Morgunblaðið - 26.07.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.07.1997, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Hann heHi- ar aiia upp úr shánum Anna Mjöll Ólafsdóttir er nú á tónleika- ferðalagi um heiminn með hinum heims- fræga söngvara Julio Iglesias, en hún hafði áður verið valin úr hópi hundrað kvenna til að syngja með söngvaranum á tónleikum í Las Vegas í maí síðastliðnum. Kristrún M. Heiðberg ræddi við Önnu Mjöll um ferðina og kynni hennar af söngvaranum og hjartaknúsaranum víðfræga. ANNA Mjöll Ólafsdóttir tek- ur nú þátt í heimsreisu með hinum þekkta söngvara Julio Iglesias. Eins og marga rekur eflaust minni til var Anna Mjöll val- in úr hópi rúmlega hundrað kvenna til að syngja með Julio á nokkrum tónleikum í Las Vegas í maí sl. I kjölfar þess var henni síðan boðið að taka þátt í heimsreisunni ásamt annarri söngkonu, sem er frá Bandaríkjunum. „Þetta er búið að vera æðislegt í einu orði sagt,“ sagði Anna Mjöll þegar greinarhöfundur hitti hana að máli þegar hún gerði stuttan stans hér á landi fyrir skömmu. „Julio er allt öðruvísi týpa en ég hafði gert mér í hugarlund. Hann hefur mikinn klassa og er með gálgahúmor eins og við Islending- ar. Ég hafði aldrei hugsað neitt mikið um Julio Iglesias og því ekki myndað mér neina skoðun á hon- um, en ég dáist að þessum manni. Hann er mjög „professional“, vinnur mikið og veit hvað hann vill.“ - En er Julio eins mikill sjarmör og af er látið? „Já, og jafnvel meiri. Það er eng- in leið að falla ekki fyrir manninum. Og að sjá konumar á tónleikum hjá honum, það er alltaf hópur af kon- um fremst og það þarf að bera sum- ar þeirra út. Hann heillar alla upp úr skónum og veit alveg hvað hann á að segja og hvernig hann á að vera. Hann kallar mig alltaf AMÓ, sem eru upphafsstafimir mínir. Julio finnst mjög flott að ég skuli vera frá Islandi og á hverri einustu sýningu þegar hann kynnir mig segir hann: „Hún er frá íslandi, Reykjavík“.“ Heimsreisan, sem nefnist Tango Tour eftir nýjasta geisladiski Julio, hófst í Los Angel- es í júní sl. og síðan var haldið til helstu borga Bandaríkjanna og Kanada. Undanfamar vikur hafa síðan verið haldnir tónleikar á Spáni, m.a. í Valencia, Barcelona, Madrid, Pamplona og Sevilla. „Julio er tilbeðinn á Spáni og þar er sennilega hans stærsti aðdáenda- hópur. Að sjá um þrjátíu þúsund manns úti í sal gjörsamlega um- tumast yfir þessum manni er hreint út sagt ótrúlegt. Hann er svo vinsæll að þegar við keyrum í gegn- um mannfjöldann í lögreglufylgd, lemur fólkið í bílana. Aðstoðarkona Julios segir þá gjaman: „Stelpur, brosið og vinkið og verið almenni- legar við fólkið því annars getur það orðið hættulegt...“ Var stressuð í byrjun Að sögn Önnu Mjallar var Julio lengi búinn að leita eftir réttum söngkonum til að syngja með sér en hann setti það sem skilyrði að hafa eina svarta söngkonu og eina Ijóshærða. Sú svarta var valin í fyrra og heitir Wendy. „Ég veit ekki hvers vegna hann setti þessi skilyrði. Þetta var bara hugmynd sem honum fannst sniðug. Síðan er núna ein ný komin í viðbót og hún er kynblendingur. En hún verður bara með í stuttan tíma. Samstarfíð við Wendy hefur geng- ið vel og okkur kemur mjög vel saman. Við emm stundum eins og tvíburar, við hugsum eins og klæð- um okkur eins. Hún er alveg ótrú- leg, syngur eins og Whitney Houston. Tango Tour prógrammið stendur yfir í um tvær klukkustundir og eru áhorfendur oft 20-30 þúsund tals- ins. Þetta er rosalegur áhorfenda- fjöldi og mikil lífsreynsla. Samt finnst mér núna auðveldara að syngja fyrir