Morgunblaðið - 26.07.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 13
Tjaldglsting fyrir fullorðna kostar 350 krón-
ur nóttin, en fyrir börn á aldrinum 12 til 15
ára kostar hún 150 krónur. Frítt er fyrir börn
yngri en 12 ára. Gisting í skálanum fyrir þá
sem eru eldri en 12 ára kostar 750 krónur,
en fyrir böm á aldrinum 6 til 11 ára kostar
gistingin 350 krónur. Svefnpokapláss fyrir 12
ára og eldri kostar 450 krónur, en fyrir böm
á aldrinum 6 til 11 ára kostar það 200 krónur.
Fjölskyldu- og
listflugmót í
Múlakoti
Flugmálafélag íslands efnir til árlegrar flöl-
skylduhátíðar fyrir flugáhugamenn og fjöl-
skyldur þeirra um verslunarmannahelgina. Að
venju er komið saman við Múlakot í Fljótshlíð.
A mótinu munu vélflugmenn, svifflugmenn,
svifdrekamenn, módelmenn og fallhlífarmenn
gangast fyrir margs konar uppákomum. Á
svæðinu verður loftkastali og leiktæki sem
íþrótta- og tómstundaráð hefur lánað og verð-
ur farið í ýmsar þrautir og skemmtanir sem
henta öllum aldursflokkum. Má þar nefna
boðhlaup, lendingarkeppni, stangartennis,
pokakast, happdrætti og margt fleira. Vegleg
verðlaun verða veitt sigurvegurum.
Þeim sem hafa áhuga á að skoða Fljótshlíð-
ina og umhverfi Þórsmerkur úr lofti gefst
kostur á útsýnisflugi með fiugvél, en einnig
ætlar Svifflugfélag Islands að vera með svif-
flugu á staðnum ef veður leyfir. Á laugardags-
kvöldið verður grillveisla. Selt er sérstaklega
inn á þá gleði og kostar miðinn 1.500 krón-
ur. Frítt er fyrir börn. Veislunni lýkur með
varðeldi og söng fram eftir nóttu.
Listflugkeppni er fyrirhuguð á laugardaginn
frá kl. 12 til 16. Verði veðurskilyrði hins vegar
slæm verður keppnin færð yfir á sunnudag.
Aðgangur er ókeypis inn á svæðið en tjald-
stæði fyrir þrjár nætur kostar 1.500 krónur.
Kirkjubæjar-
klaustur
Dagskrá um verslunarmannahelgina á
Kirkjubæjarklaustri verður eins og hingað til
sniðin að þörfum fjölskyldunnar. Þar verða í
boði gönguferðir með leiðsögn, leikir fyrir
börnin, sögustund í Kapellunni, tónlistarflutn-
ingur, útimarkaður og fleira. Á laugardags-
kvöldið verður haldinn dansleikur í félagsheim-
ilinu Kirkjuhvoli og á sunnudagskvöldið verður
varðeldur og fjöldasöngur við tjaldstæðið á
Kleifum. Á sunnudag verður haldin guðþjón-
usta í bænhúsinu á Núpsstað.
Eins og venjulega er hægt að skreppa í
golf, fara í sund og á hestbak, veiða í ám og
vötnum eða að fara í dagsferðir frá Klaustri.
Áfangastaðir eru m.a. Lakagígasvæðið, Núps-
staðarskógar, Skaftafell og Skálafellsjökull,
hringferð um Öldufellsleið, Eldgjá og Skaftárt-
ungu og niður í fjöru.
Áætlunarferðir eru daglega frá Reykjavík
að Kirkjubæjarklaustri og kostar ferðin 2.500
krónur. Tjaldgisting inni í þorpinu kostar 400
krónur fyrir manninn eina nótt, en frítt er fyr-
ir 14 ára og yngri. Tjaldgisting fyrir utan þorp-
ið kostar 300 krónur fyrir manninn eina nótt.
Neistaflug ’97
Fjölskylduhátíðin Neistaflug verður haldin í
fimmta sinn á Neskaupstað um verslunar-
mannahelgina. Hátíðin fer að mestu fram í
miðbænum og verður sett á föstudag. Sá dag-
ur verður tileinkaður Norðfirðingum og munu
heimamenn sjá um öll skemmtiatriði. Til dæm-
is munu lúðrasveitin og harmonikkufélagið sjá
um tónlistina og Neistaflugslagið verður frum-
flutt. Þá verður boðið upp á útsýnisflug og
kajakaleigu. Dagurinn endar á skemmtun á
Hótel Egilsbúð um kvöldið með norðfirsku tón-
listarfólki í umsjón Btján, samtaka norðfirskra
tónlistarmanna.
