Morgunblaðið - 04.06.1997, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
<
1 'í:
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Ásdís
JMmrguiiirifafeUk
1997 M MIÐVIKUDAGUR4.JÚNÍ BLAÐ
Fylgst með
Arnari og
Árna Gauti
ÚTSENDARI frá gríska félaginu AIK í Aþenu var
á meðal áhorfenda á KR-vellinum í gærkvöldi í
þeim tilgangi að fylgjast með Amari Grétarssyni
leikmanni Leifturs, en sagnir herma að félagið
hafi nokkum áhuga á að fá hann i herbúðir sínar.
Eflaust hefur það ekki skemmt fyrir áhuga Grikkj-
ans á Arnari að hann var einn örfárra leikmanna
á vellinum sem virtist hafa hugann við að leika
knattspyrnu.. AIK varð í öðm sæti í efstu deild
grísku deildarinnar sem er nýlokið. Verði af því
að Arnar fari til Grikklands fetar hann í fótspor
bróður síns, Sigurðar Grétarsson, núverandi þjálf-
ara Vals, sem lék með Iraklis fyrir nokkmm árum.
Annar „njósnari“ var hér á landi í gærkvöldi;
fulltrúi frá Arsenal í London var staddur á Val-
bjamarvelli til að fylgjast með Árna Gauti Arasyni
markverði Stjörnunnar en hann hefur verið undir
smásjá félagsins allt frá því í ungmennalandsleik
íslands og Irlands sl. haust.
Leifur Geir til liðs
við Framherja
LEIFUR Geir Hafsteinsson, knattspyrnumaður í
ÍBV, hefur tilkynnt félagaskipti í lið Framheija,
sem einnig er frá Vestmannaeyjum og leikur í 3.
deild - neðstu deild íslandsmótsins.
Leifur Geir hefuur verið meiddur en er allur að
koma til og ákvað því að skipta um félag til að
komast í leikæfingu. Hann mun ekki leika með
Framheijum í bikarkeppninni og getur því skipt
yfir í lið ÍBV aftur þegar og ef kallið kemur og
þá væntanlega betur búinn undir slaginn meðal
þeirra bestu en ella.
Bjarni Jóhannsson, þjáifari Eyjamanna, segist
mjög hlynntur slíkri samvinnu milli liða, þar sem
hægt sé að lána leikmenn til liða í neðri deildum
og fá þá síðan aftur með skömmum fyrirvara.
Þetta sé mikið gert á hinum Norðurlöndunum og
víðar, með góðum árangri.
Graf og Kafelnikov
töpuðu bæði
LJÓST er hvorki Steffi Graf og Yevgeny Kafeln-
ikov veija meistaratitla sína á Opna franska meist-
aramótinu í tennis. Graf tapaði í tveimur settum
6:1 og 6:4 fyrir Amanda Coetzer frá S-Afriku.
Graf hefur vegnað vel á þessu móti síðustu árin
og átta sinnum komist í úrslit á síðustu tíu árum.
Takist Monicu Seles að sigra Mary Joe Fernandez
er ljóst að Graf fellur niður í 3. sæti styrkleika-
lista tenniskvenna, en svo neðarlega hefur hún
ekki verið í tíu ár. Kafelnikov veitti andstæðingi ’
sínum meiri keppni en Graf en varð eigi að síður
játa sig sigraðan og halda heim. Brasilíumaðurinn
Gustavo Kuerten sigraði fimm settum; 6:2, 5:7,
2:6, 6:0, 6:4.
Keflvíkingar enn
með fullt hús stiga
KEFLVIKINGAR sigruðu Vals-
menn 2:0 með tveimur mörkum
Hauks Inga Guðnason á heima-
velli í gærkvöldi í efstu deild karla
í knattspyrnu, Sjóvá Almennra
deildinni. Lið Keflavíkur hefur
því enn fullt hús stiga í deildinni
- er með fimmtán stig að fimm
umferðum loknum, en þess má
geta að Keflvíkingar sluppu
naumlega við fall i fyrra haust,
og fengu þá aðeins 19 stig.
íslandsmeistarar í A eru í öðru
til þriðja sæti ásamt ÍBV. Skaga-
menn sigruðu Grindvíkinga 3:1 á
Akranesi í gærkvöldi, KR-ingar
og Leiftursmenn gerðu marka-
laust jafntefli í Reykjavík og
Framarar sigruðu Stjörnumenn
1:0 í Laugardal. Viðureign IBV
og Skallagríms var frestað vegna
þoku í Vestmannaeyjum en hefur
verið settur á í dag.
Á myndinni kljást þeir Eysteinn
Hauksson, Keflvíkingur, til
hægri, og Valsarinn Stefán Óm-
arsson. Lengst til vinstri er Ragn-
ar Steinarsson.
Eftir leikinn í dag verður gert
hlé á efstu deild íslandsmótsins,
vegna tveggja landsleikja í heims-
meistarakeppninni, gegn Makeuó-
níu ytra á laugardag og Litháum
á Laugardalsvelli á miðvikudag í
næstu viku. Sjötta umferð íslands-
mótsins verður 18. júní.
■ Leikirnir / D4
HANDKNATTLEIKUR
HSÍ fær þijár milljónir
úr afreksmannasjóði
Landslið íslands í handknattleik
lenti á Keflavíkurflugvelli í
gærkvöldi og var tekið á móti því
með viðhöfn. Liðið lenti í fimmta
sæti heimsmeistaramótsins sem
lauk í Japan á sunnudag, og það
er besti árangur sem tslendingar
hafa nokkru sinni náð á HM í hand-
knattleik.
Fjöldi manns tók á móti íslenska
liðinu í Leifsstöð, m.a. forseti ís-
lands, Ólafur Ragnarsson og eigin-
kona hans, frú Guðrún Katrín Þor-
| bergsdóttir. Ólafur sagði m.a. í
ávarpi sínu að það væri mjög mikil-
vægt fyrir þjóðina að eiga íþrótta-
menn á heimsmælikvarða, eins og
handboltamennirnir væru.
Forseti íþróttasambands ísiands,
Ellert B. Schram, var einnig á flug-
vellinum og tilkynnti í ávarpi við
komu iandsliðsins, að Handknatt-
leikssambandið myndi fá úthlutað
þremur milljónum króna úr afreks-
mannasjóði íþróttasambandsins
vegna árangursins í Japan.
I_ framhaldi af þessu má geta að
HSI skuldar nú um 100 milljónir
króna og stendur jafnvel til að fara
út í landssöfnun, til að reyna að
grynnka á skuldum.
Vert er að geta þess að tilkynnt
var í Leifsstöð að Landsbanki ís-
lands, hefur ákveðið að bjóða
landsliðsmönnum og eiginkonum
þeirra til kvöldverðar og á leiksýn-
ingu í tilefni árangursins í Japan
og í dag kl. 17 er handboltamönnun-
um boðið til mótttöku til forseta
íslands að Bessastöðum.
■ Pabbi, af hverju / D8
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR: KEPPNIGÆRDAGSINS OG SPÁÐ í FRAMHALDIÐ / B2f B3f B6