraddar- inn í Panama og með henni hefur hann skapað sér óvinsældir yfir- valda í Panama. En hann er vin- sæll meðal lesenda og einstakir höfðingjar taka honum ætíð fagn- andi. Hann er t.d. einn af örfáum góðvinum hins sérlundaða banda- ríska leikstjóra Stanley Kubricks og í hópi fárra útvaldra, sem fá að fara inná lóðina hans í Bret- landi. Le Carré skilur ekki almenni- lega af hveiju Panamastjórn er í nöp við hann vegna bókarinnar því Bretland fær mun verri útreið í nýju sögunni. „Við erum ekkert skárri hér í Evrópu. Þvert á móti,“ segir hann í viðtali í Berlingske Tidende. Hann kvartar yfir stjórn- lausri efnishyggju. „Nú, þegar við höfum lagt kommúnismann að velli, verðum við að útrýma kapít- alismanum. Okkar versti óvinur er okkar eigin græðgi. Þannig lít ég á málið og ég reyndi að búa til úr því gamansögu sem ég lét gerast í Panama.“ Skraddarinn í Panama segir af Harry Pendel. Hann er fertugur svikahrappur sem þykist eiga sér- lega fínt klæðskerafyrirtæki í Pa- nama en hefur í raun setið inni fyrir að hafa kveikt í vöruhúsi Benna frænda síns heima í Bret- landi, að hans eigin ósk reyndar. Dag einn kemur kúnni að nafni Osnard inn í fataverslun Harrys og veit allt um fortíð hans og vafa- söm fjármálaævintýri í nútíð. Osn- ard viðurkennir að hann sé njósn- ari og að leyniþjónustan hafi sent hann frá London að dusta rykið af gamla, góða Panamamálinu; stjórn landsins fær yfírráð yfir Panamaskurðinum þann 31. des- ember árið 1999 og einhvern veg- inn verður að koma vitinu fyrir Bandaríkjastjórn svo hún fari ekki að heiðra samkomulagið sem Jimmy Carter gerði á sínum tíma. Það, sem Harry á að gera, er að leka upplýsingum til leyniþjón- ustunnar því sem klæðskeri er hann í kynnum við bæði forseta Panama og hershöfðingja Banda- ríkjamanna á svæðinu. En Harry hefur ekki hugmynd um hvað Osnard vill heyra og tekur að sníða, eins og skraddara er siður, sögur, sem hann heldur að falli í kramið hjá þeim í London. Undanfarin þijátíu ár hefur Carré búið í Cornwall á stað sem heitir Lands End. Carré er höfund- arnafn hans eins og alkunna er, hans raunverulega nafn er David Cornwell, og í einni af sínum bestu bókum hin síðari ár, Fullkomnum njósnara eða „A Perfeet Spy“, gerði hann næstum sjálfsævisögu- lega sögu sem reyndist fela í sér uppgjör höfundarins við föður sinn, svikahrappinn og smákrim- mann Ronnie Cornwell. Andi föð- urins svífur einnig yfir vötnunum í Skraddaranum í Panama. Le Carré þekkti ekki móður sína eins og hann rekur í viðtalinu við Berl- ingske. Hún hvarf úr hans lífi þegar hann var fimm ára og hann sá hana ekki aftur fyrr en hann var orðinn tuttugu og eins árs. Faðir hans hafði sagt honum að hún væri látin en bróðir hennar lét le Carré hafa heimilisfang hennar eftir bréfaskriftir og þau hittust. Lítið kom út úr þeim end- urfundum. Móðirin sagðist hafa flúið föðurinn af því hann var vondur maður og hún vissi að ef hún hefði tekið drenginn með sér hefði Ronnie elt hana uppi. Þess vegna skildi ég þig eftir hjá hon- um, sagði hún. En þú gast látið mig verða eftir hjá honum, sagði le Carré. „Ég skildi ekkert og það var ekki meira um málið að segja svo ég fór og ég skil þetta ekki enn í dag,“ er haft eftir rithöfund- inum. Hann gat aldrei stólað á föður sinn sem þrátt fyrir allt veitti hon- um það sem hann þurfti. Þeir bjuggu í stórum húsum sem hann átti ekki og varð að yfirgefa með hraði. Eftir að sonurinn varð fræg- ur rithöfundur notaði Ronnie nafn- ið hans til að verða sér úti um kvenfólk. En le Carré segir að erfið æska sé besta vopn rithöf- undarins.