Morgunblaðið - 09.07.1997, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
thursday, mt y mr
Capital Ideas
Shakeout Is Foreíng
Mauy Rus»an liankf
ToChangeor FpW
MenhcomUnlc U Typic»l
. <Jf Kcvamp Thtct
B*t«w Lomví 9tid ClienU
Fwter C*sh for McDomUs
Sfkntld the Big Eýt
Ltad to a Greenout,
Hty, liovc a Homer
OwTt 0»«knU.->ai (MMxvry
OC tl*,Ai>twcú; Ajjot
M*kí» H CryrUl Ck*t
THE WALL
Missbig 'íAnk
If This Man IsRíght.
MédicincVFuture ;
lies in Iceland’s Past -
Hwvwd Pioícssor CrtaLs
Pion Th*t Tiuö» Í«tattd'
Intó tíunt tícnrtks Lrt>
Vikiiigs Left Trail of Mnnd
»rtinM«wO
MM-MltMlMMMW-*---'
»y »*M) m*ty*g
ww.IV.jwtx*,,
Sfessl
?í fSS"!!* **•* «ur
ttf.***"* Z'IH**. WWV ». .»
What’s News
Jlufútf.n and h'nxanct
rrvtAiuuro aom tt«
X lnGwt »* Mtt) w« hrtp tik»
uJVíitrj'* mKiid)), ktM KXTW nan
fSfítU UJ X IM* tMM) «1 (MV m-
«*> »B«c nw nutrocy
WMMwtnjr. v
JX! kxvMgti im torati^ im»
m* a*po*iuw» w mcomk<« l«m-
«*«»•» «w»mot;»i HNÍÍB fcabc**
M • fefj'tn iu SlfMfiaB
IM«V» «ÓlhlwÍ*C
STKEET JOURNAL
Á FORSÍÐU Wa.ll Street Journal 3. júlí var fjallað um íslenska erfðagreiningu og mögu-
Ieika líftækniiðnaðar í lyfjaframleiðslu. Jafnframt var nánar fjallað um rannsóknir fyrirtæk-
isins í grein inni í blaðinu.
Forsíðugrein í Wall Street Journal um íslenska erfðagreiningri
Nærri því að fínna
orsök MS-sjúkdóms
FJALLAÐ var um líftæknifyrir-
tækið íslenska erfðagreiningu í
forsíðugrein í Evrópuútgáfu dag-
blaðsins Wall Street Joumal I síð-
ustu viku og kemur þar meðal
annars fram að vísindamenn fyr-
irtækisins eigi ekki langt í land
með að finna einn helsta erfðavis-
inn sem veldur MS-sjúkdómnum.
Haft er eftir Kára Stefánssyni
stofnanda fyrirtækisins_ að rann-
sóknir á erfðaefni 350 íslendinga
hafi gefið íslenskri erfðagrein-
ingu, eða Decode Genetics eins
og það heitir á ensku, forskot á
bandarískar, kanadískar og ensk-
ar rannsóknastofur sem vinna að
rannsóknum á MS-sjúkdómnum.
„Við erum mjög nálægt iausninni
og við munum finna hana,“ er
haft eftir Kára í blaðinu.
Kári vildi í samtali við Morgun-
blaðið ekki segja meira um þetta
mál á þessu stigi, þar sem verk-
efninu væri ólokið.
í Wall Street Journal er fjallað
ítarlega um íslenska erfðagrein-
ingu og þá möguleika sem erfða-
rannsóknir veita við þróun á nýj-
um lyfjum. Áður byggðust iyfja-
rannsóknir einkum á tilraunum
með áhrif efna á tiltekin lífefni
og síðar tilraunir á dýrum og
mönnum. Nú er byijað á að kanna
hvaða erfðaeiginleikar séu al-
gengir meðal sjúklinga sem þjást
af tilteknum sjúkdómum og borin
saman blóðsýni úr sjúklingunum
við blóðsýni úr heilbrigðu fólki,
sem hefur svipaða erfðaeiginleika.
Þannig er leitað að erfðavísi sem
hefur tekið stökkbreytingu og
veldur sjúkdómnum.
í greininni segir, að af þessum
sökum reiði lyfjaiðnaðurinn sig
æ meir á fyrirtæki á borð við
íslenska erfðagreiningu, sem nái
yfirleitt mestum árangri þegar
þau rannsaka erfðaefni eins-
leitra og innræktaðra hópa sem
hafi haft lítil samskipti við um-
heiminn og því sé auðveldara að
rekja erfðaeinkennin milli kyn-
slóða.
