Morgunblaðið - 09.07.1997, Síða 30
^30 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir
og tengdadóttir
ÚLLA HARÐARDÓTTIR
lést á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
mánudaginn 7. júlí sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jóhannes Eiðsson, Brynja & Birta Jóhannesdætur,
Úlla Sigurðardóttir, Hörður Þórhallsson,
Ágústa Lúðvíksdóttir, Eiður Jóhannesson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN GUNNLAUGSSON
fyrrum flugstjóri,
Geitlandi 6,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 6. júlí.
Bryndís Ólafsdóttír,
Gunnlaugur F. Kristjánsson, Katrín Björnsdóttir,
Einar Kristjánsson, Katrín Ásgrímsdóttir,
Kristján Gunnlaugsson, Kristín Guðmundsdóttir
og barnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSTA HALLDÓRSDÓTTIR,
f.v. snyrtifræðingur,
lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn
5. júlí.
Edda Óskarsdóttir,
Eva Óskarsdóttir, Stefán Jónsson
og fjölskyldur þeirra.
t
Móðir, tengdamóðir, stjúpmóðir og amma,
GUÐRÚN SIGURBJÖRG JÓNASDÓTTIR
vefnaðarkennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 7. júlí.
Friða Björg Eðvarðsdóttir, Þorvaldur Pétursson,
Kjartan Eðvarðsson
og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, sonur og bróðir,
GUNNAR KAPRASÍUS STEFÁNSSON,
Einigrund 20,
Akranesi,
lést föstudaginn 4. júlí á gjörgæsludeild Land-
spítalans.
Jarðsungið verður frá Akraneskirkju föstudag-
inn 11.júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurbjörg Kristjánsdóttir.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi
JÓN HANSON WIUM,
Nóatúni 26,
verður jarðsunginn frá Kristskirkju, Landakoti,
föstudaginn 11. júlí kl. 13.30.
Anna Jónsdóttir,
Einar Jónsson, Sveinhildur Vilhjálmsdóttir,
Rósa S. Jónsdóttir. Guðni Guðnason
og barnabörn
INGA HAFDÍS
HANNESDÓTTIR
+ Inga Hafdís
Hannesdóttir
fæddist á Siglufírði
9. febrúar 1930.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reylqavíkur
28. júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru: Siguijóna Guð-
rún Jóhannsdóttir,
f. 4.5. 1910, d. 11.4.
1995 og Hannes
Lárus Guðjónsson,
f. 6.8. 1905. Systkini
Ingu eru: Jóhann, f.
17.4. 1933, Guðjón,
f. 12.2.1935, Sigurð-
ur, f. 4.7. 1936, Sævar, f. 21.9.
1937 og Rúnar, f. 9.12. 1940.
Inga giftist 7. júní 1954 eftir-
lifandi eiginmanni sínum Helga
Axel Davíðssyni, f. 13.10. 1921.
Foreldrar hans voru Vilborg
Jónsdóttir og Davíð Stefánsson.
Börn Ingu og __ Helga eru
fimm. Þau eru: 1) Árný, f. 30.9.
1947,_ búsett í Garðabæ, var
gift Olafi Sigtryggssyni sem er
látinn. Þau eiga þijú börn, Sig-
trygg, Guðjón og Ingu Hafdísi.
Sambýlismaður Árnýjar er
Stefán Sigurðsson. Þau eiga
einn son, Daníel. 2) Margrét,
f. 14.4. 1954, búsett í Vogum,
gift Baldri Georgs-
syni. Þau eiga þijú
börn, Helgu Rut,
Georg Má og Ingu
Sigrúnu. 3) Hanna
Siguijóna, f. 15.1.
1959, búsett í Vog-
um, fyrrverandi
sambýlismaður Ör-
lygur Kvaran. Þau
eiga tvö börn, Elísa-
betu og Guðjón Pál.
Sambýlismaður
Hönnu er Kristján
Kristmannsson.
Þau eiga einn son,
Kristmann Inga. 4)
Davíð Snæfeld, f. 2.6. 1962,
búsettur í Borgarfirði, kvæntur
Báru Einarsdóttur. _ Þau eiga
fjögur börn, Einar Örn, Sunnu
Rós, Helga Axel og Söru Dögg.
