Morgunblaðið - 09.07.1997, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 5
FRÉTTIR
Deiliskipulag Hveravalla og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda til kynningar
Óráðið hver
rekur þjón-
ustumiðstöð
^Hús sauðfjár-
veikivarna
verði fjarlægt
Ve&ur-
athuqUnar-
stöö =5-
y*-TX Hvera-
/1 Fjarlægja... bunga -Nýlhv„
/ \virkjun9
* iBóluhver* '•
y\
■ : sæluhús /
/C engiöi ______,V '
Þjófadali Cengib ÍStiýtur1'
KJALHRAUN
, 200 m
\ Cengib í
\ Eyvindarrétt
SKÝRSLA um mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmda samkvæmt
deiliskipulagi Hveravalla 1997
liggur nú, auk deiliskipulagstillög-
unnar, frammi til kynningar hjá
oddvitum Svínavatnshrepps og
Torfalækjarhrepps, í Þjóðarbók-
hlöðunni og hjá Skipulagi ríkisins.
Almenningi gefst kostur á að
kynna sér framkvæmdina og gera
athugasemdir til 6. ágúst nk.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð
fyrir að reist verði nýtt þjónustu-
hús á Hveravöllum, sem verður
að mestu leyti staðsett utan frið-
lýsta svæðisins, ásamt nýrri heim-
reið og bílastæði norðaustan við
þjónustuhúsið, utan friðlýsts
svæðis. Vestan við þjónustuhúsið
á að reisa rafstöð og í miðeyju á
bílaplani á að koma fyrir niður-
gröfnum bensíngeymi. Þá á að
græða upp nýtt tjaldsvæði og
leggja göngustíga.
Skv. matsskýrslunni verða um-
hverfisáhrif fyrirhugaðra fram-
kvæmda í langflestum tilfellum
hagstæðari en í sumum tilfellum
jafngild umhverfisáhrifum núver-
andi starfsemi.
Vegna skorts á köldu vatni á
Hveravöllum er einnig fyrirhugað
að leggja um 1.400 metra langa
vatnslögn að áningarsvæðinu frá
Hvannavallakvísl. Gert er ráð fyrir
að íjarlægja af svæðinu nýrri skála
Ferðafélags íslands, kofa
Sauðfjárveikivarna og landvarða
auk núverandi salernisaðstöðu. Þá
á að rækta upp þau sár er mynd-
ast við niðurrifið auk uppgræðslu
á núverandi bílastæði, sem stað-
sett er á lækjarbökkunum, ásamt
veginum að því. Einnig er gert ráð
fyrir uppgræðslu á núverandi tjald-
svæði.
Svínavatns- og Torfalækjar-
hreppur eru ábyrgir fyrir rekstri
þjónustuhúss, en fyrirhugað er að
stofna hlutafélag um rekstur þess
og leita eftir hlutdeild aðila í ferða-
þjónustu. í nýja þjónustuhúsinu
verður gistiaðstaða fyrir um 80
manns, ásamt móttökusal fyrir
daggesti.
Réttur hreppanna
dreginn í efa
Réttur Svínavatns- og Torfa-
lækjarhreppa til að skipuleggja
framkvæmdir á Hveravöllum hefur
verið dreginn i efa, sérstaklega í
ljósi þess að í vor felldi Hæstirétt-
ur dóm þar sem niðurstaðan varð
sú að hreppunum hefði ekki tekist
að sanna eignarhald sitt á Auðk-
úluheiði.
Erlendur G. Eysteinsson, oddviti
Torfalækjarhrepps, segir að þótt
niðurstaða dómsins hafi orðið sú
að hrepparnir eigi ekki umrætt
landsvæði eigi þeir þar engu að
síður beitar- og silungsveiðirétt
sem standa þurfi vörð um, auk
þess að með því að gera deiliskipu-
lag fyrir svæðið séu þeir að upp-
fylla lagaskyldu sem þeir komist
ekki undan.