Náttúruauðlind
Þess vegna þykir ísland ákjós-
anlegt land til erfðafræðirann-
sókna og er haft eftir Kára að
erfðafræðileg arfleifð íslendinga
sé náttúruauðlind eins og fískur
og jarðhiti. í WSJ segir, að ís-
lensk erfðagreining ætli að nota
þessa einstæðu erfðafræðiauðlind
til að aðstoða risalyíjafyrirtæki
við að greina erfðavísabyggingu
sjúkdóma á borð við sykursýki
og MS. „Ef þessi maður hefur
rétt fyrir sér, byggist framtíð
lyfjafræðinnar á fortíð íslend-
inga,“ segir í fyrirsögn greinar-
innar.
Vitnað er í breskan vísinda-
mann, Timothy Bishop, sem segir
að engin vísindaleg sönnun sé
fyrir því að hægt sé að brjóta til
mergjar erfðafræði flókinna sjúk-
dóma meðal íslendinga, eða ann-
arra þjóða, en takist Kára Stef-
ánssyni ætlunarverk sitt geti af-
raksturinn orðið gríðarlegur, bæði
í vísindalegum og fjárhagslegum
skilningi. Fram kemur að Kári
eigi í viðræðum við lyfjafyrirtæki
um rannsóknarsamninga^ og að
hann áformi að gera íslenska
erfðagreiningu að almennings-
hlutafélagi innan fárra missera.
Hvalreki
Fyrirtækið var stofnað fyrir
tæpu ári en hefur þegar vakið
mikla athygli erlendra fjölmiðla,
og Kári sagði við Morgunblaðið
að sjaldgæft væri að fjallað væri
með þessum hætti um lítil fyrir-
tæki á borð við ísienska erfða-
greiningu á forsíðu Wall Street
Joumal.
„Okkur hefur tekist vel að ná
eyrum erlendra fjölmiðla og auð-
vitað skiptir það verulegu máli
þegar kemur að því að selja fram-
leiðslu okkar. Þessi umfjöllun
hjálpar okkur gríðarmikið og hef-
ur nú þegar haft mjög mikil áhrif
á samskipti okkar við aðila sem
við erum að semja við. Þetta er
því hvalreki fyrir okkur og hlýtur
einnig að vera hvalreki almennt
fyrir íslenskt atvinnulíf," sagði
Kári.
Hann sagði að væntanleg væri
umfjöllun í Time Magazineum
evrópskan líftækniiðnað og þar
yrði sérstaklega fjallað um ís-
lenska erfðagreiningu.
Spurnir af mývargi víða um land
Flúðu 15 kíló-
metra undan mýi
FREGNIR hafa borist af
óvenju rnikilli mýflugnaplágu
á nokkrum stöðum á landinu
að undanförnu, einkum við
veiðiár með frjósömu lífríki og
er Fljótaá í Skagafirði og
Langá þar á meðal. Dæmi eru
um að bitmý hafi leikið menn
grátt.
Theódór Júlíusson leikari var
að veiðum í fyrradag í Fljótaá
ásamt félaga sínum, Friðbirni
Björnssyni, og segir hann
ágang mývargs hafa verið rosa-
legan. Hlýtt var við ána og
blankalogn.
„f einu orði sagt
skelfilegt"
„Þetta var í einu orði sagt
skelfilegt. Þarna var svart ský
allt umhverfis okkur. Við þurft-
um að flýja veiðistaðinn, hent-
um veiðidótinu inn í jeppa og
ókum í burtu með afturhlerann
opinn því að bílinn var orðinn
hálffullur af mýi. Ég var í ljósri
peysu en hún virtist vera svört
á litinn.
Við ókum eina fimmtán kíló-
metra áður en við stoppuðum,
þá komnir næstum niður að sjó
og í smá hafgolu, óg þá fyrst
voguðum við okkur að fara úr
vöðlunum og taka veiðidótið
saman. Ég er svo bitinn á eftir
að það er voðalegt á að líta,
annað augað er nær alveg sokk-
ið og hitt til hálfs, ennið stend-
ur upp í loftið og hendurnar
eru líka útbitnar. Bitin skipta
áreiðanlega þúsundum," segir
Theódór.
Hann kveðst hafa veitt áður
í ánni en ekki fengið jafn óblíð-
ar móttökur, og telji hann helst
óvenju mikið af mýi nú stafa
vegna þess að það sé að klekj-
ast út.
Netið kom ekki að
neinu gagni
„Við vorum með mýflugunet
en vargurinn var svo aðgangs-
harður að það kom ekki að
neinu gagni. Friðbjörn er líka
bitinn, þótt hann hafi sloppið
heldur betur en ég. Veiðimenn
ættu samt ekki að forðast ána,
því að þetta er góð veiðiá og
mýið sýnir að þar eru góð skil-
yrði fyrir seiðin. Ég á eftir
veiðidaga í ánni og ætla að
nota þá til fulls,“ segir hann.