5) Vilborg Sigrún, f. 6.12.1966,
búsett í Vogum. Sambýlismað-
ur Siguijón Kristinsson. Þau
eiga þiju börn, Helga Axel,
Lindu Ósp og Kristin Þór.
Langömmubörnin eru niu. Inga
og Helgi bjuggu allan sinn bú-
skap í Vogum á Vatnsleysu-
strönd.
Útför Ingu fer fram frá
Kálfatjarnarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Þú varst minn vetrareldur.
Þú varst mín hvíta lilja,
bæn af mínum bænum
og brot af mínum vilja.
Við elskuðum hvort annað,
en urðum þó að skilja.
Ég geymi gjafir þínar
sem gamla helgidóma.
Af orðum þínum öllum
var ilmur víns og blóma.
Af öllum fundum okkar
slær ævintýraljóma.
Og þó mér auðnist aldrei
neinn óskastein að finna,
þá verða ástir okkar
og eldur bijósta þinna
ljós á vegum mínum
og lampi fóta minna.
(Davíð Stefánsson)
Kveðja frá eiginmanni,
Helgi Davíðsson.
Elskulega dóttir mín, sem ert
farin í ferðalagið á undan mér. Ég
kveð þig í þetta skipti, með vitund
um endurfundi. Ég veit ekki hvort
það verður á morgun, eða eftir
nokkur ár, en ég vona að það verði
nú ekki langur tími.
Það er nú einu sinni svo að ég
er þess fullviss að við hittumst öll
aftur, og þessi vissa um endurfundi
er góð. Við þurfum öll að ljúka jarð-
vistinni hér. Ég kveð þig þá að sinni,
og bið fyrir kveðju til allra hinna.
Nú, Guð, ég voni að gefi
af gæsku sinni frið.
Að sársaukann hann sefi,
af sálu allri bið.
Og þó að sárt sé saknað,
og sól sé bakvið ský,
þá vonir geti vaknað,
og vermt okkur á ný.
Þá ljósið oss mun leiða,
með ljúfum minningum,
og götur okkar greiða
með góðum hugsunum.
(I.T.)
Guð blessi þig, elskan.
Þinn pabbi,
Hannes.
Með fáeinum orðum viljum við
minnast þín, elsku mamma, sem nú
hefur lokið baráttu þinni við illvígan
sjúkdóm. Við sem fylgdumst með
þér í þessum veikindum sáum aldrei
nema bjartsýni og baráttuvilja. Við
sem eftir lifum huggum okkur við
að þjáningum þínum er lokið. Hafðu
þökk fyrir allt, elsku mamma.
Elsku pabbi, Guð gefí þér styrk
til að takast á við þennan mikla
missi og mundu að þú átt okkur
ailtaf að.
Að kveðjustundu hefur klukkan tifað
og kyrrlát nóttin hulið stjömusýn.
Af djúpum harmi klökkvi bijóstum bifað,
í bliki af tári speglast ást til þín.
En vör sem titrar, bæn og tregi hljóður
og tóm er kallar orðalaust til þín.
Er eftirsjá, í mildi blíðrar móður,
af minningum sem berast ótt til mín.
í bergmálinu mapast mjúkur kliður
með silfurstrengjum óma verkin þín.
Og ástúð þinni, kveðast hljómakviður.
Hvíldu í friði, elsku mamma mín!
(Jóhann Jóhannsson.)
Fjölskylda Ingu vill þakka starfs-
fólki á deild A7 á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og Karitas fyrir frá-
bæra umhyggju, og Hrefnu Krist-
jánsdóttur fyrir alla umhyggju og
hlýju sem hún gaf okkur allan þenn-
an erfiða tíma.
Árný, Margrét, Hanna, Davíð
og Vilborg.
Við viljum minnast Ingu systur,
sem var elst í systkinahópnum. Efst
í hugum okkar og hjörtum er þakk-
læti fyrir að hafa verið svo heppnir
að hafa átt hana að. Þegar eitthvað
kom upp á í gamla daga greiddi hún
farsællega úr málunum.
Oft var kátt á hjalla þegar við
komum til Ingu og Helga í Vogana.