Lögsaga Svínavatnshrepps
Erlendur leggur áherslu á að enn
sé ekki búið að ákveða hveijir komi
til með að reka fyrirhugaða þjón-
ustumiðstöð á Hveravöllum, um
það verði væntanlega stofnað
hlutafélag og það sé ekkert sem
segi að hrepparnir þurfi endilega
að eiga aðild að því félagi. Hann
tekur einnig fram að Svínavatns-
hreppur eigi lögsögu á Hveravöll-
um, hann hafi kostað gerð deili-
skipulags og skattar og skyldur
af fyrirhuguðum mannvirkjum og
rekstri muni renna til hans. Hrepp-
arnir hafi hins vegar haft góða
samvinnu um málið og forsvars-
menn þeirra séu sammála um að
breyta þurfi núverandi fyrirkomu-
lagi á Hveravöllum til að vemda
svæðið og gera aðstöðu þannig að
umferð bíla, hrossa og manna sé
ekki á viðkvæmasta svæðinu.
Markmiðið með skipulaginu sé að
vernda svæðið og gera það aðlað-
andi fyrir íslendinga og aðra, sem
þar vilja njóta fegurðar og sérstöðu
náttúrunnar.
Ekki náðist í oddvita Svína-
vatnshrepps, Jóhann Guðmunds-
son, í gær.
Ferðamenn
fái hrogn,
súrmat
og hákarl
ATVINNU- og ferðamálanefnd
Reykjavíkur hefur samþykkt að
veita 100 þúsund króna styrk í verk-
efni sem Iðntæknistofnun er að
kynna og varðar þjóðlega matar-
menningu. Er hugmyndin að fá veit-
ingastaði til að bjóða ferðamönnum
rétti sem tilheyra matarmenningu
landsins eða ákveðins héraðs og er
Iðntæknistofnun að leita eftir stuðn-
ingi við að ýta hugmyndinni úr vör.
{ bréfi Iðntæknistofnunar til at-
vinnu- og ferðamálanefndar Reykja-
víkur þar sem hugmyndin er kynnt
segir: „Hér er bæði átt við rétti sem
tilheyra hefðbundinni matarmenn-
ingu þjóðarinnar, svo sem súrmat,
hákarl, harðfisk, skyr og fjalla-
grös... svartfuglsegg, rauðmaga,
hrogn og lifur, hörpuskel, krækling
og annan skelfisk við sjávarsíðuna,
sveppi um allt land, steinbít, sel og
svartfugl, hreindýrakjöt og jafnvel
hrefnu."
Hugmyndin er að Iðntæknistofn-
un fengi matreiðslumenn og sér-
fræðinga á ýmsum sviðum til að
safna upplýsingum og semja leið-
beiningarrit með uppskriftum og til-
lögum sem selt yrði veitingastöðum
á kostnaðarverði. „Markhópurinn er
fyrst og fremst litlir veitingastaðir
um allt land, skyndibitastaðir og
bændagisting með matseld. Slíkir
staðir hafa fæstir bolmagn til að
kaupa dýra sérfræðiþjónustu. Verð-
ur því nauðsynlegt að leita leiða til
að afla fyrirtækjunum styrkja til að
kosta ráðgjöf að hluta.“
Segir í bréfinu að hvati verkefnis-
ins sé sú staðreynd að víðast hvar
á matsölustöðum jafnt í Reykjavík
sem á landsbyggðinni sé aðeins að
hafa alþjóðlega skyndibita, svo sem
hamborgara, grillaða kjúklinga og
franskar kartöflur.
Póst og síma mótið
í golfi á Grafarholtsvelli
laugardaginn 12. júlí
PÓSTUR OG SÍMI HF
Punktakeppni með 7/8 forgjöf.
1. verðlaun: Ericsson 788 farsími
2. verðlaun: Ericsson 688 farsími
3. verðlaun: Ericsson 628 farsími
Aukaverðlaun:
Veitt verða þrenn aukaverðlaun fyrir þá sem komast næst holu
í upphafshöggi á 2., 6. og 17. braut.
Auk þess verða dregin út 3 skorkort í lok keppni.
Skráning í síma 587 2215 fyrir kl. 16 föstudaginn 11. júlí.
Þátttökugjald er kr. 2.000.
Mótið hefst kl. 9:00 á laugardag.