Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ/UTBOQ
TIL
S 0 L U C«
Jörðin Eystri Sámsstaðir
(tilraunastöð), Fljótshlíð
10866 — Kauptilboö óskast í jörðina Eystri
Sámsstaði, Fljótshlíð (án greiðslumarks),
sem samanstendur m.a. af íbúðarhúsi sem er
291,4 m2, íbúðarhúsi (2 íbúðir) sem er 151,2 m2,
fjósi, hesthúsi, hlöðu, verkfærageymslu o.fl.
Ræktað land er um það bil 65 ha.
Nánari upplýsingar um ofangreinda eign eru
gefnar hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 11.00
þann 29. júlí 1997 þar sem þau verða opnuð
í viðurvist bjóðenda er þess óska.
# RÍKISKAUP
Ú t b o ö s k i I a á r a n g r i I
BORGARTÚNI 7, I 05 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
B r 6 f a s í m i 562-6739-Netfang: rikiskaup&rikiskaup.is
HU5NÆBI OSKAST
100—150 fm húsnæði
óskasttil leigu fyrir rakarastofu miðsvæðis
í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar
í síma 551 1540.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SIMAR 551-1540. 552-1700. FAX 562-0540
SMÁAUGLÝSINGAR
FELAGSLIF
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Miðvikudagur 9. júlí
kl. 20.00
Kvöldganga að Tröllafossi.
Auðveld ganga með Leirvogsá.
Brottför frá BSÍ, austanmegin,
og Mörkinni 6.
Veljið ykkur Ferðafélags-
ferðir í sumar:
Næstu helgarferðir:
1. 11.-13. júli Þórsmörk —
Langidalur.
2. 11.-13. júlí Landmannalaugar
og nágrenni.
3. 11.-13. júlí Hagavatn — Hlöðu-
vellir — Úthlíð, bakpokaferð.
4. 12.-13. júli Yfir Fimmvörðu-
háls. Gist i tjöldum í Þórsmörk.
5. 12.-13. júlí Þórsmörk — Langi-
dalur. Gist í skála eða tjöldum.
Tilvalið að dvelja í Þórsmörk á
milli ferða, t.d. frá sunnudegi til
miðvikudags. Vegna mikillar að-
sóknar á Fimmvörðuháls óskast
pantanir staðfestar fyrir föstu-
dag.
Minnum á fjölda gönguferða um
„Laugaveginn". Alltaf gist í skál-
um F.l. Einnig ferðir þar sem far-
angur er fluttur á milli staða.
Nýjung: Ódýr ungmennaferð um
„Laugaveginn" fyrir aldurshóp-
inn 13-16 ára þann 24.-27. júlí.
Hörgshlið 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund i kvöld kl. 20.00
„ SAMBAND (SLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssalurinn,
Háaleitisbraut 58.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30.
Hugleiðing Ingólfur Gissurarson.
Frjálsir vitnisburðir.
Helga V. Sigurjónsdóttir syngur.
Allir velkomnir.
Orð lífsins, Grensásvegi 8
Samkoma í kvöld kl. 20.00.
Jódís Konráðsdóttir prédikar.
Beðið fyrir lausn á þínum
vandamálum.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
UrAtMI ...blaðið
______viptyu' '1 - kjarni mákins!
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Ljúfir dagar
á Löngumýri
DAGANA 22.-27. júní si.
var 48 manna hópur eldri
borgara frá Vestmanna-
eyjum á sumarferðalagi.
Dvalið var á Löngumýri í
Skagafirði í 5 nætur. Var
það einstaklega ánægjuleg
dvöl og einkar fróðleg þar
sem Margrét húsfreyja fór
með okkur sem frábær
leiðsögumaður í flestar
dagsferðir. Auk þess að sjá
um og stjóma söng spilaði
hún sjálf undir á píanó,
harmonikku eða gítar og
ógleymanleg bænastund
var á hveijum morgni.
Ekki skemmdi verðið fyrir
því gisting og fullt fæði var
innifalið í 3.000 kr. sólar-
hringsgreiðslu og er það
mun ódýrara en við höfum
kynnst áður. En vænst
þótti okkur um kærleikann
og alla hlýjuna sem við
urðum aðnjótandi eins og
einn úr hópnum sagði við
Margréti þegar við kvödd-
um. Ef til er engill þá ert
það þú. Við viljum hvetja
félög eldri borgara og aðra
hópa að unna sér hvíldar
og ánægjulegrar dvalar í
yndislegu umhverfi hjá
góðu fólki á Löngumýri.
