Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mann-
gerður
goshver í
Oskjuhlíð
BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam-
þykkti í gær tiilögu að frágangi
manngerðs goshvers eða gosvirkis
sem ráðgert er að reisa í Öskjuhlíð,
140 metrum sunnan við Perluna.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar Veitustofnana Reykjavíkur,
segir áætlað að framkvæmdir hefjist
í þessum mánuði með borunum á
vegum Jarðborana. Bora á 30 metra
djúpan brunn og leggja að leiðslu
neðanjarðar sem veitir jarðhitavatni
í brunninn. Að borunum loknum
hefst vinna við umhverfi þessa
mannvirkis. Heildarkostnaður við
framkvæmdina verður um 20 millj-
ónir króna og segist Alfreð ekki viss
' um að endanlegri vinnu ljúki fyrr
en næsta vor.
Alfreð segir að fyrst og fremst
sé ráðist í þessa framkvæmd vegna
þess að heita vatnið sé eitt af aðals-
merkjum Reykjavíkur. Það hafi hins
vegar ekki verið nægilega sýnilegt
í borginni. „Með því að koma upp
þessu gosvirki og tengja Perlunni
er meiningin að koma þarna upp
aðstöðu til að kynna heita vatnið
fyrir ferðamönnum, skólafólki og
ýmsum öðrum sem áhuga hafa á,“
sagði Alfreð. Hann segir að um 400
þúsund gestir komi í Perluna árlega
og lengi hafi verið leitað leiða til að
koma upp aðstöðu til kynningar af
þessu tagi.
-v«53£
Goshæðin 10-15 metrar
í tillögunni sem borgarráð sam-
þykkti í gær segir að staðurinn þar
sem gosvirkið verður sett upp sé í
fjarlægð frá tijágróðri og ættu ríkj-
andi vindáttir að feykja vatni frá
aðliggjandi stígum. Skál umhverfis
gosopið verður 6 metrar í þvermál
og lögð grágrýti; umhverfis verður
20 metra öryggissvæði frá opi gos-
virkisins og þar verður komið fyrir
möl og hnullungum svipuðum þeim
sem eru neðar í hlíðinni. Út frá að-
— . jliggjandi stígum verða tveir áningar-
staðir.
í greinargerð með tillögunni kem-
ur fram að goshæð verði um 10-15
metrar, hegðun gossins verði hægt
að stjórna og gert er ráð fyrir að
gosið verði í gangi frá t.d. 11-16 á
daginn, með vissu millibili, breyti-
legu eftir aðstæðum. Hægt verður
sað framleiða gos með ákveðnum
fyrirvara á öðrum tímum.
Margir lífeyrissjóðir hafa aukið réttindi í kjölfar bættrar stöðu
Líkur á að fleiri
sjóðir auki réttindi
Mjólkurbíllvalt
Ain hvít
eins og
jökulsá
MJÓLKURBÍLL rakst utan í
brúarstólpa við Valshamarsá á
Skógarströnd um hálfsexleytið
í gær með þeim afleiðingum
að hjólin brotnuðu undan hon-
um hægra megin. Tengivagn
slitnaði aftan úr mjólkurbíln-
um og valt út af veginum.
10 tonn af mjólk voru í
mjólkurbílnum og 5 tonn í
tengivagninum. Rann mjólk
úr tengivagninum í Valsham-
arsá og samkvæmt lýsingum
lögreglunnar var áin hvít eins
og jökulsá fyrst eftir óhappið.
Reynt var að tappa af tanki
mjólkurbílsins, en hætta þurfti
við vegna þess að hætta var á
því að bíllinn ylti. Óhappið
varð á þjóðvegi nr. 57 og var
vegurinn lokaður af þessum
sökum í gærkvöld og fram á
nótt.
ÞEIM lífeyrissjóðum hefur fjölgað
sem hafa ákveðið að auka lífeyris-
réttindi sjóðfélaga vegna bættrar
fjárhagsstöðu. Skv. upplýsingum
Hrafns Magnússonar, framkvæmda-
stjóra Sambands almennra lífeyris-
sjóða, má búast við að þessi þróun
haldi áfram. Hafa sjóðirnir ýmist
aukið réttindaávinnslu með því að
hækka stigainneign sjóðsfélaga eða
bætt lífeyrisréttinn.
Margir lífeyrissjóðir hafa náð að
ávaxta ráðstöfunarfé sitt langt um-
fram tryggingafræðilegar forsend-
ur, sem miðaðar eru við 3,5% árlega
raunávöxtun umfram vísitölubreyt-
ingar. Ekki liggur fyrir heildaryfirlit
yfir þessar breytingar hjá öllum líf-
eyrissjóðum en skv. upplýsingum
Morgunblaðsins hafa a.m.k sex líf-
eyrissjóðir ákveðið á undanfömum
mánuðum að bæta lífeyrisréttindi
sjóðfélaga vegna góðrar ávöxtunar.
