Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9JÚLÍ 1997 15
ERLENT
TÆLENSK C-130 herflutningaflugvél var í gær send til Kambódíu eftir Tælendingum
sem flýja viíja átökin í Phnom Penh.
Reuter
Deilur tveggja forsætisráðherra leiða til valdaráns í Kambódíu
Lýðræðistilraunin var
dæmd til að mistakast
Phnom Penh. Reuter.
BARDAGARNIR og valdaránið í
Kambódíu um helgina staðfestu
það sem marga fréttaskýrendur
hafði grunað - tilrauninni til að
koma á lýðræði í landinu var að
mörgu leyti áfátt og hún var dæmd
til að mistakast.
Stjórnmálaástandið hafði verið
tiltölulega stöðugt í Kambódíu síð-
ustu árin eftir áratuga stríð og
blóðuga byltingu en upp úr sauð
að nýju á laugardag þegar her-
sveitir hliðhollar Hun Sen, öðrum
af forsætisráðherrum landsins,
réðust á hermenn sem styðja Noro-
dom Ranariddh prins og forsætis-
ráðherra. „Það sem áunnist hefur
síðustu fimm árin, og það var ekki
mikið, er horfið," sagði einn frétta-
skýrendanna.
SÞ luku ekki verkefni sínu
Forsætisráðherrarnir mynduðu
samsteypustjóm árið 1993 eftir
kosningar sem haldnar voru undir
eftirliti Sameinuðu þjóðanna.
Flokkur Ranariddhs prins, FUNC-
INPEC, fór með sigur af hólmi í
kosningunum, en hann hafði barist
gegn stjórn Huns Sens til ársins
1991 þegar samið var um frið í
landinu.
Hun Sen hafnaði úrslitunum og
hélt tökum sínum á stjórnkerfinu
og hernum þrátt fyrir íhlutun Sam-
einuðu þjóðanna. Eftir skamm-
vinnt tímabil pólitísks glundroða
fékk Norodom Sihanouk konungur
son sinn, Ranariddh, og Hun Sen
til að mynda samsteypustjómina.
„Stærsti gallinn var að Samein-
uðu þjóðunum tókst ekki að ljúka
verkefni sínu,“ sagði stjórnarerind-
reki í Phnom Penh. „Sameinuðu
þjóðirnar voru neyddar til að sam-
þykkja að flokkarnir deildu með
sér völdunum. Það kann að hafa
verið eina veijanlega lausnin á
þessum tíma en við fáum nú að
kenna á afleiðingunum.“
Átökin hófust á laugardag eftir
að Hun Sen sagðist hafa fyrirskip-
að hermönnum sínum að ráðast á
„ólöglegar hersveitir“ sem Rana-
riddh hefði flutt til höfuðborgar-
innar. Hun Sen er með fleiri her-
menn í Phnom Penh og réttlætti
ákvörðun sína með því að segja
að prinsinn hefði laumað liðsmönn-
um skæruliðahreyfingar Rauðu
kmeranna inn í höfuðborgina til
að styrkja lið sitt. Ranariddh sagði
ekkert hæft í þeirri ásökun.
Tryggðu aldrei hlutleysi
í stjórnkerfinu
Fréttaskýrendur sögðu að lík-
urnar á því að leiðtogarnir tveir
gætu starfað saman í ríkisstjórn
væru nú nánast engar. Þeir rekja
vandann til mistaka Sameinuðu
þjóðanna þegar þær létu til sín
taka í landinu eftir friðarsamning-
inn 1991 og þar til skömmu eftir
kosningarnar tveimur árum síðar.
„Sameinuðu þjóðirnar tryggðu
aldrei hlutleysi í stjórnkerfinu,“
sagði kambódískur fræðimaður
sem vildi ekki láta nafns síns getið.
Samtökin reyndu að koma á
sáttum með því að skipta ríkiskerf-
inu jafnt milli leiðtoganna tveggja,
þannig að þeir yrðu báðir forsætis-
ráðherrar, auk þess sem flokkar
þeirra deildu með sér völdunum í
ráðuneytum og héraðsstjórnum.
Fræðimaðurinn sagði að í stað
þess að stuðla að sáttum hefði
þetta fyrirkomulag magnað þann
ágreining sem fyrir var milli flokk-
anna.
„í stað eins flokks ríkis fengum
við tvö eins flokks ríki og þau beij-
ast sín á milli,“ sagði fræðimaður-
inn.
Friðarviðræður kornið
sem fyllti mælinn
Hatrömm valdabarátta hófst í
mars á liðnu ári þegar Ranariddh
hótaði að segja skilið við stjómina
ef hann fengi ekki meiri völd til
að stjórna héruðunum. Þegar deil-
an náði hámarki hóf Ranariddh
friðarviðræður við Rauðu kmerana
í von um að geta styrkt stöðu sína
fyrir kosningarnar í maí á næsta
ári með því að ná samkomulagi
við hófsamari leiðtoga skæruliða-
hreyfingarinnar og binda enda á
skæruhernað hennar.
Fréttaskýrendur telja að Hun
Sen hafi óttast að Ranariddh væri
um það bil að ná samkomulagi
við pólitískan leiðtoga Rauðu
kmeranna, Khieu Samphan, og
það hafi verið kornið sem fyllti
mælinn.
Blað allra landsmanna!
Pí>T0imií»!Iatiií>
- kjarni málsins!
fcihafer pffar
tí sily
OK MH4 PIus hjólaqrafa,
16 tonn, órgero 1989.
FURUKAWA 625 E beltagrofo,
15 tonn, árgerð 1991.
Báðar vélarnar eru í góðu
ástandi.
Nánari upplýsingar gefa
sölumenn oRkar.
,L«í
Lokað í dag
Útsalan hefst á morgun
Opnum
kl. 10.00
Topptilboð
Herrasandalar
Verð nú: 2.995,-
Verð áður
Tegund: AM 31402
Litir: Ýmsir brúnir
Stærðir: 40-46
T
f Póstsendum samdægurs j
óppskórinn
v/lngólfstorg • v/Veltusund • S. 552 1212
FORNMENNINQARHÁTÍÐ - FJÖLSKYLÐUSKEMMTUN - FRÓÐLEIKUR - FÓLK OQ SAQA
Víkínsahátíð í Hafnarfirði
9. iuií kl. 16.00
kl. 90.00
VÍÐISTAÐATÚN, forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar Qrímsson, setur hátíðina.
Víkingahátíðin opin til kl. 21.00. Hestasýningar, handverksfólk, bardagamenn,
eldsmiðja, leikþættir, víkingaveitingar, glímumenn o.fl.
NORRÆNA HÚSIÐ, fyrirlestrar sérfræðinga um víkingatímann.
LAMimám
VTMWWS FESTTIWXWL.