Kærar þakkir fýrir okkur.
F.h. Eldri borgara í Vest-
mannaeyjum, Kristjana
Þorfinnsdóttir.
Þulirí
sjónvarpi
KRISTÍN hafði samband
við Velvakanda og vildi
hún koma á framfæri at-
hugasemd vegna þula í
sjónvarpinu. „Þegar maður
sér mynd á skjánum þá er
textinn svo fljótur að renna
hjá að ekki er nokkur ieið
að fylgjast með honum,
sérstaklega ef það er erlent
mál. Einnig vil ég spyrja
að því hvort ekki sé hægt
að fá karlþuli því þeir tala
svo skýrt og skilmerkilega.
Það glymur svo í
kvenþulunum, þær verða
að tala bæði hátt og skýrt
annars skilur maður ekki
hvað þær eru að segja.“
Tapað/fundið
Lyklakippa
tapaðist
LYKLAR töpuðust við
ÁTVR og IKEA við Holta-
garða föstudaginn 4. júlí.
Þetta er einn bíllykill og
tveir aðrir lyklar og
Mitsubishi-kippu. Þeir sem
hafa orðið varir við kipp-
una láti vita í síma
652-2222 (Helgi).
Fatnaður tapaðist
af bílpalli
LAUGARDAGINN 28.
júní tapaðist af bílpalli, á
leiðmni milli Brekkuskógar
og Úthlíðar í Biskupstung-
um, m.a. fatnaður, skór
o.fl. Þeir sem hafa orðið
varir við munina vinsam-
lega hringið i síma
567-1287.
Gult kvenhjól
tapaðist
GULT gamalt kvenhjól
tapaðist frá Dunhaga, gæti
verið í Þingholtunum. Þeir
sem hafa orðið varir við
hjólið vinsamlega hafi
samband í síma 5517527
(Símsvari).
Svart fjallahjól
tapaðist
SVART Moongoose fjalla-
hjól tapaðist frá Keilu-
granda 8, 2. júlí. Þeir sem
hafa orðið varir við hjólið
eru beðnir að hringja í
síma 5524103 eða
560-3626.
Dýrahald
Hundaeigendur
ÞEIR hundaeigendur sem
týnt hafa hundum sínum
eru vinsamlega beðnir um
að hafa samband við dýra-
spítalann í Víðidal strax í
síma 567-4020.
Með morgunkaffinu
Ast er...
5
að hefja rósrauða
framtíð saman.
TM FWg. U.S. Pat. Ofl. — aH righta reserv&a
(c) 1997 Lo* Angeles Times Syndicate
HVORT viltu tala við
húsráðanda eða pabba
minn?
SEM ég segi. Á bak
við hvern karl stendur
kona, sem veit ekki
hvað hún á af sér að
gera.
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
ELSTI stórmeistarinn,
Miguel Najdorf, 87 ára, lést
á Spáni á föstudaginn.
Hann fæddist í Varsjá 15.
apríl 1910, en varð innlyksa
í Argentínu 1939 og bjó þar
síðan. Öll fjölskylda hans
heima í Póllandi lést í seinni
heimsstyijöldinni. Najdorf
vann fimm heimsmeistara,
þá Botvinnik, Smyslov, Tal,
Petrosjan og Fischer. Hann
var afar litríkur og vinsæll
og tefidi á mótum fram á
níræðisaldur. Við skulum
líta á fræga skák sem hann
tefldi í Varsjá árið 1935:
Hvítt: Gliksman, svart:
Najdorf, Hollensk vörn.
1. d4 - f5 2. c4 - Rf6
3. Rc3 - e6 4. Rf3
— d5 5. e3 — c6
6. Bd3 - Bd6 7.
0-0 - 0-0 8. Re2
- Rbd7 9. Rg5? -
Bxh2+ 10. Khl -
Rg4 11. f4 — De8
12. g3 - Dh5 13.
Kg2 (Svartur hef-
ur unnið peð, en
er hann ekki í
vandræðum með
biskupinn á h2?