Þeir eru Lífeyrissjóður verzlunar-
manna, Söfnunarsjóður lífeyrisrétt-
inda, Lífeyrissjóður Vestfirðinga,
Lífeyrissjóður Norðurlands, Lífeyris-
sjóður Vesturlands og Sameinaði líf-
eyrissjóðurinn.
Markaðsvirði eigna
að nálgast 350 milljarða?
Viðmælendur blaðsins reikna með
að fleiri sjóðir fylgi í kjölfarið. Örn
Arnórsson, skrifstofustjóri Lífeyris-
sjóðsins Framsýnar, segir að skv.
síðustu tryggingafræðilegu úttekt,
miðað við árslok 1996, hafi sjóðurinn
átt um 4 milljörðum kr. óráðstafað.
„Að öllum líkindum bíður það næsta
ársfundar að ákvarða hvernig því
verður ráðstafað," segir hann.
Ávöxtun sjóðsins var um 8% á sein-
asta ári, eignir í lok síðasta árs 29,3
milljarðar og hlutfall þeirra umfram
skuldbindingar 13,6%.
Lífeyrissjóðir ávaxta eignir sínar
í innlendum og erlendum verðbréf-
um. Með núvirðingu verðbréfaeignar
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna nýver-
ið hækkuðu eignir hans um 8,4 millj-
arða kr. eða um 18,5%. Ýmsir sjóðir
hafa fært hlutabréfaeign sína upp
að markaðsvirði. Talið er að um ára-
mót hafi hrein eign lífeyrissjóða
numið um 300 milljörðum kr. Skv.
áætlun sem gerð var í árslok 1995
var talið að færa mætti upp raun-
verulegar eignir lífeyrissjóðanna um
10-15% miðað við markaðsvirði.
Skv. þessum forsendum má ætla að
verðbréfaeignir sjóðanna, metnar á
markaðsvirði, séu nálægt hálfu
fjórða hundraði milljarða króna.
■ Sjóðir auka/11
Morgunblaðið/Júlíus
HORFT til suðvesturs frá inntaksþrónni. Rétt neðan við gröfuna á stöðvarhúsið að rísa. Frárennslisskurðurinn verður 7,2 km langur
°g liggur rétt vestan við Þjórsá lengst af en um 800 metrum ofan við veitustíflu Búrfellsvirkjunar liggur hann út í farveg árinnar.
Fjárfest fyrir 220-250 millj.
vegna virkj anaframkvæmda
FYRIRTÆKIÐ Suðurverk hf.,
sem ásamt Arnarfelli ehf. vinn-
ur að gerð 7,2 km frárennslis-
skurðar frá fyrirhuguðu stöðv-
arhúsi Sultartangavirkjunar,
fjárfestir fyrir 220-250 millj-
ónir kr. vegna framkvæmd-
anna. Fyrirtækið hefur pantað
átta stór tæki, þar á meðal 87
tonna gröfu sem verður sú
stærsta í landinu.
Dofri Eysteinsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir að auk þess hafi fyrirtæk-
ið pantað tvo borvagna og fimm
37 tonna flutningabíla.
Hátt í átta hundruð tonn
af sprengiefni
Framkvæmdir við skurðinn
hefjast í lok þessa mánaðar.
Aætlað er að fjarlægja þurfi
rúmlega 3 milljónir rúmmetra
af jarðvegi við gerð skurðarins,
þar af þurfi að sprengja um 1,7
milljónir rúmmetra. Notuð
verða hátt í 800 tonn af sprengi-
efni.
Einnig eru að hefjast fram-
kvæmdir við stöðvarhús og að-
rennslisgöng frá Sultartanga-
stíflu að húsinu.
500 þúsund rúmmetrar af
jarðvegi verða fjarlægðir við
gerð ganganna, eða 100 þúsund
rúmmetrum meira en úr Hval-
fjarðargöngum.
■ Stórframkvæmdir/6
Fyrsta
dilkaslátrun
sumarsins
Hvammstangi. Morgnnblaðid.
BYRJAÐ er að slátra sum-
arlömbum hjá Ferskum afurð-
um á Hvammstanga samkvæmt
samningi Ferskra fjárbænda og
Hagkaups. Lömbin voru frá
Bessastöðum við Hrútafjörð,
borin í apríl og byijun maí.
Meðalvigtin varð um 13 kg og
flokkun góð. Kjötið verður selt
í verslunum Hagkaups nú fyrir
helgina. Ráðgert er að slátrun
verði vikulega samkvæmt
samningi þessara aðila, í sumar
og haust, allt fram í desember.