Morgunblaðið - 26.07.1997, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrstu bresku aukakosningarnar eftir stjórnarskiptin
Blair gagnrýndur vegna
deilu um frambjóðanda
Uxbridge. Reuter.
Nýr
forseti
á Indlandi
KOCHERIL Raman Narayanan
sór í gær embættiseið forseta
Indlands eftir að hafa orðið fyrsti
maðurinn af lágstétt hindúa sem
kjörinn hefur verið þjóðhöfðingi
þessa fjölmennasta lýðræðisríkis
heims.
Forsetinn sagði í innsetningar-
ræðu sinni að Indverjar þyrftu
að taka höndum saman í barátt-
unni gegn því sem Mahatma
Gandhi, leiðtogi Indverja f sjálf-
stæðisbaráttunni, kallaði „spill-
ingarskollann".
Narayanan er 76 ára fyrrver-
andi stjórnarerindreki og tíundi
forseti Indlands. Hann er kominn
af fátækri fjölskyldu í suðurhluta
landsins og litið var á kjör hans
sem táknrænan sigur fyrir lág-
stéttimar, sem hafa reynt að
styrkja pólitíska stöðu sína til að
binda enda á aldagamla mismun-
un samkvæmt arfbundnu stétta-
kerfi hindúa.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sætir nú vaxandi gagnrýni
vegna deilu um val Verkamanna-
flokksins á þingmannsefni í fyrstu
aukakosningunum eftir kosningasig-
ur flokksins 1. maí.
Blair hélt í gær til kjördæmisins,
Uxbridge í vesturhluta London, þar
sem aukakosningamar fara fram á
fimmtudag, til að styðja frambjóð-
anda flokksins, Andrew Slaughter.
Verkamannaflokkurinn vonast til
þess að ná þingsætinu af íhalds-
mönnum, sem héldu því naumlega í
kosningunum 1. maí.
Michael Shrimpton, fyrrverandi
frambjóðandi flokksins, hafði sagt
sig úr flokknum vegna deilunnar og
gengið til liðs við íhaldsmenn. Hann
hafði stutt David Williams, sem var
í framboði fyrir Verkamannaflokkinn
í síðustu kosningum.
„Innan Verkamannaflokksins
hafa menn miklar áhyggjur af því...
hvemig flokksvélin hefur orðið mið-
stýrð og hunsað vilja flokksmanna í
kjördæmunum," sagði Shrimpton.
Áður hafði Brian Hudson sagt sig
úr borgarráði kjördæmisins vegna
deilunnar eftir að hafa setið í ráðinu
í mörg ár. Hermt er að allt að 30
atkvæðamiklir flokksmenn í kjör-
dæminu hafi neitað að taka þátt í
kosningabaráttu Slaughters.
Margir stuðningsmenn Verka-
mannaflokksins hafa sakað Blair um
að hafa fært völdin í hendur fá-
menns hóps ráðgjafa, sem ákveði
stefnuna án þess að hafa nægilegt
samráð við aðra, jafnvel þingmenn.
Boðað var til aukakosninganna
vegna andláts sir Michaels Shersby,
sem hélt þingsæti sínu í maí þótt
meirihlutinn hefði minnkað úr 13.179
atkvæðum í 724. John Randall, kaup-
maður í Uxbridge, er nú þingmanns-
efni íhaldsmanna.
Fréttaskýrendur segja að fari
Verkamannaflokkurinn með sigur af
hólmi í aukakosningunum sé það til
marks um að „hveitibrauðsdögum"
Blairs sé ekki lokið. Mjög sjaldgæft
er að breskur stjómarflokkur nái
þingsæti af stjórnarandstöðuflokki í
aukakosningum.
íhaldsflokkurinn hefur ekki farið
með sigur af hólmi í aukakosningum
frá því í febrúar 1989, þegar William
Hagne, nýkjörinn leiðtogi flokksins,
náði kjöri í Richmond í Yorkshire.
Reuter
Hun Sen seg-
ir ummæli
mistúlkuð
HUN SEN, forsætisráðherrann sem
fer með völdin í Kambódíu, neitaði
í gær að hafa boðið samtökum ríkja
í Suðaustur-Asíu, ASEAN, að hafa
forgöngu um að koma á sáttum
milli stríðandi fylkinga í landinu, og
sagði að yfirlýsingar sínar þar að
lútandi hefðu verið mistúlkaðar.
Hun Sen sagði að ASEAN gæti
aðeins stuðlað að friði í Kambódíu
með því að hindra afskipti erlendra
ríkja. í yfirlýsingu sem hann sendi
frá sér í gær segir að yfirvöld í
Kambódíu verði sjálf að takast á við
innanríkismál, í samræmi við stjórn-
arskrá landsins og friðarsamningana
frá 1991.
„Stjórnin fagnar því ef ASEAN
stuðlar að friði og stöðugleika í land-
inu, á grundvelli virðingar fyrir sjálf-
stæði og fullveldi þjóðarinnar, með
því að koma í veg fyrir að erlend
ríki skipti sér af innanríkismálum
Kambódíu", segir í yfirlýsingunni.
B-vítamín kann
að vinna gegn
kransæðastíflu
Æ STERKARI rök hníga að því að neysla
b-vítamíns dragi úr hættunni á kransæða-
stíflu. Ný norsk rannsókn, sem sagt er frá í
New England Journal of Medicine styður þetta
en hún leiddi í ljós að fjórum sinnum fleiri
sjúklingar með hátt hlutfall amínósýrunnar
homocystíns í blóði dóu á fimm árum en þeir
sem höfðu hana innan eðlilegra marka. Rann-
sóknir benda til þess að b-vítamínið fólsýra
lækki þetta hlutfall.
