Morgunblaðið - 26.07.1997, Side 6

Morgunblaðið - 26.07.1997, Side 6
6 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjúkrahúsi varpaðúr Djútsín-vél yf- ir Amessýslu Vettvangsæfíng Samvarðar 97 hófst í gær- morgun. Guðjón Guðmundsson flaug í Ilj- útsín-vél rússnesku björgunarsveitarinnar og fylgdist með þegar á annan tug tonna rann aftur úr vélinni í 1.500 feta hæð. FLYTJANLEGU sjúkrahúsi og flutningabíl var varpað úr Iljútsín flutningaflugvél rússnesku björgunarsveitarinnar yfir Árnessýslu í gærmorgun þeg- ar vettvangsæfing Samvarðar 97 hófst. Á eftir farminum stukku um 25 björgunarmenn í fallhlífum í um 1.200 feta hæð. Það var lágskýjað og rigning og talsverð spenna meðal björgunarmann- anna. Aðstæður voru ekki ákjós- anlegar. Stokkið var úr lítilli hæð og hraði flugvélarinnar var 300-320 km á klst. Þegar blaðamaður kom um borð í Iljútsín-vélina á Keflavíkur- flugvelli upp úr kl. átta í gær- morgun voru þar fyrir fjórir félag- ar í Flugbjörgunarsveitinni sem ætluðu að taka þátt í æfingunni. Þeir voru tilbúnir í æfinguna en það var greinilegt að undirbún- ingur Rússanna var skemmra á veg kominn. Nokkrir þeirra sem komnir voru um borð unnu að því að festa lausa hluti í innanrým- inu, svo sem stiga, hlemma utan af hreyflunum og fleira smálegt. Aftast í vélinni var pallur með flutningabíl af rússneskri gerð og þar fyrir framan var enn stærri pallur með sjúkrahúsinu flytjan- lega. Þegar vélin kom til íslands FALLHLÍFIN að opnast og annar á leiðinni út. í upphafi æfingarinnar bar hún einnig litla þyrlu og menn undruð- ust hvar allur mannskapurinn, 16 sjúkraliðar, 16 manns sem sjá um að setja upp sjúkrahúsið og 10 björgunarsveitarmenn, hefði hafst við. Skipulögð ringulreið Rússneska sveitin kom um borð um kl. 9 og var þá þröng á þingi í þessari stóru vél. Athygli vakti hve mikil ringulreið var um borð þegar björgunarliðar leituðu að búnaði sínum sem var í hlaða við síðu vélarinnar og útbjuggu sig. Það var mikið skrafað á rúss- nesku og kallað og vandfundið væri það flugfélag sem leyfði jafn miklar reykingar og stundaðar voru í þessu flugi. Pétur Kristjánsson, félagi í Flugbjörgunarsveitinni, sagði blaðamanni að þrátt fyrir að fyrir- komulagið virtist tilviljunarkennt væru þetta fremstu menn á sínu sviði. Stökkstjóri Rússanna á til að mynda að baki 6.500 stökk. Pétur sagði líka að Rússarnir væru með fyrsta flokks búnað. Hvorki sæti né belti Vélin hóf sig á loft með miklum vélargný laust eftir kl. 9.30. Eng- in sæti buðust í þessari flugferð hvað þá heldur öryggisbelti og þurftu sumir að gera sér að góðu að halda í víra sem voru strengdir í loft vélarinnar. Flugið í Árnes- sýslu tók vart meira en tíu mínút- ur en þar var áformað að varpa út bílnum og sjúkrahúsinu. Sveim- að var yfir svæðinu nokkra stund til að reikna út vindáttir og hvar hentugast væri að varpa búnaðin- um út. Menn höfðu gefið sér að búnaðurinn hafnaði á svæði miðja Undirritaður samningxtr um byggingu heilsugæslustöðvar 670 milljónir í sex nýjar heilsugæslustöðvar INGIBJÖRG Pálmadóttir, heilbrigð- isráðherra, Friðrik Sophusson, fjár- málaráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, undirrituðu samning ríkis og borgar um bygg- ingu heilsugæslustöðvar við Efsta- leiti 3 í Fossvogi á Heilsuverndar- stöðinni í gær. Ingibjörg Pálmadóttir sagði að með opnun nýrrar heilsugæslustöðv- ar í Laugarási í Biskupstungum hefði uppbyggingu heilsugæslunnar úti á landsbyggðinni lokið. Við tæki upp- bygging heilsugæslustöðva í höfuð- borginni og í nágrenni hennar. Nú hefur verið samið um varanlegar lausnir fyrir 6 heilsugæslustöðvar. Heildarkostnaður uppbyggingarinn- Lokið er uppbyggingu heilsugæslustöðva á landsbyggðinni og á næstunni verður hafist handa við uppbyggingu slíkra stöðva í Reykjavík og nágrannabyggðum. ar er talinn vera um 670 milljónir. Við undirritun samningsins tók Ingibjörg fram að heilsugæslustöðin væri langþráð og staðsetning hennar hefði verið ákveðin árið 1995. Heilsu- gæslustöðin verður 874 fm að flatar- mál og er ætluð fyrir 6 lækna. Bygg- ingarkostnaður hefur verið áætlaður um 145 milljónir króna og er gert ráð fyrir að ríkissjóður greiði rúmar 123 milljónir og Reykjavíkurborg