Morgunblaðið - 26.07.1997, Side 7
1
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ljósmynd/Chris North
UNDIRBÚNINGUR í fullum gangi fyrir stökkið. Búið er að varpa út flutningabilnum og sjúkrahúsinu.
vegu milli Eyrarbakka og Selfoss,
nálægt Sandavík.
Upp úr kl. 10 kvað við rússnesk
raust í hátalarakerfi vélarinnar.
Björgunarliðar hlustuðu í fyrstu
hljóðir en síðan heyrðist kurr í
mannskapnum. Þeim hafði verið
fyrirskipað að skipta um fallhlífar,
taka af sér ferhyrndu hlífarnar og
setja á sig kringlóttar fallhlífar
sem notaðar eru þegar stokkið er
úr lítilli hæð. Veðrið var farið að
setja strik í reikninginn. Það gerði
líka vonir Flugbjörgunarsveitar-
mannanna fjögurra að engu. Þeir
höfðu ætlað að stökkva með einni
af fremstu björgunarsveitum
heims og taka þátt í umfangs-
mestu almannavarnaæfingu sem
haldin hefur verið á íslandi. En
þeir höfðu ekki búnað til að
stökkva við þessar aðstæður.
STÖKKSTJÓRI rússnesku björgunarliðanna leggur íslendingun-
um, Ólafi H. Ólafssyni, Guðmundi Guðjónssyni, Pétri Kristjáns-
syni og Konráð Skúlasyni, lífsreglurnar fyrir stökkið sem aidrei
var stokkið. Pétur, sem á 220 stökk að baki, og Konráð sem hef-
ur stokkið 240 sinnum, voru stökksljórar íslenska hópsins.
Kl. 10.13 skar í óvarin eyrun
eitt það háværasta flautuhljóð sem
undirritaður hefur þurft að þola.
Um leið opnaðist afturhleri flug-
vélarinnar og fallhlífar skutust út
um opið. Þær drógu á eftir sér
pallinn með flutningabílnum sem
aftur dró á eftir sér fallhlíf sem
tengd var pallinum með sjúkrahús-
inu. Það liðu vart meira en 10
sekúndur áður en allur farmurinn
var kominn út úr vélinni og sveif
niður 1.500 fet í fallhlífum til jarð-
ar í Árnessýslunni. Svo hljóðlega
og snurðulaust gekk þetta fyrir
sig að eftir á að hyggja var eins
og það hlyti að hafa verið óþarfi
að þeyta flauturnar af svo miklum
móð.
Læknarnir
skildir eftir
12 mínútum síðar stukku
fyrstu björgunarliðarnir þegar
vélin var í um 1.200 feta hæð.
Stokkið var út um dyr á stjórn-
borða og bakborða á framan-
verðri vélinni, sex hvorum megin
í einu. Þar sem stokkið er úr svo
lítilli hæð og við slæm veðurskil-
yrði geta fallhlífarstökkvararnir
aðeins að litlu leyti stýrt för sinni
til jarðar. Það var því áhöfnin í
flugstjórnarklefanum, sem reikn-
aði út hagstæðasta stökktímann
miðað við vindáttir og ákvað hve-
nær yrði stokkið. Um kl. 10.35
stukku síðustu björgunarliðarnir
en vegna erfiðra aðstæðna varð
að skilja eftir tvo lækna, sem áttu
að vera farþegar á leiðinni niður.
Á leiðinni til baka til Keflavíkur
gafst blaðamanni tækifæri til að
setjast í stjórnklefa Iljútsínvélar-
innar og fylgjast með aðfluginu.
Á slaginu ellefu snerti vélin jörð
og velheppnaðri æfingu var lokið.
BMW 3 línan með spólvöm / læstu drifi
VERO FRÁ 2.288.000
% Q
B8.L Suðurlandsbraut 14, sími 553 8636
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 7
FRAMÚR-
SKARANDI
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
ptorgtmMatoið
■kjarni málslns!
Ö
Á SeleCt hraðverslununum við Suðurfell og Vesfurlundsveg
fæst ilmandi nýtt brauð og bakkelsi allan daginn,
alla daga vikunnar. Við bökum sjólf oft á dag
og tryggjum þannig bæði gæði og ferskleika.
oeiecr
ALLTAF FERSKT
SHEILSTÖDVARNAR VID VESTURLANDSVEG OG SUDURFELL www.shell.is