Guðmundur Þorgeirsson, hjartasérfræðing-
ur á Landspítalanum, segir þetta ekki ný
sannindi og að mörgum hjartasjúklingum
hafi verið gefin fólsýra, mælist homocystín-
hlutfallið hátt. Hins vegar sé slík mæling flók-
in og því ekki gerð á öllum sjúklingum.
Guðmundur segir sjónir lækna lengi hafa
beinst að homocystíni sem skaðvaldi og að æ
fleira bendi til þess að það skemmi æðaþel
slagæðakerfisins og stuðli að æðakölkun.
Ekki sé hins vegar fullvíst að b-vítamíngjöf
skili árangri. Ýmsir læknar séu þó á því og
sumir bandarískir hjartasérfræðingar með-
höndli alla sína sjúklinga með fólsýru, þar sem
hún sé ódýr og ekki sé vitað um skaðlegar
aukaverkanir. Ekki eru gefnir stórir skammt-
ar af vítamíninu. Vísindamenn í Björgvin í
Noregi hafa gert rannsóknir á áhrifum homoc-
ystíns í rúmlega áratug og þróuðu þeir m.a.
aðferð til að greina það. Fimm ára rannsókn
á 587 hjartasjúklingum leiddi í ljós að fjórum
sinnum fleiri af þeim sem höfðu hátt híutfall
amínósýrunnar í blóði dóu á þessu fimm ára
tímabili en þeim sem höfðu hana innan eðli-
legra marka. Segja norsku sérfræðingamir
að þetta kunni að skýra það hvers vegna fólk
með lágt kólesterólinnihald í blóði geti verið
hjartveikt. Ástæðan sé þá hátt hlutfall homoc-
ystíns.
Hlutfall amínósýrunnar er mun lægra hjá
þeim sem borða rnikið af grænmeti en hinum
sem neyta óhollustu. Reykingar og hreyfíng
hafí einnig áhrif á hlutfallið. Áhrifamesta
aðferðin til að lækka það virðist hins vegar
vera að taka fólsýru. Norsku læknamir vara
hjartasjúklinga hins vegar við því að taka
stóra skammta af b-vítamíni. Ekki sé fullsann-
að að homocystín sé orsök hjartasjúkdóma,
heldur kunni það að vera til marks um þá og
að hina raunverulegu ástæðu hás hlutfalls
þess kunni að vera að fínna annars staðar í
líkamanum.
Reuter
Uppblásið
„Draumrými“
SÉRSTÆÐUM uppblásnum skúlptúr eftir
listamanninn Maurice Agis hefur verið kom-
ið fyrir við Shepherds Bush Green I London.
Verkið ber nafnið „Draumrými“ ogþeim sem
skoða það er ráðlagt að klæðast litskrúðug-
um samfestingum og hlusta á draumkennda
tónlist á meðan. Á myndinni sést aðstoðar-
maður listamannsins virða fyrir sér marglita
ranghalana.
STUTT
Róttæk
uppstokk-
un í stj órn
Ukraínu
LEONÍD Kútsjma, forseti
Úkraínu, kynnti í gær róttæka
uppstokkun í stjórn landsins
eftir að hafa skipað nýjan for-
sætisráðherra. Skipt var um
ráðherra efnahags-, landbún-
aðar-, orku-, kolavinnslu- og
iðnaðarmála, eða í þeim mála-
flokkum þar sem stefnt er að
róttækum umbótum. Vamar-,
innanríkis- og fjármálaráð-
herramir héldu hins vegar
embættum sínum.
Hvalveiðum
lokið
HVALVEIÐIVERÐTÍÐ Norð-
manna lauk í gær og norska
sjávarútvegsráðuneytið sagði
að 503 hrefnur hefðu verið
veiddar í ár. Stjórnin hafði
heimilað veiðar á 580 hrefnum
en ekki tókst að nýta allan
kvótann vegna slæms veðurs.
31 skip tók þátt í veiðunum
og fékk hvert þeirra að veiða
í sex vikur á vertíðinni.
Bamavændis-
mál rannsakað
NORSKA herlögreglan hefur
hafíð rannsókn vegna ásakana
um að norskir hermenn, sem
störfuðu á vegum Sameinuðu
þjóðanna, hafí haft samfarir
við stúlkur undir lögaldri í
Angóla. Rannsóknamefndin
hyggst yfírheyra alla norsku
hermennina, sem störfuðu í
Angóla á ámnum 1992-94.
Ákveðið var að hefja rann-
sóknina eftir að norski blaða-
maðurinn Tom Kristiansen
sagðist hafa orðið vitni að því
að norskir friðargæsluliðar
hefðu leitað til vændiskvenna,
m.a. stúlkna undir lögaldri.
Smyrsl gegn
húðkrabba
DANSKIR vísindamenn sögð-
ust í gær hafa þróað smyrsl
sem tefði myndun húðkrabba-
meins í tilraunamúsum. Þeir
kváðust vongóðir um að menn
gætu brátt notað smyrslið.
Nasistar á
bankalista?
SVISSNESKIR bankar hafa
birt lista yfír skráða eigendur
um 1.800 bankareikninga,
sem legið hafa óhreyfðir frá
stríðsámnum, til að gera gyð-
ingum kleift að gera tilkall til
þeirra. Samtök gyðinga hafa
sagt að nasistar kunni að hafa
stofnað nokkra þessara reikn-
inga en svissnesku bankarnir
sögðu í gær að gerðar hefðu
verið ráðstafanir til þess að
stríðsglæpamenn gætu ekki
tekið út peningana.
Á bankareikingunum eru
alls 61 milljón svissneskra
franka, andvirði 2,9 milljarða
króna, en bankarnir vildu ekki
svara því hversu mikið fé væri
á þeim reikningum sem nas-
istar gætu hafa stofnað.