greiði 21,8 milljónir. Eftir að samn- ingurinn hefur verið undirritaður verður byggingin boðin út í einu lagi og eru verklok áætluð í marsmánuði árið 2000. Nú starfa 3 læknar við heilsugæslustöðina í húsnæði Sjúkra- húss Reykjavíkur í Fossvogi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg- arstjóri, tók undir með nöfnu sinni að um langþráða stund væri að ræða. Hún nefndi í því sambandi að síðast hefði ný heilsugæslustöð í Reykjavík verið vígð við Vesturgötu árið 1989. Þegar hin nýja heilsugæslustöð yrði vígð yrðu því 11 ár liðin frá því vígð hefði verið heiisugæslustöð í Reykja- víkurborg. Enn hefði talsverður ijöldi borgarbúa ekki aðgang að heilsu- gæslustöð og úr því væri brýnt að bæta. Varanlegar lausnir fyrir 6 heilsugæslustöðvar Hjá Ingibjörgu Pálmadóttur kom fram að uppbygging heilsugæslu- stöðvanna í borginni hefði verið grundvallaratriði í samningi ríkis og heilsugæslulækna á síðasta ári. Nú þegar hefur verið samið um varan- legar lausnir fyrir 6 heilsugæslu- stöðvar í höfuðborginni og nágrenni hennar. Leigusamningur fyrir heilsu- gæslustöð í 500 fm húsnæði í Þver- holti 2 í Mosfellssveit var undirritað- ur í maí sl. Leigutíminn er 15 ár og ber leigusala að skila húsnæðinu til- búnu til notkunar í ársbytjun árið 1998. Með samningnum flyst heilsu- gæslustöðin úr 250 fm húsnæði á Reykjalundi. ÞÚ KAUPIR EINN KjÓL Á ÚTSÖLUNNI OG FÆRÐ ANNAN ÓKEYPIS S U Ð Ú RK RINGLUN N I Morgunblaðið/Jim Smart SKRIFAÐ undir samning ríkis og borgar um byggingu heilsu- gæslustöðvar í Fossvogi, f.v. Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. I l Undirritaður var samningur um byggingu fyrsta áfanga heilsugæslu- stöðvar við Smárahvamm í Kópavogi árið 1995. Verklok við heilsugæslu- stöðina eru áætluð í byrjun mars á næsta ári. Húsið er 840 fm að flatar- máli og er heildarkostnaður áætlaður 133 milljónir króna. Nýju heilsu- gæslustöðinni er ætlað að koma til viðbótar núverandi heilsugæslustöð í Fannborg 7-9. Húsnæðið er ekki aðeins óhentugt heldur er einnig löngu orðið of þröngt um vaxandi starfsemi heilsugæslustöðvarinnar í Fannborginni. Samið hefur verið við Álftárós ehf. um kaup á húsnæði fyrir heilsu- gæslustöð á Garðatorgi 7 í Garðabæ. Kaupverðið er um 109,3 milljónir. Seljandi skilar húsnæðinu tilbúnu til notkunar 1. október nk. Nýja heilsu- gæslustöðin verður I 923 fm hús- næði eða rétt rúmlega helmingi stærra húsnæði en núverandi hús- næði við Garðaflöt 16-18. Undirritaður hefur verið samning- ur við Öldrunarsamtökin Höfn um leigu á viðbótarhúsnæði fyrir heilsu- gæslustöðina Sólvang í Hafnarfirði. Leigutíminn er 5 ár og er að þeim tíma liðnum gert ráð fyrir því að eignin verði keypt. Kaupverðið er samkvæmt núverandi verðlagi 30,7 milljónir króna. Nýja húsnæðið er við Sólvangsveg 3 og er 313 fm að flatarmáli. Við hana er áformað að 2-3 læknar ásamt aðstoðarfólki starfi. Nú er unnið að teikningum á D- álmu Sjúkrahúss Suðumesja. Þar er áætlað að stækka heilsugæslustöðina um 121 fm. Nýja húsnæðið verður til viðbótar öðru eldra og liggur vel að því. Kostnaður er áætlaður um 17,5 milljónir og er gert ráð fyrir að verkinu ljúki í byrjun næsta árs. Viðræður um úrbætur í Grafarvogi ) Sérstaklega er getið um að nauð- I synlegt sé að efla ofangreindar heilsu- gæslustöðvar í greinargerð heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytisins frá því í júlí í fyrra. Einnig er talað um að efla þurfi heilsugæslustöðvar í Grafarvogi, Voga- og Heimahverfí, á Hlíðasvæði og stækka heilsugæslu- stöð í Árbæ. Vonir standa til að við- ræður um úrbætur í Grafarvogi skili árangri á næstu vikum. í greinargerð- inni er gert ráð fyrir að úrbótum í byggingarmálum heilsugæslustöðv- ) anna verði lokið árið 2005. Eins og áður er getið hafa varan- legar úrbætur fengist á 6 heilsu- gæslustöðvum á fyrsta árinu. Áætl- aður kostnaður vegna þeirra lausna er um 434,8 milljónir króna af þeim 670 milljónum króna sem gert er ráð fyrir í áðumefndri greinargerð að heildarkostnaður verði við þessa upp- byggingu. Þá er ekki talinn með kostnaður vegna leiguhúsnæðis í Mosfellssveit. Stækkun heilsugæslu- stöðvanna verður samtals um 2.600 fm.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.