framan allan þennan fjölda en að syngja t.d. á Kringlu- kránni, eins skrítið og það nú hljómar," segir Anna Mjöll og hlær. „Sú tilfinning að syngja fyrir framan svona margt fólk er svo yf- irþyrmandi að það er eiginlega komið yfir það að vera stress, þetta er mjög skrítið og ég hefði aldrei trúað þessu. Ég var hins vegar afar stressuð á fyrstu tónleikunum í Las Vegas áður en heimsreisan kom tíl. Á einum tónleikunum fór ég t.d. að finna blóðbragð í munninum áður en ég byijaði. I annað skiptið sat ég og var að bíða eftir dúettinum og þegar ég stóð upp, þá svimaði mig svo mikið að ég gat varla staðið. Þetta er áreynsla, en maður verður bara að halda áfram þegar svona kemur fyrir, það er ekkert annað að gera. Þegar ég söng fyrst með Julio í áheyrnarprófinu á Miami, var ég búin að vanda mig mjög mikið við að læra tiltekinn dúett. Við vorum á risastóru sviði og ég var að drepast úr stressi. Julio starði í augun á mér allan tímann og ég þurfti að hafa mig alla við til að muna textann, ásamt því að þykjast vera voða köld og horfa á hann í leiðinni. Síðan byrjaði hann allt í einu á að grípa í mig og hvíslaði á milli: „Haltu utan um mig.“ Hann reyndi að trufla mig allan tímann á meðan ég var að syn- gja og þá eingöngu til að athuga hvort einbeitingin hjá mér væri í lagi. Þetta var mjög skrítið en hann þarf að vera viss um að maður fari ekki úr jafnvægi. En þetta gekk allt einhvem veginn og síðan kyssti hann mig þegar dúettinn var búinn. Julio er mjög ákveðinn og veit hvað hann vill fá á æfingum. En ég held líka að maður í hans stöðu þurfi að vita hvað hann vill.“ / einkaþatu til Ibisa Anna Mjöll segir Julio þægileg- an í viðmóti, fyndinn og skemmti- legan, jafnframt sé hann óútreikn- anlegur. „Hann bauð okkur Wendy eitt sinn í mat þegar við í grænni draumalautu DRAUMSTAFIR Kristjáns Frfmanns NÚ í hásumrinu þegar græni litur- inn göfgar landið mætti ætla að draumar fólks yrðu grænleitari en á öðrum tímum en svo er ekki nema í tilvikum. Draumamir litast þó af sumrinu í öðmm skilningi sem sagt rósemi; þá eiga flestir frí, slappa af og draumamir fá meiri ítök í dreymandanum en í amstri hvers- dagsins. Þar með dreymir fólk meira eða það man betur drauma sína og mikilvægir draumar setja sig í stellingar og bjóða til veislu í höll draumalandsins þar sem akrar eru grænir og greinar draumatrján- na svigna undan þroskuðum græn- um skilaboðum. Þessi skilaboð geta verið af mörgum toga, svo sem að þú sért grænn og þar með óþrosk- aður andlega eða líkamlega, eða grænn og látir auðveldlega blekkj- ast, eða grænn og dómgreindarlítill á aðstæður. Þar sem græni liturinn er litur æskunnar geta skilaboðin verið á þeim nótum að viðkomandi hafi ómótaðar skoðanir eða sé ný- græðingur í málum sér eldri svo sem ástamálum. En eldri og þroskaðri dreymendur ganga oft með grasið í skónum í draumum sínum um akra ástarinnar með ein- hvem grænan lim eða ftjóanga sér til halds og trausts. Græni liturinn hefur sem draumlitur ólíkar merk- ingar eftir Ijósmagni og blöndun sinni við aðra liti. Ljósir grænir litir tengjast oft léttvigtarmálum svo sem ýmsu dægurþrasi en líka rógi og öfund. Þó geta þeir verið rósem- in uppmáluð í feluleikjalit sínum. Verði græni liturinn mettaður og þéttur eins og litur skógarins þá ber hann með draumi sír.um skila- boð vaxtar í einhverri mynd og í þéttum runnum draumsins er kjami lífsins geymdur. En undnar rætur og vafningsviður getur flækt málið og knúið menn til að hugsa sinn gang. Skærgrænn litur er frjó- samur og lofar góðu fyrir elskendur en fái