Morgunblaðið - 26.07.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Eiríkur Benjamínsson
GUNNAR Stígsson fékk þennan 17 punda hæng í Hellisá á
Síðu. Agnið var heimagerð fluga númer 12.
Búist við
2.000
löxum úr
Norðurá
NORÐURÁ í Borgarfirði fór yfir
1.200 laxa á föstudagsmorgun.
Þetta er ívið betri veiði en á sama
tíma í fyrra. Þá fengust alls 1.960
laxar úr ánni og sagðist Bergur
Steingrímsson, framkvæmda-
stjóri SVFR, vona að Norðurá
færi yfir 2.000 laxa í sumar.
Undanfarna daga hefur fengist
heldur vænni fiskur en dreginn
var á sama tíma í fyrra. Sem
vænta má er mikil eftirspurn eftir
veiðileyfum í Norðurá og eru allar
stangir á svæði 2 seldar í sumar
og að seljast upp á svæði 1, enda
nógur fiskur í ánni að sögn Bergs.
Veiði í Stóru-Laxá í Hreppum
fór rólega af stað en hefur glæðst
upp á síðkastið, enda venjulega
meiri veiði í ánni síðsumars. Á
miðvikudag voru komnir 59 laxar
af svæðum 1 og 2, á 3. svæði 56
laxar og 44 af því fjórða, samtals
159 laxar.
Elliðaárnar eru ekki nema hálf-
drættingur á við síðasta ár. Á
fimmtudagskvöld voru komnir
253 laxar úr ánum. Bergur Stein-
grímsson sagði menn hafa ýmsar
skýringar á þessum samdrætti,
meðal annars að veiðin byggðist
mikið á sleppingum. í fyrra var
engum fiski sleppt og öllum seið-
um fargað.
Gott í Leirvogsá
Tuttugu og einn lax kom á land
úr Leirvogsá á þriðjudag og höfðu
þá veiðst alls 190 laxar í ánni í
sumar. Veitt er á tvær stangir
og er þessi afli því að meðaltali
3,27 laxar á hvern stangardag.
Nægur fiskur mun vera í ánni.
Búið er að sleppa á fimmta
hundrað hafbeitarlaxa í Hellisá á
Síðu. Vel hefur aflast frá því veiði
hófst 12. júlí síðastliðinn. Veitt
er á þrjár stangir og fyrstu ellefu
veiðidagana fengust 50 laxar og
tólf 2-3 punda urriðar í Hellisá.
Að sögn eins umsjónarmanna ár-
innar kom þessi urriðaveiði mönn-
um nokkuð á óvart.
Hörgsá á Síðu, neðan brúar,
hefur verið ágætist sjóbirtingsá.
Veiðimenn, sem voru þar á
fimmtudag, fengu einungis einn
sjóbirting en þrjá laxa, 7-11
punda og nokkrar bleikjur.
Formaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn
Flóknar rannsóknir
nauðsynlegar á Laxá
SETTUR hefur verið fram rann-
sóknarammi á áhrifum sandburðar
í Laxá og mun Náttúrurannsókna-
stöðin við Mývatn hafa frumkvæði
að þeim rannsóknum og fá meðal
annarra til liðs við sig vatnamæl-
ingamenn Orkustofnunar. Gísli Már
Gíslason prófessor og stjórnarfor-
maður stöðvarinnar segir að margs
konar og flóknar rannsóknir þurfi
að fara fram áður en hægt sé að
segja nokkuð með vissu um áhrif
sandburðar á lífríki Laxár.
Árni Einarsson kynnti rann-
sóknaáætlunina á fundi í Veiðifé-
lagi Laxár og Krákár á miðviku-
dagskvöld og var leitað eftir við-
brögðum fundarmanna. Gísli Már
Gíslason segir að nú þurfi að út-
færa áætlunina frekar í samráði við
fleiri sérfræðinga á þessum sviðum.
Byrjað að mæla
þykkt á sandi
Rannsóknirnar munu í fyrsta lagi
beinast að því hversu mikill sandur
sé í Kráká og Laxá og í öðru lagi
hvernig hann berst um árnar. Er
þegar byijað að mæla þykkt á sandi
á nokkrum stöðum til að prófa að-
ferðafræðina. Síðan þarf að kanna
áhrifin sem Gísli segir að sé mun
viðameiri og flóknari þáttur.
„Við vissum að sandur eyðilegg-
ur hrygningarsvæði, búsvæði fyrir
mý og annað en jafnvel þótt hægt
væri að bæta það þarf að spyija
hvort bitmýið hafi þá nóg að éta
og þar fram eftir götunum," sagði
Gísli. Hann sagði einnig að spyija
þyrfti hvort hrygningarsvæðin tak-
mörkuðu fjölda laxa eða fæðan fyr-
ir laxaseiðin.
Gísli nefndi sem dæmi að á urr-
iðasvæðinu efst í Laxá væru náin
tengsl milli fæðuframboðs, þ.e.
þéttleika á lirfum og framleiðslu
og veiði á urriða og virtust hrygn-
ingarsvæðin þar ekki hafa áhrif.