Á laugardag og sunnudag munu þekktir
listamenn mæta til leiks og má þar nefna Pál
Óskar Hjálmtýsson, Milljónamæringana og
Bjarna Ara, Todmobile, Furðuleikhúsið, töfra-
manninn Pétur pókus, Ingveldi Ýr og fleiri.
Þá eru ýmsir íþróttaviðburðir á dagskrá og
má þar á meðal nefna strandblakmót, götu-
körfuboltamót og víðavangshlaup.
Frítt er inn á hátíðarsvæðið og tjaldstæði
eru ókeypis.
Vopnaskak
á Vopnafirði
Fjölskylduhátíðin Vopnaskak á Vopnafirði
verður eins og undanfarin ár haldin um versl-
VERSLUNARMAININAHELGIN
unarmannahelgina. Á föstudag hefst dagskrá
Vopnaskaksins með skrúðgöngu kl. 16 frá
Austurborg. Þaðan verður haldið niður á kaup-
félagsplan, þar sem Götuleikhús Hins hússins
mun koma fram, auk Leikfélags Seyðisíjarðar
sem mun sýna atriði úr Dýrunum í Hálsa-
skógi. Þá mun hljómsveitin Stimið Síríus troða
upp. Um kvöldið eða kl. 21 til 22 verða fjöl-
skyldutónleikar með Greifunum í Miklagarði.
Aðgangur verður ókeypis.
Á laugardag verður boðið upp á ýmsa af-
þreyingu fyrir börnin, eins og sjóstangaveiði-
mót og fjársjóðsleit við fótboltavöllin. Um
kvöldið eða kl. 21 til 23 verður söngleikurinn
Evita kynntur í Miklagarði í flutningi hljóm-
sveitarinnar Todmobile. Aðgangur er ókeypis.
Dansleikur með hljómsveitinni Todmobile
verður svo í Miklagarði frá kl. 24 til 3.30.
Á sunnudag hefst messa í Vopnafjarðar-
kirkju kl. 14 og mun sr. Gunnar Siguijónsson
predika. Þá mun verða sundlaugarhátíð frá
kl. 15 til 18 þar sem Jóhannes Kristjánsson
eftirherma mun m.a. koma fram. Fjölskyldu-
tónleikar með SSSÓL hefjast í Miklagarði kl.
21 og verða í klukkutíma. Aðgangur er ókeyp-
is. Kl. 22.30 verður varðeldur á Merkistúni
og þá mun einnig verða haldin flugeldasýning.
Dansleikur með SSSÓL verður síðan hald-
inn í Miklagarði frá miðnætti og fram eftir
nóttu.
Verð á alla dansleikina á Vopnaskaki er
2.000 krónur, en tilboðsverð á alla þijá dans-
leikina er 5.000 krónur. Frítt er inn á tjald-
stæði á Vopnafirði.
bítar, Niður, SSSól og Stjórnin auk Páls Ósk-
ars og Snara.
Þá er margt í boði fyrir alla ijölskylduna
annað en tónlist. Má þar nefna Brúðubílinn,
Sögusvuntu Hallveigar Thorlacius, Ævintýra-
leikhúsið, Pétur pókus, tískusýningu, þolfimi-
sýningu og fleira. Götuleikhópur mun setja
svip sinn á bæinn, útimarkaður verður á göngu-
götu og við höfnina verður hægt að fara í
teygjuhopp og bátasiglingu. Þá verður hægt
að fara í útsýnisflug frá Akureyrarflugvelli.
Tjaldsvæði eru þijú: í Kjamaskógi, á félags-
svæði Þórs og á KA-svæðinu.
Rútuferð hjá BSÍ fram og til baka frá
Reykjavík kostar 7.000 krónur.
Síldarævintýrið
á Siglufirði
Síldarævintýrið á Siglufirði er haldið í sjö-
unda sinn um verslunarmannahelgina. Bæjar-
myndin breytist og tekur á sig mynd gamla
Síídarbæjarins iðandi af ljölbreyttu mannlífi.
Gamla síldarstemmningin verður rifjuð upp
bæði með söltunarsýningum og dansi á bryggj-
um og torgum. Samhliða síldarstemmningunni
er reynt að bjóða upp á afþreyingu fyrir böm
á öllum aldri.
Meðal þess sem í boði verður á Siglufirði
má nefna varðeld og bryggjuball, skemmtisigl-
ingar um Sigluíjörð, hestasýningu, Dorgveiði-
BINDINDISMÓTIÐ í Galtalæk verður haldið í þrítugasta sinn nú um verslunar-
mannahelgina. Vegna tímamótanna verður sérstök áhersla lögð á skemmtanir fyr-
ir unglinga en einnig verður ýmislegt í boði fyrir yngstu kynslóðina.