Staðan á stöðu-
myndinni er komin
upp og nú hefst
ótrúleg flugelda-
sýning, Najdorf fórnar á
báðar hendur)
13. - Bgl!! 14. Rxgl -
Dh2+ 15. Kf3 - e5! 16.
dxe5 — Rdxe5+! 17. fxe5
— Rxe5+ 18. Kf4 — Rg6+
19. Kf3 - f4! 20. exf4
(Eða 20. Bxg6 - Bg4+! 21.
Kxg4 - Dxg3+ 22. Kh5 -
hxg6+ 23. Kxg6 - Hf6+
24. Kh5 - Hh6 mát) 20. -
Bg4+! (Nú tapar hvítur
drottningunni eða verður
mát) 21. Kxg4 - Re5+ 22.
fxe5 — h5 mát.
IIF
%
m
.^
k
n ® HHI ^Éll
SVARTUR leikur og vinnur
Víkveiji
EINHVERN tíma hefði maður
ekki trúað því, að það gæti
reynst ódýrara fyrir ferðalanga hér
innanlands, að ferðast flugleiðis á
milli áfangastaða, heldur en að taka
sér far með rútu, að gömlum og
gegnum íslenskum sið. Sú er samt
sem áður raunin, að minnsta kosti
þessa dagana, þegar neytendur
njóta árdaga samkeppninnar í flugi,
með tilkomu frelsisins þann 1. júlí
sl. Núna kostar 6.900 krónur að
fljúga til Akureyrar og aftur til
Reykjavíkur, ef valið er að fljúga
með íslandsflugi_ og ef flogið er
með Flugfélagi íslands, þá kostar
sama fargjald 7.330 krónur. Ef á
hinn bóginn er ferðast með rútu
Norðurleiðar til Akureyrar og aftur
til baka, þá kostar fargjaldið 7.000
krónur. Því eru líkur á því, a.m.k.
á meðan þessi kostaboð flugfélag-
anna standa ferðalöngum til boða,
að sérleyfishafar áætlanabifreiða,
missi viðskipti til flugfélaganna.
xxx
skrifar...
EKKI eru sömu líkur á að þeir
sem ferðast á eigin bílum
ákveði að fara fremur flugleiðis,
því strax og tveir eru um bílinn,
þá er ferðin orðin ódýrari en flug-
ferðin og þegar þrír eða fleiri eru
í bílnum, þá sparast umtalsverðar
fjárhæðir, í samanburði við flugið.
Þar að auki hefur ferðalangurinn
sína eigin bifreið til umráða, þegar
á áfangastað er komið, gagnstætt
því sem er þegar ferðast er flugleið-
is.
xxx
ALLTAF er nú jafn gaman að
þeysa um þjóðvegi landsins
þar sem bundna slitlagið sniglast æ
lengra um hringveginn og teygir
sig líka inn á stöku kafla á minni
háttar vegum. Trúlega að miklu
leyti eftir því hvernig þingmönnum
hefur tekist að ota og pota í sameig-
inlega peningapunginn fyrir vega-
áætlunina í sinni sveit.
Á einni fjölförnustu leið landsins,
vegamótum Suðurlandsvegar við
Hveragerði þar sem fara um rúm-
lega 5 þúsund bílar á dag á sumr-
in, er hvimleiður galli á gjöf Njarð-
ar. Þarna var sett niður hringtorg
fyrir fáum árum, sem er gott og
blessað, en þegar ekið er út úr því
verður fyrir alltof kröpp beygja.
Gildir þetta um allar leiðir út úr
torginu en flestir verða þess þó
varir sem aka austur eða vestur
hringveginn.
Engin þörf er á þessari kröppu
beygju og hlýtur að vera hægt að
eyða nokkrum fermetrum af mal-
biki í viðbót til að gera beygjuna
mýkri - enda fara menn greinlega
út fyrir malbikið og hafa fyrir vikið
myndast þar hinar myndarlegustu
holur. Bflstjórar stóru bílanna verða
mest fyrir barðinu á þessum ágalla
en líka við á venjulegu fjölskyldubíl-
unum. Væri nú ekki ráð að Vega-
gerðin bjargaði þessu við tækifæri
með einum af sínum knáu vega-
gerðarflokkum.