„Ég naut hennar á tvennan hátt. í fyrsta lagi var hún mjög óvenjuleg og í öðru lagi efld- ist ég af mótlætinu. Bróðir minn hefur aldrei borið sitt barr. Ég gerði mér grein fyrir að ég ætti aldrei eftir að vinna með föður mínum og þannig hófst blekking- arleikurinn. Ef hann sendi mig til Oxford að læra lög samþykkti ég það en skráði mig í tungumála- deild af því ég vildi læra um nú- tímamál." Hann var mjög ungur þegar hann var ráðinn til bresku leyniþjónustunnar og hann segist hafa orðið njósnari af hugsjónaá- stæðum og til þess að bæta fyrir það sem svikahrappurinn faðir hans hafði gert samfélaginu. Hann byijaði að skrifa njósnasögur í leyniþjónustunni og bjó sér því til höfundarnafnið John le Carré. Sagt er að aðalpersónan í nýju sögunni, Han-y Pendel, eigi sér hliðstæðu í Okkar manni í Havana eftir Graham Green en le Carré bendir einnig á samlíkingu við Tómas Mann, sem hann segist lesa oft og mikið. „Ég hef einkar gam- an af mönnum sem fabúlera líkt og aðalpersónan í Skraddaranum í Panama. En Tómas Mann, sem ég les oft, tók athyglisverða af- stöðu til syndarinnar sem fylgir sköpun, hættunnar við að vera listamaður. Ég held að með ein- hveijum hætti sé Pendel í ætt skotið við Mann. Aðalpersóna mín gerist lygari og listamaður og hann hefur það í raun ótrúlega gott. En tök hans á raunveruleik- anum eru hættuleg öðrum, líka * þeim sem hann elskar.“ Le Carré afþakkaði boð um að hitta njósnarann Kim Philby í Moskvu þegar hann var þar á ferð í fyrsta skipti árið 1987. Philby kom til hans orðsendingu í gegn- um blaðamann sem sjálfsagt var á vegum KGB að sögn le Carré. Komdu og hittu mig. Við skulum tala saman, stóð þar. Rithöfundur- inn vildi það ekki og þegar blaða- maðurinn spurði hann hvers vegna svaraði hann: „Annað kvöld mun ég snæða kvöldverð í boði breska sendiherrans og ég hef ekki í hyggju að vera gestur drottningar einn daginn og þann næsta svik- < ari hennar.“ Skömmu síðar spurði annar blaðamaður Philby hvað honum fyndist um le Carré og hann svaraði: „Ég hef ekkert nema gott um hann að segja, ég hef gaman af bókunum hans og veit ekki hvers vegna honum líkar ekki við mig. Hann hlýtur að vita eitt eða annað um mig“. Blaðamaður- inn hringdi í le Carré og spurði hvað hann vissi um Philby en rit- höfundurinn sagðist ekki vita neitt „nema að við höfðum átt svipaða^ feður - faðir Philbys, Silgen Philby var harðstjóri og skelfilegur faðir og einnig nokkurskonar svikahrappur - og ég veit að þeg- ar maður kemur að ákveðnum tímamótum í lífinu getur maður valið á milli þess að standa fastur á því sem maður hefur trú á eða hefna sín á samfélaginu." FÉLAGSLÍF éSAMBAND ÍSLENZKRA ____i KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma á Kristniboðsþingi i kvöld kl. 20.30. Kjartan Jónssor og Karl Jónas Gíslason sjá um dagskrána. Allir velkomnir. FERÐAFELAG # ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Sunnudagur 25. maí kl. 10.30: Hengilssvæðið, 1. áfangi Folaldadalir—Jórugil — Nesjaskógur. Afmælisverð: 1.000 kr. 30.-31. mai Næturganga á Eyjafjallajökli Miðvikudagskvöld 28. júní kl. 20.00 Nauthólsvík-Öskjuhlíð-Foss- vogur, afmælisganga 3. ferð. Göngudagur F.í. sunnudag- inn 1. júní. Ath. að brottför í fjölskyldugöngu um Esjuhliðai (frá Mógilsá m.a. um skógrækt- arsvæðið) verður kl. 10.30 og heimkoma um kl. 14.00. Brottför frá BSl, austanmegin og Mörk- inni 6. Opið hús sama dag í félags- heimilinu, Mörkinni 6, kl. 14.00 18.00. Ferðakynning, fræðsla um útbúnað o.fl. Árbókin 1997, „I fjallhögum milli Mýra og Dala" var að koma út. GSP-námskeið á mánudags- og þriðjudgskvöld i Mörkinni 6. Skráning á skrifst. Félagar í F.í. og aðrir, skráið ykk- ur á heillaóska- og áskriftarlistó vegna afmælisrits Ferðafélags- ins, Ferðabók Konrads Maurers. KROSSINN Sunnudagur: Almenn sam- koma kl. 16.30. Barnagæsla er meðan á samkomunni stendur. Vorvindar vakningarinnar blása og í dag ætlum við að skíra. Við minnum einnig á það sem Drott- inn talaði til okkar í síðustu vikt um að „fara út". Hittumst i húsi Guðs í dag full eftirvæntingar. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Laugardagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. Dagsferðir í dag, sunnudag- inn 25. maí: Fjallasyrpan, 2. áfangi. Gengið verður á Ingólfs- fjall. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Arganga. Gengið niður með Ölfusá. Brottförfrá BSÍ kl. 10.30. Helgarferðir: 30. -1. júnf Básar. Ekið í Bása á föstudagskvöld. 