Morgunblaðið - 26.07.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 19
Rússneski herinn
Umbætur
komnar á
fullt skrið
Moskva. Reuter.
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti
sagði í útvarpsávarpi í gær að rót-
tækar efnahagsumbætur væru eina
leiðin til að bæta hag hermanna, sem
hafa ekki fengið laun sín greidd svo
mánuðum skiptir.
Jeltsín sagði að áætlanir um sam-
einingu herdeilda, einkavæðingu fyr-
irtækja í hergagnaiðnaði og fækkun
hermanna myndu bæta ástandið í
rússneska hernum. Hann ítrekaði
loforð sitt um að öll vangoldin laun
hermanna yrðu greidd fyrir sept-
emberlok, og sagði að umbætur
væru komnar á fullt skrið.
„í hjarta mínu finn ég til með
hermönnunum, sem hafa að þolað
hungur og fá ekki launin sín greidd
á réttum tíma og eiga ekki í nein
hús að venda“, sagði Jeltsín í ávarp-
inu. „Ég hef miklar áhyggjur af því
að starf hermannsins njóti þverrandi
virðingar og því hef ég tekið mál-
efni hersins í mínar eigin hendur.“
Reuter
Brennan
látinn
Washington. Reuter.
WILLIAM Brennan, fyrrum
hæstaréttardómari í Banda-
ríkjunum, lést síðdegis á
fimmtu-
dag. Hann
var 91 árs,
gegndi
embætti
dómara í
34 ár en lét
af þeim
störfum
1990.
Úr-
skurðir hans höfðu margir
fordæmisgildi og juku umtals-
vert borgaraleg og stjórn-
arskrárleg réttindi flestra
Bandaríkjamanna. Bill Clint-
on, forseti Bandaríkjanna,
sagði að Brennan hefði verið
„einn besti og áhrifamesti
dómari í sögu þjóðarinnar,“
og sagði hann hafa staðið
traustan vörð um frelsi ein-
staklinga gagnvart ríkis-
valdinu.
Bretar setja
fimm skilyrði
fyrir EMU-aðild
GORDON Brown, fjármála-
ráðherra Bretlands, út-
skýrði í ræðu, sem hann
hélt hjá Royal Institute of
Foreign Affairs í London í
síðustu viku, hver væru skil-
yrði Breta fyrir þátttöku í
Efnahags- og myntbanda-
lagi Evrópu (EMU). Ráð-
herrann gaf í skyn Að Bret-
land myndi ekki verða með
í EMU frá upphafi, en útilokaði ekki
aðild síðar.
„Þegar þar að kemur verður
ákvörðunin tekin í þágu brezkra
hagsmuna og á brezka vísu eftir
kalt og yfirvegað mat á efnahagsleg-
um þjóðarhagsmunum — og, ef við
ákveðum að ganga inn, eftir at-
kvæðagreiðslu þar sem brezka þjóðin
verður spurð álits,“ sagði Brown.
Skilyrðin fimm, sem hann
nefndi, eru eftirfarandi:
• Myntbandalagið verður
að skapa betri skilyrði fyrir
erlendum Qárfestingum í
Bretlandi.
• Áhrif EMU á brezka
ijármálageirann verður að
meta sérstaklega vegna
mikilvægis greinarinnar í
brezku atvinnulífi.
• Hagsveiflur og efnahagsgerð
verða að vera svipaðar í Bretlandi
og á meginlandi Evrópu.
• EMU verður að geta tekið á efna-
hagsáföllum. Þess vegna þarf vinnu-
markaðurinn að verða sveigjanlegri,
einkum í ríkjum meginlandsins.
• Efnahags- og myntbandalagið
verður að stuðla að hagvexti og
meiri atvinnu.
Gordon Brown
Mónakó vill taka
upp evróið
Monte Carlo. Reuter.
FURSTADÆMIÐ Mónakó, sem er
í myntbandalagi við Frakkland,
vill taka upp nýja Evrópugjald-
miðilinn, evró-
ið, þegar Efna-
hags- og mynt-
bandalag Evr-
ópu gengur í
gildi. Mónakó
á ekki aðild að
ESB en tengsl
ríkisins við
Frakkland eru mjög náin.
Rainier fursti bar fram þá ósk
við Jacques Chirac, forseta
Frakklands, er sá síðarnefndi
kom í opinbera heimsókn til Món-
akó í gær, að Frakkar aðstoðuðu
furstadæmið til að „öðlast sess í
hinni nýju Evrópu og gera evróið
að lögeyri á
sama tíma og í
Frakklandi."
Chirac tók
bón Rainiers
vel og sagði að
„fullur skiln-
ingur“ væri
milli ríkjanna
tveggja. Mónakó væri mikilvægt
samstarfsríki ESB og rætt yrði á
næstunni hvernig haga mætti því
að evróið yrði tekið upp í Món-
akó.
