Morgunblaðið - 26.07.1997, Page 16
16 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
RÚM milljón plantna hefur verið gróðursett í Húsavíkurlandi á sl. sjö árum.
Morgunblaðið/Silli
Morgunblaðið/Silli
EINAR Svansson forstjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur og Einar
Njálsson bæjarsljóri.
Ferðamannafrysti-
hús opnað á Húsavík
Húsavík - Fiskiðjusamlag Húsa-
víkur hf. minntist þess 19. júlí sl.
að liðin eru 50 ár frá því að nokkr-
ir sjómenn og útgerðarmenn stofn-
uðu samlagið. Framkvæmdastjóri
samlagsins, Einar Svansson, ávarp-
aði viðstadda, sem voru margir,
bæði heimamenn og gestir í bæn-
um, en þeir hafa verið óvenju marg-
ir í veðurblíðunni síðustu daga.
Hann sagði að frumkvöðlanna yrði
nánar minnst á væntanlegri afmæl-
ishátíð í október.
Einar sagði að i dag væri mönn-
um boðið að kynnast því, hvað
brautryðjendastarf frumheijanna
hafi leitt af sér og hvernig fyrir-
tækið væri í dag að 50 árum liðn-
um. Hann sagði að 200 starfsmenn
ynnu að veltu sem næmi 2 milljörð-
um króna. Hann sagði að stefna
Fiskiðjusamlags Húsavíkur væri
framleiðsla sjávarafurða í hæsta
gæðaflokki fyrir kröfuhörðustu
markaði um allan heim. Tilgangur
fyrirtækisins væri að þjóna við-
skiptavinum sínum betur en aðrir
gera. Stefna fyrirtækisins væri að
vera í fararbroddi matvælafyrir-
tækja og að skila hagnaði ásamt
því að vera leiðandi í gæðamálum,
sem tryggir örugga sókn til fram-
tíðar.
Stefnt að aukinni
starfsmannafræðslu
Fyrirtækið ætlar að vinna í góðri
sátt við umhverfi sitt og hafa við-
skiptavininn ávallt að leiðarljósi.
Starfsmannafræðsla verður aukin
og byijað á tölvunámskeiðum í
haust.
Einar gat þess sérstaklega að
nú væri komið að því að opna ferða-
mannafrystihús FH. Það væri þekkt
um allan heiin að verksmiðjur séu
opnar gestum. Tilgangur FH væri
margþættur. í fyrsta lagi vildu þeir
kynna viðskiptavinum fyrirtækisins
EINAR Svansson ávarpaði
gesti við opnunFerðamanna-
frystihússins.
starfsemina á einfaldan og skýran
hátt. Þeir vildu sýna íslendingum
og erlendum ferðamönnum um hvað
íslenskur sjávarútvegur snýst. Að-
staða til kynningarinnar hefur verið
haganlega hönnuð og handverkið
unnið af húsvískum iðnaðarmönn-
um.
Forstjóri nefndi að sjávarútvegs-
ráðuneytið hefði verið einstaklega
hjálplegt við öflun efnis og bækl-
inga. Fulltrúi ráðuneytisins, Ari
Edwald, var staddur á Húsavík í
tilefni afmælisins og bað forstjóri
FH hann um að vígja og opna form-
lega Ferðamannafrystihús FH á
Húsasvík, og gerði hann það með
því að klippa á borða, sem strengd;
ur var fyrir dyr frystihússins. í
ávarpi sem hann flutti við þetta
tækifæri gat hann þess að mikils-
vert væri eins og hér væri gert að
tengja saman tvær atvinnugreinar,
sjávarútveg og ferðaþjónustu.
Grænn
dagur á
Húsavík
Húsavík - „Græna deildin" á
Húsavík fagnaði nýlega stórum
áfanga í gróðurvernd, þegar búið
var að gróðurselja rúma eina
milljón plantna í Húsavíkurlandi
í svokölluðu „Landgræðslu-
skógaátaki" á síðastliðnum sjö
árum.
Fyrsta árið, 1990, voru gróður-
settar 45 þúsund plöntur og í ár
40 þúsund og þá hafa alls verið
gróðursettar víðsvegar í Húsavík-
urlandi 1.017.000 plöntur.
í tilefni þessa fór fram kynning
á starfi gróðrarstöðvarinnar á
Amesi við Asgarðsveg. Garð-
yrkjusljóri bæjarins, Benedikt
Bjömsson, gekk með gestum um
gróðrarstöðina og sýndi og sagði
frá hinum ýmsu plöntum sem þar
em í uppvexti og ræddi mismun-
andi vöxt þeirra með tilliti til ís-
lenskrar náttúm. Einnig vár
gengið á mela til að sýna hvar
gróður væri í stað grjóts.
Viðstöddum var síðan boðið til
kaffidrykkju, sem þeir nutu vel í
fögrum skógarlundi og hinu feg-
ursta veðri.
Fjölmenn bryggju-
hátíð á Drangsnesi
Drangsnesi - Bryggjuhátíð var
haldin í blíðskaparveðri laugardag-
inn 19. júlí sl. Mjög margir sóttu
Drangsnesinga heim í tilefni hátíð-
arinnar og áttu með þeim góðan
dag. Telja menn að um 350-400
gestir hafi komið og er það hátt í
fjórföld íbúatala Drangsness, en þar
búa tæplega 100 manns.