31. -1. júní Fimmvörðuháls Gengið frá Skógarfossi, upp með Skógá. Gist i Fimmvörðuskála og þaðan er gengið í Bása. Frekari upplýsingar veitir skrif- stofa Útivistar. KRISTILEG.. MlÐSTOÐ Frelsið, kristileg miðstöð, Hverfisgötu 105. Predikun: „Aðferðir Almætt- isins AA". Predikari Hilmar Kristinsson. Sunnudagsmorgun kl 11. Frelsishetjurnar. Krakkakirkja. Þriðjudagskvöld: Almenn samkoma kl. 20. Robin Lyle kem- ur í heimsókn og þjónar í söng og predikun. Allir velkomnir. Föstudagskvöld: GEN-X kvöld fyrir unga fólkið kl. 20. Þá kemur fram drama, dans, tón- list. Feikilegt fjör. Allir velkomnir. Orð lífsins, Grensásvegi 8 Samkoma og sunnudagaskóli kl. 11.00. Ásmundur Magnússon predikar. Kennsla kl. 20. Samkoma miðvikudag. Allir hjartanlega velkomnir. SAMBAND ÍSLENZKRA v^r KRISTNIBOÐSFÉLAGA Guðsþjónusta með altarisgöngu i Grensáskirkju kl. 11. Prestur: Sr. Kjartan Jónsson. Ræðumaður: Skúli Svavarsson. Kl. 20.30 verður samkoma í Frið- rikskapellu. Ræðumaður: Helgi Hróbjartsson. Kristniboðahjónir Valgerður Gísladóttir og Guð- laugur Gunnarsson boðin vel- komin heim. Allir hjartanlega velkomnir. Hvftasunnukirkjan Filadelfía. Brauðsbrotning kl. 11.00. Ræðumaður Ólafur Jóhannsson. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hinrik Þorsteins- son. Lofgjörðarhópur FiladelfÍL leiðir söng. Barnagæsla fyrir börn undir grunnskólaaldri. Láttu sjá þig, þú ert innilega vel- kominnl Dagskrá vikunnar fram- undan: Þriðjudagur: Tónleikar með Andraé Crouch á Hótel íslandi kl. 20.00. Aðeins þetta eina skipti Örfáir miðar óseldir í versluninni Jötu. Miðvikudagur: Lofgjörð, bæn og biblíulestur kl. 20.00. Föstudagur: Unglingasam- koma kl. 20.30. Kriitii i i n I f I i | Sunnudagur 24. maí kl. 20. Samkoma Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Predikun: Jón Þór Eyjólfsson. Mikil lofgjörð og tilbeiðsla. Athugið breyttan samkomutíma. Miðvikudagur: Bænastund kl. 20.00. Allir velkomnir! Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Hjálpræðissamkoma kl. 20. Elsabet Danielsdóttir talar. Allir hiartanleaa velkomnir. Fríkirkjan Vegurinn, Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Kvöldsamkoma kt. 20:00. Lofgjörð og gleði í Heilögum anda. Jesús elskar þig og vill leysa þig. fomhjalp Almenn samkoma í Þribúðum, Hverfisgötu 42, i dag kl. 16.00. Fjölbreyttur söngur. Samhjálp- arkórinn tekur lagið. Barna- gæsla. RæðumaðurÓli Agústsson. Vitnisburðir. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. Almenn samkoma verður í kvöld kl. 20.30 í Friðriks- kapellu við Valsvöllinn. Fjöl- breytt dagskrá. Þórarinn Björns- son, guðfræðingur, flytur þátt um séra Friðrik Friðriksson. Ragnheiður Hafstein syngur. Séra Helgi Hróbjartsson talar. Heitt á könnunni í Valsheimilint eftir samkomuna. Allir hjartan- lega velkomnir. Athugið breyttar tíma oa stað. Hörgshlið 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. Nýja postulakirkjan Ármúla 23 108 Reykjavík Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. „Sælir eru þeir menn, sem finn< styrk hjá þér, er þeir hugsa ti helgigöngu." (Sálm 84.6) Axel Kollman, prestur, þjónar. Sunnudagaskóli kl. 17.00. Verið hjartanlega velkomin í hús Drottins. Síðasta morgunsamkoman að sinni i Aðalstræti 4B kl. 11.00 Sameiginlegur matur eftir stund- ina. Almenn samkoma í Breið- holtskirkju kl. 20.00. Leik- þáttur barna. Guðmundur Ómar Guðmundsson predikar. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Ailir velkomnir. Gjafir manns — gjafir jarðar Kynningarkvöld Jóhanna, Hjördís, Arnhildur og Björg kynna starfsemi sína í Lifssýnarsalnum, mánudaginn 26. maí. Langar þig að koma og eyða með okkur Ijúfu kvöldi i notalegu umhverfi, fá að sjá, heyra og finna hvað nudo, heilur og ilmkjarnaolíur geta gert fyrii þig? Vertu þá velkomin til okkar i Lífssýnarsalinn, Bolholti 4, 4. hæð, mánudaginn 26. mars << kl. 20.00. Aðgangseyrir 500 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.