Sveitalíf
í Eyjafirði
Fjölskylduhátíðin Sveitalíf verður haldin í
annað sinn á Hrísum í Eyjafjarðarsveit um
verslunarmannahelgina og hefst hún á föstu-
dag. Á hátíðinni verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá alla helgina. Börnin fá að
stýra dráttarvél úti á túni. Skralli trúður á
afmæli og heldur afmælisveislu á hátíðinni.
Hestar verða á bænum og teymt undir bömum
og þeim sem óvanir em. Jafnframt er boðið
upp á hestaleigu fyrir þá sem vilja í lengri
reiðtúra. Þá verður boðið upp á fjallgöngu,
leikfimi og skemmtiskokk, skipulagða leiki úti
á túni og auk þess er áætluð hópferð í sund
á Hrafnagili. Einnig er hægt að fara í golf.
Á laugardagskvöld verður varðeldur tendrað-
ur.
Á Hrísum hefur hlaðan öðruvísi hlutverk en
flestar aðrar hlöður því þar verður boðið upp
á bamadansleiki, diskótek og hlöðuball með
lifandi tónlist alla helgina. Hljómsveitin Far-
malls verður á staðnum og mun leika sveita-
söngva og línudanslög. Þá mun Jóhann Öm
Ólafsson danskennari stjórna hlöðuböllunum
og kenna hátíðargestum að dansa línudans.
Grillveisla verður öll kvöldin, en auk þess
er almenn veitingasala á staðnum.
Ekkert hátíðargjald en tjaldstæði á túninu
kostar 1.000 krónur.
Halló Akureyri
Hátíðin Halló Akureyri verður nú haldin í
íjórða sinn. Setningarhátíð verður fimmtudag-
inn 31. júlí, þar sem Lúðrasveit Akureyrar
og hljómsveitin PKK munu m.a. koma fram.
Fleiri hljómsveitir munu troða upp um verslun-
armannahelgina svo sem Gimp, 200.000 nagl-
keppni og guðsþjónustu í Hvanneyrarskál. Bíó-
salurinn og Hótel Lækur bjóða upp á dansleiki
öll kvöld helgarinnar og meðal hljómsveita sem
troða upp má nefna Sixties, Gauta, Sóldögg,
Miðaldamenn og Harmonikkusveit Siglufjarðar.
Ekkert kostar á síldarævintýrið. Þijú skipu-
lögð tjaldsvæði eru á Siglufirði og verður mkk-
að um gjald við inngang þeirra.
Kántrýhátíð
á Skagaströnd
Kántrýhátíð verður haldin í íjórða sinn á
Skagaströnd um verslunarmannahelgina með
viðeigandi kántrýstemmningu. Á föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld munu hljóm-
sveitir troða upp og má m.a. nefna hljómsveit-
ina Texas Two-step og Lukkulákana.
Á daginn verður útimarkaður og gefst fólki
kostur á að fylgjast með eða taka þátt í pók-
er- og lomberspili. Þá verður línudanskennsla
og keppni, kúrekabíómynd verður sýnd, boðið
upp á hestaleigu, götuleikhús sýnir listir sínar
og margt fleira. Auk þess er hægt að líta inn
í Kántrýbæ og hitta eða hlusta á Kántrýkóng-
inn Hallbjöm Hjartarson í villta vestri norðurs-
ins. Á sunnudinn verður fjölskylduguðsþjónusta
sem séra Egill Hallgrímsson sér um.
Tjaldstæði í bænum verða án endurgjalds.
Vestfírðir um
verslunar-
mannahelgina
Á Vestfjörðum verður hægt að velja um
margs konar afþreyingu um verslunarmanna-
helgina. Á Ströndum verða sveitaböllin á sín-
um stað. Á föstudagskvöldið verður dansleikur
í Trékyllisvík og í Sævangi spilar hljómsveitin
Sixties laugardag og sunnudag. Við Hótel
Laugarhól verður boðið upp á veiði um verslun-
armannahelgina auk gönguferða og tónlistar.
Á Hólmavík munu Húsdraugarnir spila á Café
Riis öll kvöldin og á fimmtudaginn sýnir Kaffi-
leikhúsið þar Djúpavíkurævintýrið. Stranda-
hestar verða með skipulagðar hestaferðir og
handverksmarkaður verður í sölutjaldi Strand-
akúnstar.
