Morgunblaðið - 26.07.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Meirihluti bæjarráðs Akureyrar
N ylj askógrækt
við Skjaldarvík
ekki heppileg
MEIRIHLUTI bæjarráðs Akureyrar
telur ekki heppilegt að rækta upp
nytjaskóg í landi Skjaldarvíkur,
norðan Akureyrar.
Ábúandi í Skjaldarvík hafði leitað
heimildar til að ganga til samninga
við Skógrækt ríkisins um ræktun
nytjaskógar í landi sínu. Guðmund-
ur Stefánsson, Framsóknarflokki
lagði til á fundi bæjarráðs að orðið
yrði við ósk ábúandans, en tillaga
hans var felld.
Þéttbýli á næstu öld
Meirihluti bæjarrráðs tekur undir
sjónarmið umhverfisstjóra og
skipulagsstjóra bæjarins um að ekki
sé heppilegt að binda nýtingu lands
í Skjaldarvík til svo langs tíma sem
ræktun nytjaskógar krefst, þar sem
búast megi við þéttbýli á svæðinu
frá Akureyri að Gásum þegar á
næstu öld. Meirihluti bæjarráðs sá
sér því ekki fært að samþykkja
fyrir hönd Akureyrarbæjar, eiganda
jarðarinnar Skjaldarvíkur, samning
milli ábúanda og Skógræktarinnar
um ræktun nytjaskógar þar.
Leggur meirihluti bæjarráðs Ak-
ureyrar áherslu á að skógrækt á
jörðum Akureyrarbæjar í Glæsibæj-
arhreppi verið af hálfu bæjarins
unnin undir forsjá umhverfisdeild-
ar. Á svæðinu verði ræktaðir úti-
vistarskógar sem myndi umgjörð
um framtíðarbyggð.
Bæjarráð Akureyrar hefur beint
því til héraðsnefndar Eyjafjarðar
að við endurskoðun á svæðisskipu-
lagi Eyjafjarðar verði áform um
nytjaskógrækt á svæðinu tekin til
gagngerrar endurskoðunar með til-
liti til þróunar byggðar og þéttbýlis.
Kaupa Brún
Á fundi bæjarráðs var staðfestur
samningur um kaup Akureyrarbæj-
ar á jörðinni Brún ofan Akureyrar.
Kaupverð er 12,5 milljónir króna.
Iðgjald af skíðalyftum
Bæjarráð hefur fallist á tillögu
Viðlagatryggingar um lækkun
tryggingariðgjalds og breytta skil-
mála vegna iðgjalds af skíðalyftum.
Viðræður hafa staðið yfir um málið
milli fulltrúa Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Viðlagatryggingar
íslands að tilmælum nokkurra
sveitarfélaga, m.a. Akureyrarbæj-
ar. í breyttum skilmálum felst m.a.
25% sjálfsáhætta, en bæjarráð Ak-
ureyrar beinir þeim tilmælum til
stjórnar Viðlagatryggingar að end-
urskoða tryggingarskilmálana
þannig að sveitarstjórnum væri
gefíð val um hvetja sjálfsáhættu
þau tækju á sig.
Morgunblaðið/Golli
STARFSMENN Garðverks vinna nú við hellulögn á Akureyrar-
flugvelli en þar er verið að útbúa bílastæði og lóð fyrir 180 bíla.
Framkvæmdir á Akureyrarflugvelli
Útbúin bílastæði
fyrir 180 bíla
Göngulelð verður lögð frá Tanga-
bryggju að flugvellinum
VERIÐ er að útbúa bílastæði og lóð
við Flugstöðina á Akureyri þessa
dagana. Verktaki er Guðmundur
Hjálmarsson og Garðverk sér um
hellulögn. Fyrirtækið átti lægsta
tilboð í verkið, tæpar 16 milljónir
króna en það var boðið út fyrir um
einum mánuði og er áætlað að verk-
efninu verið lokið 1. september
næstkomandi. Arkitektastofan í
Grófargili sá um hönnun og Verk-
fræðistofa Norðurlands sá um verk-
fræðihönnun.
Pollarnir úr sögunni
Heimir Gunnarsson, umdæmis-
stjóri flugmálastjómar, sagði að
gert væri ráð fyrir að um 180 bflar
kæmust fyrir á bílastæðinu. „Loks-
ins, loksins, myndu nú kannski ein-
hveijir segja um þessa framkvæmd,
nú verða pollamir úr sögunni næsta
vetur,“ sagði Heimir.
Jafnframt því sem bílastæði verða
malbikuð er ætlunin að útbúa lóðina
gróðri og ljósum. í samvinnu við
Akureyrarbæ verður síðar lagður
göngustígur frá flugvelli inn í bæinn.
Ámi Steinar Jóhannsson, um-
hverfisstjóri Akureyrarbæjar, sagði
að síðustu misseri hefði verið unnið
að endurbótum á strandlengjunni
allt frá Tangabryggju meðfram
Strandgötu og eftir Glerárgötu en
þar standa framkvæmdir nú yfir.
Hann sagði að uppi væru hugmynd-
ir um að gera gönguleið áfram eftir
Drottningarbraut og að flugvelli og
yrði unnið að því verkefni eftir því
sem fjárhagur leyfði á næsta ári.