Einnig benti hann á að sýnt hefði
verið fram á að ástandið í sjó hefði
mikil áhrif á laxinn þegar hann
héldi til sjávar eftir fyrstu þijú árin
í ánum og kæmi til baka að einu
til tveimur árum liðnum. Sagði hann
að ekki væri hægt að taka einn
þátt út úr samhengi og halda fram
að hann einn hefði dregið úr lax-
veiði enda sýndi 20 ára meðaltal
að Laxá væri gjöfulasta laxveiðiá
í landinu þótt sveiflur væru milli
einstakra ára. Taldi Gísli eðlilegast
að beðið væri eftir niðurstöðu um
hver áhrif sands væru og spyija
þyrfti einnig hvaða áhrif stífla hefði
og fyrst þegar það lægi fyrir væri
hægt að fjalla um hversu há slík
stífla gæti orðið. Breyting á stíflu-
hæð væri aðeins heimil samkvæmt
verndarlögunum ef vernda þyrfti
lax eða rækta. Ef í ljós kæmi að
hærri stífla verndaði Laxá eða bætti
fiskirækt mun stífluhæðin einvörð-
ungu ráðast af verndarforsendum
en ekki virkjunarforsendum.
Á alþjóðlegri skrá um
mikilvæg votlendissvæði
Gísli Már Gíslason sagði að hafa
bæri í huga að lífríki Laxár væri á
alþjóðlegri skrá um mikilvæg vot-
lendissvæði sem Island væri aðili
að og hefði það verið fyrsta íslenska
svæðið s_em tilkynnt hefði verið á
þá skrá. íslenska ríkisstjórnin hefur
skuldbundið sig til að breyta ekki
vistfræðilegum eiginleikum Mý-
vatns og Laxár samkvæmt þessum
sáttmála.
Fjárveiting til Rannsóknastöðv-
arinnar er í ár 5,1 milljón króna
auk 2,6 milljóna sem Kísiliðjan
leggur henni til vegna vöktunar á
lífríkinu fyrir verksmiðjuna auk
þess sem stöðin hefur fengið fram-
lög úr rannsóknasjóðum til sér-
stakra verkefna sem oft _eru unnin
í samvinnu við Háskóla íslands. '
Uimiinimii
Islensk list
skemmtileg brúðargjöf
MIÐAR3S
_ SKART
Skólavörðustíg lóa
Sími 561 4090
Tilboð opnuð í íþrótta-
hús í Mosfellsbæ
TILBOÐ í framkvæmdir og hönnun
nýs íþróttahúss í Mosfellsbæ sem
vera á við íþróttamiðstöðina á
Varmá hafa verið opnuð, en fjórir
verktakar höfðu verið valdir til að
taka þátt í lokuðu alútboði.
Aðalboð verktakanna fjögurra
hljóða þannig: Byrgi ehf. bauð 196
milljónir í verkið, Límtré hf. bauð
224 milljónir, Islenskir aðalverktak-
ar buðu 254 milljónir og Álftárós
ehf. bauð 274 milljónir. Að sögn
Tryggva Jónssonar bæjarverkfræð-
ings Mosfelisbæjar bjóða verktak-
arnir síðan svokölluð fráviksboð frá
aðalboðunum, sem felast í því að
ákveðnum atriðum er breytt annað-
hvort til lækkunar eða hækkunar á
aðalboðinu. í alútboðsgögnunum var
miðað við það að heildarkostnaður
við verkið yrði í kringum 200 milljón-
ir króna. Þá var gert ráð fyrir því
að íþróttahúsið yrði ekki minna en
um 2.700 fermetrar.
Dómnefnd skoðar tilboðin
Jóhann Siguijónsson bæjarstjóri
Mosfellsbæjar segir að bæjarstjóm
hafi valið dómnefnd, skipaða bæjar-
fulltrúum, verkfræðingi og fulltrúa
Ungmennafélagsins Aftureldingar,
til að vega og meta tilboðin með til-
liti til hönnunar hússins og verðs á
framkvæmdum. Tillögur dómnefnd-
arinnar eru nú til skoðunar og segir
Jóhann að bæjarstjórn stefni að því
að taka endanlega ákvörðun um það
hvaða tilboði verði tekið í næstu viku.
Gert er ráð fyrir því að fram-
kvæmdir við íþróttahúsið hefjist
næsta haust og ljúki um áramótin
1998/99.
Útsala
TESS
v ncð
Ák'
neðst við
Dunhaga,
sími 562 2230
Opiðídag kl. 10-14.
Stórútsala
Útsalan hefst á mánudaginn
Mjög mikill afsláttur
f| lm m
Eddufelli 2,
sími 5571730.
HJÁ ANDRÉSI
Útsala á sumarfatnaði
20-50% afsldttur
Dæmi:
Jakkaföt áður 14.900 nú 11.920
Stakir jakkar áður 11.700 nú 9.360
Stakar buxur áður 3.900 nú 1.950
Golfbuxur áður 4.900 nú 3.430
Vandaðar vörur á vœgu verði
ANDRES Skólavörðustíg 22A, s. 551 8250. Póstkröfuþjónusta.
UER
Við fögnum
verslunarmannahelginni
og bjóðum
QOTo afslátt
aföllum vörum í dag
og í nœstu viku.
Opiðfrá
kl. 10-22
mán.-fim.
28.-31. jálí.
5íssa tískuhús
Hverfisgötu 52. sími 562 500