Á sunnanverðum Vestíjörðum verður ýmis-
legt um að vera. í Þorskafirði í Reykhóla-
sveit halda Ásatrúarmenn sumarblót á laug-
ardaginn og á eftir verður veisla á Hótel
Bjarkarlundi. Sérstakt mót verður í Vatns-
firði, sem ber heitið Flókalundur og fjölskyld-
an. Þar verður m.a. boðið upp á hjólreiðar,
leiki, sandkastalakeppni, varðeld á laugar-
dagskvöldið, kajakasiglingu á Vatnsfírði og
guðsþjónustu á sunnudaginn. Þá verða
gönguferðir í boði. Á laugardag verður geng-
ið um Fagradal í Tálknafirði með leiðsögn
og daginn eftir verður farið á Rauðasand og
gengið þaðan að surtarbrandsnámunni í Stál-
fjalli. Báðar gönguferðirnar taka um það bil
sex til sjö tíma.
Á norðanverðum Vestfjörðum má helst
nefna að sandkastalakeppni verður haldin í
Önundarfirði. Á ísafirði verður sumarkvöld í
Neðstakaupstað á fimmtudagskvöld.
Snæfellsásmótið
Snæfellsásmótið „Mannrækt undir Jökli“
verður haldið í ellefta sinn á Brekkubæ, Helln-
um, um verslunarmannahelgina. Mótið verður
sett kl. 22 á föstudagskvöld og stendur með
samfelldri dagskrá fram á miðjan mánudag.
Dagskrá mótsins verður sett upp fyrir þá sem
vilja fræðast meira um sjálfsrækt og andlega
vinnu, en aðalgestur mótsins er Þórhallur
Guðmundsson miðill. Hann verður með
skyggnilýsingu á laugardagskvöldið og seinni-
part sunnudags verður hann með fyrirlestur
um dáleiðslu og mun dáleiða fólk úr salnum
aftur í fyrri líf.
Auk þessa verður boðið upp á fjölda ann-
arra fyrirlestra um málefni eins og líkamsstöð-
ur og hollt mataræði, markmiðasetningu og
kynningu á Bænasamtökum alheimsfriðar. Þá
verður hægt að komast á ýmis námskeið eins
og til dæmis einkatíma í spila- og spálestri,
námskeið fyrir þá sem vilja hætta að reykja
og námskeið 5 málun árumynda.
Aðgangur á Snæfellsásmótið kostar 2.900
krónur en frítt er fyrir börn yngri en 14 ára.
Forsala aðgöngumiða á 2.500 krónur verður
í versluninni Betra lífi á Laugavegi og á
Brekkubæ til 25. júlí. Tjaldstæði er innifalið
í mótsgjaldinu.
Pakkaferð hjá BSÍ kostar 6.900 krónur en
ókeypis er fyrir börn yngri en 14 ára.
Sæludagar
í Vatnaskógi
Skógarmenn KFUM standa fyrir Sæludög-
um í Vatnaskógi, áfengislausri fjölskylduhá-
tíð, um verslunarmannahelgina. Þar verður
m.a. boðið upp á kvöldvökur, kappróður á vind-
sængum, guðsþjónustu, gönguferðir og rat-
leiki svo eitthvað sé nefnt.
Þá verða kvöldvökur haldnar í íþróttahúsinu
og kaffihús verður opið í einum skálunum.
Aðgangseyrir á Sæludaga er 2.700 krónur.
Börn yngri en 13 ára fá ókeypis svo og fólk
eldra en 67 ára. Boðið er upp á fjölskyldu-
pakka þannig að foreldrar með unglinga yngri
en 16 ára greiða 6.000 krónur fyrir alla fjöl-
skylduna.
Regnboga-
hátíðin ’97
Samtökin Friður 2000 standa fyrir áfeng-
is- og vímuefnalausri fjölskylduhátíð í Reyk-
holti í Borgarfirði um verslunarmannahelgina
fyrir félagsmenn. Þar verður ýmislegt til
skemmtunar og afþreyingar fyrir alla aldurs-
hópa. Irskur þjóðlagahópur mun spila og
syngja við varðeld á laugardagskvöld og fram
á morgun og hljómsveitin Boney M mun
skemmta hátíðargestum á sunnudagskvöld í
Logalandi.
Þá verður boðið upp á kynningu af ýmsu
tagi og má þar nefna Ma-uri nudd. Auk þess
verða danssýningar og leikir. FViðarstund
verður haldin í kirkjunni og í tilefni af af-
mæli eins forsetaframjóðendanna verður borin
fram afmælisterta.
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis fyrir
Ambassador-félaga Friðar 2000. Tjaldstæði á
svæðinu eru einnig ókeypis.