Morgunblaðið - 26.07.1997, Page 14

Morgunblaðið - 26.07.1997, Page 14
14 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Keppnissvæðið á Melgerðismelum formlega vígt í dag Gjörbylting á svæðinu MELGERÐISMELAR, keppnissvæði hestamannafélaganna Léttis á Ak- ureyri og Funa í Eyjafjarðarsveit, verður formlega tekið í notkun í dag, laugardag, og hefst athöfnin kl. 13. Hátíðisdagar standa yfir á Melgerðismelum um helgina en þeir voru settir í gærkvöld. Landsmót verður haldið á Melgerðismeium næsta sumar. Sigfús Helgason, formaður Léttis, sagði að um gjörbyltingu á svæðinu væri að ræða en mikil uppbygging hefur átt sér stað, einkum á liðnu ári og í sumar. Gerðir hafa verið tveir keppnisveliir á aðalsvæðinu, 300 metra og 250 metra hringvellir, auk þess sem 450 metra löng bein kappreiðabraut er þar einnig og plan þar sem verða sýningar og hlýðni- keppni. Á melunum ofan við aðal- keppnissvæðið er einn keppnisvöllur fyrir hendi og aðstaða til kynbóta- sýninga. Áhorfendabrekka hefur einnig verið gerð á svæðinu og rúmar hún að sögn Sigfúsar allt að 25 þúsund manns. Mikil uppgræðsla hefur átt sér stað á Melgerðismelum en þær eru vel á annan tug þúsunda plönturnar sem hestamenn og starfsmenn þeirra hafa gróðursett á liðnum árum. Það hefur verið gert í sam- vinnu við Landgræðslu ríkisins, sem m.a. hefur lagt til áburð, og hefur nú tekist að koma í veg fyrir sand- fok, sem á fyrri tíð var til ama á þessu svæði. Þess í stað eru tún að gróa upp. Fundu gríðarlegt magn af vatni Friðfinnur Daníelsson, verkfræð- ingur hjá Alvar, var fyrir skemmstu á ferð á Melgerðismelum og boraði þar eftir vatni, en skortur á vatni hefur háð starfseminni mjög til þessa. „Við fundum gríðarlegt magn af vatni, 18 til 20 sekúndulítra, en tilraunaholan er á 21 metra dýpi. Þetta gætu orðið um 3.000 til 3.500 tonn á sólarhring," sagði Sigfús. „Fyrir okkur er þetta bara eins og að finna olíu. Síðustu ár höfum við á stórmótum þurft að keyra vatn inn á mela frá Akureyri í tankbílum með ærnum tilkostnaði. Þannig að þetta gerbreytir öllu, m.a. varðandi upp- græðslu svæðisins." Um helgina fer fram stórt mót á Melgerðismelum þar sem keppt verður í öllum hefðbundnum grein- um hestamennsku í öllum flokkum. Forkeppni í stjörnutölti fór fram í gærkvöld og er áætlað að úrslit verði í ljósaskiptum í kvöld. Þá er ætlunin að glóðarsteikja mat ofan í gesti og gangandi og kveikja upp í heljarstór- um varðeldi. Fjörugir flugdagar Dregið í getraun DREGIÐ hefur verið í get- raunaleik sem efnt var til á Fjörugum flugdegi íslands- flugs á Akureyrarflugvelli í lok júní síðastliðins. Vinningshafar eru Grétar Kristinsson, Reykjasíðu 17, Eygló Birgisdóttir, Tjarnar- lundi 19g og Guðrún Hreins- dóttir, Fögrusíðu 8, öll á Akur- eyri. Vinningurinn er far fyrir tyo til einhvers áfangastaðar ís- landsflugs og til baka. Morgunblaðið/Golli Fótsnyrting FÁTT er betra en finna sér eitt- hvað að gera utandyra þegar veðrið skartar sínu fegursta á stuttu sumri okkar Islendinga. En margir þurfa að vinna inni þó að sólin skini en hafa kannski svolítið tækifæri á bregða sér út. Ungu stúlkurnar á myndinni sátu við Strandgötuna á Ákureyri og fannst tilvalið að dekra aðeins við tærnar á sér um leið og þær sleiktu sólskinið. TILKYNNING UM UTBOÐ MARKAÐSVERÐBREFA FISKIÐJUSAMLAG HÚSAVÍKUR HF. HLUTABRÉFAÚTBOÐ Heildarnafnverð nýs hlutaíjár: Sölugengi: Sölutímabil: Greiðsla hlutafjár: 100.000.000,- Sölugengi til forkaupsréttarhafa er 2,75. Gengi í almennri sölu verður tilkynnt Verðbréfaþingi Islands og auglýst í fjölmiðlum ef til almennrar sölu kemur. Söiutímabilið verður frá 29. júlí til 15. ágúst en sölu til forkaupsréttarhafa lýkur 12. ágúst. Greiðsluseðlar verða sendir til forkaupsréttarhafa og er gjalddagi þeirra 26. ágúst. Komi til sölu hlutabréfa í almennri sölu, verða þau seld gegn staðgreiðslu. Söluaðili: Landsbréf hf. Umsjón með útboði: Landsbréfhf. Skráning: Jafnframt útboðinu er sótt um sjcráningu hlutabréfanna á Verðbréfaþingi Islands. Útboðs- og skráningarlýsing vegna ofangreindra hlutabréfa liggur frammi hjá söluaðilum. FISKIÐJUSAMLAG HÚSAVÍKUR HF. . LANDSBREF HF. Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 535 2000, bréfasími 535 2001, heimasíða landsbref.is LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS. í miðjum heyönnum STARFSMENN umhverfis- deildar Akureyrarbæjar hafa unnið af krafti síðustu daga við að slá og hirða um allan bæ, en að sögn Árna Steinars Jó- hannssonar umhverfissljóra er stefnt að því að bærinn skarti sínu fegursta um næstu helgi þegar von er á fjölda gesta til Akureyrar. Umhverfisdeildin sér um að slá og hirða vel á annað hundrað hektara lands víðs vegar um bæinn og þá er eins gott að hafa fjölda starfs- fólks tiltækan, en um 600 ungl- ingar starfa hjá deildinni í sum- ar við fegrun bæjarins. Þar á meðal eru þessir tveir félagar sem voru að slá brekkuna við Barnaskóla Akureyrar í vik- Morgunblaðið/Golli unni. Messur AKUREYRARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. á morgun, sum- artónleikar kl. 17, guðsþjón- usta á Seli kl. 14, á Hlíð kl. 16 og á Fjórðungssjúkrahúsinu kl. 17. GLERÁRKIRKJA: Kvöld- messa verður í kirkjunni kl. 21 annað kvöld. Messa á Dvalar- heimilinu Hlíð kl. 16. HVlTASUNNUKIRKJAN: Al- menn samkoma, ræðumaður Sam Glad á morgun, sunnu- dag, kl. 20. Biblíukennsla og bænastund á miðvikudag kl. 20.30. Mikill og fjölbreyttur söngur, allir velkomnir. Bæna- stundir á mánudags-, miðviku- dags-, og föstudagsmorgnum frá 6-7. Vonarlínan, sími 462-1210, símsvari allan sólar- hringinn með orð úr ritningunni sem gefa huggun og von. KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyrar- landsvegi 26: Messa í dag, laugardag, kl. 18 og á morgun, sunnudag, kl. 11.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.