græni ástarbríminn á sig gul- leitann blæ eða myntulegan eru átök framundan, öfund og baktal. Slái græna litnum yfir í blátt er von á rólegum stundum með íhugun, lestri góðra bóka eða öðrum skap- andi athöfnum. Þá má ekki gleyma að liturinn hvetur til framfara og hjá Kínveijum er hann tákn „mik- illa afreka“ þó óperuhefðin kín- verska tali um grænar persónur sem ofbeldisfullar en það getur tengst úrgömlu minni frá frumtíma. Græni liturinn er því liturinn sem ýtir á undan sér draumum til fram- fara í hugsun, vísindum og listum, hann leggur mönnum fræ draums- ins til skilnings á eðli ímyndunar- innar, virkjun innsæisins til góðra verka og því getur hann verið drey- mendum grænt Ijós á réttan tíma, réttan stað og stund þeirra merku atburða sem græni liturinn lofar. Draumar lesenda í stuttum draumi „Bangsa" eru opinber mál á dagskrá og tengsl við pólitísk öfl. En draumur „Irju“ er mjög persónulegur og tengist henni einni. „Bangsa“ dreymir „Mig dreymdi að ég var staddur í húsi við Bergstaðastíginn. Ég var mjög vel klæddur og ásamt mér var þar staddur forætisráðherra ís- lands. Ég vissi af konu hans nálægt en sá hana ekki. Davíð var í góðum fótum en ekki eins fínn og ég. Við vorum í anddyrinu ferðbúnir að yf- irgefa húsið. Einhvernveginn gerð- ist það að ég varð fljótari út, stað- ráðinn í að ganga Bergstaðastíginn niður í bæ og taka þar strætisvagn heim. Þegar ég var kominn yfir Hellusundið leit ég til baka og sá Davíð koma og hélt þá að hann vildi verða mér samferða en þegar hann kom að Hellusundinu beygði hann inn í það og sá ég hann ganga það á enda. Ég rölti af stað gangandi Bergstaðastíginn". Ráðning Draumurinn bendir til að þið Da- víð hafi nokkuð líkar skoðanir á þjóðmálum (húsið við Berg (stöðu- leiki) staðastíginn) og pólitík al- mennt (klæðnaður ykkar) en í ein- hveiju mikilvægu máli skilja leiðir ykkar, þú heldur Bergstaðastíginn (fylgir sannfæringu þinni) en Davíð velur aðra leið en þú ætlaðir, hann beygir inn Hellusundið. Hér gæti Hellusundið táknað sundið milli Eyjahafs og Marmarahafs sem skilur Evrópu frá austurlöndum nær. Líklega er því um að ræða málefni Evrópu eða Israels og Pa- lestínu. Draumur „lrju“ „Mig dreymdi haf og strönd. Hafið var stórt og dimmt. Ég var kafari. Ég heyrði stöðugt rödd fréttamanns (konu). Hún og ég vor- um að leita að skrímsli sem fólk hafði séð í sjónum við ströndina. Önnur kona var að segja mér að hún hefði hitt skrímslið. Hún hafði verið að kafa þegar hún allt í einu heyrði rödd látinnar systur sinnar fyrir neðan og gat ekki hreyft sig. Systirin hafði sagt að hún myndi eftir henni og vakti yfir henni og vildi að hún kæmi með sér. Skrímslið var alltaf að skipta um ham; var annað hvort lítill hákarl eða aðlaðandi kona með sítt ljóst hár. Þegar ég var að kafa sá ég blóð allt í kring um mig og hálfétna fiska sem enn lifðu og reyndu að synda en gátu ekki. Allt í einu sá ég hákarl fyrir framan mig, ég var svo reið vegna fiskanna að ég ætlaði að ráðast á skrímslið. Þá dregur allt í einu ungur maður (strákur sem ég var með) mig upp úr vatninu. Hann var „atvinnu-skrímslafræðingur" og samstarfsmaður minn. Við vor- um líka líffræðingar og sáum skrímslið sem eitthvað nýtt og spennandi fyrirbæri sem við yrðum að kanna til mergjar. Vatnið nær okkur bara í hné er hann dregur mig upp. Hann er að útskýra fyrir lögreglumönnum nýtt net sem hann hafði búið til. Ég vildi fara aftur í sjóinn en hann leyfði það ■dx Mynd/Kristján Kristjánsson SAÐ til grænna drauma. L

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.