Mývargur hefur komið víðar
við, og þannig er dæmi um að
maður sem var illa bitinn við
Langá fyrir skömmu þurfti að
leita aðstoðar á sjúkrahúsi
vegna bits og ofnæmisvið-
bragða af þeim sökum. Hannes
Petersen læknir á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur segir að bit kalli
fram misjafnlega kröftug við-
brögð þjá ónæmiskerfinu.
Smyrsl og lyf til varnar
„Til eru ýmis smyrsl, olíur og
áburðir í apótekum og útilífs-
búðum sem hægt er að bera á
líkamann, til að hindra að flugan
seljist á húðina og bíti. Ef þessi
krem duga ekki, er hugsanlegt
að veija sig með því að taka lyf
sem á að minnka viðbrögð
ónæmiskerfisins, og er aðallega
um svo kölluð andhistamínlyf
að ræða. Lyf af því tagi minnka
bólgur og bjúg, roða og hita,
sem eru á meðal þeirra ein-
kenna sem stafað geta af biti.
Hægt er að kaupa eina tegund
þessa andhistamins án lyfseðils
í apótekum og fleiri með milli-
göngu lækna,“ segir Hannes.
Hann segir að dugi ekki þess-
ar aðferðir til að veijast mý-
vargi, verði sá sem er bitinn
að leita læknis sem myndi þá
veita meðferð með öflugri and-
histamínlyfjum og sterum. Að-
spurður um hvort hann kynni
skýringu þess að tveir menn
geta verið umkringdir mýi en
það er aðeins ráðist á annan,
segir Hannes haldbærar skýr-
ingar ekki liggja fyrir, en hins
vegar telji sumir ástæðuna
mega rekja til misjafnlega mik-
ils blóðsykurs. „Einnig geta
báðir orðið fyrir stungum en
svörunin hjá öðrum er einfald-
lega meiri,“ segir hann.
Erling Olafsson, dýrafræð-
ingur á Náttúrufræðistofnun
kveðst ekki hafa orðið var við
mývarg í miklum mæli af eigin
raun, en hins vegar sé mýið oft
mjög staðbundið og því ekki
óeðlilegt að sumir verði meira
varir við það en aðrir.
Gott fyrir árnar
„Það er ein ákveðin mýætt
sem kölluð er bitmý og af þeirri
ætt eru fjórar tegundir, þar af
ein sem leggst á skepnur eins
og okkur og sýgur úr þeim blóð,
en hinar þijár leggjast á hrygg-
leysingja. Mýið kemur alltaf á
hveiju ári og er góðs viti fyrir
veiðiárnar. Alls staðar þar sem
eru lífrík straumvötn lætur
mýið á sér kræla og þannig má
nefna Sogið sem var annálað
fyrir mýger áður en það var
virkjað og einnig Vatnsfjörð á
Barðaströnd, þar sem mýið er
einstaklega árásargjarnt. Mýið
er einnig oft áberandi tíma-
bundið, þannig að ákveðinn tími
sumarsins er verri en annar,
einkum þegar klaktoppum er
náð, bæði um þetta leyti og síðla
sumars,“ segir Erling ennfrem-
ur.
Lyfjaverslun íslands, Iðnþróunarsjóður og bandarískur fjárfestir
Taka þátt í útboði á lyfja-
verksmiðju í Lettlandi
LYFJAVERSLUN íslands hefur í
samstarfi við Iðnþróunarsjóð og
bandarískan stofnfjárfesti, New
Century Holding, tryggt sér rétt til
þess að taka þátt í útboði á lyfjaverk-
smiðjunni Grindex í Lettlandi sem
stendur til að einkavæða á næstunni.
Að sögn Sverris Sverrissonar,
stjórnarmanns í Lyfjaverslun fs-
lands, er lyfjaverksmiðjan Grindex
eitt af mörgum lettneskum fyrir-
tækjum sem verið er að einkavæða
um þessar mundir. „Að okkar dómi
er lyfjaverksmiðjan álitlegur íjár-
festingarkostur ef hún fæst á réttu
verði. Við höfum einungis tryggt
okkur rétt til að gera tilboð í verk-
smiðjuna og engrar niðurstöðu að
vænta í málinu fyrr en eftir 18. júlí
næstkomandi. Grindex lyfjaverk-
smiðjan er mjög stöndugt fyrirtæki
með mikla veltu sem stendur á
traustum grunni þrátt fyrir að hafa
verið rekin með tapi undanfarin ár
en við teljum einfalt mál að koma
rekstrinum á réttan kjöl.“
Lyfjaverslun íslands á 32% hlut í
lýfjaverksmiðjunni Ilsanta UAB í
Utháen en um 80 milljóna króna tap
var á rekstri Ilsanta á síðasta ári.