Lagið var þá stundum tekið, enda
söngelsk, bæði sungu meðal annars
í kirkjukórnum til margra ára.
Heimili þeirra bar vott um mikla
snyrtimennsku og gestrisni var í
heiðri höfð.
Eitt eigum við enn, sem enginn
getur tekið frá okkur, fallegar og
góðar minningar um þig, kæra syst-
ir. Helgi minn, við vitum að missir
þinn er mikill og okkar allra.
Guð blessi þig í þinni sorg.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem)
Kveðja frá bræðrum þínum,
Jóhanni, Guðjóni, Sigurði
Sævari og Rúnari.
Vinir kveðja, en vináttan deyr
ekki, hún lifir áfram í perlum minn-
inganna, sem við eigum um elsku-
lega systur og mágkonu. Síðustu
vikur og mánuðir hafa verið þér
erfiðir, elsku Inga, en þessi hetju-
lund og hugrekki voru þér svo í blóð
borin.
Þú sagðir við okkur að þú ættir
eftir að gera svo margt og fyndist
það óréttiæti að þú myndir deyja
eftir nokkra mánuði, slíkur var lífs-
vilji þinn, en það urðu ekki nema
þijár vikur frá því þú sagðir þetta
og þar til yfir lauk.
Hann Helgi og börnin þín gerðu
allt sem í þeirra valdi stóð í veikind-
um þínum. Þar sást best styrkurinn
og samheldnin hjá þeim, þar sem
þau sátu hjá þér dag og nótt uns
yfir lauk. Við hjónin minnumst
núna, þegar við byijuðum búskap á
Brekku í Vogum og leigðum litla
íbúð af ykkur Helga, hvað það var
ánægjulegur tími.
Gaman er að minnast á allar þær
gleðistundir sem við höfum átt með
þér og Helga og var lagið þá oft
tekið og þú söngst með þinni fallegu
rödd.
Inga var mikil pijóna- og hann-
yrðakona, það má best sjá á heimili
hennar í dag, allt sem íiggur eftir
hana. Ekki fæddist barn í fjölskyld-
unni að hún væri ekki búin að pijóna
húfu, peysu eða eitthvað fallegt til
að gleðja með.
Nú eru liðin rúm tvö ár síðan
mamma okkar fór og tekur hún
örugglega vel á móti þér.
Enginn lifir að eilífu, en dauðinn
er alltaf sár. Mestur er missir Helga
og barnanna. Horfir nú Helgi á eft-
ir lífsförunaut sínum eftir fjörutíu
ára farsælt hjónaband. Mikill er
missirinn hjá pabba okkar að missa
ykkur báðar á svo stuttum tíma,
þar sem hann er orðinn aldraður.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Við biðjum góðan Guð að styrkja
elsku Helga, bömin og pabba í þess-
ari miklu sorg.
Samúðarkveðjur.
Guðrún og Sigurður.
Okkur langar til að minnast
ömmu okkar, Ingu Hafdísar. Það
sem er efst í huga okkar er þakk-
læti til þín elsku amma, fyrir allt
það góða sem þú hefur gert fyrir
okkur, og ailt það fallega sem þú
hefur pijónað á okkur, og ávallt
verið tilbúin að passa okkur öllum
stundum, og alla hlýju sem þú hefur
sýnt okkur.
Okkur þótti alltaf gott að koma
til þín og afa og fá nýbakaðar klein-
ur, og ekki má gleyma gijóna-
grautnum sem ávallt var búinn til
ef okkur langaði í.
Engum hefði dottið í hug þegar
við vorum í sumarbústaðnum í
Húsafelli í fyrrasumar að það yrði
okkar síðasta ferðalag sem við fær-
um með þér.
Elsku amma, það er sárt að hugsa
til þess að geta ekki komið í heim-
sókn til þín og faðmað þig.
Elsku afi, Guð gefi þér styrk í
þessari miklu sorg. Við þökkum þér
fyrir að hafa alltaf verið svo góður
við ömmu.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Blessuð sé minning þín, elsku
amma.
Elísabet, Inga, Helgi, Guðjón,
Einar, Sunna, Daníel, Linda,
Helgi, Sara, Kristinn Þór
og Kristmann Ingi.