EVRÓPA**
ESB-málið gegn dönsku stjórninni
Dómur í fyrsta lagi í marz
Kaupmannahöfn. Reuter.
DÖMSMÁLI hóps andstæðinga að-
ildar Danmerkur að Evrópusam-
bandinu gegn ríkisstjórninni mun
ljúka með dómi Hæstaréttar í fyrsta
lagi í marz á næsta ári, að sögn
lögmanns hópsins. Dönsk stjórnvöld
hafa lýst því yfir að þjóðaratkvæða-
greiðsla um hinn nýja Amsterdam-
sáttmála ESB verði ekki haldin fyrr
en að fenginni niðurstöðu í málinu.
ESB-andstæðingar stefna stjórn-
inni fyrir að hafa brotið stjórnar-
skrána með undirritun Maastricht-
sáttmálans á sínum tíma. Flestir
sérfræðingar telja að stjórnin muni
vinna málið.
Ný ríkissljórii
skipuð í Albaníu
Tirana. Reuter.
Leita
sönnunar-
gagna
LÖGREGLUMENN bera
plastpoka út úr húsbátnum
þar sem raðmorðinginn
Andrew Cunanan svipti sig
lífi í fyrradag. Lögreglan bar
burt sönnunargögn úr bátn-
um eftir að sérsveitarmenn
réðust til inngöngu i bátinn.
Cunanan var sá eini, sem
grunaður var um morðið á
tískuhönnuðinum Gianni
Versace, og auk þess var Cun-
anan grunaður um fjögur
önnur morð. Haft er eftir
embættismönnum að leit lög-
reglu að Cunanan sé ein um-
fangsmesta leit sem um getur
í Bandaríkjunum.
Nýkjörinn forseti Albaníu, Rexhep
Mejdani, samþykkti í gær nýja rík-
isstjórn undir forsæti formanns Sós-
íalistaflokksins, Fatos Nano.
Mejdani, sem er framkvæmda-
stjóri Sósíalistaflokksins, var kjör-
inn forseti af albanska þinginu á
fimmtudag. Hann átti samdægurs
fund með Nano og veitti honum
umboð til stjórnarmyndunar.
Arben Malaj verður fjármálaráð-
herra í hinni nýju ríkisstjórn, Pa-
skal Milo, formaður Sósíaldemó-
krataflokksins, verður utanríkis-
ráðherra, og Ylli Bufi verður ráð-
herra efnahagsmála, en hann var
forsætisráðherra í þjóðstjórninni
1991 til 1992. Neritan Ceka tekur
við embætti innanríkisráðherra, en
hans biður það erfiða verk að koma
aftur á friði og öryggi í landinu.
Að minnsta kosti þrír menn lét-
ust og sextán særðust þegar
sprengja sprakk í fjölbýlishúsi í
bænum Peshkopi í norðausturhluta
Albaníu í gær. Þrjár hæðir í bygg-
ingunni eyðilögðust og sex manna
er ennþá saknað. Orsökin er talin
vera sú að sprengiefni hafi verið
geymt í húsinu, en miklu magni af
sprengjum og vopnum var stolið úr
birgðageymslum hersins í óeirð-
unum í Albaníu fyrr á árinu.
Sprengja sprakk einnig á kaffi-
húsi í höfuðborginni Tirana fyrr í
vikunni, með þeim afleiðingum að
einn maður særðist. Albanir binda
miklar vonir við að nýju ríkisstjórn-
inni takist að koma á röð og reglu
í landinu.
Happaferigur
Veiðimannsins
1 Veiðimanninum, Hafnarstræti 5, færðu vandaðan veiði
útbúnaö og fatnaö til veiöimennsku eöa útivistar. Ef þú
verslar hjá Veiöimanninum færöu afhentan númeraöan
happdrættismiöa, merkir
þér miöann og skilur eftir
í lukkupotti í versluninni.
Dregiö veröur hálfsmánaöar-
lega fyrir hveijar tvær vikur
á undan, en allir miöamir
veröa svo meö í stóra
jólaútdrættinum. Heppinn
veiöimaöur fær góöan
happafeng úr versluninni
Veiöimanninum.
26. júii Fenwiek flugustöng
9. áqúst Ambassadeur 6600, laxveiðihjó! frá ABU Garcia
23. ágúst Berkley flugu- eða kaststöng
6. september Veiðistöng frá ABU Garcia
20. septcmber Vöðlur frá Ocean
4. október Goretex jakki frá Aigle
18. október Jakki frá John Partridge
l. nóvember Donegal peysa
15. nóvember Hardy hjól
29. nóvcmber Fluguhnýtingarsett og ABU Garcia fluguvciöihjól
13. desember Aigle gönguskór
27. desember Jólapakki: Hardy vöölujakki, ABU reykofn frá ABU Garcia og villibráöarkvöld fýrir tvo.
Opið i dag frá 10 til 18
Veiðimaðurinn hf. Hafnarstræti 5, sími 551*6760