Grímseyjarferðir voru í gangi all-
an daginn og var boðið upp á leið-
sögn um eyna sem fiestir sem þang-
að fóru nýttu sér. I Grímsey er fjöl-
skrúðugt fuglalíf og er lundinn þar
í þúsundatali. Hann er svo gæfur
að það er næstum hægt að snerta
hann. Þið horfist í augu, þú og fugl-
inn, svo kinkar hann kolli og vappar
á braut. Hátt í 300 manns fengu
sér far út í Grímsey þennan dag og
er það áreiðanlega mesti fjöldi sem
þangað hefur farið á einum degi.
Börnin veiddu marhnúta í Kokk-
álsvíkurhöfn og fengu allir viður-
kenningu fyrir að vera með. Aflakló
Bryggjuhátíðar var Ingólfur Har-
aldsson, 9 ára Drangnesingur.
Margt annað var í boði fyrir börn-
in, hestaferðir, ratleikur og diskó-
tek.
Á planinu við frystihúsið var
sjávarréttahlaðborð og þar gátu
menn smakkað að vild og alveg
ókeypis hinar ýmsu matartegundir
sem fást úr firðinum. Þessu voru
gerð góð skil og margir að smakka
t.d. grillaða grásleppu í fyrsta sinn
eða þá hráan hörpudisk og annað
eftir því.
Drangsnesingar voru frumkvöðl-
ar í verkun grásleppuhrogna og
þennan dag var sett upp sýning sem
hét „Grásleppan úr djúpinu á disk-
inn“.
Þrjár sýningar í
Drangsnesskóla
í Drangsnesskóla voru þijár sýn-
ingar. Listamaðurinn Bubbi, Guð-
björn Gunnarsson, var með yfirlits-
sýningu á verkum sínum. Einnig
var í skólanum sýning á munum
eftir hagleiksmanninn Jörund
Gestsson frá Hellu. Hann smíðaði
báta, skar listilega út, orti ljóð og
gamankvæði, vann í málma og
gerði við flest það sem bilað gat.
Þá var þarna ljósmyndasýning.
Gamlar myndir frá upphafi þéttbýl-
ismyndunar á Drangsnesi, mannlíf
og menning.
Þarna voru líka til sýnis myndir
sem Halldór Jónsson frá Asparvík
færði Kaldrananeshreppi að gjöf
nú nýverið ásamt teikningum hans
af f|órum fyrstu dekkbátunum sem
gerðir voru út frá Drangsnesi.
Margt fleira var sér til gamans
gert; grillveisla fyrir 400 manns og
kvöldskemmtun í troðfullu sam-
komuhúsinu, varðeldur og vel
heppnaðri fjölskylduhátíð á Drangs-
nesi lauk svo með dansleik um nótt-
ina.
Morgunblaðið/Jenný
MIKILL fjöldi gesta tók þátt í Bryggjuhátíð
Drangsnesinga í blíðskaparveðri.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
HEIMILISFÓLK í Kerlingardal bauð gestum til
kvöldverðar í opnunarhófinu.
Kerlingardalur í Mýrdal
Sambýli fyrir geðfatlaða
Fagradal - í Kerlingardal í Mýrdal
var nýlega opnað sambýli fyrir geð-
fatlaða einstaklinga. Það eru hjónin
Karl Pálmason og Guðrún Jónsdótt-
ir sem reka heimilið. Heimilinu var
valinn staður I Kerlingardal af
svæðisskrifstofu fatlaðra á Suður-
landi og hefur hún umsjón með
heimilinu. Markmiðið er að sjá íbú-
um þess fyrir öruggu skjóli og at-
vinnu við hæfi.
í Kerlingardal er m.a. rekinn
sauðfjár- og nautgripabúskapur,
ásamt garðyrkju og tijárækt. Állir
hjálpast að við að vinna þau störf
sem til falla á búinu og komast í
snertingu við náttúruna og dýrin á
bænum. Að sögn Karls vinna 10-12
manns að jafnaði við störf sem hveij-
um hentar á búinu. Heimilinu var
valinn staður í íbúðarhúsi sem stóð
fokhelt á bænum og er það orðið
afar vistlegt og þægilegt. Undirbún-
ingur að stofnun sambýlisins hefur
tekið eitt og hálft ár og hafa þau
Karl og Guðrún kynnt sér starfsemi
annarra slíkra heimila, m.a. í Skaft-
holti.
Vegagerð
á Fjöllum
miðar vel
Vaðbrekku, Jökuldal. - Gerð
vegarins frá Jökulsá á Fjöllum
austur fyrir Biskupsháls mið-
ar vel, en þessi vegarkafli er
rúmir 13 kílómetrar af hring-
veginum.
Byijað var að vinna við
veginn í júní á síðasta ári og
var hann gerður vetrarfær á
síðasta hausti. Það var síðan
í júní síðastliðnum að tekið
var til við verkið aftur og
reiknað er með að vegurinn
verði fullkláraður um miðjan
ágúst.
Að sögn Björns Sveinsson-
ar verkstjóra hjá Héraðsverki,
sem vinnur að vegagerðinni,
eru þeir um mánuði á undan
upphaflegri áætlun. Reiknað
er með að leggja bundið slit-
lag fyrir verslunarmannahelgi
á kaflann frá brúnni á Jökulsá
á Fjöllum austur að Biskups-
hálsi. Leggja síðan slitlagið á
veginn yfir Biskupshálsinn
eftir verslunarmannahelgina
og ljúka verkinu fyrir miðjan
ágúst.